Ísafold - 19.09.1894, Síða 4
148
Tsauðum, vetur-
IQT gömlu og dilkum úr
x*■' bezta haglendi úr Þingvalla-
sveit, Grafningi og Grímsnesi sel jeg í
dag og næstn daga fyrir 20 aur. pd. í
heilum kroppum.
Reykjavík, 19. sept. 1894.
Kristján Þorgrímsson.
Undirskrifaður selur ágæt vín fyr-
ir franskt verzlunarhús, nefnil.:
Rauðvín fleiri tegundir
Portvín — —
Sherry — —
Champagne— —
Madeira — —
Sömuleiðis: cigaretter og munnstykki.
Þessar vörur seljast fyrir innkaups-
verð með frakt og tolli; sje keypt fyrir 10
kr. í einu fæst 6°/o afsláttur, fyrir 25
kr. eða meira 10°/o afsláttur.
Enn fremur sel jeg:
Bitter, franskan, á pottflöskum, 2 tegund-
CuraQao.
Vermouth.
Agætt tekex (Biscuits) og kaffibrauð
mjög billegt.
Reykjavík 28. júlí 1894.
___________C. Zimsen._______
Fjárkaup í haust.
Undirskrifaður kaupir fyrir pen-
inga eins og undanfarin haust sauðfje,
helzt sauði og veturgamalt, fyrir hæsta
verð, sem hjer verður á fje í haust.
Sveitamenn geta fengið port fyrir
fjeð hjá mjer kostnaðarlaust, hvort sem
þeir selja mjer fjeð eða ekki. Enginn
þarf að taka vörur út á fjeð fremur en
hann vill. Lág sölulaun.
Kristján Þorgrímsson.
Til sölu allt að 20 valdir sauðir fullorðnir.
Semja má við St. Stephensen á Mosfelli í
Grímsnesi.
-=Fjárkaup=-
H.Th. A. Tliomsens yerzlnnar
á Akranesi
fara fram í næsta mánuði (október) á þess-
um stöðum:
Neðranesi 2., kl. 2 e. m.
Norðtungu 3., kl. 11 f. m.
Rauðgilsrjett 4., kl. 11 f. m.
Deildartungu 4., kl. 4 e. m.
Varmalæk 5., ki. 11 f. m.
Odsstöðum 5., kl. 4 e. m.
Grund í Skorradal 6., kl. 11 f. m.
Leirá 8., kl. 11 f. m.
Kjalardal 8., kl, 3 e. m.
Reynisrjett 9., á hádegi.
Bjarteyjarsandi á Hvalfjarð.str. 8., kl.ll f.m.
Kalastaðakoti 8., kl. 4 e. m.
Fjárverðið auglýsist á markaðsstöðunum.
Nýjar vörubirg’ðir
snemma f næsta mánuði.
Akranesi 18. sept. 1894.
Magnús Ólafsson.
Nýprentaft:
Prestskosningin
Leikrit í þremur þáttum
Samið hefir
Þ. Egilsson.
Rvík 1894. IV -f 120 bls.
Kostar innb. 1 kr., í kápu 75 a.
Aðalútsala í Bókverzlun ísafoldarprentsm.
(Austurstræti 8).
Ágætvir rúgur
með góðu verði, afgangur af vörum kaup-
fjelaganna í Borgarfirði og Arnessýslu,
fæst hjá undirskrifuðum.
Rvík 18. sept. 1894.
í umboði kaupstjóra
Ásgeir Sigurðsson
i »Glasgow«.
Bókband.
Undirritaður tekur bækur til bands og
aðgjörðar; vandað band og ódýrt.
Hvoli í Mýrdal.
Guðmundur Þorbjarnarson.
Týnzt hefir 14. þ. m. gulbrúnt ferðasjal á
leiðinni frá Leirvogstungu að Möðruvöllum í
Kjós. Finnandi skili á afgr.stofu Isafoldar
gegn fundarlaunum.
Lögsókn. Hjer með auglýsist, að jeg hefi
gert ráðstafanir til lögsóknar gegn ritstjóra
»ísafoldar« fyrir illmæli og óhróður um mig í
blaði hans XXI. árg. nr. 32 og krefst jeg sam-
kvæmt prentírelsislögunum 9. maí 1855. ll.gr.
að auglýsing þessi sje þegar birt í ísafold.
Reykjavik 14. sept. 1894.
Hannes Þorsteinsson.
Undirskrifuð kennir, eins og að undan-
förnu, næstkomandi vetur námsstúkum
alls konar hannyrðir
með sömu kjörum og áður.
M. Finsen.
Kennsla
undir skóla, í þýzku, dönsku, ensku
og reikningi, fæst hjá
Bjarna Jónssyni
eand. mag.
Suðurgötu 6.
Magntís Torfason
cand. jurls
býr í Vesturgötu nr. 21.
Heima kl. 12—2.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og id. kl.11-12
Landsbankmn opinn hvern virkan d. kl. lÞ/s-21/*
Landsbókasafnið opið hvern rúmh. d. kl. 12—2
útlán mánud., mvd. og ld. kl. 2—3
Mdlþráðarstöðvar opnar í Rvík og Hafnarf.
hvern rúmh. dag kl. 8—9,10—2 og 3—8
Söfnunarsjóðurinn opinn 1. virkan mánud. i
hverjum mánuði kl. 5—6.
Ritstjóri Björn Jónsson cand. phil.
Prentsmiöja ísftfoldar.
(
162
meginn við veginn. Vjer bjuggumst þegar til bardaga.
Það voru líka nokkrar mishæðir hinum meginn vegarins,
og þóttumst vjer vita, að þar lægi einnig eitthvað af
Rauðskinnum í leyni.
Ofurstafrúin kom einna fyrst auga á ófriðarseggi þessa.
Hún leit til min.
»Er þetta fyrirsát?« spurði hún og fölnaði upp.
»Já, svo er víst. En jegvona, að við hlöðum þeim«.
Þeir riðu nú í veg fyrir oss, þessir tólf. En á hæla
þeim þeystu fram hundrað Indíanar aðrir, eins og hams-
lausir úlfar, og rjeðust í móti oss. Lægðin, sem vjer fór-
um eptir, var eigi breiðari en svo, að fylking vor náði
yfir hana þvera. Þeir 20 riddaraliðsmenn, som voru í
broddi fylkingar, miðuðu allir í senn, og skutu á múginn,
er ruddist fram í móti oss.
Frú Blank kallaði til mín i því bili er vjer ætluðum
að hleypa af byssunum.
»Já, jeg man vel eptir fyrirskipaninni«, anzaði jeg og
leit til hennar.
Síðan skutum vjer. Indíanar gerðu ekki nema
dreitðu sjer og komu oss í opna skjöldu. Þeim fjölgaði
óðum og voru nú orðnir sjálfsagt 300. Vjer hjeldum á-
fram og námum hvergi staðar, en ljetum skothríðina
dynja jafnt og þjett á fjandmönnum vorum. En þeir
gerðust æ nærgöngulli og áræðnari. Var við búið, að
163
vjer yrðum uppnæmir fyrir þeim. Kúla hitti mann þann,
er ók vagni frúBlanks, og fjell hann þegar. Litlu síðar var
skotinn hesturinn fyrir vagninum, svo að hann staðnæmd-
ist.
»Gerið það, sem yður hefir skipað verið«, kallaði
frúin til mín og brá hönd fyrir augu sjer, til þess að
hún sæi eigi byssuhlaupið, er þvi væri miðað á hana.
Jeg nötraði at skelfingu og nísti hendi um byssu-
skeptið.
En í sömu andrá tóku Indíanar til að hopa. Ilafði
orðið ákaft mannfall í þeirra liði undan skotum vorum.
Þeir ruku á bak hestum sínum með voðalegum óhljóðum
og þeystu á brott.
»Bið yður hafa mig afsakaðan, frú mín góð« anzaði
jeg. »Þeir láta undan síga, Rauðskinnarnir; vjer höfum
borið hærra hlut«.
Hún brá hendinni frá augunum og einblíndi á mig,
eins og hún skildi ekkert hvað jeg var að fara með.
Siðan hneig hún i ómeginaptur á bakí vagninn, og leið
löng stund áður hún lauk upp aptur augunum sínum bláu.—
Nokkrum dögum síðar, er vjer vorum komnir þangað
sem ferðinni var heitið og seztir þar að, ljet Blank ofursti
kalla mig á sinn fund og mælti bystur:
»Hafði þjer ekki verið skipað að skjóta hana konu mína,