Ísafold - 29.12.1894, Blaðsíða 1
Kemtir út ýmist einn sinn
®ða tvisvar í viku. Ver?) árg
minnst 80 arka) 4 kr.. erlendis
B kr. eða l1/* doll.; borgist
fyrirmibjanjúlimkn. (erlend-
is fyrir fram).
ÍSAFOLD.
UppsOtfLii skrií'eg) i'undn. vib
Aramót. ógild aema komin
sje til útgefanda fyiir 1 .októ
berm. Afgreibslustota blaós-
ÍQ8 ui i AuHturstraiti o
XXI. árg
Reykjavik, laugardaginn 29. desember 1894.
N 89 b!að
Vegagerö 1894.
Það var unnið í sumar að vegagerð á
landssjóðs kostnað á 3 stöðum: í Borgarfirði,
á Mosfellsheiði og Hellisheiði, auk þess
sem talsverð vinna fór í viðgerð og við-
hald (ofaníburð) á veginum frá Elliðaám
upp í Fóelluvötn, — syðri hluta Hellisheið-
arvegarins.
Vegavinnunni í Borgarfirði stýrði Arni
Zakaríasson. Var þar lagt framhald af
aðalpóstveginum, sem gerður var í fyrra,
nefnil. 1 röst (km.) fyrir norðan Hvítá, »af
Síðumúlahálsi eptir svokölluðu Húsasundi
og norður í Kleifar«, og fyrir sunnan
Hvítá »frá Kláfossbrúnni og suður á Hamra-
mela (upp í Bjúpnalág,)« rjett að segja 4
rastír. Enn fremur vegarspottar frá brúnní
á Flóku, um 170 faðma að norðanverðu
og 36 faðm. fyrir sunnan brúna. Loks gert
við og rutt um 200 faðm., á Hamramel-
um og fyrir sunnan Flóku. Er þar með
fenginn greiður og góður vegur af Varma-
lækjarmelum og norður í Kleifar, eða að
og frá Kláffossbrúnni, sem áður var veg-
leysa; enda umferðin mjög mikil um brúna.
Vegavinna þessi stóð yfir frá þvi í miðj-
um maímán. og framundir septemberlok,
með 23—24 verkamönnum lengst af, auk
verkstjóra. En þar í felst einnig vinna
að stöplahleðslu við brúna yfir Flókadalsá,
er lögð var í sumar, um 250 dagsverk.
Verkstjóri hafði 4x/2 kr. i kaup á dag,
smiður 4 kr., flokkstjórar (2) 3 kr. 25 a.,
aðrir 2 kr. 85 a. til 3 kr.; sumir lítið eitt
minna. Meðalkaup allra 2 kr. 92 a. Auk
þess 1 kr. í fæðispeninga á sunnudögum.
Kaup verkamanna alls 7,846 kr.; annar'
kostnaður nær 900 kr., þar af helmingur
hestaleiga.
Lögð var jafnframt í sumar brú á Flóka-
dalsd, illt vatnsfall, þótt ekki sje stórá
Það er trjebrú, 22 álna löng, eða þriðjungi
styttri en Kláffossbrúin, smíðuð með um-
sjón Helga kaupmanns Helgasonar í Reykja-
vík. Hún mun hafa. kostað að efni og
smíði fram undir 1000 kr., og stöplarnir að
henni aðrar 1000 kr.; þar við bætist flutn-
ingur. Brúin liggur 4—500, föðmum ofar
en vegurinn gamli yfir ána, efst í gljúfra-
petti þar dálitlu.
Vegavinnunni á Mosf'ellsheiði stýrði í
sumar Einar Finnsson, er vanizt hefir
vegagerð í Norvegi í mörg ár. Hann
liafði 33 verkamenn, frá því um miðj-
an maimán. og fram í októberbyrjun.
Það var framhald vegarins upp*með Selja-
dal að austan, sem hann lagði af nýju,
nær 4'/2 röst, þvínær hallalaust. Það kostaði
rúml. 9,600 kr. Enn’ fremur bar hann eöa
hans lið ofan í talsveröan spotta af kafla
þeim, er lagður var i fyrra sumar og þá
var eptir ógert; fóru til þess 372 þús. kr.
Er nú mjög skammt eptir að hinum nýja
vegi á háheiðinni. Verkalaunin sömu og
í Borgarfirði.
Að Hellisheiðarveginum var unnið í
tvennu lagi.
Vestan á heiðinni (eða sunnan) stóð Páll
Jónsson fyrir verki. Hann lagði af nýju veg
frá Svínahrauni nokkuð upp fyrir Reykja
fell, sunnan megin við það, þar sem er
miklu óbrattara og ósnjóhættara en um
Hellisskarð, og komst nær 6 röstum. Hann
byrjaði í miðjum maímán. og hjelt áfram
til 9. okt. Vinnulið hans var um þrjátíu
(31), með sömu kjörum og á hinum stöð-
unum. Kostnaður 12!/s þús. kr. Talsvert
af þeim vegi er »púkklagt« (sjá síðar).
Mestur halli 1; 10, á litlum spotta.
Loks hafði Erlendur Zakaríasson undir
austurhluta vegarins, aðallega heiðarbrekk-
una að austan, hina alræmdu Kamba, og
er það langörðugasti vegarkaflinn, er gerð-
ur hefir verið hjer á suðurlandi. Hann
byrjaði við Hengladalsá, uppi á heiðinni
austarlega, og komst spölkorn niður fyrir
Kamba, hjer um bil 4 rastir alls. Vinnu-
liðið 33—35, frá miðjum maí fram í miðj-
an október, með sömu kjörum og á hinum
stöðunum, og kostnaður við þann vegar-
kafla rúmar 15,000 kr. í vinnunni felst
enn fremur brúarstöplahleðsla við Varmá
í Ölfusi, er kostaði með steinlímsaðflutn-
ingi m. m. um 700 kr.
Það er ekki all-lítið mannvirki, hinn
nýi.'Kambavegur. Þrátt fyrir hina miklu
brekku þar er vegurinn hvergi brattari en
1 : IOY21 skeiðríða hann upp og of-
an, enda sljettur eins 0g fjalagólf nú fyrst
í stað og vonanditil frambúðar; svo vand-
lega hefir verið frá honum gengið. Sem
nærri má geta, þurfti ákaflega miklar
sneiðingar til þess að fá veginn svona ó-
brattan, og eru þær á 18 stöðum svo
krappar, að geisli bogans er ekki nema
2V2—4 faðmar. Víða varð að grafa í
gegnum hryggi og klappir, eða fylla upp
í lautir. Hlaða varð og víða allháan grjót-
vegg undir vegarbrúnina neðri, til þess að
fá af hallann, og er hann á einum stað
jafnvel 2 faðma hár. Svo eru og steinar
reistir upp á endann á neðri veggjarbrún-
inni, þar sem hún er nokkuð há, stabba-
steinar, með 1 faðms millibili, svo sem til
varnar í myrkri. Mestur hluti vegar þessa
er »púkklagður«, þ. e. gerður úr muldu
grjóti, smækkandi eptir því, sem ofar dreg
ur, en smágerður ofaníburður efst. Eru
slíkir vegir stórum mun traustari og hald-
betri en ella, og svarar það sjálfsagt hin-
um aukna kostnaði, þar sem leið er fjöl-
farin. Rúmar 7 kr. hefir faðmurinn kost-
að upp og niður í þessum vegarkafla öll*
um, á einum stað í Kömbum kostaðihann
24 kr.
Brúarstöplarnir við Varmá eru 14 álna
langir hvor, en 3 álna hár vestri stöpull-
inn og 4j/2 alin sá eystri. Brúna d Varmá
sjálfa, trjebrú, 16 álna langa, smíðaði eða
smiða Ijet Helgi kaupmaður Helgason í
Reykjavík, og mun hún hafa kostað 5—600
kr., auk flutnings, sem varð fremur ódýr,
— viðinum fleytt upp Ölfusá og Varmá.
Brúin er spölkorn fyrir neðan þjóðveginn,
sem var yfir ána.
Aðalforsögn og eptirlit með vegagerðum
þessum heíir mannvirkjafræðingur lands-
ins, hr. Sigurður Thoroddsen, haft, eptir
fyrirskipunum landshöfðingja og með hans
ráði.
A sumri komanda mun verða. lokið við
Hellisheiðarveginn, háheiðina, ásamt dá'
litlum kafla fyrir neðan heiðina, beggja
megin Varmárbrúarinnar, og verður þá
kominn akvegur alla leið frá Reykjavík
austur að Ölfusárbrú, nema hvað gera
þarf samt enn talsvert við Svínahraun til
þess, og svo er að eins reiðvegur spölkorn
fram með Ingólfsfjalli.
„Fj.konan44.
»Fj.konan« hefir nú samþykkt, að hafa
ritað greinina i sumar í fjelagi við Zöllner-
Vídalín, og sem ritstjórinn sagðist þá einn
hafa samið eptir upplýsingum sendimanns(V.)
er hann hafl sent á fund Zöllners. Okkur
greinir þá ekki lengur á um það, nje hitt
atriðið, að »Fj.konuna« vanti traust alþýðu.
Svar »Fj.konunnar« gengur ekki út frá
því, að verja þessi atriði, er jeg nefndi,
lieldur efnahag sinn, og segir hún hann í
góðu lagi, ; og er bezt að lofa henni það.
»Fj.konan« viðurkennir kaupendafækkun,
en kennir því um, að hún reki menn úr
reikningi.(l) og gera blöð það vanalega í
síðustu lög.
Loksins telur »Fj. konan«, að jeg hafi með
atvinnurógsástríðu ráðist á söngfræðinga
og blöðin, o. fl., en hann gleymir að geta
þess að blöðin hafa fyrst ráðizt á mig, og
að ekkert af þvi sem jeg hefl ritað um
söngfræði hefir verið hrakið, að söngfræði
sú, sem jeg samdi 1888, hefir aldrei mætt
aðfinningum o. s. frv.
»Fj. konan« getur vel sagt að jeg hafi
ráðizt á ýmsa, það er að jeg hafi skrifað
um ýms málefni, sem ekki hefir fallið
öllum í geð, en hún getur aldrei sagt að
jeg hafi gert það að ástœðulausu, nje
ráðizt á menn, sem jeg hefi notið einhvers
góðs af, eins og »Fj.-konan« hefir gert.
Eins rita jeg jafnan fyrir sjálfan mig, en
er ekki leigugripur annara.
Reykjavík 29. des. 1894.
Bj'örn Kristjánsson.