Ísafold - 12.11.1890, Page 1
Kemur út i miðvikudögum og.
iaugardögum. Verð árgangsins
(lO^arka) 4 kr.; erlendis 5 kr
Borgist fyrir miðjan júlímánuð
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin v ð
iramót, ógild nema komin sje
til útgefanda fyrir I.okt. Af-
greiðslust. i Austurstrcéti 8.
XVII 91
Reykjavík, miðvikuda§inn 12. nóv.
1890
Póstvegurinn í Árnessýslu.
Grein með þessari yfirskrift, eptir einhvern
vm. g.s, stendur 1 73. tölublaði ísafoldar þ. á.
jþegar jeg las hana, duttu mjer i hug orð Sárns
við jporkel lepp ; »Heilráður muntu okkur
vera; en ekki sýnist mjer þetta ráðlegt!«. Jeg
vil ekki efa, að *m. g.« gangi gott til með til-
lögu sína; en mjer sýnist hún samt engan veg-
inn ráðleg. Finn jeg mjer skylt, að sýna
það í stuttu máli.
|>að er eins og »m. g.« gjöri ráð fyrir því
eins og sjálfsögðu, að aldrei komi brú á
jþjórsá ; hann forðast að nefna þá brú á nafn.
Og það er eins og hann sje ánægður með að
Eangárvallasýsla fái engar samgöngubætur —
þó henni sje gjört að skyldu, að bera Öífus-
árbrúar-kostnaðinn með Árnessýslu,—og hljóti
um aldur og æfi að sætta sig við Sandhóla-
ferju, Nesferju og Króksferju til að komast
yfir |>jórsá, sem svo opt eru þó illfærar eða
ófærar, og margfalt verri en ferjurnar yfir
Ölfusá, sem bæði póstar og aðrir ferðamenn
munu þó verða fegnir að losna við. En til
allrar hamingju liggur það í augum uppi, að
alþingi héfir, með því að leggja Ölfusárbrúar-
kostnaðinn 4 Bangæinga, siðferðislega skuld-
bundið sig til að láta á sama hátt brúa f>jórsá;
og er engin ástæða til að efast um, að þeirri
skuldbindingu verði fullnægt svo fljótt sem
unnt er. Og þá er heldur engin ástæða til
að ætla, að aðalpóstvegur verði lagður ann-
arsstaðar en yfir brýrnar á báðuin ánum.
Og ef pósturinn ætti samt að koma við á
Eyrarbakka, yrði hann að fara nál. 3 mílna
krók. En »m. g.« vill nú slá því föstu fyrir
fram, að póstur skuli ávallt vera neyddur til
að slarka yfir um á Sandhólaferju, hvernig
sem á stendur ; en gengi slíkt fram, mætti
búast við, að það drægi ínjög úr áhuga þings-
ins á því, að koma brúnni á jpjórsá, og gæti
það orðið þessu velferðarmáli til mesta hnekk-
is, er kæmi mjög ranglátlega niður á Eangæ-
ingum.
Hr. *m. g.« talar um veg yfir «þveran Flo-
ann«, er eigi sje notaður af öðrum en Flóa-
imönnum sjálfum og af hrossa- og sauða-
kaupmönnum ; allt óselt fje sje rekið um
Eyrarbakka. f>að hafi ekki tekizt, að sam-
■eina póstveg og alfaraveg í Flóanum, og að
'þessi vegur verði aldrei almennt notaður.
Hið sanna er, að báðir brúarstaðirnir eru
af náttúrunni tilreiddir þar, sem hentast get-
ur verið til þess, að vegunnn milli þeirra
verði að sem almennustum uotum, svo að
þar sameinast póstvegur og alfaravegur svo
vel, sem nokkursstaðar getur verið. þetta er
einmitt sami vegurinn sem nú er milli Króks-
ferju í Holtum og Laugardæla. Ilanu ligg-
ur ekki »þvert yfir Flóann«, heldur skáhalt
eptir honum til vesturs. Hann er nú þegar ein-
hver fjölfarnasti vegur urn sýsluna. þeir
sem fara til Beykjavíkur, Hafnaríjarðar eða
til hvers staðar sem er í Gullbringusýslu,
til aðdrátta, og fara yfir Ölfusá á Laugar-
dælaferju, þeir fara þenna veg; Eangæingar,
sem fara yfir þjórsá á Króksferju, fara hann
■allan, Hreppamenn hvorirtveggja, Skeiða-
menn og þeir Eangæingar, sem fara yfir
þjórsá á Hrosshyl eða Nautavaði, koma á
þennan veg hjá Bitru, og fara hann þaðan
til Laugardæla. Eekstrar af nseldu fje fara
hann líka, og það seinast f haust að tals-
verðum muu. Fje verður eigi eins sárfætt
þar sem graslendi er, eins og í sandinum
með sjónum. Ef tillögu «m. g.« væri fylgt,
að leggja þenna veg niður, þá væri allir
þessir neyddir til að fara 2—3 mílna krók
ofan á Eyrarbakka, og það væri slæmur við-
auki við erfiðleika langferðanna, — ekki einu
sinni tilvinnandi til þess, að geta fengið sjer
»neðan í því« á Eyrarbakka um leið !!
Hefði »m. g.« verið nógu kunnugur, þá
hefði hann sagt, að Ölfusárbrúin yrði ekki
að almepnum notum, netna vegurinn austur
frá henni komist í gott lag. En »m. g.«
hefir víst villzt á því, að til brdðabyrgða,
þangað til búið er að brúa þjórsá, er sú
ráðstöfun gjör, að póstur fari út af þessum
vegi hjá Neistastöðum, og yfir til Sandhóla-
ferju. En á þeim vegarkafla dettur engurn
kunnugum manni í hug að landssjóður kosti
vegargerð. það er að eins á þeim hlutanum,
sem á að verða bæði póstvegur og alfaraveg-
ur eptir sem áður, þó brúin komi á, að lands-
sjóður kostar vegagerðir að svo stöddu.
Hvort legu þess vegar má breyta til batn-
aðar á einurn eða öðrutn stað, kemur eigi
þessu tnáli við ; það verða vegfræðingar að
ákveða. Meðan ekki er annað hægt, verður
það auðvitað svo að vera, að póstur og aðrir
ferðamenn sjeu buuduir við að nota ferjurnar
á þjórsá ; en ef »m. g.« vissi, hve opt ferða-
menn, og póstar stundum líka, hafa fengið
þar tafir, hrakning og jafnvel skaða, auk
þess sem það er opt ill meðferð á skepnum,
þá mundi honum þykja mál komið, að breyta
slíku til batnaðar. þar á mót hefir það ekki
komið fyrir nema alls einu sinni á 17 árum,
að póstur tepptist 1 dag í Hraungerði af ár-
flóði úr Hvítá, og þá var Hraunsá á Eyrar-
bakka líka ófær af sama flóði, svo póstur hefði
fengið sömu töf,þó póstvegurinn hefði legið um
Eyrarbakka. Nú er búið að hlaða fyrir Hvítá.
það er eins og »m. g.« hafi verið ókunnugt um
allt þetta.
Skoðum nú líka ástæðurnar, sem «m. g.» tel-
ur því til gildis að leggja póst.veginn um Eyr-
arbakka;
Hann bendir til, að það sje hagur fyrir
landssjóð, að taka hjer við af sýsluvegasjóðn-
um, þar sem vegina til Eyrarbakka vanti uú
ekki nema herzlumuninn. Hann verður nú
raunar drjúgur enn. Og svo þarf líka að
hækka laun póstsins, ef lengja skal leið hans
allt að hálfri þingmannaleið; «m. g.»segirþað
«muni litlu;» hann kallar ekki allt mikið.
Hægðaraukann við það, að taka af sjer
krók og fara beint frá þjórsá fyrir framan
Sandhólaferju austur að Odda eftir ísnum
gæti hann svo sjaldan notað, að það bætti
ekki upp aðra örðugleika, þó hann mœtti nota
það. En það má hann ekki; hann verður að
koma við á brjefhirðingastaðnum, það er að
segja: fara sömu leið og vant er, þó hjarn
sje.
En hafi nú landssjóður samt hag af skipt-
unum, þá hefir sýsluvegasjóður að sama skapi
óhag af þeim. þá yrði ekki komizt hjá því,
að gjöra veginn frá Ölfusárbrúnni austur að
Króksferju eða þjórsárbrúnni að sýsluvegi; að
leggja hann niður, eða jafnvel gera hann að
hreppavegi, er súráðleysa, sem engu tali tek-
ur. En svo mikið er ógjört að þessum vegi,
að sýsluvegasjóðnum verður ofvaxið að hafa
hann góðan, nema aðrir sýsluvegir sjeu hafð-
ir út undan; en það má engan veginn. All-
ar vegagjörðir í sýslunni hafa hingað til ver-
ið mjög ófullkomnar, því fjeð hefir vantað,
og vantar víst lengst. Vegasjóðurinn í stór-
skuld, vegna Melabrúarinnar, og hún þó enn
lítt á sig komin, og svo er víða. það væri
því beint niðurdrep fyrir samgöngur í þéssari
sýslu, að íþyngja vegasjóðnum.
Lítum einnig til Eangárvallasýslu: gjörum
ráð fyrir, að póstvegur verði látinn liggja að
Sandhólaferju utn aldur og æfi, en að þjórsá
verði samt brúuð; þá yrði að leggja sýsluveg
frá henni austur yfir Holtin, og hann yrði
sýsluvegasjóðnum einkum erviður; en liggi
póstvegur frá brúnni austur yfir Holtin, verð-
ur hægra við að gera fyrir Eangæinga.
Að Eyrarbakki verði miðdepill alls sam-
göngu- og viðskiptalífs í neðri hluta sýslunnar
er gott og blessað; en þó sjer í lagi fyrir
Eyrarbakka sjálfan. En betra er að hafa
samt dálítið víðara sjónarsvið, þegar maður
vill koma með tillögur um almenn mál. En
auk þess er það mjög þýðingailítið fyrir Eyr-
arbakka, hvort aðalpóstur kemur þar eða éigi.
þaðan má jafnan senda brjef borgunarlaust
með ýmsum ferðum; þar á meðal hlýtur
sendimaður frá Eeykjavík jafnan að ganga
þangað og þaðan aptur, er póstskip kemur,
hvað sem landpósti líður. Eyrarbakkamenn
þurfa því mjög lítið á pósti að halda. En þó
opt sjeu ferðir af Eyrarbakka, þyrfti samt
aukapósta, og þeir yrði ekki ódýrari 2 frá
Eyrarbakka en 3 frá Hraungerði. En lausa-
ferðirnar kæmi samt í góðar þarfir, ef Gull-
bringusýslupóstferðin yrði lengd af Suðurnesj-
um austur með sjó til Eyrarbakka; því þó
aðalpóststöð væri þar, gæti sá póstur hvorki
náð í aðalpóst nje aukapósta, sem þaðan
gengi, og yrðu lausu ferðiruar að bæta það
upp. það gætu þær líka.
þar á móti má ekki senda verðmætar póst-
sendingar frá aðalpóststöð með lausaferðum;
það má ekki einu sinni með aukapóstum,
heldur verða hlutaðeigendur sjálfir að vitja
þeirra og kvitta fyrir þær. Og þá er ólíkt
hægra fyrir uppsveitamenn að vitja þeirra að
Hraungerði en alla leið ofan á Eyrarbakka,
þegar ekki hittist svo á, að þeir eigi þangað
erindi á sama tíma, sem sjaldan þarf að gera
ráð fynr nema haust og vor, en sízt um slátt-
inn eða í skammdeginu, en þá er þeim til-
finnanlegast að vegalengin sje aukin. Að
vísu væri það að sama skapi hægðarauki fyr-
ir Eyrarbakkamenn; en jafnrjettis þarf að
gæta í þessu sem öðru. Og það má ganga
að því vísu, að slíkar sendingar með pósti
sjeu þeim mun meiri til uppsveita en til Eyr-
arbakka, sem aðrar milliferðir eru tíðarimilli