Ísafold - 21.09.1901, Side 2

Ísafold - 21.09.1901, Side 2
254 líta yfir í próförk það, sem eftir hon- um er haft og gera honum kost á þeim leiðréttingura, sem hann vill. J>á hefði og átt að vera rokinn af honum (H. H.) hitinn, sem blaðamað- urinn talar um að í honum hafi ver- ið og enginn mun rengja, sem minn- ist framkomu hans hér á þinginu í sumar. Kynbótastofnanir fyrir sauðfé. Um kynbótastofnanir fyrir sauðfé hefir Sigurður búfr. Sigurðsson skrifað í 12. bl. »Fjallk.« þ. á. Hann telur eina slíka stofnun æski- lega hér í Árnessýslu, í líkingu við kyn- bótastofnun þingeyinga. Bn hann tel- ur óráðlegt að hafa til þessarar kyn- bótastofnunar þingeyska fjárkynið, sök- um ólíks loftslags, léttari landkosta og heyja, hirðingar og húsakynna. Eg er nú í alls engum efa um það, að hr. S. S. er sannfærður um, að hann líti rétt á það, að þingeyska fjár- kynið sé óviðeigandi hér á Suðurlandi; því hann er samvizkusamur maður, drengur góður og hefir mjög sterkan áhuga á öllu því, sem hann hyggur landbúnaðinum mega að gagni koma. En hann er maður ungur og getur því ekki haldið þessu fram af sjálfs sín reynslu. Hann hlýtur því að styðja þessa skoðui^ við annara sögusögn, og þá þeirra manna, sem ekki hafa verið færir um, að skýra honum hleypidóma- laust frá eða með nægri þekkingu í þessu efni. Árið 1858 var alls engin sauðkind til í öllum efri hluta Árnessýslu, og þá um haustið fengu þessar sveitir sér fjárstofn af Norðurlandi, Gnúpverjar úr þingeyjarsýsln. Síðan hefi eg um- gengist þetta fé, og haft tækifæri til að sjá, hvernig því hefir vegnað í kring- um mig. |>egar þessi nýi fjárstofn var kom- inn, þá vildu nú mennirnir hirða kindurnar sínar, og það sást þá ekki annað en að þeir gætu það; enda báru þær þeim svo mikinn arð, að enginn þekti neitt líkt því áður; og svo hélt þetta fjárkyn sér vel fyrstu 10—15 árin, að litlu eða alls engu munaði á við fé fúngeyinga á sama tíma, í sunn- lenzku loftslagi og veðuráttufari, með sunnlenzku hagbeitinni og á léttu heyj- unum, með sunnlenzkri hirðingu og húsakynuum. þ>etta er hægt að sanna. En að þeim tfma liðnum fór fénu að hnigna. f>á var það farið að fjölga til muna og kynbætur engar, en hafði þó nokk- uð blandast lakara fé, helzt úr Eang- árvallasýslu og Skaftafells. f>á fóru bændur að sjá, að svo búið mátti ekki standa; og þótt til þess þyrfti langan umhugsunartíma, varð þó úr á endanum, að sóttar voru kynbótakind- ur norður í Bárðardal, með mikiili fyrirhöfn og kostnaði. Heldur nú hr. S. S., að mennirnir hefðu gert þetta, hefði reynslan venð búin að sýna þeim, að norðlenzka fjár- kynið gæti ekki þrifist hér? þ>eir voru þó búnir að reyna það. |>essi tilraun lánaðist yfirleitt illa. LangfleBtar kindurnar dóu úr pestinni á fyrsta, öðru og þriðja ári; og þegar þess er gætt, að þær voru aldrei fleiri en 40, þá er varla til mikils að ætlast af því, sem eftir lifði. En svo mikið sást þó, og það niður í ;Flóa, t. d. í Hjálmholti, Bitru, Óseyrarnési og víð- ar, að það gerði »stórgagn«; því að fá- um árum liðnum var féð á þessum bæjum mörg hundruð kr. meira virði eftir en áður. f>ó ótrúlegt sé, þá hefir þessi kyn- bótatilraun verið notuð sem ástæða fyrir áfellisdómi þingeyska fjárkynsins. f>að eru menn til, sem níða það niður undir allar hellur; segja það hafi flutt hingað alla kvilla, jafnvel bæði hor og bráðapest! f>eim er í fersku minni þessi kyn- bótatilraun með 40 kindum; en hafa gleymt því, að mörg þúsund af þing- eysku fé hafa sýnt það, að loftslagið, hagarnir og hirðingin hefir ekki verið því til tálmunar á Suðurlandi. f>að sem fundið hefir verið að þessu fé með ástæðu, er, að því er pesthætt- ara. En allir, sem af pestinni hafa að segja, vita, að hún liggur mest í bezta fénu, hvar sem það er og hvaðan sem það er. Nú er komin, ef ekki vissa, þá að minsta kosti mjög álitleg von um, að verjast megipestinni með bólusetningu að mestu eða öllu leyti, og úr því er það enginn efi, að allir þeir, sem vilja bæta fjárkyn sitt, ættu að fá fé Bárð- dælinga til þess, fremur öllu öðru fjár- kyni hér á landi. Kynbótastofnun sú, sem hr. S. S. ræðir ura í áðurnefndri grein, kann gjarnan góð að verða, En eg verð að kannast við það, að eg hefi mjög litla trú á henni, eins og hún er hugs- uð þar. f>ví hún hlýtur að verða af- arseinvirk í því, sem eg tel aðalatrið- ið, en það er að kenna almenningi að þekkja nauðsyn og nytsemi fjárrækt- arinnar, og að vilja bæta hag sinn með því. Til þess eru að minni hyggju sýning- ar með verðlaunum fyrir framúrskar- andi skepnur eina ráðið. Verðlaunin ættu að vera þrenn; fyrstu verðlaunin talsvert há, en mjög sjaldgæf; þriðju verðlaun að eins viðurkenning. Stjórn Búnaðarfélags íslands ætti að taka þetta að sér, sjá um hagkvæmt fyrirkomulag og verja nokkuru af sjóði sínum til kostnaðarins. Að öðru leyti ætti þingið að veita fé til þessa. Kolbeinn Eiríksson. Klausturskólinn í Landakoti. I. Margur mun halda, að Beykjavík sé afarmerkur bær, með tilliti til þess fjölda manna sem hér býr, er gengið hefir í opinbera skóla, hærri og lægri, og tekið hefir opinbert próf. En af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá. Eitt er af tvennu: annaðhvort er hér sárfátt hugsandi fólk, eða það lifir í einhverjum skýjaheimi, langt fyrir ofan eða utan hið verulega líf. Eða er orsökin enn önnur? Er fólk- ið algerlega kærulaust? Sama setningin ómar um land alt: alþýðumentun vor er farin að verða á eftir öðrum þjóðum, og þetta má ekki svo til ganga. f>ví er haldið hiklaust fram, að meiri alþýðumentun sé skilyrði fyrir því, að þjóðin eigi í raun og veru betri daga fyrir höndum. Vér viljum höggva sundur öll bönd, sem hægt er að leggja á hugsunar- frelsi manna. Vér krefjumst, að hver einstaklingur hafi fullkomið hugsunar- frelsi, og það með réttu. Og jafnvel afturhaldsmennirnir vilja /heita vinstrimenn, þó ekki sé nema að nafninu til. II. Kaþólska trúboðið er komið af nýju hingað til lands. Trúboðið sjálft ber að láta í friði. f>að á rétt á vernd laga vorra, eins og önnur trúarbragðafélög, og það er sbylda vor, að sýna trú þessari um- burðarlyndi, þótt vér viljum ekki hall- ast að henni sjálfir. En það er ein tegund af starfsemi þesBa trúboðs, sem vór megum ekki láta sem vind um eyrun þjóta. f>að er barnaskólinn kaþólski. Hann byrjar að kenna í Reykjavíkur- anda. Hann leggur aðaráherzluna á tungumál. f>að er ekki spurt um þá kenslu, er veki sjálfstætt hugsanalíf, rannsabandi athygli, víkki sjóndeildarhring sálar- eðlisins og ali upp þroskaða einstakl- inga með starfsömum framfaravilja, heldur um þá kenBlu, er láti alt þetta sitja á hakanum, jafnvel kæfi og keng- beygi viljann, en — nemandinn læri, nvað hundur og köttur eru nefndir á framandi tungum! Já, djúpt erum vér fallnir í brunn- inn. f>ví hve nær hefir kaþólskur skóli starfað í sama anda og stefnt að sama markmiði sem mentastofnanir hins protestantiska heims? Er ekki kaþólsk alþýða brenni- merkt af hjátrú og fáfræði, ogþaðþví dýpra, sem nær dregur sjálfum páfa- stólnum? Lítum á alþýðumentunina ;ú Ítalíu, Spáni, Portúgal, Mexico, Mið-Ameríku og Suður-Ameríku, þar sem kenslan er alment algerlega í höndum kaþólsku klerkastéttarinnar. Hvar getur aumlegri sjón? Lítum því næst á Erakkland, Belgíu, Suður-f>ýzkaland, Sviss og Austurríki. f>ar gengur stöðugur ófriður milli ka- þólsku klerkastéttarinnar og stjórnend- anna út af skólamálunum, og ment- unin eykst eða minkar á víxl eftir þýí, hvort ríkið lætur meira eða minna til sín taka. Lítum loks á protestantisku lönd- in: Norður-Evrópu, Norður-f>ýzkaland, Holland, Bretland, Kanada, Bandarík- in, Ástralíu og Nýja-Sjáland. f>orir nokkur að neita því, að í þess- um löndum sé alþýðumentunin komin lengst áleiðis? Er nú ekki hægt að ganga úr skugga um, að því meira vald sem kaþólska kirkjan hafi yfir kenslumálum, þá sé fáfræði almennings þess meiri? En þegar hingað kemur, þá á ka- þólski skólinn að vera fyrirmyndar- skóli. Bágur mætti barnaskólinn hér vera, ef slíkt væri satt. En sem betur fer eru þetta draum- órar og ímyndun ein. Barnaskólinn hér þarf ekkert að fyrirverða sig fyrir kaþólska skólanum. Gætum þess þó, að gera ekki ka- þólska skólanum rangt til. Viðurkenn- um, að hann muni dágóður nú sem stendur. En eru nokkur líkindi til, að svo mundi verða, er fram í sækti? Eru líkindi til þess, að verndari fá- fráfræðinnar í Suðurlöndum muni verða frömuður mentunarinnar hér á landi? Nei; þá færi nú að verða hausavíxl á hlutunum. III. Kaþólska kirbjan veit hvað hún vill. Hún ætlar sér að standa til heimsins enda. Hiln trúir því, að svo muni verða, og hún breytir eftir því. Hún getur því farið hægt, og þarf ekki að flýta sér. Hún hefi fyrir sér aldir og áraþúsundir. En ísland á að verða algerlega kaþólskt land, og öll skólamál að komast í kaþólsbu kirkj- unnar hendur. f>að er auðsjáanlega hennar mark og mið. f>að var ekki mikið, sem var sér- kennilegt fyrir kaþólsba trú, sem pré- dibað var !• kirkjutrúboði þeirra fyrsta árið. Nei, þá var laðað að með því, að tala um það, sem sameiginlegt er öllum kristnum mönnum. Nú er búið að varpa þeirri aðferð- inni fyrir borð. IV. f>ví mun svarað, að þetta snerti ekki skólann; hann hafi engin trúar- leg áhrif á börn þau, sem í honum eru. Gerum ráð fyrir, að svo sé, þó á- stæða sé að efast um það. Hversu lengi mun það vera? Kaþólska kirkjan fer ekki að eins og fífl, að hún sái kálfræi um miðjan daginn, og leiti að gulrófunum að kvöldi. Hún veit, að dropinn holar steininn. Sé hann mjúkur, þá gengur það fljótt; sé hann harður, verður það að taka lengri tíma. íslendingar þyrftu að vera úr því efni gerðir, sem þessi tímans tönn ynni ekki á. Kaþólsku kirkjunni er alls ekki lá- andi, þó hún fari hyggilega að ráði sínu. Sá er maður að meiri, sem legg- ur eitthvað í sölurnar fyrir trú sína og sanDfæringu. En oss, bæjarbúum, er láandi blindn- in og hugsunarleysið, að sjá ekki, hvar fbkur liggur undir steini og skilja ekki tímans tákn. f>að má vera meiri fásinnan, að senda börn sín í þann skóla, sem eft- ir eðli sínu hlýtur að vera settur til höfuðs alþýðumentuninni í landinu. f>að er enginn efi á því, að hversu mikið 8em kent er í skóla þessum, þá taki hann þegar að móta ungling- ana, svo þeir á sínum tíma geti orðíð efni í verkfæri kaþólsku kirkjunnar, og þó börnum þeim, sem þangað ganga fyrst í stað, sé ekki kend kaþólska, þá verði svo undirbúið, að hægt verði að eigi við niðja þeirra. — Hugsum oss þó t. d. þá biflíusögu- sögukenslu, sem þar er veitt. En hvað sem trúarbrögðunum líður, þá er eitt þó víst, að með því að senda óþroskaða unglinga í kaþólskan skóla, eigum vór á hættu, að viljaþrek þeirra sé lamað og einstaklingseðli þeirra afmáð. Blæm er kínverska fót-blemman og annað, sem aflagar líkamann; en verra er þó, séu fjötrar lagðir á sálina. Hjálmar Sigurðsson. Erlend tíðindi. Þau eru fá söguleg, utan banatilræð- ið við Bandaríkjaríkjaforsetann, Mc- Kinley, 6. þ. m.; pólskur þorpari, ó- stjórnarliði, slcaut á hann 2 skotum af marghleypu, öðru í brjóstið, en hinu í kviðinn, og hefir kúlann sú enki fundist eða náðst. Þetta var í borginni Buffalo, í New-York-ríki. Þar var forseti stadd- ur á syningu. Morðinginn lózt ætla að heilsa honum með handabandi. Forseta var ekki ætlað líf fyrst eftir tilræðið, og ekki talinn úr allri hættu, er síðast fréttist, þótt læknar væru vongóðir orðnir. Af viðureign Búa og Breta ekkert öðru n/rra sögulegt. Hafa Búar heldur stælst en hitt fyrir harð/ðgishótan Kitcheners lávarðar, um afarkosti þeim til handa, er eigi hefði á hönd gengið Breturn 15. þ. m. Nú á loks um það leyti að vera full- gerður friður með Kínverjum og stór- veldunum. Nylega kominn til Berlín Chun keis- arabróðir frá Peking, í áskildum frið- þægingarerindum fyrir morð v. Kettelers sendiherra í fyrra. Hann veiktist á leiðinni, í Sviss, eða gerði sór upp veiki vegna þess, að honum þótti heldur hart aðgöngu að eiga að falla fram 9 sinti- um fyrir keisaranum í Berlín, í viður- vist hirðarinnar. Eftir nokkurra daga hraðskeytahríð milli kínversku stjóruar-

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.