Ísafold - 22.06.1912, Page 3
ISAFOLD
151
□ IE
3,B^
Verzlunin Björn Kristjánsson
selur ódýrast
Vefnaðarvörur
Pappír og Ritföng
Málningarvörur
Leður og Skinn
Skóflur og Paksaum.
Vandaðar vörur Ódýrar vörur.
Verzlunin Björn Kristjánsson.
Kennara-afmæli.
Steján Stejánsson skólameistari gagn-
fræðaskólans á Akureyri á 25 ára
kennaraafmæli við þann skóla í sum-
ar. Var veitt embættið þar 31. ág.
1887. í minningu þess færðu nem-
endur skólans skólameistara.áður en þeir
fóru í vor, að gjöf, vandað gullúr með
festi, og var letrað á: Til skólameist-
ara Stejáns Stejánssonar. Með ást og
viróinqu. 25 ára minning jrá nem-
endum 1912.
Valurinn fór héðan áleiðis til
Grænlands aðfaranótt 21. þ. m.
Þar hefst haim við fram eftir
sumri. Kemur hingað aftur í ágúst,
að því er ráð er fyrir gert. — í fjar-
veru Valsins annast H e i m d a 11 u r
strandgæzluna. Hans er von á degi
hverjum. Yfirmaðurinn er Konow
höfuðsmaður.
Um Vestmanneyjasímann
er ísajold ritað frá Vestmanney-
jum það sem hér fer á eítir:
Eyðisker voru Vestmanneyjar oft
kallaðar í gamla daga, en aldrei hafa
þær átt skilið að heita því nafni; hér
hefir jafnan verið gott til aflafanga,
og mörgum skepnum framfleyta Ey-
jarnar, þó ekki sé landrýmið; en það
er líklega lega þeirra og samgöngu-
leysi, sem hefir aflað þeim þessa nafns.
Þeir voru tímarnir, að ekkert spurðist
hingað mánuðum saman, og þau einu
samgöngufæri milli lands og Eyja
voru flöskupóstarnir, í skammdeginu,
en þeir póstar voru bæði ótryggir, og
höfðu þann stóra galla, að þeir gerðu
ekki nema að flytja fréttir, en komu
aldrei síðan út hingað. Nú er öldin
önnur; hreinn óþarfi að kvarta undan
samgönguleysi, og þetta ár hafa Eyja-
búar stigið stórt framfaraspor, þar
sem þeir hafa fengið síma samband.
Skiftar voru skoðanir manna um það
hvort betra væri símasamband eða
loftskeytasamband, enda er það að
sannast æ því betur að loftskeytin
eiga mikla framtíð í heiminum; en
hvað um það, símasambandið er nú
komið, og komið fyrir drengileg og
skjót samtök Eyjabúa, og dugnað hr.
Forbergs landsímastjóra. Sfmstöðin
er nú þegar komin upp, steinsteypu-
hús vandað og prýðilegt; hefir verk-
fræðingur A. L. Petersen látið gera
húsið á sinn kostnað, og var það
þarft verk, því að ekkert viðunanlegt
hús var fáanlegt fyrir símastöð, sizt
til lengdar. Hefir A. L. Petersen
gerst stöðvatstjóri; hann er stakur
reglumaður, nákvæmur í reiknings-
færslu, áreiðanlegur, vel mentaður og
vel látinn. Sér til aðstoðar hefir hann
tvær stúlkur; aðallega frk. Katrínu
Söbeck, sem er stúlka vel að sér,
dugleg, gegn og góð; og frk. Jó-
hönnu Friðriksdóttur, sem er trú og
góð stúlka. Er almenn ánægja hér
með símasambandið og símastöðina,
og alment traust á stöðvarstjóranum,
er það vilji almennings, að hann verði
við það starf sem lengst, en naumast
við því að búast, að hann lúti hinum
afar rýru launum, er hann nú hefir,
til lengdar.
Kunnugur.
-----*----
Reykjavikur-annáil.
Aðkomumenn siðustu viku: síra Arnór
Þorlákssou, sr. Eggert Pálsson, Q-uðm.
Guðmuuds8on skáld frá Isafirði (dvelst
hér fram eftir sumrinu).
Brunabótavirðíngar samþ. á s ðasta bæjar-
stjórnarfundi:
Húseign Páls Jíagnússonar Bergstaðastr.
nr. 4, kr. 15.608.
GeymslukÚB Garðars Glslasonar & Hay
kr. 21,350.
Dánir: Quðrún Jónsdóttir frá Breiða-
bóisstað i Ölfusi. Dó í Landakotsspítala
17. júnl.
Fimleika ætlar kven-íþróttalélagið Iðunn
að sýna á morgun ki. 4 úti á Iþróttavelii
undir forustu Björns Jakobssonar leikfimis-
kennara. í fyrra á íþróttamótiuu þótti leik-
fimi Iðunnar bera af ööru, er sýnt var. —
Slðan hefir félaginn að sjúlfsögðu farið
fram. — Núna sýna stúlkurnar auk binna
frjálsu flokksæfinga séræfingar á besti 0. f).
Það mundi eigi úr vegi fyrir kvenfólk
hér i bæ alment að ómaka sig út á íþrótta-
völl — horfa á og læra: að hœtta að Idta
sig engu skifta likamstþróttir.
Fiskkaupmaður italskur Gismondi að
nafni frá Öenua kom hingað á Flóru siðast.
— Hann kaupir ógrynnin öll af islenzkum
saltfiski. Gismondi kom einnig bingað í
fyrra og ferðaðist þá til Þingvalla og
öeysis. Núna ætlar hann einnig að skoða
austursveitirnar — fer á rnorgun austur og er
ferðinni nú heitið til öeysis og Heklu.
Guðsþjónusta á morgun:
I dómkirkjunni: kl. 12 sira Bj. J.
(Altarisganga).
kl. 5 sira Jób. Þork.
í fríkirkjunni: kl. 12 sira Ól. Ól.
Hafnargerðin. Á síðasta bæjarstjórnar-
fundi (á fimtudaginn) var samþykt að greiða
Dines Petersen stórkaupmanni i Khöfn 500
kr. fyrir aðstoð hans við að útvega h&fnar-
lánið og borgarstjóra jafn mikla fjárhæð
auk 100 kr. ferðakostnaðar til Kristjaníu.
Ennfr. var samþykt að greiða Þorvaldi
Krabbe verkfræðingi 1000 kr. fyrir starf
hans við að gera útboð um hafnargerðina.
Sjálfur hafði Krabbe gert kröfu um 3000
kr. þóknun.
Hjúskapur: Ólafur Ingvar öuðmundsson
sjóm. örettisg. 10 og ym. Guðr. Fríðfinns-
dóttir frá Neðra-Hálsi í Kjós. öift 15.
júni.
Jóhannes Nordal ishússtjóri slasaðist tais-
vert um siðastiiðna helgi, datt af hestsbaki
svo illa að hann rotaðist og lá i roti nokkr-
ar kl.st. Hefir legið rúmfastur siðan, en
er nú á batavegi.
Laxveiðar í Elliðaánum. Englendingar
þeir, sem leigt hafa Elliðaárnar i sumar,
eru nú þangað komnir og teknir til. Eru
það tvenn hjón, sem veiðar stunda. Aflinn
þetta 20—25 vænir á dag.
Leikhúsið. I fyrrakvöld lék Boesens-
flokkurinn siðasta sinni. Endaði á Ferste
Violin. Fólk skemti sér hið bezta. Eftir
leikslok voru leikendur kallaðir fram með
Iófataki hvað eftir annað.
Odin Schafer, norskur fimleikamaður
leikur iistir sinar í Bárubúð i kvöld kl. 9.
— Það þótti góð skemtun að horfa á hann
fyrir 3 árum, er hann var hér staddur i
sömu erindum.
Skipafregn. Steriing fór utau i gær.
Meðal farþega til útlanda; frk. Ingibjörg
H. Bjarnason, frk, Sigriður Björnsdóttir,
frú Margrét Ólafsd. Þórður Edilonsson hér-
aðslæknir með frú sinni, Tryggvi Þórhalls-
son cand. theol. (tii Svíþjóðar og Noregs),
Osoar Johansen fiðluleikari alfariun með
frú sinni, Boesens-leikendurnir allir, 0. fl.
Til Yestmanneyja: ölsli Johnsen konsúll
og frú hans.
Flora kom á mánudag að norðan og
vestan með fjöldann allan af farþegum, er
héldu aftur heimleiðis á miov.dags-
kvöld. Þeirra meðai voru: Pétur A.
Ólafsson konsúll frá Patreksfirði, BÍra Þorv.
Jakohsson (Sauðlauksdal), sira Jón Árnason
(Bildudal), Sigurjón Jónsson skólastj. (Isa-
firði) 0. fl. Ennfr. kom Jón Sigurðsson
cand. phil. frá Kallaðarnesi, Carl Wathne
kaupmaður frá Noregi ásamt frú sinni. —
Héðan fór m. a. Björn M. Ólsen prófessor
snöggva ferð til Isafjarðar.
Stofa stór og rúmgóð, ásamt að-
gðngi að eldhúsi, með tveim full-
orðnum kvenmönnum (ekkert barn í
íbúðinni), er til leigu nú þegar. Af-
gr. vísar á.
f Feitaenn, sjómenn og aðrir, |
sem þurfa að fá sér ný föt, ættu nu að koma og
skoða hinar miklu birgðir:
1000 fatnaði.
Drengjaföt, unglingaföt og fuilorð-
inna föt frá þeim allra ódýrustu til þeirra
allra fallegustu með hæstmóðins Berlínar- og
Wienarsniði.
Enskar karlmannaregnkápur, afar-
margbreyttar, nýjasta tízka.
Fatatau, margs konar gerðir og gæði.
Munið eftir reiðfataefninu, fallegasta
og ódýrasta á íslandi.
Nærföt, peysur og verkmannaföt,
alþekt bezt og ódýrust.
Sjöl, ný og hæstmóðins, fallegustu sjölin,
sem enn hafa sézt á íslandi.
Telpukápur, allar stærðir, snotrar og ódýrar.
Gardinutau, hvít og misl.,fjölda margar teg.
Svuntutau, aíar-mikið úrval, ný lagleg
munstur.
Ensk vaðmál, dömuklæði og alklæði,
Peysuföt, Drengjaföt og Drengjafrakk- margs konar gæði og verð.
ar, miklar birgðir nýkomnar. Sængurdúkur og fiðurhelt léreft með
______ hinu gamla og alþekta lága verði.
□
Impregneruðu stormfötin (norsk her
mannaföt) eru langbezt sports- og
f e r ð a f ö t.
Flonell og léreft, fjöldi tegunda og gerða.
Hattar, hufur, hálstau, mesta úrval.
Hanskar, göngustafir.
Olíufötin beztu og ödýrustu á íslandi.
Komið og skoðið!
Brauns verzlun Hamborg, Aðalstræti 9.
HIil
g Til Guðrúnar Sigurðardóttur, ekkju Guð-
mundar sál. J. Diðrikssonar sjómanns.
Svo eiga fáir fagra daga,
a'ð fyrir sól ei dragi ský,
og hlikni lauf um blóma haga
við húast megum öll við þvi.
Þótt bjart og létt sé lífsins vor,
fljótt ltða skuggar yfir spor.
Og fáir þekkja þetta betur
en þú, sem harmar ástmenn tvo;
og enginn böl þitt bætt hér getur
þó breyta vildu allir svo.
Nei, enginn nema höndin hans,
sem hefir ráð á lífi manns.
Æ! sú er hótin aðeins eina,
sem unt er þér að veiti frið:
til gnðs i trú að kvaka’ og kveina,
þann kraft þú hezt mnnt styðjast við;
og þó að hregðist annað alt,
þér oi mun traust á honnm valt.
Þó hart sé þsð af hendi að láta,
sem hefir iífið dýrast veitt,
er sannarlega sælt að gráta
það sem að hjartað unni heitt.
Og þú átt meira gull hér geymt
en getnr nokturn annan dreymt..
Því sjaldan betri son né maka
við sáum hér á dauðans jörð;
því má þar dýrust minning vaka
sem meinin striða grimrn og hörð.
En rneðan hlæðir opin und
þú átt þó marga sælustund.
Þvl fagurt ljós frá liðnum árum
um ljúfan son og maka þinn,
þó dýrust minning dreifi tárnm
með dýrð hún opnar himininn,
þá sérðu’ í anda sálir tvær,
það sálu þinni huggun ljær.
Og það er ekki lengi að líða
nnz liggja saman hrautir þær,
sem ruddi óspilt ástin blíða
og er því sjáifum guði kær.
Þar sér þú aftur ástglöð þá,
sem áttu hér á hak að sjá.
J. Þórðarson.
Vín og öl.
Verzlun B. H. Bjaruason
Reikníngur
yfír tekjur og gjöld sparisjóðsins í
Húnavatnssýslu fyrir árið 1911.
Tekjur: Kr. a. Kr. a.
1. Peningar í sjóði frá f. á. . . 1229 87
2. Borgað af lánum:
j a. fasteignarveðslán. 3814 38
b. sjálfskuldarábyrgð-
arlán............. 8772 72
c. lán gegn annari
tryggingu . . . 1175 00 13762 10
3. Innlög í sparisjóðinn
á árinu............ 23149 40
Vextir af innlögum
lagðir við höfuðstól 3317 89 26467 29
4. Vextir:
a. af lánum . . . 4958 20
b. aðrir vextir . . 172 50 5130 70
5. Ýmislegar tekjur.......... 1028 90
6. Lán tekið á árinu hjá Isl.banka 686 55
Kr, 48305 41
öjöld: Kr. a. Kr. a.
1, Lánað út á reikningstímabilinu:
a. gegn fasteignarveði 5880 00
b. gegn sjá’lfskuldar-
ábyrgð .... 12088 00
! c. gegn annari trygg-
ingu.............. 1467 00 19435 00
j 2. Utborgað af innlög-
um samlagsmanna . 23770 80
Þar við bætast dag-
j vextir............ 70 74 23841 54
| 3. Kostnaður við sjóðinn:
a. laun......... 500 00
j b. annar kostnaður . 248 76 748 76
; 4. Vextir:
a. af sparisjóðsinn-
lögum .... 3317 89
b. aðrir vextir . . 252 10 3569 99
i 5. Peningar í sjóði 31. des. 1911 710 12
Kr, 48305 41
Blönduósi 22. febrúar 1912,
Gisli ísleifsson. Böðvar Þorldksson.
Jafnaðarreikningur
sparisjóðsins í Húnavatnssýslu hinn
31. desbr. 1911.
A k t i v a : Kr. a. Kr. a.
1. Skuldabréf fyrir lánum:
a. fasteignarveð-
skuldabréf . . . 58338 11
b. sjálfskuidarábyrgð-
arskuldahréf . . 38200 36
c. skuldabréf fyrir
lánum gegn ann-
ari tryggiugu . . 2192 00 98730 47
2. Verðbréf................... 3152 00
3. Utistandandi vextir, áfallnir við
lok reikningstfmahilsins . . . 1485 09
4. í sjóði..................... 710 12
Kr. 104077 68
P a s s i v a : Kr. a. Kr. a.
1. Innlög 525 samlagsmanna alls 92543 85
2. Fyrirfrara greiddir vextir, sem
eigi áfalla fyr en eftir lok
reikningstimabilsins .... 0 00
3. Lán tekið hjá íslandsbanka . 4544 59
4. Varasjóður.................. 6989 24
Kr, 104077 68
Blöndnósi 22. febrúar 1912.
Gisli ísleifsson. Böðvar Þorldksson,
Reikning þenna höfnm við undirritaðir
endnrskoðað og finnum ekkert athugavert
við hann.
P. t. Blönduósi 4. mai 1912.
Þórarinn Jónsson. Tr. Bjarnason.
liefir bezt gerða kjaliara,
bezta og k&Idasta ölið
fæst því þaðan. Verðið er hvergi
lægra. Fastir kaupendur semji við
undirritaðan.
c3. c7£ cRjarnason.
Heilsuhælið.
AJnuelisgjój til Heilsuhælisins hefir
mér borist frá Júníusi Jónssyni við
Haffjarðará — 25 kr.
Sumargjafir til Heilsuhælisins hafa
Mosfellssveitarmenn sent mér, sam-
tals 77 kr.
Rvík 19. júni 1912.
G. Bjórnsson.
Gamalt járn
kaupir
Vald. Poulsen, Hverfisgötu 6.
TTláímsfetjpa.
Alls konar málmsteypa (kopar) handa
j skipum og vélarbátum látin í té. Með
j því að eg hefi lært málmsteypu og
j er henni þaulvanur, ábyrgist eg ósvikna
í vinnu.
Daíd, Pouísen,
Hverfisgötu 6.
j Odin Schafer
fimleikamaður
i Bárubúð í kvöld kl. 9.
Aðg. 50 a. fyrir fullorðna, 25 a.
fyrir börn.
Húsið opnað kl. S1^.
1 Drengur, 14—15 ára, getur feng-
j ið að læra járnsteypu.
Vald. Poulsen, Hverfisgötu 6.
SíerósRóp og mynóir
nýkomið í
bókverzlun ísafoldarpr.sm.
Járnsteypa.
Með því að eg hefi nú sett á stofn
járnsteypu hér í bænum, leyfi eg mér
að bjóða öllum þeim, sem þurfa á
steyptu járni að halda til skipa, vélar-
báta eða annars, vinnu mína, er eg
jafnan mun kappkosta að hafa sem
vandaðasta.
Virðingarfylst
Vald. Poulsen,
Hverfisgötu 6,