Ísafold


Ísafold - 25.04.1894, Qupperneq 1

Ísafold - 25.04.1894, Qupperneq 1
Komur út ýmist einu sinni oða tvisvar L vikn. Ver^ árg (miimst 80 arka) 4 kr.. srlendis 5 kr. eða 1 »/• doll.i borgist fyrirmibjan júlímán. (erlend- is fyrir íram). ÍSAFOLD. Uppsögn(skrifleg)bundin vi® Aramót, ógild nema komin 8 je til útgefanda fyrir l.októ- berm. Afgroiðslastofa blabs- ins er í Austurstrœti 8 XXI. árg. Reykjavík, m.iðvikbidag-mn 25. apríl 1894. 21. blað. Þingmál í sumar. I. Við mildu dagsverki er ekki búizt af aukaþingi, sem hefir helmingi styttri vinnu- tíma en reglulegt þing og er auk þess 'raunar mest til þess ætlað, að ganga frá stjórnarskránni, til fullnaðar að nafninu til. Mörg mál er því og vitanlega alls eigi fært að kljást við, svo að haldi komi. En •ef það setti sjer það, sem hin reglulegu jaing ættu raunar líka að gera: að taka ekki nema f'á inál til meðferðar, og gefa sjer tíma til að íhuga þau rækilega og ganga vandlega frá þeim, gæti árangurinn orðið engu minni eða ómerkilegri en á reglulegu þingi. Þar er það hið mest.a mein, hve hlífðarlaust þar er rutt inn þeim málasæg, sem enginn kostur er að komast yfir svo nokkurt verk sje á. Þar eru margsinnis þau ógrynni á dagskrá í einu, að margur þingmaður verður að láta sjer nægja að renna rjett að eins auga á sum þeirra, treystandi því þá meðfram, að þeir sem um frumvarpið hafa fjallað á undan, hvort það er heldur nefnd eða stjórnin o. s. frv., hafi gert það svo, að við megi hlíta; en, sem vitanlegt er, getur það traust orðið til minnkunar. Þá eru og þar á of- an fjárlögin og hinir mörgu dilkar þeirra jat'nan öðrum þræði á öllum reglulegum þing- um, með öllum þeim óróa og .jafnvel usla á þinginu, er þeim fylg.ja, auk þess sem þau eyða beinlínis sjálfsagt hálfum vinnutíma og vinnuþrótt þeirra, er mest kljást við ,þau, hinnar fjölskipuðu nefndar í neðri deild, og valda margf'alt meiri umræðum en nokkurt mál annað. Það allt er auka- þingið laustvið; það má ekki koma nærri því, ekki nærri neinum fjárveitingum. Með því að taka ekki til meðferðar í surnar nema svo sem 8—10 frumvörp, og það þau mál, er flutt hefði veriö og rædd á síðasta þingi eða síðustu þingum — þar er nóg af að taka —, með því að gera það þegar í þingbyrjun, með því að skipta sjer hyggilega og forsjállega. í nefndir til u,ð búa þau í hendur á þingfundum, með því að hafa góða stjórn á verkum, þá mætti vel verða ekki einungis eins mikið, iheldur meira lið að þessu stut.ta aukaþingi í sumar lieldur en oröið hefir að mörgum reglulegum þingum. Gangi það vel frá þó' ekki sje nema fáeinum þörfum eða nauð- synlegum nýmæluin, gerir það stórmikið gagn. Tölumergðinni er sjaldnast mest undir komið, og sízt í lagasmíðum. 1. Stjórnarskrármdlið. Það var, manni liggur við að segja, sómastrik af þinginu í fyrra, að eyða engum orðum eða sama sem engum að því margþvælda máli. En að hafa það nú eins í sumar? Þvi ekki það! Þó að aukaþingið sje til þess gert, að meðhöndla það frumvarp upp aptur, svo orðað sem það var samþykkt á sið- asta þingi, og þó að gera megi ráð fyrir, að nokkur hluti þingsins verði öðrum mönnum skipaður en þá, og þeim, ef til vill, sumum alveg nýjum, þá er alls engin nauðsyn aö fara að flytja ueinar þingfunda- eöa þingtíðindaræður um það. Þingmenn geta skrafað um þaö hins vegar sin á milli, og látið sjer síðan duga að greiða um það atkvæði. Nýjum hugmyndum þarf naumast við að búast, þó að umræður yrðu meiri eða minni, sízt þeim, er nokkurn á- vöxt gætu borið, enda breytingum öllum með lögum frá bægt á siðara stjórnarskrár- þingi; að hleypa þeiin að, livað litlar sem væru, er sem sje sama og að fella málið eða ónýta, og er þá hreinlegra og ómaks- minna, að fella það breytingalanst. Þetta, að fella frumvarpið breytinga- laust og orðalaust, kann nú sumum að vera næst skapi; en aldrei munu þessar kosningar fara svo, að þeim verði það ekki um megn. Hafi og þingið sagt A, og það hvað eptir annað, eins og það hefir gert í þessu máli,j virðist það höggva nærri sóma sínum og þjóðarinnar, ef það segir ekki B líka, þegar þar að kemur. Breyt- ing þefir engin orðið á horfum málsins og afstöðu frá því í fyrra; því þetta svar frá stjórninni, er nú höfum vjer fengið ineð opnu brjefi 15. des. f. á., -— að því gengu allir vísu þá hjer um bil, ef eigi skipti um ráðaneyti í Khöfn. Hið eina rjetta virðist því vera, að láta frumvarpið ganga sína leið gegn nm þingið aptur 1 sumar, helzt orðalaust. Það er og þá engin leið önnur til að sýna, að landslýður sje enn sem fyr einbeittur á því, að þetta bráðabirgða- fyrirkomulag á stjórn landsins, er nú höf- nm vjer, og að sumu leyti er lítil mynd á, verði alls eigi unað við til langframa, eða um aldur og æfi, sem kallað er. Mávera, að mörgum skynbærum mönnum líki all- vel,hvernig með landstjórnarvöldin er farið yfirleitt, eíns og nú stendur. En það er sitt hvað, lagafyrirkomulag og einstakir menn; það á að lifa þá, og veita trygging fyrir, að ekki sje allt undir þeim komið. Sveitarútsvar á utanhreppsmanni Landsyfirrjettur staðfesti 2. þ. m. fógeta- úrskurð og lögtaksgjörð á Skagafirði fyrir 15 kr. aukaútsvari, er hreppsnefndin í Skefilsstaðahreppi hafði lagt haustið 1892 á kaupmann V. Claessen á Sauðárkrók fyrir það, að hann hafði salthús og fiski- töku á Selnesum og Sævarlandi í fyrnefnd- um hreppi. Ábúöarrjettur á Akureyjum. S. d. ónýtti yfirrjettur uppboðsrjettarúrskurð úr Dalasýslu, þar sem neitað hafði verið að taka gildan ábúöarrjett ekkjufrúar Sig- ríðar Eggerz á þeim s/4 úr Akureyjum, er hún á ekki, og dæmdi henni ábúðina með- an tengdafaðir hennar, síra Fr. Eggerz, lifði; segir, að óheimilt virðist að skilja á- kvæði makaskiptabrjefs 14. sept. 1866 um byggingarumráð síra Friðriks vfirjörðinni öðru vísi en svo, að þau stæðu að eins hans lífstíð, — honum að eins áskilið ept- irgjald og arður af jörðinni meðan hann lifði. Meiðyrðamál, Hinn 9. þ. m. dæmdi yfirrjettur í meiðyrðamáli mill ritstjóra »Austra«, Skapta Jósepssonar, og sýslu- manns Einars Thorlaeius á Seyðisfirði, út af grein í blaðinu 20. maí 1892, með íyr- irsögn : »Nýfundið brot úr dómarabókinni«, — nafn sýslnmanns skrifaö aptur á bak til að reyna að koma að ýmsum mjög meiðandi ummælum um hann ábyrgðar- laust. Ritstjórinn dæmdur í 150 kr. sekt til landsjóðs eða til vara í 40 daga einfalt fangelsi, auk alls málskostnaðar í hjeraði— sýslum. Benidikt Sveinsson var skipaður setudómari í því þar — og 30 kr. til málfæi’slumanns sýslumanns E. Th. fyrir yfirdómi (Egg. Briem). Hjeraðsdómurinn hafði sektina 200 kr. Sullaveikin. Allur almenningur veit nú, að sullaveiki á mönnum og skepnum orsakast af band- ormi, sem lifir í innýflum hundsins, og, sem betur fer, mun vera vaknaður almennur áhugi á því að ná þessum bandormum úr hundinnm með því að gefa honum óyggj- andi meðal (arekadupt). Það er því von- andi, >að sullaveikin minnki að mun; en sí- vakandi verður almenningur að vera. Er hægt að fá betri sannanir fyrir skaðsemi hundanna en þan tvö dæmi, sem merkis. maður hefir skýrt mjer frá? Þetta eru hans orð: »Á bæ einum í Rangárvallasýslu átti bóndi er þar bjó, fyrir fáum árnm 3 lambhús, er hann hafði lömb sín i á vetrum; tvö af húsunum voru fjarri bænum og hjá þeim var heyhlaða, er hann gaf lömbunum úr; þau urðu heilbrigð og þriíust ágætlega, svo um þau var ekki meira að tala. Þriðja húsið var næst bænum og valdi bóndinn það smæsta af lömbunum í það húsið og voru þau þennan umrædda vetur 18 að tölu; lömbum þessum gaf hann heyið úr heimaheygarðinum, og var meis sá, er lömb þessi fengu úr, látinn standa með heyinu í við heystálið og gjörðu liundarnir á heimilinu sjer það að vana að liggja á heymeisnum ekki einungis á nóttum, held- ur einnig á daginn; nú fór allt vel framan af vetrinum og lömb þessi þrifust sæmilega, en þegar kom fram á útmánuði fóru lömb þessi að týna tölunni smátt og smátt úr höfuðsótt, og svo fór á endanum, að tveim- ur árum liðnum að öll voru lömbin dauð úr sullaveiki, að einurn tveimur undan- skildum.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.