Ísafold - 30.05.1894, Síða 3

Ísafold - 30.05.1894, Síða 3
123 nrandi það incinað, er til þess treysti sjer? En samkvæmt því tilefni, er hann hafði sjálfur geflð ótæpt, einkum á fyrri fundin- um, var tekið greinilega fram, hvers vegna eigi þætti tiltækiiegt að verða framar við hinni áköfu löngun hans til að verða enn eDdurkosinn á þing til 6 ára og hafna miklu álitlegri mönnum fyrir honum. Þetta var gert alveg áreitnislaust, og það var gert af því, að það var nauðsynlegt og sjálfsagt. Enda væri það anmi fulltrú- inn, hvort heldur er ungur eða gamall, sem eigi má við því að sagt sje hrein- skilnislega, hvort heldur kjósendum líkar við hann eða eigi, og hvers vegna; og aumu kiósendurnir, ef nokkrir væru, er eigi kynnu að gera greinarmun á slíku á- lits-atkvæði og á skömmum, þó að þetta álit sje ekki með manninum, heldur móti. Áptur á móti var það hann, þingmaðurinn (fyrv.), sem rauk óðara upp með illyrði í móti (brigzl um ósannindi, margitrekuð, og um »ósómasamlegar hvatir«). Fyrtjeður orðrómur heflr því alveg hausavixl á því, sem fram fór í raun og veru, gerir svart að hvítu og hvítt að svörtu. — Yitanlega heflr hinn virðuiegi fyrv. þingm. hreytt fyrtjeðum orðum í reiði, og eru þau því ekki hjer tilfærð í því skyni að erfa þau við hann; er það því hægra, sem áminnzt mót- spyrna gegn þingmennsku hans var og er gersamlega laus við persónulegan kaia, heldur samfara fullkominni viðurkenningu þess, hver merkis- og sæmdaimaður hann er í margan máta, hvað sem þingmennsk- unni liður, og því i rauninni leiðinlegt, að þurfa »ð hafa nokkurt stímabrak til að koma því fram, sem langbezt færi á að gengi öðru visi: þannig, að hann hætti sjálfkrafa við að gefa kost á sjer til þing- mennsku, og munu jafnvel hans mestu alúðarvinir og vildaimenn vera þess eggj andi, hvað þá aðrir. Sigling'. Maí 26. Valdemar (87, Albert- sen) frá Dysart með salt til W. Fischers. 28. Anna (71, Easmussen) frá Khöfn með ýmsar vörur til H. Th. A. Thomsens. 29. Söormen (58, Muxoll) frá Khöfn með ýms- ar vörur til P. C. Knudtzons. Gufubáturinn »Elin« fór í vikunni sem leið hina fyrstu ferð sína til Vest- mannaeyja og Yikur m. m. Gekk mikið vel, eins og aðrar ferðir hennar í vor. Frá Vestmannaeyjum komu með henni 3 van- ir bjargmenn, er hún fór með i morgun ásamt fleirum til Eldeyjar, að reyna að komast þar upp ; hefir hr. Sigf. Eymunds- son og nokkra forgöngu þess fyrirtækis. Afli nokkur að tölu til bæði hjer og syðra, en smærð og rýrð söm og áður. Góður afli á Eyrarbakka og’ Stokkseyri. Þingmálafundirnir reykvíksku, 26. og 28. þ. m., voru báðir vel sóttir, og gerðu þingmannaefnin öll þrjú grein fyrir skoð- unum sinum í ýmsum málum, ýmist að fyrra bragði eða svarandi fyrirspurnum H. Kr. Friðriksson tjáði sig sem fyrri mótfail- inn stjórnarskrármálinu, bæði á aukaþing- inu í sumar og framvegis, en hinir báðir með að samþykkja frumv. frá 1893 í sum- ar óhreytt; eptirleiðis vildi Jón Jensson og halda því fram óbreyttu í aðalatriðum, þó engan veginn á hverju þingi, heldur mætti jafnvel liða 3—4 þing svo, að því væri ekki hreift, ef svo vildi verkast; en Hann- es Hafstein alveg mótfaliin frumvörpun- um frá undanförnum þingum, en með »skynsamlegri stjórnarbót« (það orð má lengi teygja). Efiing sjávarútvegs með styrk til þilskipaábyrgðar og frekari full- komnun stýrimannaskólans sagði H. Kr. Fr. ekkert ákveðið um, en hinir báðir með því einhuga; H. H. vildi auk þess veita fiskútflutnings-verðlaun úr landssjóði, enj. J. taldi það mál ihugunarvert. Hvað landbúnað snertir, þá vildi J. J. láta reyna að koma upp einum æðri búnaðarskóla við hliðiu á eða 1 stað smærri skólanna, en hinir fóru ekki út í það mál. Að því er kemur til samgöngvmála, þá vildi H. Kr. Fr. ekki gefa mikið fyrir þessar ak- brautir (nýsamþykktar þó með vegalögun- um, flutningabrautirnar), en hinir Ijetu mik- ið vel yfir þeim; innanlands-strandferða- fyrirkomulagið frá síðasta þingi (Randulffs- ferðirnar) áleit J. J. óhagfelt, of marga viðkomustaði, en vildi auka strandferðir milli aðalhafna og að landssjóður styrki að öllu innfjarða-gufubátana, einsoghann kostaði einn akbrautir á landi; þau atriði mun H. H. lítið hafa á minnzt, en H. Kr. Fr. sagðist hafa talað móti strandferðun- uni (R.) á síðasta þingi, en gaf að öðru leyti ekkert út á þessi atriði. lollum vildi hvorugur þeirru H. H. ogj. J. hreifa við að sinni, en sjerstaklega mótfallnir smjörlikistolli báðir; H. Kr. Fr. sagði ekk- ert um það. Báðir þeir H. H. og J. J. með föstu þing- fararkaupi, með kirkjugjaldinu fyrirhug- aða, með úrskurðarvaldi sáttanefnda (H. H. allt að 50 kr.), hinn í hugsun frum- varpsins (á siðasta þingi). Stofnun bruna- bótasjóðs jnnlends J. J. mótfallinn, ísjár- vert bæði fyrir landssjóð og Reykjavík, en H. H. gott fyrir aðra en Rvík; J. J. með sku\dam&\si-varnarþingsfrv. í aðalatrið- um, en H. H. vill heldur dómþing hjá sýslu- manni^í hverjum V2 mánuði; amtmanna- málið áleit J. J. ekkert við að gcra að sinni, vegna meðferðar þess á þingi í fyrra, en biði annars stjórnarskrárbreytingarinn- ar. Um háskólamálið sagði H. H. ekki neitt, en J. J. tjáði sig vera með laga- skólahugmyndinni. Lögþvingaða peninga- borgun á verkalaunum álitu öll þingmanna- efnin ótiltækilega. Endurskoðun eptirlauna- laganna (ef nú væri synjað um staðfest.) áleit J. J. nauðsynlegt að láta vera sam- fara almennri launalagaendurskoðun; H. H, tjáði sig með lækkun eptirlauna í hærri embættunuin. »Almannafriðnum« fræga var H. H. eindregið með (vitanlega!). — 60 mjúkum feldinum, en læknisfrúin lá á hnjánum fyrir fram- an þau og hafði gætur á, að þau yltu eigi af feldinum út á hart trjególfið og meiddust. Hún hló svo mikið af að horfa á þetta, að hún táraðist. »Þau eru bara dæmalausU sagði hún við mann sinn, er þau sátu saman eptir borðun og voru að drekka kaff- ið. »Og þau eru farin að hænast að mjer. Þau eru allt af á hælunum á mjer. Ef jeg gef öðru þeirra eitthvað, þá rekur hitt óðara upp ginið sitt litla. Ef jeg set ann- að þeirra í keltu mjer, kallar hitt: »Mi íka, fú ækn!« »Já, þau eru mjög samrýnd« anzaði læknirinn; »það yrði ekki gott að skilja þau«. Læknisfrúin sat hugsi og hrærði með skeiðinni í kaffibollanum. »Jeg vænti það muni mega til að láta þau skilja?« mælti hún og leit efin framan í mann sinn. »Já, hvað annað? Þú hugsar þó ekki til að halda þeim báðum?« »Því ekki það ? Geti jeg tekið annað þeirra, þá get jeg held jeg eins tekið hitt«. »Ja, bara að það baki þjer ekki of mikla fyrirhöfn«. »Fyrirhöfn? O, það þýðir ekki mikið. Og svo verð- ur líka eldri telpan fyrst í stað. Hún hjálpar svo fyrir- taks-vel með þau. Þú getur ekki ímyndað þjer, hvað hún er skynsöm og hugsunarsöm«. — • 57 svo vel áður. Þau reyndu að borða það sem þeim var fengið, en hinum stærri veitti auðsjáanlega örðugt að fá tára bundizt við hvern munnbita, og hin minni áttu jafn- bágt með að halda sjer vakandi; það var löngu kominn háttatíminn þeirra. Það lifnaði yfir þeim öllum, er lækn- irinn sagði loksins: »Þið eruð þreytt, börn; það er bezt að þið farið nú að hátta og sofið eins og þið getið. Á morgun verður allt öðru vísi hjer fyrir ykkar augum«. Nú gengu börnin hvert á fætur öðru til læknisins og konu hans og rjettu þeim hendina og buðu góðar nætur; fóru síðan inn í svefnherbergið, er þeim hafði verið til vísað. Læknisfrúin ætlaði að fara með þeim, en maður hennar hjelt henni aptur og mælti: »Því meir sem þau eru látin eiga slg ein, því fijótar komast þau upp á að átta sig og una sjer«. Þau hjónin heyrðu nú börnin tala í hálfum hljóðum inni hjá sjer og labba um gólfið til og frá, meðan þau voru að hátta. Síðan sló í þögn og heyrðist þá jaf'nskjótt til elzta drengsins, að hann fór að lesa bænirnar sínar. Hann hafði fyrst yfir hið gamla alkunna barnavers: »Nú legg jeg augun aptur«, hjelt siðan áfram á þessa leið: »Guð minn góður! láttu mig verða gott barn, og láttu hann pabba* — »hitta mig á himnum« ætlaði hann að segja, eins og hann hafði verið vanur að enda bænina

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.