Ísafold - 03.02.1892, Page 4
40
B 1 ö ð i n
»Illustreret Familie-Journal«
Og
»Norðstjernen«
kostar hvert um sig 5 kr. í Reykjavík.
Burðargjald með póstum frá Rvík undir
í’am. Journal er kr. 2,25, en undir Nord-
ístjernen kr. 1,89 um árið, er kaupendur út
’um land verða að borga auk andvirðis blað-
anna. Lexikon það, er fylgir »FamiIie Journ-
al« kostar 5 aura beptið, .eða kr. 2,60 um
árið. f>eir sem fá það sent með póstum,
verða að borga burðargjald undir það frá
Rvík eptir reikningi.
þeir, sem eru áskrifendur að blöðum þess-
um bjá mjer, eru vinsamlega beðnir að
senda borgun fyrir þau og burðargjald sam-
kvæmt áður sögðu, eigi síður en í júnímán.
næstkomandi.
Öll önnur útlend blöð, sem pöntuð eru
hjá mjer, verða að borgast á sama tíma á-
•samt burðargjaldi frá Reykjavík.
Uppsögn blaða hjá mjer er ógild, nema
skrifleg og með missiris fyrirvara frá þeim,
sem búa langt burtu.
Sigfús Eymnndsson.
Nýkomið með »Laura«
í verzlun Byþórs Felixsonar
kartöflur, epli, apelssínur, oturskinnshúfur
og ýmislegt fleira.
Búnaðaríjelag Suðuramtsins-
Fyrri ársfundur fjelagsíns verður baldinn
miðvikudag 10. þ. m. íd. 5 e. h. í Barna-
skólahúsinu. Verður þar lagður fram reikn-
ingur fjelagsins fyrir árið 1891 og rædd
önnur málefni fjelagsins.
Reykjavlk 3. febrúar 1892.
H. Kr. Friðriksson.
ALVEG NÝTT! harmoníum
er til sölu nú strax. Ritstjóri vísar á.
Að fengnu leyfi amtmannsins yfir Suður-
amtinu er áformað, að halda á komandi
sumri tombólu og verja ágóðanum til þess
að kaupa fyrir orgel eða Harmonium fyrir
Saurbæjarkirkju á Hvalfjarðarströnd. Fyrir
því leyfum við oss, að fara þess á leit við
veglynda menn nær og fjær, að styrkja
þetta fyrirtæki með því að gefa til tombólu
þessarar muni, sem þegnir verða með þökk-
um, hvort sem þeir eru smáir eða stórir.
Gjöfum til tombólunnar ve.ur hver af oss
undirskrifuðum móttöku og í lieykjavík hef-
ur kaupm. þ>orl. 0. Jobnson lofað að veita
móttöku þeim munum, er þar kynnu að
koma.
Hvalfjarðarstrandarhreppi iiO. j8n. 189si.
Jón Sigurðsson
Kalastaðakoti.
Bjarni Jónsson
Vestra-Miðfelli.
Bjarni
Bjarni Loptsson
Brekku.
porkell porláksson
þyrli.
Bjarnason
Stóra-tíotni.
TIL KAUPS fæst nýiegt og vel útreitt sex-
raannafar, gegn borgun í peningum eða vörum.
Semjamá við Jónþórðarson á Hliði á Álptanesi.
TAPAZT hefir járnbrúsi (o: 20 pt.) á veginum
frá Elliðaánum til húss emeritprests síra Stefáns
Thórarensen í Reykjavík. Finnandi skili brús-
anum til tíened. járnsm. Samsonss. í Skálholts-
koti gegn sanngjarnri þóknun.
Proclama,
Eptir lögum 12. apríl 1878 sbr. o. br. 4.
jan. 1861 er hjermeð skorað á alla þá, sem
til skulda telja í fjelagsbúi Eyjólfs Jónsson-
ar á Katrínarstöðum í Garðahverfi og dáinn-
ar konu hans Ingibjargar pórarinsdóttur, að
lýsa kröfum sínum og sanna þcer fyrir skipta-
ráðanda hjer í sýslu innan 6 mánaða frá síð-
ustu birtingu auglýsingar þessarar.
Skrifstofu Kjósar- og Gullbr.sýslu 2tí. jan. 1892.
Franz Siemsen.
TAPAZT hefur bók á Vesturgötu. Finnandi
er beðinn að skila á afgreiðslustofu Isafoldar.
Skrifstofa fyrir almenning
10 Kirkjustrœti 10
opin hvern rúmhelgan dag kl 4— 5 e* *
Gafuskip sunnanlands
til Austfjarða í júni 1892.
Sjómeuu, verkmeuu á suðurlandi, sem
hugsa til að fara í vinnu til Austfjarða í
sumar, geta, ef þeir vilja gjöra fjelagaskap,
líkt og bent er á í »Sæbjörg«, 2. blaði
»febrúar«, fengið góða samninga um far
austur, með nýju og góðu gufuskipi, hálfu
stærra en »Vaagen«, fyrri part júnímánað-
ar í vor. For&töðumenn geta fengið nán-
ari upplýsingar bjá síra O. V. Gfslasyni
á Stað í Grindavík.
Á næstliðnu hausti var rajer dregið geldings-
lamb með mínu marki sýlt biti aptan hægra;
sýft biti aptan vinstra. þetta lamb á jeg ekki;
má því rjettur eigandi vitja til min andvirðis
þess að frádregnum áföllnum kostnaði, ef haun
gjörir það fyrir næstu fardaga og semur um
markbreytingu.
Djúpadal í ttufudalshreppi 26. des. 1891.
A ndrjes Sigurðss on.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. 1___g
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. 12_____2
Landsbókasafnið opið hvern rómhelgan dag kl.12_2
útlán md„ mvd. og Id. kl. 2-8
Málþráðarstöðvar opnar i Rvik og Hafnarf. hvern
rúmheigan dag kl. 8—9, 10—2 og 3_____5.
Söfnunarsjóðurinn opinn I. mánud. i
hverjum mánuðf kl. 6—6
Veðurathuganir í R.vík, eptir Dr. J. Jónassen
Hiti Loptþ .mæi.
jan. (á Celsius) (millimet.) Veðurátt.
íebr. á nótt. um hd. fm. em. fm. I em.
Ld. 30. ■— 4 5 749.3 701.8 0 b |A h b
Sd. 31. -r- 8 3 741.7 736.6 Nahvd N hv d
Md. 1 -r-10 « 744.2 744,2 N hvb N livd
þd. 2 -L 6 5 749.3 749.3 0 b 0 b
Mvd. 3 Ll3 749.3 Na h b
Hinn 30. var hjer logn og fagurt veður all-
an fyrri part dags, hægur austankaldi síðari
partinn; h. 31. á landnorðan með moldviðris-
byl, gekk til norðus og birti upp eptir hádeg-
ið, nokkuð hvass, og hvass á norðan h. l.,með
ofanfjúki um kvöldið; logn og fagurt veður
(norður til djúpa bvass) hjer allan dagínn h. 2.
I morgun (3.) landnorðan-gola, bjart veður.
RitBtjóri Björn Jónsson cand. phil.
Frentsmiðja ísafoldar.
38
»|>að eruð þá þið!« sagði barónsfrúin í glaðlegum róm,
■er auðvitað var uppgerð; en óðar þutu tveir af illvirkjunum
þangað, er hún stóð. »|>að eruð þá þið. Lengi hefi jeg þráð
komu ykkar og þótt alllangt að bíða«. — »f>ráð komu okkar?
Yið hvað eigið þjer?« æpti einn morðingjanna, alveg forviða,
en þó ætlaði bann eigi að biða svars, og reiddi til höggs og
stefndi vopninu í höfuð henni. |>á greip einhvér fjelagi hans
í handlegg honum, stöðvaði höggið og mælti: »Dokaðu ögn
við, lagsmaður! J>að er jafngott að heyra fyrst, hvað henni
er niðri fyrir«. »Hvað mjer er niðri fyrir?« sagði barónsfrúin
*Mjer er eigi annað niðri fyrir en ykkur, að för ykkar verði
sem fjesömust. Jeg hefi lengi þráð þessa stund, og ykkur
mun sannarlega ekki iðra þess, þótt þið hafið ofurlitla bið-
lund, unz jeg fæ sagt ykkur frá því, er mjer er í mun að
segja«.
»Segið það þá« hrópaði ræningjasveitin, er hnappazt hafði
utan um hana, svo sem með einum munni. »Og segið það
fljótt«, öskraði sá þeirra, er einna var illmannlegastur. »En
verið eigi svo heimskar að hyggja, að við látum vjelast af
yður, eða að þjer með romsi yðar fáið talið okkur hughvarf,
og eigi þurfið þjer að vænta, að geta borgið yður þar með«. —
»Um það geri jeg mjer þó miklar vonir«, kvað hún, »ef þið
verðið svo góðir, að veita mjer málfrelsi litla stund«.
»Maðurinn minn er auðugastur höfðingi í öllu ríkinu, en
engu að síður ér jég hin mesta ólánskona, er hugsazt getur,
Hann er hinn andstyggilegasti og argasti fjeníðingur, er nokk-
urn tíma befir til verið. |>að verður eigi tölum tjáð, hve illa
<mjer er við hann. Mjer hefir lengi ekki verið annað ríkara
39
í skapi, en að losast úr þeirri kvalakreppu og fá færi á að
hefna mín á honum. En hingað til hefir mjer eigi orðið
undankomu auðið, því að þjónarnir hafa allir verið settir til
höfuðs mjer, og þá er hann fór að heiman, lagði hann ríkt á
við þá að geyma mín vandlega. Seggurinn, sem þarna liggur
með klofna hauskúpu, var þeirra langverstur. Jeg er eigi nema
tvítug að aldri, og mjer er eigi grunlaust um, að jeg sje ekki
mjög ólagleg enn. Ef einhver ykkar vildi vera svo lítillátur
að þiggja mig, yrði jeg fegin umskiptunum, og skyldi fylgjast
með honum, hvort sem leiðir liggja. |>ess mun engan ykkar
iðra, e£ þið látið mig þiggja líf. Hjer í höllinni eru mikil
auðæfi saman komin, en margt af þeim er svo vandlega fólg-
ið, að ykkur verður eigi unnt af sjálfsdáðum, að finna öll
þaú fylgsni, er fjársjóðir geymast í, Jeg skal nú vísa ykkur
í hvert skot, þar sem eitthvað er fjemætt að fá. Jeg er visa
um, áð það nemur sex þúsund dölum, er þið getið ekki fund-
ið, nema jeg vísi ykkur þar til. Reynist þetta markleysumál,
mun jeg eigi mælast undan að sæta slíkum kosti, er herberg-
isþernan mín átti áðan að mæta«.
í>á er frúin lauk tölu sinni, kom hik á ræningjana. Bæði
lá við, að þeir töfruðust af fegurð hennar og einurðaryfirbragði,
enda var málrómur hennar látlaus og sannindalegur, og all-
líklegt var, að hún gæti vísað á fjárhirzlur bónda síns. Nú
áttu illvirkjarnir hljóðskraf með sjer um stund, en þó heyrði
hún tillögur sumra þeirra, svo sem: »Höggvum hana undir
eins# og »okkur mun eigi verða skotaskuld úr að finna fjeð«.
Frúin ljet sjer hvergi bregða og hafði þá stjórn á sjer, að
hvorki gerðist hún litverp nje sýndist vera smeik, en gerð1