Ísafold - 30.05.1894, Blaðsíða 4
124
Lítið eða ekkert sagði H. Kr. Fr. um öll
þessi mái, nema »en — en — en« (ýmislegt
að athuga og íhuga, en ekki hvað!).
Uppboösauglýsing.
Yið 3 opinber uppboð, sem haldin verða
fimmtudagana hinn 14. og 28. júní og 12.
júlí næstkom. kl. 12 á hádegi, verður hús-
eignin Laugaland, tilheyrandi dánarbúi
Jóns Guðnasonar, hoðín upp og seld hæst-
bjóðanda, ef viðunanlegt boð fæst. Húsið
sem er úr timbri með járnþaki, er virt á
3665 kr, Það er veösett landsbankanum
fyrir 1500 kr. láni. Húsinu fylgir útmæld
landspilda óræktuð og óumgirt, hjer um
bil 4 dagsláttur að stærð.
Hin 2 fyrstu uppboðin verða haldin hjer
á skiifstofunni, en hið síðasta í húsinu
sjálfa. Söiuskilmálar verða til sýnis hjer
á skrifstofunni degi fyrir hið fyrsta uppboð.
Skrifst. Kjósar- og Gullbringus. 26. maí 1894.
Franz Siemsen.
Kristján Þorgrimsson selur beztu
sauðatólg í tunnum, fyrir mjög lágt verð.
gy Nei sko!
Laugardaginn 23. júní næstkom. verður
haldin »Tombola« á Ártúni í Mosfeilssveit
til ágóða fyrir Lestrarfjelag Lágafellssókn-
ar. Munir margbreyttir, sauðfje o. fi. Ó-
keypis inngangur. Nefndin.
Kristján Þorgrimsson seiur verkuð
og lituð sauðskinn fyrir lægsta verð.
KaupaYÍnnu
getur duglegur maður féngið í sumar með
góðum kjörum. Hann þarf að fara með
»Thyra« frá Reykjavík 14. júní næstk.—
Ritstjóri ísaf. gefur nánari upplýsingar.
Teg undirskrifaður bid hvern þann, er hitta kynni
^ jarpskjóttan hest, 7 vetra gamlan, vakran; mark
(ab mig minnir) 2 hangandi fjabrir apt. bæói, er tap-
abist úr lóðri 11. maí frá Tungu i FljótshlíÓ, aÓ koma
honum til Gubna Jónssonar á TorfastöÓum i Fljóts-
hlíb. Brennim. á hófum V. B. Kolbeinsstöbum.
Vigfús Björnsson.
Fjármark Jóns Einarssonar á Mundakoti á Eyr-
arbakka er: blaðstýft apt. h., blaðstýft fr. vinsta.'r
Chr. Zimsen konsúll í Rvík kaupir
nokkra bláa ketlinga.
Normal-kaffi
frá verksmiðjunni »Nörrejylland«
er, að þeirra áliti, er reynt hafa,
hið bezta lcaffi í sinni röð.
Normal-kaffi er bragðgott, hollt
og nærandi.
Normal-kaffl er drýgra en venju-
legt kaffi.
Normal-kaffi er að öllu leyti eins
gott og hið dýra brennda kaffi.
Eitt pund af Normal-kaffl endist
á móti l1/* pd. af óbrenndu kaffi.
Normal-kaffi fœst í flestum búðum.
Finka-útsölu hefir: Thor E. Tulinius.
Strandgade Nr. 12
Kjöbenhavn C.
NB. Selur að eins kaupmönnum.
Prjónayjelar,
með beztu og nýjustu gerð, seljast með
verksmiðjuverði hjá -
Simon Olsen,
Kjöbmagergade Nr. 50, Kjöbenhavn.
Eptir vjelum þessum er mikil eptirspurn,
af því, hve traustar og nákvæmar þær
eru, og að þær prjóna alls konar prjónles
jafnt úr smáu sem grófu bandi. Vjela-
þessar má panta hjá
P. Nielsen á Eyrarbakka,
sem sýnir, hvernig þær fara að prjóna og
veitir ókeypis tilsögn til að brúka þær.
Hjer á íslandi eru einkar hentugar
vjelar með 124 nálum, sem kosta 192 kr.
do. — 142 — — — 230 —
do. - 164 — — — 244 —
do. — 166 — — — 280 —
Verðlistar sendast þeim, er þess æskja.
Hvað segið þið piltar ? Vindlar
góðir á 4-5-6-7-8-9-10-12 aura stykkið!
Odýrara í kössum.
Verzlunin í Vesturgötu 12 selur þá.
Jeg hefi haft slæman maga og þar af
leiðandi höfuðverk og slæmsku. En með
þvi að brúka Kína-lífs-elixír frá hr. Walde-
mar Petersen í Frederikshavn, lieíi jeg
fengið aptur góða heilsu, og ræð jeg því
öllum, er iíkt gengur að, að reyna þenn-
an »bitter«.
Eyrarbakka á íslandi 23. nóv. 1893.
Oddur Snorrason.
Kína-lífs-elixirinn fæst hjá flestum
kaupmönnum á íslandi.
Til þess að vera viss um, að fá hinn
ekta Kína-lífs elixír, eru kaupendur beðnir
yp
að líta vel eptir því, að -jr-" standi á flösk-
unum í grænu lakki, og eins eptir hinu
skrásetta vörumerki á flöskumiðanum: Kín-
verji með glas í hendi, óg firmanafnið
Waldemar Petersen, Frederikshavn, Dan-
mark.
í Reykjavíkurapóteki fæst:
Akvavit fl. 1,00, Cognac fl. 1,25, Whisky
fl- 1,90, Sherry fi. 1,50, Portvín, hvítt, fl. 2,00,
do. rautt fi. 1,65, Madeira fl. 2,00, Malaga
fl. 2,00, Pedro Ximenes fl. 3,00, Rínarvín fl.
2,00, Champagne fl. 4,00. Vindlar: Renomé
1 hndr. 4,50, Nordenskiöld 1 hndr. 5,50,
Donna Maria 1 hndr. 6,50, Brazil Flower
1. hndr. 7,40.
Brandassurance Compagni
for Bygninger, Varer, Effecter, Creaturer og
Höe &c., stiftet 1798 i Kjobenhavn, modtager
Anmeldelser om Brandforsikring for Sysler-
ne Isafjord, Bardastrand, Dala, Snæfellsnes
og Hnappadal, samt meddeler Oplysninger
om Præmier &e. Islandske Huse (bæir) op-
tages ogsaa i Assurance.
N. Chr. Gram.
»LEIÐARVÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR.
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr-
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim
sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynleg
ar upplýsingar.
Ritstjóri Björn Júnsson cand. phil.
Prentnmiftja fsafoldar
58
hjá henni móður sinni. En nú rarm honum það í hug,
að hann ætti ekki einungis að hitta hann föður sinn á
himnum, heldur hana móður sína lfka. Hann staldraði
því við og sagði kjökrandi: »Láttu hann pabba minn
og hana mömmu mína«. . . Lengra komst hann ekki fyrir
ekka, og tók til að gráta hástöfum. Systkini hans tóku
þá jafnskjótt undir; þau höíðu átt nóg með að verjast
þangað til; heyrðist ekki annað en gráturinn og ekkinn
í vesalings-munaðarleysingjunum.
Læknirinn var genginn ut að glugga og starði allt
af út á götuna, en kona hans kepptist svo við að prjóna
sokkinn sinn eins og henni lægi lífið á að vera búin fyrir
háttatímann. Loks þegar slegið var í þögn inni i klef-
anum barnanna, gerði læknirinn konu sinni bendingu að
koma inn þangað með sjer. Það var hjartnæmileg sjón,
að líta þar inn. Elztu börnin 4 höfðu skriðið saman úr
tveimur rúmunum í annað þeirra, höfðu lagt hönd um
háls hvort öðru í raunum sinum og sofnað í þeim stell-
ingum, flóandi í tárum.
»Vesalings-börnin!« mælti læknirinn.
Hann losaði varlega um hendurnar á þeim og færði
þau í sundur, tvö og tvö í hvort rúmið, en kona hans
gekk að rúrninu telpunnar minnstu.
Hún studdi báðum höndum krepptum undir vanga
sjer, en ljósir iokkar lögðust niður yfir andlitið, glóandi
59
og værðarlegt í svefninum, og hafði rjett fóttinn annan
upp undan. Hún dró rólega andann um hálfopinn munn-
inn litla.
»Líttu á blessað barnið!« sagði læknisfrúin í hálíum
hljóðum við mann sinn, »er hægt að hugsa sjer hjart-
næmilegri ímynd heilags barnasakleysis!« Hún þagnaði,
lagði allt í einu hendur um háls manni sínum, hjúfraði
sig upp að honum og mælti í bænarróm: »Ef þjer er
það ekki í móti skapi, vildi jeg gjarna þessu barni eins
og jeg ætti það sjálf«.------
»Nú-nú, hvernig gengur þjer með barnahópinn þinn?«
spurði læknirinn konu sina daginn eptir, er hann kom
heim.
»Og svona full-vel! Jeg hefði aldrei haldið, að fimm
börnum fylgdi ekki meiri háreysti og órói en þetta«.
,»Vertu óhrædd; þau fá málið smám saman«.
Hann varð sannspár um það.
Þegar hann kom heim daginn eptir, nam hann stað-
ar á þrepskildinum hálí-hissa. Á angora-feldiuum dýra,
er annars var vanur að liggja tyrir framan saumaborð
frúarinnar og enginn mátti nærri koma annar, lágu nú
á miðju gólfi 2 yngstu krakkarnir og voru að ólmastt
Þau byltust þar um og flugust á með hlátri og háreysti,
höfðu sett af sjer skóna og jafnvel farið úr sokkunum
líka í ólátunum, og veltust nú um eins og hvolpar á