Ísafold - 11.07.1894, Síða 1
iftemur út ýmiat einu sinni
*eða tyÍByar í viku. Verð árg
(minnst 80 arka) 4 kr.. erlendis
‘5 kr. eöa l1/* doll.; borgist
fyrirmibjanjúlímán. (erlend-
is fyrir fram).
ÍSAFOLD.
Uppsögn(skrifleg)bundin vi5
áramót, ógild nema komin
sje til útgefanda fyrir l.októ-
berm. Afgreibslustofa blabs-
ins er i Austurstrœti 8
XXI. árg.
Reykjavík, miðvikudaginn 11. júlí 1894.
42. blað.
Samgöngur.
Enda þótt samgöngumál vor hafi tekið
;afarmiklum endurbótum á síðari árum,
bæði hvað snertir samgöngur við útlönd
og þó ekki sízt samgöngur innanlands,
ihlýtur hverjum skynberandi manni að vera
það ljóst, að ennþá er svo mikið ógjört
til endurbótar í því ef'ni, að ekki mun
veita af hálfri 20. öldinni tilvonandi til
'þess, að þau geti verið komin í viðunan-
iegt horf. Samgöngur vorar hljóta vegna
strjálbyggis eðlilega að verða miklu dýr-
ari kð tiltölu, en í öðrum löndum/í sam-
■anburði við fólksfjöldann, og þegar þar
við bætist, að land vort er nú orðið afar-
langt á eptir öðrum löndum í því efni,
sjerstaklega hvað samgöngur á landi snert-
ir, má ekki búast við öðru, en að margar
aldir líði áður samgöngur hjer eru komnar
á, sama stig og erlendis, og það þótt vjer
færumst allir í aukana. Samgöngur á sjó
hafa tekið svo miklum endurbótum á
•síðasta áratug, að um siíkt hefði naum-
•ast verið dreymt enda í draumórum þjóð-
hátíðarfagnaðarvímunnar. Má einkum telja
til þess strandferðirnar, enda þótt þær hafi
■ekki þótt fullnægjandi í ýmsum greinum.
Hafa tvö hin síðustu þing reynt að bæta
úr brestum þeim, er á þeim þykja vera,
með því að veita fje til aukinna strand-
ferða, en tilraunir þessar hafa ekki ennþá
komið að neinu haldi. Eru sumir þeirrar
skoðunar, að landið sjálf't ætti að eiga
ígufuskip, er haldið væri úti til strandferð-
-anna. Yæri ekkert á móti því, ef formæl-
•endur þess geta gefið tryggingu fyrir, að
■oss væri nokkru borgnara heldur en hafa
samið við áreiðanlegan skipaeiganda um
ferðir þessar. Að minnsta kosti er mjög
íisjárvert að binda sig skipkaupum, meðan
•engin vissa er fyrir, hversu stór skip
samsvara flutningsþörfunum. Þarf ekki
Hengra að fara en minnast á gufubátinn
->Elín«, sem hefir gengið hjer um Faxaflóa
• ’frá því í fyrra. Þótti mjög vafasamt í fyrstu
að hún hefði nægilegt að starfa, en reynsl-
an mun nú farin að sýna, að hún hefði
:gjarna mátt vera drjúgum stærri. Mun
því hyggilegra að láta skipkaupin bíða
iþangað til næg reynsla er fengin fyrir,
hvers konar skip eru hentugust til strand-
ferðanna. Hingað til heflr mest verið
hugsað um að hafa stærri gufuskip, er
færi í kringum allt landið og kæmi við á
sem flestum höfnum að mögulegt væri.
Hætt er við, að þess konar skip reynist
nokkuð dýr í samanburði við það gagn,
er þau gjöra. Er mjög vafasamt, að heppi-
legt sje, að strandferðaskip kringum land
allt komi miklu víðar en þær Laura og
Thyra gjöra nú, því það mundi ærið dýrt
Tyrir ferðafólk, er færi með því langar leiðir,
•að koma inn á hverja vík, og skipið yrði
að vera afarhraðskreytt, ætti töfln á höfn-
inni að vinnast upp. Að minnsta kosti er
augljóst, að reynslan mundi fljótt sýna, að
skip, er færi að eins 7—8 mílur á vökunni,
mundi þykja ailsendis ófullnægjandi. Hvað
gufubátana sncrtir, hygg jeg, að þeim hafi
ennþá verið miklu minni gaumur geflnn
en skyidi. Mundi ekki mögulegt, að koma
þeim þannig i samband hverjum við ann-
an, að þeir mættust á vissum stöðum og
tækju svo við fólki og flutningi hver af
öðrum? Ætla jeg að til þess þurfl -að
minnsta kosti 8 gufubáta kringum land
allt, þannig, að einn gangi austanfjalis,
f'r'á Vík til Reykjaness, 2. á Faxaflóa, 3. á
Breiðafirði, 4. á ísafjarðardjúpi, 5. á Húna-
flóa og Skagaflrði, 6. á Ej7jafirði og austur
undir Langanes, 7. frá Langanesi til Seyð-
isfjarðar og hinn 8. þaðan til Papóss. í
sambandi við gufubátana mundi þurfa að
fjöiga strandferðunum á stærra skipi um
2, að minnsta kosti, fram yfir það, sem nú
er, nfl. í ágúst og október, og ættu ferðir
hinna stærri gufuskipa og gufubátanna að
standa í sambandi hver við aðra svo
vel sem hægt væri að sumrinu. Hvað
samband vort við útlönd snertir, er öid-
ungis óviðunandi hvað fáar gufuskipaferð-
ir eru hingað um hásumarið. Útlendir
ferðamenn, sem gætu verið auðsuppspretta
fyrir landið, geta ekki komizt hingað nema
höppum og glöppum þann stutta tima, sem
ferðafært er fyrir þá hjer. Veitir alls ekk-
ert af, að frá því í miðjum júní og fram
í miðjan septbr., kæmi gufuskip hingað á
hverjum hálfsmánaðar fresti, annaðhvort
beint frá Skotlandi eða fastalandi Evrópu
um Granton. í annan stað er óhentugt,
að verða fyrir því, að póstferðir farist fyr-
ir um háveturinn vegna þess, að póstskip-
ið sje frosið inni í Eystrasalti, og ber því
brýna nauðsyn til, að trygging fáist fyrir
því, að gufuskip fari frá Esbjærg á Jót-
landi hingað í hvert sinn er póstskipið
getur ekki komizt frá Kaupmannahöfn í
tækan tíma.
Með byggingu Ölfusárbrúarinnar má svo
að orði kveða, að nýtt tímabil hefjist í
samgöngum vorum innanlands. Þegar hún
er loks byggð, er enginn, sem neitar því,
að mögulegt sje að brúa smámsaman allar
þær stórár landsins, er brúandi eru. Jafn-
vel þótt þröngsýni allmargra hallist enn að
því, að hjeruð þau, er einkum njóta brúnna,
eigi að bera kostnaðinn að nokkru leytí,
sn það má teija víst, að eptir því sem
fleiri stórár verði brúaðar á ýmsum stöð-
um á landinu, fari þinginu að skiljast, að
landssjóði ber að sjá um brýr á allar hin-
ar stærri ár, en smáárnar á hlutaðeigandi
hjeruðum ekki að vera ofætlun að ráða
við. Hafa Skagfirðingar gefið öðrum hjer-
uðum landsins gott eptirdæmi í því efni,
og má ætlast til að önnur sýslufjelög láti
ekki sitt eptir iiggja, að láta eitthvað verk
sjást eptir sig. Er v<)nandi að Rangæingar
hefjist nú handa, er þeir sjá brúna koma
á Þjórsá, væntanlega að ári komandi, og
kljúfi til þess þrítugan hamarinn, að brúa
Rangárnar, einkum Ytri-Rangá, og hið
sama má vænta af Árnesingum hvað snert-
ii Laxá og Tungufljót, svo framarlega sem
hentug brúarstæði flnnast á þeim. Hvað
brúargjörð á Soginu snertir, var því máli
hreift á sýslufundi Árnesinga fyrir nokkr-
um árum, en að líkindum þyrfti til þess
meira fje, en hjeraðsbúum væri kleyft að
einum fram. Brúin á Brúará er
þyflík ómynd, að vjer getum naumast án
kinnroða látið útlenda ferðamenn, sem
koma til landsins, fara hana lengur, án
þess hún sje gjörð að nýju. þannig, að
hún nái upp yfir vatnið, hvaða vöxtur sem
kemur í ána. Af stórám í öðrum lands-
fjóröungum er Jökulsá í Axarflrði efst á
blaði, þegar er Þjórsá sleppur, og svo fram-
arlega sem á henni finnst hentugt brúar-
stæði, væri æskilegt, að vjer gætum klykkt
öldina út með því að brúa hana. Það væru
afarmiklar framfarir að geta brúað 3 stærstu
ár landsins á einum áratug.
Ilvað hin nýju vegalög snertir, má búast
við, að allmörg ár líði áður þeim sje við-
unandi fullnægt, sjerstaklega er þess er
gætt, að viðhaldskostnaður veganna hlýtur
að aukast stórum er lagðir vegir lengjast,
því til lítils er að leggja vegi án þess að
þeim sje haldið sæmilega við. Má búast
við ýmsum umkvörtunum yfir þvi, úr hin-
um og þessum hjeruðum, er látin verða
sitja á hakanum, að þau þykist afskipt,
en til lítils væri að hlaupa þannig eptir
ósk allra með því að leggja nokkur hundr-
uð faðma árlega í hverju hjeraði. Það
yrði auðvitað til þess, að aldrei yrði lokið
við neitt, og vegagjörðarkostnaðurinn yrði
jafnframt miklu meiri að tiltölu heldur en
þegar langur kafli er lagður i einu lagi.
En svo fi amarlega sem vjer viljum fá
endingargóða vegi, verður oss að vera það
Ijóst, að vagnarnir eru ekki að eins til
sparnaðar (hvað hestaþörfina snertir, heldur
blátt áfram nauðsynlegir til að bæla niður
vegina, festa þá og gjöra þá endingargóða.
Hjálmar Sigurðarson.
Frá útlöndum.
Carnot forseti Frakklands myrtur.
Morðinginn handsamaður. Laugardaginn
23. f. m. kom Carnot forseti í embættisferð
til borgarinnar Lyon og ætlaði að verða á
sýningu, er haldin er í sumar þar í borg-
inni, en sunnudaginn næstan á eptir sótti
hann heim borgarstjórann, og var honum
tekið þar sem annarsstaðar með mestu
virktum. Sunnudagskvöldið kl. 9.40, er
hann ók frá verzlunarhöllinni í leikhúsið,
ruddist einn þeirra manna, er stóðu hjá,
þar sem vagninn fór um, upp í vagninn
og stakk Carnot neðanvert við hjartað í
lifrina, og hnje hann þegar niður meðvit-
undarlaus. Var hann þegar fluttur til
lögregluhallarinnar og hinir beztu læknar.