Ísafold - 16.05.1894, Page 1

Ísafold - 16.05.1894, Page 1
Kemur út ýmÍBt ©ínu sinni •eða tvisvar í viku. Voríl árg {minnst 80 arka) 4 kr.. erlendis 5 kr. eba l1/* doll.; borgist fyrirmibjan júlímfin. (erlend- is fyrir fram). ÍSAFOLD. UppsÖgn(skriíiogj bundin vif' áramót, ógild noma komin sje til útgefanda fyrir l.októ- berm. Afgreibslustofa blabs- ins er i Austurstrœti 8 XXI. árg Reykjavík, miðvikudaginn 16. maí 1894. 27. blað. Kosningahorfur. Langt að frjettist svo sem ekkertafvið- Lúnaði kjósenda undir alþingiskosninga- Lardagann um fardagaleitið í vor. Má og vera, að hann sje ekki mikill. Þeir munu margir enn sem fyr lítið um það mál lmgsa fyr en líður fast að kjördegi, ef þeir þá gera það þá einu sinni. Nema þar sem •eitthvert áfjáð þingmannsefni hefir smala Tlti, einhvern freyðandi þjóðmálagosa, sem ríður hæ frá bæ og spanar menn upp með ^mis konar hjegómaglamri, hvern eptir því sem hann veit við hann eiga, en sjaldn- •ast komandi í rann rjettri minnstu vitund nærri sönnn gagni lands og iýðs. Um sum hin fjarlægari kjördæmi vita menn, iað þar verður engin kappdeila nm þingmennskuna. Svo er t. d. um Austur- ■Skaptafellssijslu. Þar er eigi annar tekinn í mál en Jón prófastur i Stafafelli. Norð- mýlingar munu og nokkurn veginn ein- ráðnir í að endurkjósa sína þingmenn. Sömuleiðis munu Norður-Þingeyingar ekki taka í mál að skipta um. Af Húnvetning- um er og líkt að heyra, og eins Stranda- m'önnum. Sama mun mega búast við um ísfirðinga. Loks er í Barðastrandarsýslu eigi getið neins keppinauts við Signrð pró- fast í Flatey. Hvað Dalamenn snertir, þá hefir heyrzt, að síra Jens Pálsson muni þeim afhuga, hvernig svo sem á því stendur. Það er •ótrúlegt, að liann haíi farið að láta glepja sjer sjónir af því, sem sagt er að standi í »Þjóðv.« ísiirzka. Hann kvað sem sje, »Þjóðv.«-maðurinn, iiafa viljað senda síra J. P. forsending austur í Árnessýslu, til þess að greiða götu síns elskul^ga lags- manns, Sanðafellsvaldsmannsins, til þing- kjörs hjá Dalamönnum. En hvað sem því líður, væri það mjög misráðið, ef síra J. P. hætti við sitt fyrra kjördæmi, Dalasýslu. Það er slæmt að gefast upp fyr en á hólminn er komið, og illt að láta kjósend- ur hafa þá afsökun, ef þeir neyta óhyggi- lega kosningarrjettar síns, að gott þing- mannsefni hafi ekki í kjöri verið. Dr. Jóni Þorkelssyni er anðsjáanlega mikil alvara að láta ekki sitt kjördæmi, Snœfellsnessýslu, ganga sjer úr greipum. Hann kom með póstskipinu um daginn, 5—6 vikum fyrir kjörfund og 13 vikum fyrir þing, hjelt jafnharðan vestur, og mun nú vera þar á yfirreið að telja trú fyrir Snæfellingum, þ. e. trúna á sig. En eptir er að vita, hvort það hrífur, — hvort síra Eiríkur á Staðastað verður eigi eins drjúg- ur, þótt hægra fari. Mýramenn eiga um þá tvo að velja, þingmann sinn frá i fyrra, Benid. próf. Kristjánsson, og Indriða Einarsson lands- revisor. Bæri þingkosning að skoða mest eða nær eingöngu sem sæmdarvott, væri meira en maklegt að hún kæmi þar held- nr niður á Benid. prófasti. Ennúer þing- mennskan fjarri því að vera eintóm sæmd, heldur þung kvöð og áriðandi erindarekst- ur fyrir almenning, og þááhinn (Indr. E.) að ganga langsamlega fyrir, jafn-fær mað- ur á bezta skeiði. Fyrir Borgfirðingum hefir rætzt; faetur úr en á horfðist til skamms. Þeim býðst nú sjerlega álitlegt þingmannsefni, síra Þór- liallur Bjarnarson prestaskólakennari, og ætti þeim nú að vera ærið vandalítið valið, — búfræöingnrinn frá Reykjakoti annars vegar! Í^Kjósar- og Gullbringusýslu heyrast alls eigr aðrir nefndir til þingmennskn en þessir tveir, er áður voru. Þórðarnir 2, er við kjör voru bendlaðir síðast, munu því nú alveg afhuga. í Reykjavík mælist almennt vel fyrir þingmennsku yfirdómara Jóns Jenssonar, og óvíst, að þar verði einu sinni fleiri í kjöri, nema ef hinn fyrv. þingmaður Reykvík- inga (frá síðasta þingi) liugsar til að freista enn hamingjunnar, þótt aldraður sje. Af Árnesingum er svo að heyra, sem þeim liggi mikið vel hugur til Tryggva bankastjóra Gunnarssonar, og væri það ekki óeðlilegt. En með því að hann mun siður en eigi láta sjer óðslega um þing- mennsluina •— það er opt svo um þá, er mest eiga erindi á þing landsins vegna, en eigi sjálfs sín —, hafa einhverjir miðnr hlutvandir fylgiflskar hinna þingmanna- efnanna þar gert hvað eptir annað tilraun að gera kjósendur þar afhuga honum'með því að láta berast um kjördæmið ýmist að liann geíi alls eigi kost á sjer, eða þá ekki þar, heldur annarsstaðar. En kunn- ugir vita, að slíkt er tilhæfulaus uppspuni. Hr. Tr. G. hefir verið frá því um miðjan vetur einráðinn í að gefa kost á sjer ein- mitt í Árnessýsln og ekki annarsstaðar. — í sumum hreppum sýslunnar mun vera nokkur þytur í inönnum gegn Þorláki Guðmundssyni, runninn frá einstöknm mönnum, er maka vilja sinn krók. En al- mennt er það ekki, og mun naumast hafa mikið að þýða. Enda væri það annáls- vert, ef bændur, er löngum þykjast helzt til fáliðaðir á þingi,,/ færn að gera rækan einhvern hinn nýtasta bónda, er þar hefir verið nú undanfarið, með 20 ára æflngu við þingstörf, og taka ef til vill heldur einhvern frakkaklæddan fleiprara, skóla- genginn, til engrar nytsemdar líklegan á þingi nema. að vera atkvæðatól í vasa einhvers síns nóta. Hverju fleygjum vjer? Hvers vegna erum vjer fátækir? i. Eins og kunnugt er, iifa að minnsta kosti 2/s allra íslendinga á kvikfjárrækt; það er því að mestu leyti komið undir henni, hvort hagnr landsins stendur vel eða illa í efnalegn tilliti. En kvikfjárrækt getur ekki staðið í hlóma, nema grasrækt- in geri það fyrst. Það mætti því ætla, að hún væri stnnduð af fremsta megni, og ekkert látið ógjört, sem auðið er að fram- kvæma og getur verið henni til eflingar; en þegar gætt er að, hvernig hjer á landi er almennt farið með þau efni, sem herast upp í hendurnar, og nota má til áburðar, þá virðist þó nokkuð annað verða uppi á teningnnm. Vjer höfum þó nú á síðari árum átt kost á, að kynnast helztn atriðum áhurð- arfræðinnar, því, sem hetur fer, eigum vjer nokkra menn, sem hafa leitazt við að leið- beina í riti og ræðu í því efni, og ef al- menningur hagnýtti sjer vel hinar mörgu og góðu bendingar, sem til eru á íslenzku þar að lútandi, t. d.: »Um áburð, eptir Torfa Bjarnason«, í X. árg. »Andvara«, og »Um áburð«, í fyrsta árg. »Búnaðarritsins«, þá mundi þó »mikið bætt úr skák«. Þegar nm áburð er að ræða, þá verða einkum nautgripa-saurindin að koma til greina, því at þeirri áburðartegund höfum vjer mest, enda eru það einungis þau, sem jeg ætla lítið eitt að minnast á hjer. Jafnvel þó stöku menn sjeu nú á síðari árum farnir að hirða nndan nautgripum nokkru betur en áður tíðkaðist, þá eru þeir enn svo fáir, að þeirra gætir lítið i samanburði við hina, og enn er víst óhætt að segja líkt og Torfl Bjarnason fyrir 9 árum, í áðurnefndri ritgerð í »Andvara«, að eins og venjulega væri farið með á- burðinn hjá oss, þá væri það einungis mykjan, sem kæmi túnunum að notum, en þvagið misstist gjörsamlega, og þar að auki mætti telja víst, að mikið af frjóefnnm taðsins missist í slæmum haugstæðum, Flórarnir eru víðast enn þá með gamla laginu — eða ólaginu rjettara sagt —, og á stökn stöðum jafnvel með svo aðdáan- lega(!) gömlu lagi, að þeim er fyrst öllum látið halla fram að djuunum, svo eru lagð- ar steinaraðir úr þeim fram í gegn um dyrnar, þannig, að þvagið geti runnið fram á milli þeirra, undir þrepskjöldinn og út; af því myndast svo forir og stækindi fram nndan fjósdyrunum, og stundum eyði- leggur það jafnvel allan grasvöxt á stærri eða minni túnbletti. »Það er svo óþægi- legt að bera út, ef það er mjög blautt i fjósinu«, segja menn. Þannig er hagfræð- iskenning sumra manna enn þá; en það er þó vonandi, að fyrir henni liggi ekki sú framtíð, að hún verði lesin við dagsljós tuttugustu aldarinnar. Flórarnir eru óvíða lagheldir, svo mikið af þvaginu sígur úr þeim ofan í jörðina.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.