Ísafold - 21.08.1912, Qupperneq 1
Kemui út tvisvar i vikn. Ver6 4rg. (80
arkir minat) i kr. erlendis 6 kr, e&a 1 */«
dollar; borgist fyrir mibjan júli (erlendia
fyrir fram).
ISAFOLD
Uppsðgn (akrifleg) bnndin vlö úramöt, er
ógiid nema komln sé til útgefanda fyrlr
1. okt. eg kaepandi sknldlans við blaðið
Afgreiðsla: Anstnrstrnti 8,
XXXIX. árg.
I. O. O. F. 938169
KB 13. 9. 8. 31. 9. Gr
Alþýðufél.bókasafn Pósthússtr. 14 kl. 5—8.
Augnlœkning ókeypis í Lækjarg. 2 myd. 2—8
Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 10—3.
Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4 7
Bæiargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12—8 og 5—7
Eyrna-,nef-og hálslækn. ók. Pósth.str.l4A fid,2—8
íslandsbanki opinn 10—21/* og 5*/a—7.
K.F.U.M. Lestrar- og okrifstofa 8 árd.—10 sbd.
Alm. fundir fid. og sd. 8 sibdegis.
Landakotskirkja. Guösþj. » og 8 á helgum
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—5
Landsbankinn ll-24/a, B1/*-®1/*. Bankastj. vib 12-2
Landsbókasafn 12—8 og 6—8. Útlán 1—3
Landsbúnaöarfélagsskrifstofan opin trá 12—2
Landsféhirbir 10—2 og 5—6.
Landsskjalasafnib hvern virkan dag 12—2
Landsiminn opinn daglangt [8—9] virka daga,
helga daga 10—12 og 4—7.
Lækning ókeypis í»ingh.str. 23 þd. og fsd. 12—1
Náttúrugripasafn opib l1/*—21/* á sunnudögum
Samábyrgð Islands 10—12 og 4—0.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 daglega
Talsimi Reykjavikur (Pósth. 8) opinn daglangt
(8—10) virka daga; helga daga 10—9.
Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11—12
Vifilsstaðahælið. Heimsóknartimi 12—1.
Þjóðmenjasafnið opið á hverjum degi 12—2.
Ritstjórar ísafoldar
verða fyrst um sinn venjulega til við-
tals í skrifstofu ísafoldar á þessum
tímum:
Ólajur Björnsson kl. ii—12 árd.
Sitrurður Hjörleijsson kl. 2—j síðd.
Steinolíu einokunin.
Fjármálanefndin, sem starfaði síðast-
liðinn vetur, vildi ná skatti til lands-
sjóðsins af steinolíueinokun þeirri, er
heita má að á sé komin hér á landi,
án þess að verðið hækkaði fyrir lands-
búa. í því skyni að stuðla að þessu,
samdi nefndin frumvarp til heimildar-
laga fyrir landstjórnina, til þess að
gera samning um einkasölu á þessari
vöru. Stjórnin lagði þetta frumvarp
fyrir neðri deild, er þegar setti nefnd
i málið.
Á þessu frumvarpi hefir nefndin
setið allan þingtímann, þangað til nú.
Skilar hún nefnaráliti með lofsöng
um hina frjálsu steinolíuverzlun hér í
landi og blessun þá er henni fylgi.
Jafnhliða þessu nefndaráliti kemur þó
tilkynning um, að olíufélögin, er ein
ráða yfir þessari verzlun, færi upp
verðið um 5 kr. á hverri tunnu og
eins og sjá má á öðrum stað hér í
blaðinu, er nokkurvegin vissa fyrir
að verðið verði enn fært upp um 5
krónur bráðlega. Þessi verðhækkun
eingöngu, eða nær eingöngu, af löng-
un olíufélaganna til þess að græða á
okkur, en ekki af því að varan hafi
hækkað í verð, eins og erlendar verð-
skýrslur sýna. í stað þess að greiða
landinu skatt af steinolíueinokuninni,
ætla félögin sér að leggja nýjan skatt
á landsbúa, einkum sjávarútveg lands-
ins, er meta má um 300,000 kr. á
ári. Þessi er þá blessun frjálsu verzl-
unarinnar með þessa vöru.
Vegna þess hve áliðið er þingtím-
ans, var leitað afbrigða frá þingsköp-
um í neðri deild i gær, til þess að
taka steinolíufrumvarpið til meðferðar,
því margir þingmenn hafa áreiðanlega
hug á að veita stjórninni þessa heim-
ild, ef ske mætti að hún gæti leyst
landið úr þessum viðjum, en til þess
fekst ekki nóg atkvæðamagn og er
það talið einsdæmi í þingsögunni.
1. þingmaður Reykvíkinga er aðal-
höfðinginn í því liði, er ekki vill veita
stjórninni heimild til þess að reyna
að komast að betri kjörum fyrir lands-
búa, en fyrirsjáanlegt er að þeim er
ætlað við að búa.
Er þó svo komið, að þingið getur
ekki vanvirðulaust leitt þessa verð-
hækkun hjá sér.
Fyrirspurnin
um viðskiftaráðunautinn,
Alþingi hefir til meðferðar í dag
fyrirspurn dr. Valtýs Guðmundssonar
til ráðherra um viðskiftaráðunautsstarf
Bjarna Jónssonar og má búast við að
hún veki nýjar umræður víðsvegar
um land um starfsemi hans. ísafold
birtir hér ræðu fyrirspyrjandans, en í
næsta blaði flytur hún aftur svar Bjarna
fónssonar og væntanlega ummæli nú-
verandi og fyrverandi ráðherra út af
þessari fyrirspurn.
Þegar þær ræður eru allar orðnar
kunnar alþýðu manna, ætti að vera
fenginn sæmilegurgrundvöllur, til þess
að byggja á dóm um þetta þrætumál.
Ræða Valtýs Guðmundssonar.
Þegar viðskiftaráðunautsstarfið fyrst
var stofnað — og þó einkum áður
en það var stofnað — gerðu margir
sér mjög glæsilegar vonir um árang-
urinn af því starfi. Menn ætluðust
til, að þeir skyldu vera fleiri viðskifta-
ráðunautarnir, eða verzlunarráðunaut-
arnir, sem menn þá nefndu þá, og
sitja sinn í hverju landi, þar sem helzt
væri von um að finna nýjan markað
eða markaðsleiðir fyrir íslenzkar af-
urðir, og jafnframt finna ný sambönd
fyrir innkaup á erlendum varningi,
sem hentugri væri til innflutnings hér
á landi eða meiri hagnaðarvon af að
kaupa hingað beinleiðis, en gegnum
milligöngumenn þá í Khöfn, sem
hingað til hafa mest verið notaðir.
En nú virðist vera komið annað hljóð
í strokkinn; nú virðast vonirnar um
árangurinn af þessu starfi vera orðn-
ar ærið daufar, svo daufar, að flestir
virðast nú helzt óska, að þessi starfi
yrði sem fyrst lagður niður.
Má vera, að þessar óskir séu nú
ekki á fullum rökum bygðar, en hins
vegar verður ekki með sanni sagt, að
þær séu óeðlilegar eða ástæðulausar,
þegar litið er til þess, hvernig þetta
starf hefir hingað til verið rækt og
hve nauðalítinn árangur það hefir bor-
ið. Því óhætt er að segja, að árang-
urinn hafi hingað til ekki aðeins orðið
nauðalítill, heldur blátt áfram alls eno-
inn — að því er til gagnsins kernur.
Hinsvegar verður því ekki neitað, að
þessi starfsemi hafi orðið okkur að
ýmsu leyti til ógagns; en þess konar
árangri virðist réttast að sleppa, því
hann liggur svo fjarri því, sem til
var ætlast.
Að svona hefir farið, er sumpart
því að kenna, hvernig stjórnin fram-
kvæmdi hugmynd alþingis, og sum-
part því, hvernig starfið hefir verið
rækt af þeim manni, er til þess var
kjörinn. í stað þess, eins og alþingi
hafði til ætlast, að skipa fleiri við-
skiftaráðunauta, sinn i hverju landi, á
likan hátt og með svipuðum launum
eins og hina norsku viðskiftaráðunauta,
sem hafa að launum frá 2500—5000
kr. (sbr. Alþt. 1911, A. 1383), þá
skipaði stjórnin að eins e i n n við-
skiftaráðunaut með 10,000 kr. laun-
um, og svo lenti starfið á manni sem
lítið eða ekkert skyn bar á verzlun,
en sem jafnan hefir sýnt sig sem
mikinn æsingamann í pólitik og eng-
an skapstillingarmann, en frekan mjög
til fjárins og óhlífinn við landssjóð-
inn. Þegar nú hér við bætist, að sá
maður, er starfinu gegnir, hefir sýnt
því meiri vanrækslu, sem lengra hefir
liðið, þá er ekki að furða, þótt óá-
nægjan hafi orðið almenn, og því hefi
eg fundið mér skylt samkv. 31. gr.
þingskapanna, að beiðast skýrslustjórn-
arinnar um, hvers vegna þetta er látið
ganga, án þess að tekið sé alvarlega í
taumana.
Eitt af því, sem hvað mest á riður
fyrir alla viðskiftaráðunauta, er, að
þeir séu ekki neitt riðnir við pólitík
eða flokkadrætti, enda eru viðskifta-
ráðunautar annara þjóða mjög grand-
varir í þeim efnum. En það er öðru
nær en því hafi verið að heilsa með
viðskiftaráðunautinn okkar. Jafnskjótt
og hann hafði tekið við starfinu, fór
hann að halda pólitíska fyrirlestra og
skrifa pólltískar æsingagreinar í útlend
blöð, og að þessu urðu svo mikil
brögð, að utanríkisráðuneyti Dana
fann ástæðu til að kvarta undan þessu
framferði hans, og fara fram á, að
ginkefli væri stungið í munn honum.
Þessu svaraði stjórnarráðið svo, að,
eins og erindisbréf viðskiftaráðunauts-
ins greinilega sýndi, lægi pólitísk starf-
Keykjavík 21. ágost 1912.
semi algerlega fyrir utan verksvið
hans (sbr. Alþt. 1911, A. 1343: »Som
Instruksen tydelig viser, ligger politisk
Virksomhed helt udenjor Forretnings-
konsulentens Virkejelti., og hefði stjórn-
arráðið nú gert ráðstafanir til, að hann
léti sér ekki slík orð um munn fara
framvegis, sem eftir honum væru
höfð, en skyldi það samt fyrir koma,
þá mundi hann samkv. 6. gr. erindis-
bréfsins verða sviftur starfinu og
kvaddur heim tafarlaust (sbr. bréf
stjórnarráðsins 17. des. 1909). En
þessum úrskurði stjórnarráðsins hefir
verið mjög slælega framfylgt. Því
þótt viðskiftaráðunauturinn hafi að vísu
síðan að mestu leyti hætt við póli-
tískar æsingaræður og blaðagreinar í
útlöndum, þá fer þvi mjög fjarri, að
hann hafi hætt allri pólitískri starf-
semi. Hann hefir þvert á móti síðan
stofnað og gefið út pólitískt æsinga-
blað hér á landi, og hann hefir bæði
haldið pólitíska fundi og setið hér á
þingi mánuðum saman, bæði 1911 og
nú í ár, og með því bæði vanrækt
skyldur sínar sem viðskifaráðunautur
og berlega brotið á móti 4. og 6. gr.
erindisbréfsins, eftir því sem það er
skýrt af stjórnarráðinu sjálfu, sem
satrfið hefir bréfið og út gefið, og því
ætti bezt að vita, hvernig ætti að skilja
það. En hér við bætist einnig, að
þegar fjárveitingin til viðskiftaráðu-
nautsins var samþykt á síðasta alþingi
með eins atkvæðis mun, þá var það
af þeim þingmanni, sem reið bagga-
muninn, gert að beinu skilyrði fyrir
fjárveitingunni, að viðskiftaráðunautn-
um yrði ekki látið haldast uppi að
hafa hin og önnur störf með hönd-
um, svo sem þingmensku, og að dvelja
svo og svo lengi hér og vanrækja
þannig starf sitt í útlöndum (sbr. Alþt.
1911, B. I, 272). Það hefði því að
minni skoðun verið skylda stjórnar-
innar, að gera viðskiftaráðunautnum
tvo kosti: annað hvort yrði hann að
láta bæði af þingmensku og blaða-
mensku og gefa sig allan við ráðu-
nautsstarfinu í útlöndum, eða þá að
afsala sér ráðunautsstarfinu, því þetta
tvent gæti ekki saman farið. Það er
skylda stjórnarinnar að sjá um, að
fjárveiting þessari, sem þingið hefir
veitt til ráðunautsstarfsins, sé varið
samkvæmt tilgangi þess. En tilgang-
ur þingsins var óefað sá, að viðskifta-
ráðunauturinn jafnan dveldi í útlönd-
um, enda segir svo í 1. gr. erindis-
bréfs hans:
»Viðskiftaráðunauturinn er ætlast til
að hafist við í þeim löndum, erlands-
stjórnin tiltekur, og skal hann aug-
lýsa, í hverju landi, hvar og hve lengi
hann verður þar í það sinn. Þessi
lönd munu verða Norðurlönd, Þýzka-
land og England* (Alþt. 1911, A.
1342).
Mér er nú spurn: Er það lands-
stjórnin, sem hefir tiltekið, að við-
skiftaráðunauturinn skyldi dvelja mán-
uðum saman hér á landi við pólitisk
störf og blaðamensku? Eg get ekki
hugsað mér það, heldur mun við-
skiftaráðunauturinn sjálfur hafa fundið
upp á þessu, stundum með leyfi
stjórnarinnar, en stundum, eins og
haustið 1911, i beinu óleyfi hennar.
Þetta er beint brot á erindisbréfinu
af hálfu viðskiftaráðunautsins og van-
ræksla frá stjórnarinnar hálfu í að
gæta hagsmuna landssjóðsins og lands-
manna. Því allir sjá, að því fé er
sama sem fleygt i sjóinn, sem varið
er til að láuna viðskiftaráðunautnum,
þegar hann dvelur hér á landi við
önnur störf. Og það er ekki neitt
smáræði, sem þannig hefir verið látið
ganga í súginn. Á fjárhagstímabilinu
1910—1911 voru árslaun viðskifta-
ráðunautsins 10,000 kr. eða 20,000
kr. fyrir fjárhagstímabilið. Og af
þessu tímabili ver hann ekki minna
en 13 mánuðum til íslandsferða og
dvalar á íslandi, og vanrækir þannig
starf sitt í meira en helminginn af
tímanum. Hann fer frá Khöfn til ís-
lands í júlílok 1910 og kemur aftur
til Khafnar i lok októbermánaðar.
Það eru 3 mánuðir. Svo fer hann
aftur frá Khöfn til íslands í byrjun
desembermánaðar og dvelur þar allan
veturinn við þingstörf o. fl., og kem-
ur ekki aftur til Khafnar fyr en undir
lok júnímánaðar 1911. Þetta verða
7 mánuðir. Svo fer hann aftur heim
til íslands í lok ágústmánaðar eða
byrjun septembermánaðar (eg hefi
ekki getað fundið fyrir víst, hvort
heldur er) og kemur ekki aftur til
Khafnar fyr en í lok nóvembermán-
aðar. Þetta verða enn 3 mánuðir.
Hann hefir þannig varið 13 mánuð-
um eða meira en heilu ári til íslands-
ferða og dvalar á íslandi, að nokkru
eyti við launað starf, eins og þing-
mensku, og á þeim tima gersamlega
vanrækt ráðunautsstarfið, en þó tekið
10—11,000 kr. í laun sem viðskifta-
ráðunautur fyrir þennan tíma. Þetta
verð eg að telja illa farið með fé
landssjóðsins, og ekki kyn þótt gjald-
endum landsins blæði í augum að
sjá þannig farið með fé þeirra.
Eg kem þá að yfirstandandi ári,
árinu 1912, og er þar sízt um fram-
för að ræða, að þvi er snertir alúð
viðskiftaráðunautsins við að rækja
starf sitt eðá hlífni við landssjóðinn.
Fyrir fjárhagstímabilið 1912—13 er
fjárveitingin til hans sundurliðuð,
þannig að laun hans eru ákveðin
6000 kr., en til ferðakostnaðar má
verja alt að 4000 kr. eftir reikningi.
Frá því 1. janúar og til 24. maí
þ. á. dvelur viðskiftaráðunauturinn í
Khöfn, að undanskildum, að því er
virðist, svo sem mánaðartíma, sem
hann dvelur í Kristjaníu. Eg get
ekki sagt upp á víst, hve langan
tíma ferðin þangað hefir tekið, því
skýrslur hans eru svo ógreinilegar.
Svo fer hann frá Khöfn 24. maí heim
til íslands, kemur hingað 2. júní og
hefir setið hér síðan; en hve lengi
hann ætlar að dvelja hér á landi, er
enn óséð. Hann hefir mér vitanlega
ekkert um það auglýst i hérlendum
blöðum, og eg minnist heldur ekki
að hafa séð i neinu Khafnarblaði neina
auglýsingu um dvöl hans þar, né hvar
hann væri að hitta, þótt slíkt sé fyrir-
skipað í 1. gr. erindisbréfs hans. Og
er þetta því beint brot á þvi, og það
harla óþægilegt, ef einhver skyldi
finna upp á því, að vilja nota hann
eða hafa tal af honum.
Að því er það snertir, hvað telja
beri með ferðakostnaði, þá er svofeíd
regla um það sett í bréfi stjórnarráðs-
ins frá 9. marz 1910 (Alþt. 1911, A.
044):
»Reglan virðist eiga að vera sú, að
með aukakostnaði sé pað eitt tnlið, er
aj Jerðalas>inu leiðir umfram hitt, ef
haldið hefði verið kyrru fyrir heima,
þ. e. par sem dvalið er til nokkurra
langframai..
En hvernig hefir nú viðskiftaráðu-
nauturinn fylgt þessari reglu ? Þannig
að hann hefir bókstaflega reiknað öli
þau dagleg útgjöld, sem hann hefir
haft, til ferðakostnaðar, þó hann hafi
mestallan tímann setið kyr á hala sín-
um í Khöfn. Og þessi útgjöld hafa
frá 1. jan.—2. júní numið kr. 1557,
12, en hve miklu þau muni nema
meðan hann dvelur hér á landi, er
ekki gott að vita, því þeir reikningar
eru ekki enn fram komnir. Það verð-
ur nógu gaman að sjá þá, þegar þeir
birtast. Og sannast að segja getur
hann samkvæmt hinni settu reglu með
meira rétti reiknað sér ferðakostnað,
meðan hann dvelur hér, af því hann
er hér á ferðalagi, þótt ekki sé það í
þágu ráðanautsstarfsins, heldur en
fyrir þann tíma, sem hann heldur
kyrru fyrir í Khöfn. Því þá á hann
sannarlega að lifa af sínum 6000 kr.
launum. Til hvers væru þau annars
ætluð ?
Eg hefi í stjórnarráðinu fengið að
sjá reikninga viðskiftaráðunautsins frá
1. jan. til 2. júní þ. á. Þeir eru 3
og hljóða þannig:
I. Frá 1. jan.—29. febr. 1912.
Húsaleiga (Hótel Kongen
af Danmark 1—7/ii Fru
Byes Hotel 8/i—17/i, Park-
vejen 17 h—17/a)..........kr. 122,00
Farseðlar til Oslóar og
sömu leið aftur.............— 53,40
Fæði i 60 daga..............— 408,00
Þjórfé......................— IO9,S0
Af stöð og á................— 5,25
Sporvagnar og bifreiðar . — 21,50
kr. 7i9:6S
II. Frá 1. marz—30. apríl 1912.
Húsnæði..................kr. 102,00
Fæði í 34 daga..............— 245,00
Þjórfé x/8—8/4..............— 60,00
Akstur og flutningskostn.. — 7,00
Matarvist á Helmershus
4U—'................; • • — 143.72
Til neyzlu utan matvistar — 12,00
Sporvagnar..................— 3,00
Þjóríé */4—*°/4.............— 14,00
-4- afslætti á húsaleigu kr. 7,25
kr. 579,47
III. Frá 1. mai—2. júní 1912.
Matvist í 24 daga . . . . kr. 105,75
Til neyzlu utan matvistar — 20,00
Þjórfé.......................— 15,0°
Vagnar og flutningur . . — 5,00
Ferð frá Khöfn til Rvíkur — 98,25
Þjórfé.......................— 12,00
Flutningur...................— 2,00
kr. 258,00
57. tölublað
Við 1. reikninginn er svo látandi
athugasemd:
»Með fæði er talið kaffi, drukkið
til hressingar utan máltiða. Þó get
eg eigi fyrir umliðinn tíma sagt, hversu
mikið það er«.
Hins vegar er hvergi getið um
vindla eða annað tóbak, né skóvið-
gerðir, á reikningunum, en annars
virðist þar ekkert vanta af daglegum
útgjöldum. Til þess eru þá máske
aunin ætluð, þessar 6,000 kr. En þar
sem fæðispeningarnir eru reiknaðir all-
ríflega, oftast um 7 kr. á dag, stund-
um meira, stundum nokkuð minna,
og í maí ekki nema rúml. 5 kr., þá
er þó ekki ólíklegt, að vindlar séu
iar með taldir, því leitun mun á þeim
matsölustöðum i Khöfn, þar sem fæði
er selt svo dýrt sem reikningarnir
sýna. Eg þekki þá ekki, og hefi eg
)ó verið búsettur í Khöfn i nál. 30
ár. Þá virðist og þjórféð vera full-
rtflega reiknað, þar sem það er oftast
framt að 2 kr. eða um 1,80 á dag,
þó fyrir komi að það sé minna.
En það sem þó hér skiftir mestu
máli, er, að af öllu þessu fé ber við-
skiftaráðunautnum alls ekkert, samkv.
reglu stjórnarráðsins sjálfs, nema fyrir
ferðina til Kristjaníu, og tel eg því
stjórnarráðinu skylt að neita að borga
þessa reikninga.
En þessi ágengni við landssjóðinn
hjá viðskiftaráðunautnum er engin ný-
bóla. Meðan hann hafði 10,000 kr.
í föst laun, gerði hann landssjóðnum
reikning fyrir rúml. 1148 kr., aðal-
lega fyrir lystiferðir til Ítalíu og Par-
ísar. Því ekki verður séð, að þær
ferðir hafi verið gerðar í neinum öðr-
um tilgangi en að skemta sér, enda
árangurinn af þeim enginn annar. —
Því þó viðskiftaráðunauturinn hafi ver-
ið að reyna að fóðra þetta ferðalag
með þvi, að benda á markað fyrir ís-
lenzka hesta i Rómaborg, silkikaup og
ullarsölu í Mílanó, og sölu á íslenzk-
um matvælum til Suður-Þýzkalands,
ej flutningsgjaldið væri ekki svo hátt
og tollverndin svo mikil, að þetta
væri þess vegna frágangssök, þá er
slíkt hjal svo barnalegt, að mann stór-
furðar á, að fullorðinn maður skuli
leyfa sér að bera annað eins á borð.
Hann hefði alveg eins getað sagt, að
góður markaður mundi vera fyrir ís-
lenzkan saltfisk í tunglinu, ej hægt
væri að komast þangað.
Og hver hefir yfirleitt verið árang-
urinn af starfi viðskiftaráðunautsins ?
Mér hefir ekki tekist að uppgötva
annan árangur af því, en að hann hefir
verið að reyna að myndast við að senda
stjórnarráðinu hinar fyrirskipuðu skýrsl-
ur, að minsta kosti eina á mánuði,
eins og segir í erindisbréfinu. En
hve húmbúgskendar þessar skýrslur
oft hafa verið, má m. a. sjá af því,
að hann hefir alveg eins sent þessar
skýrslur fyrir þá mánuði sem hann
hefir dvalið heima á íslandi, stund-
um 7 mánuði samfleytt, og verður
ekki annað af þessum skýrslum séð,
en hann hafi altaf dvalið úti i lönd-
um og verið þar að þinga við hina
og þessa útlendinga um viðskifti. Og
til þess að minna bæri á þessu húm-
búggi, er hann hættur að staðsetja
skýrslurnar eða geta um hvar þær
eru ritaðar. Og í seinni tið er hroð-
virknin farin að ganga svo langt, að
hann er lika hættur að dagsetja þær,
og stundum eru þær ekki einu sinni
undirskrijaðar. Þannig er skýrslan
fyrir ágúst 1911 bæði óundirskrifuð
og ódagsett, fyrir september s. á. ódag-
sett fyrir jan. 1912 óundirskrifuð, ó-
dagsett og ekki getið um hvar hún
er rituð; fyrir marz og apríl ódag-
sett, og fyrir maí og júní vantar bæði
undirskrift, dagsetning og staðsetning
og meira að segja sjálft ártalið 1912.
Þar stendur að eins »skýrsla jyrir maí
og júnh. Þá er hann og til hægðar-
auka farinn að senda eina skýrsla fyrir
hverja 2 mánuð, þó erindisbréfið heimti
skýrslu »að minsta kosti einu sinni á
mdnuði«.
Og þá er ekki innihaldið sérlega
burðugt. Vanalegast nú orðið ekkert
nema að hann hafi átt tal við hina
og þessa menn um viðskifti við ís-
land, en enginn árangur getað af því
orðið. í hinum fyrstu skýrslum var
þó dálítil viðleitni til að sýnast gera
eitthvað, eins og t. d. þegar hann
1909 sendi stjórninni heilmikinn bálk
af tillögum frá einhverjum dönskum
lögmanni i Genúa, sem þó fekk þann
vitnisburð hjá verzlunarráðuneyti Dana,
að hann þætti fljóthuga og stórhuga,
en fremur laus í rás, svo fara yrði
varlega í að sinna tillögum hans.
Hann hefði áður átt stóreignir, en
væri nú illa staddur og ætti erfiðar