Ísafold - 01.08.1906, Blaðsíða 1

Ísafold - 01.08.1906, Blaðsíða 1
Xenmr út ýmist einn sinni eBa vviev. i vikn. Verð árg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eöa l‘/» doll.; borgÍ8t fyrir miðjan jáli (erlendis fyrir fram). ISAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sé til átgefanda fyrir 1. október og kaup- andi skuldlaus við blaðið. Afgreiðsla Austurstræti 8 Keykjavík miðvikudaginn 1. ágúst 1906 Verzlunin EDINBORG Singleton & Priestman hnífar! Það var einu sinni sú tíð, að enginn hnífur þótti þess virði að nota nema hann væri tilbúinn af Joseph Rodger. — En nú er öldin ónnur. Margir jafningjar Rodgers hafa nú risið upp og sumir orðið honum meiri. Þar á meðal þeir Singleton & Priestman, sem hafa hlotið þann orðstír, að hans hátign Játvarður konungur hefir gert þá að sínum hnífasmiðum. Reynið einn af okbar aluminium S. & P. hnifum á 85 aura. -X XXIII. árg. o. 0. F. 888109 .Augnlækning ók. 1. og 8. þrd. kl. 2—8 l spltal Porngripasaf'n opið A mvd. og ld. 11—12. Hlutabankinn opinn 10—2*/* og ú1/*—7. P. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 Ard. til 10 siðd. Alm. fundir fsd. og sd. 81/* síðd. &andakotskirkja. Guðsþj. 9 og 6 A helgidögum. Landakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—6. •Landsbankinn 101/*—21/*. Bankastjórn við 12—1. Landsbókasafn 12—8 og 6—8. ■Land88kjaia8afnið A þrdn fmd. og ld. iS—1. Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12. ^Náttúrugripasafn A sd. 2—8. Tannlækning ók. i Pósthússtr. 14, l.ogð.md. 11—1 Kaupið einu sinni brent og malað kaffi hjá Jes Zimsen 'Og þér munuð frainvegis ^kki vilja annað kaffi. kingmannaförin. Koman til Kaupmannahafnar. Hún varð 18. f. m. að kveldi, eins og til var ætlast. Ferðin hafði gengið ágætlega; bezta veður alla leið. Þeir urðu þó á endanum ekki nema 35 alls, heimboðsþingmennirnir: 33 á Rotníu og 2 fyrir í Khöfn. Auk áður- oefndra 4, er heima sátu, varð Ólafur Thorlacius einhvern veginn afhlaups lerðinni. I’eir fögnuðu þingmönnum á skipsfjöl, C. Christensen ráðuneytisforseti, og Hkisþingsforsetarnir báðir, H. N. Hansen konferenzráð og Anders Thomsen kenn- ari' Mikill mannfjöldi var og á Toll- húðiuni, er Botnía lagði þar að, og 'kvaddi þingmenn fagnaðarsamlega. CÍ8ting var þeim ætluð í hótel Kongen Hanmark, einú meðal beztu hótell- anna í Khöfn, öllum 35; þeir 2, sem fyrir voru í Khöfu, dr. V. G. og Jóh. Jóhannesson, færðu sig þangað á meðan. Hópnum var öllum ekkið þangað frá 1 ollbúfiinni. Háskólaliátíðin. Haginn eftir, 19. júlí, fóru fram við- hafnarvifitökuruar á hákólanum, í hátíða- °al hans. j>ar kom konungur og hans fólk alt, drotning hans og bræður og I>örn þeirra. J>ar voru og ríkisþing- ^ennirnir allir saman komnir og margt 't'anna annað, danskur höfðingjalyður og j^enzkir stúdentar; þeim hafði verið b°ðið þangað. • ■ C. Ghristensen yfirráðgjafi ^eig fyrstur í stólinn. Hann mælti: nungurinn vildi kynnast sínum ís- j zbu Þjóðfulltrúum og að þeir kyntust uni' Eg vona, að þessir samfundir Styrki r|kið og samheldni milli dönsku Þjóðarinnar og íslenzku. Þess óskar ^jórnin, þess óskar konungur. Andeis T h o m s e n fólksþingisforseti sagði þingmenn velkomna fyrir ríkis- þingsius hönd. E i r í k u r B r i e m, forsetinu í sam- einuðu þingi, þakkaði fyrir boðið, og bað guð að blessa konuuginn og drotninguna, stjórn, þing og alla þjóðina dönsku. Eftir það var sunginn og leikinn á hljóðfæri fyrri kafli tvítugrar drápu með ymsum bragarháttum, eftir ungt skáld L. C. Nielsen, (var fyrir nokkrum árurn ritstjóri fyrirlllustr. Tidende), sumt af fjölrnennum söngflokk, sumt af söng- snillingnum Herold einum. Eftir það tók til máls Edvard Holm prófessor, garnall sögukennari við há- skólann, og flutti langa tölu og snjalla, um sögu sambandsins milli Islands og Danmerkur, »og bar ekki vel söguna konuugsvaldinu danska á einveldistímuu- um fyrir vanrækslu þess á Islandi«. Hann bað þingmenn vera vel komna til Danmerkur. Eftir það var sunginn síðari hluti drápunnar, sumt af Herold. — Hún er snjalt orðuð og all-fbutðarmikil sumstað- ar, sem títt var um drápur. Kautate kalla Danir annars slík viðhafnarljóð. Upphafið er þetta: Hil Jer, Frænder paa Friheden1! 0, Thingmænd, til hvem vi taler. Eitt stefjamálið byrjar svona: Saa foer de mod Yest til Vinland mod Syd til Kongens Sæde. Hannes Hafstein gæti gert smellna íslenzka þýðingu á henni. Konungur þakkaði skáldinu fyrir áður en hann gekk burt. Að því þrekvirki afloknu var farið með þingmenn út í Tivoli til dögurðar. Ríkisþingsveizlan fyrsta. Það var þessu næst, að ríkisþingið veitti þingmönnum náttverð sama kveld í þinghúsinu, og var þar margt stór- menni saman komið annað, alls 4—500 manna. Þar flutti Holger Drachmann kvæði og Georg Brandes mjög snjalla tölu. Fanst þingmönnum og öllum við- stöddum harla mikið til þess korna hvorstveggja. Ráðgjafinn íslenzki tal- aði þar, slótt og áheyrilega, en fremur efnislaust. Konungsveizlan. Daginu eftir, föstudag 20. júlí, voru þingin bæði, alþingi og ríkisþingið, í konungsboði í sumarhöll konungs, Fredensborg. Þar flutti k o n u n g u r mjög hjart- næma ræðu og snjalla; hann er mjög vel máli farinn. Hann ávarpaði alþingis- menn fyrst, bað þá vera vel komna og þakkaði þeim hjartanlega komuna. Hann kvaðst leggja við konungsorð sitt um það, að hann mundi æ.tíð ljá opið eyra ö 11 u þv/, er Islandi horfði til framfara og nytsemdar. Forseti neðri deildar, M a g u ú s Stephensen, svaraði ræðu konungs. Hann kvað þingmennina íslenzku vera þar komna til þess að »hylla yðar há- tign sem erfðahöfðingja vorn og konung og heita yður þegnlegri hlýðni og trú- mensku«. Hann talaði mikið nm »sér- staklega hylli og náð og landsföðurlega uinhyggju hans hásæla föður«, kvað ís- lendinga vera þess fullörugga, að þeir mundu verða sönni konunglegrar náðar og landsföðurlegrar umhyggju aðnjót- andi, og fór fögrum orðum um þá »alveg sérstaklegu náð«, að hans hátign hefði boðið fulltrúúm þjóðarinnar íslenzku hingað til Khafnar til þess að verða »leiddir fram fyrir ásjónu yðar hátign- ar«. H. N. H a n s e n konferenzráð, lands- þingisforsetinn, þakkaði fyrir ríkisþings- ins hönd, allur ofanjarðar þó, líkt og menskir menn tala við þjóðhöfðingja á 20. öld, en ekki eins og þeir gerðu á 17. eða 18. öld, lengst niðri í duftinu fyrir hásætisskörinni. Þá tók konungur enn til máls og þakkaði ræður forsetanna mörgum fögrum orðum. Hann kvað marga konunga mundu öfunda sig af þessari hinni veg- miklu stund, er hann ætti því láni að fagna að vera um horfinn fulltrúum hinnar dönsku og íslenzku þjóðar. — Þetta eru síðustu utanfararfréttirnar. 49. tölnblað. L IX S og i fyrra, fær unclirritaður nú í ág-úst- mán. steinolíu. I»að verður amerisk prima Standard White olía (sama tegund og í fyrra). — Vonandi kaupa allir bæjarbúar olíu þá, sem þeir hafa þörf fyr- ir, hjá mér, af þvi að þá fá þeir ágæta oliutegund og liið lægsta verð, sem hugs- anlegt er að geta tengið góða olíu fyrir. — Eg fæ alls ca. 2000 tunnur af olíu, en dálitið af henni kemur ekki fyrri en i sept.mán., ca. 2—300 tunnur. S. Sigíiísson, Hverfisg. 12. Bjornstjerne Bjornson sendlr íslandi kveöju sína. Hér hafði verið fluttur fyrirlestur um hann í vor einhvern tíma í félaginu S k a n d i a. Það gerði David Östlund ritstjóri. Formaður fólagsins, J. Aall- Hansen, sendi B. B. stutta skýrslu um fyrirlesturinn og innihald hans, og fekk aftur þakkarpistil frá honum nú með síðustu ferð. Þar segir hann meðal annars: íslendingar sendu mér svo fallegt áva-p á 70 ára afmæli mínu. Eg kom mór ekki að því að senda innilegar þakkir míuar fyrir það undir eins. Það kom svo mikið í senn, að eg átti á hættu að þakka mig tóman. Það hefði orðiS eins og utan viS mig, og það kunni eg ekki við. En innilega glaSur varð eg, er eg fekk ávarpið, og eg hefi veriS að hugsa um aS seuda þeim eitthvað aftur. Má vera að það komi. Marga nótt hefir mig dreymt, að eg væri staddur á Islandi. Mig dreymdi þaS líka um Ameríku, og þangað kom eg. En til íslands naumast. HeilsiS frá mér. YSar Bjornstj. Bjurnson O. Myklestad fjárkláðalæknir hvarf heimleiðis héSan um miSjan f. mán., frá Akureyri, við bezta orðstír fyrir framkvæmdir sinar, frábæra atorku, alúð og samvizkusemi við sitt starf, lagni og fylgi. Ræktun- arfélag NorSurlands sendi honum áður skrautritaS skjal með alúSarþakklæti fyrir frammistöður hans. Enn fremur fekk hann þakkarpistil frá Þingeyingum, sýslumanni þeirra fyrir hönd sýslunefnd- anna beggja.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.