Ísafold - 20.11.1912, Page 1

Ísafold - 20.11.1912, Page 1
Komu út fcvisvtir i viku. Verð &rg. (80 arkir minat) 4 kr. erlendia 6 ki» eöa 1 ll% dollar; borgist fyrir mibjan júli (erlendin fyrir fram). ISAFOLD Uppeögn (skrifieg; bundin vib &ramót, er ógiin neroa komm só tll útgefanda fjriit X. okt. uaapandi ekuldlans vl^ blaMb Afgrei^sla: Aueturðtrtetl 8, XXXIX. árg. Keykjavik 20 nóv. 1912. 77 tölublað I O. O, F. 938309 KB 13. 13. 9. 10. 26. 9. G Alþýbufól.bók»eafn Templavas. 8 kl. 7-9 Augnlækning ókeypi«« i líækjarfir. 2 mvd. 2—8 Borgttrstjóra3krifstofau opin virka daga. i0—ö Brojarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og Bæjargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12—8 og^o-■" Eyrna-,nef-og hálalæku. ók. P0sth.Btr.14A fid.2 8 tslan'lsbanki opinn 10—2 og 5l/»—7. K.P.O.M. Lí-a rar- og skrifstoía H &rd —10 »0(1. Alm. fundir fii. og ad- 8*/* síbdogia. Landakotskirk,i«- önbsþj. P og 8 A helgum Landakotsspítali f. sjúkravitj 1.0'»*«—12 ok 4—5 Landsbankinn U-21/*, 51 :*-«»/*. Bankastj. viM2-2 Landsbókasafn 12 -8 og 5—8. Utl&u 1—8 Landabúnabarfólapsskrifstofftn opin tr& 12—2 LandsfóhirMr 10—2 og 5—8. Laud iftkjalasafni^ hvern virkan dag 12-2 Landslminn opinn daglangt [8—9] virka dagt», helga daga 10—12 og 4—7. . , Lrokniug ókeypis Þingh.str. 23 þd.og fei. 12---1 N&ttúrugripasafn opib »llt—2 x/s & aunnudögum Sam&byrgö Islands 10—12 og 4—6. RtjórnarrAösskrifstofurnar opnar 10—4 dagloga Talslmi Reykjavíkur (Pósth. 8) opinn daglangt (8—10) virka daga; helga daga 10—9. Tannlrokninff ókeypis Pósth.str. 14B md. U -12 Vifllsstabahroliö. Heimsóknartimi 12-V Þjóömenjasafnib opi^ þd., f'md. og sd. 1 ísafold. Til nýárs kemur Isajold altaf út tvisvar í vika, miðvikudaga og laug- ardaga. Vegna óska margra kaupenda hér í bæ og auglýsenda er meiningin að reyna að koma á þeirri reglu, að blað- ið jafnan komi út um hádegisbilið. Þvi eru auglýsendur vinsamlega beðnir að skila auglýsingum kvoldinu áður en pœr eiga að koma í blaðið. Framvegis verður Jsajold og seld í lausasölu, 5 aura blaðið. Útgej. Ofriðurinn á Balkanskaga. Frá hernaðarstöðvunum berast ná- lega engar aðrar fréttir en þær, sem herstjórnirnar hafa leyft að mætti senda. Þess vegna er valt að treysta á áreiðanleik þeirra. Fréttum frá Miklagarði trúir enginn framar. Þær hafa varla reynst annað en ósannindi. En þær fréttir, sem Búlgarar leyfa að senda, virðast vera æði óljósar og ó- greinilegar. Frá orustunni miklu við Lule Bur- gas eru fréttirnar ennþá ekki nærri eins greinilegar og vænta mætti, ekkert ábyggilegt hægt að segja um mann- fallið i þeirri orustu. Hvað Búlgarar hafi mist þnr margt manna er með öllu ókunnugt, en haldið að nær 40 þúsundir Tyrkja hafi annaðhvort orðið þat óvígir eða fallið. Her Tyrkja hafði barist þar um slóðir í 3 sólar- hringa, að því er sagt er, án þess að fá nokkuð að eta. Óbreyttu hermenn irnir börðust eins og hetjur, en þeir yfirbuguðust af hungrinu og þess vegna biðu Tyrkir lika ósigur og ekki vegna annars. Svo lítil var forsjá herstjórnar Tytkja, að hermennirnir urðu að svelta dögum saman, þótt höfuðborgin lægi að baki hersins og járnbraut til þess að flytja vistir á. Álíka litla fyrirhyggju hafði herstjórn- in sýnt í ýmsum öðrum mikilsvarð- andi efnum. Frá orustunni sem kend er við Tschorlu er fréttirnar, ef nokkru munar, enn þá ógreinilegri og skal því ekki fjölyrða urn hana hér, en víst er að Tyrkir fóru þar miklar ó- farir og hröktust þaðan smátt og smátt austur undir Tschataldja virkin. Kortið, sem hér er prentað til skýringar, er af landtanganum, sem Mikligarður stendur á; er Marmara- hafið að sunnan, en Svaitahaf að norðan og austan, en Sæviðarsund (Bosporus) aðgreinir heimsálfurnar. Vestast á þessu korti má sjá bæinn Tschorlu, við járnbrautina til Mikla- garðs. Þaðan hefir svo her Tyrkja hrakist til Tschataldja, sem einnigmá sjá á kortinu. Tschataldja er lírill bær með um 1000 ibúum, en rétt fyrir austan hann eru hin frægu Tschataldja-virki. Þaðan eru um 30 rastir til Miklagarðs.' Virkin eru reist á hálsi einum, er þar liggur yfir þvert landið, flói skerst inn í landið sunnan frá Marmarahafi, en Derkos vatnið sést að norðanver ðu Á milli þess og fló- ans eru að eins 25 rastir. Að þess- um virkjum eru Búlgarar komnir, en ekki fara enn sögur af að þeir hafi brotist yfir þau og þó er talið víst að þeim muni takast það, ef ekki verður áður friður á kominn. Þó er þarua talið ágætt til varnar og það því fremur sem herskip Tyrkja ættu að geta veitt herliðinu stuðning bæði að sunnan og norðan. Orð leikur á þvi, að sambandsþjóð- irnar vilji fyrir hvern mun ná Mikla- garði á vald sitt. Talið að her Búlg- ara, Serba og Grikkja eigi að ganga í nokkurskonar hátíðagöngu inn í borgina og síðan eigi að syngja messu í Sofíukirkjunni frægu. Hefir þar eigi verðið sungin messa eftir kristn- um sið, síðan 29. mai 1452 Þótt fréttirnar frá Miklagarði virðist mjög óáreiðanlegar, er þó auðséð, að horfur þar eru iskyggilegar. Sagt að soldáninn sé fluttur þaðan yfir til Asíu og fjöldi kristinna manna flýr úr bæn- um , þeir sem komist geta. Konur og börn hafast við úti á skipum og ýmsir leita á ttáðir herskipa þeirra, er stórveldin hafa sent til Miklagarðs. S’.gt að tyrkneskir hermenn kenni kristnum mönnum um ófarir sínar. Fjö’di kristinna manna var í her Tyrkja og þeir þykja hafa gefist þar illa í Zilivríu, sem er þrjár rastir vegar frá Miklagarði, er sagt að 70 kristnir tnenn hafi verið myrtir. A höfninni lenti tyrkneskum og grískum sjómönn- um saman í áflogum og bard.iga og mistu þar lífið nær 50 tnanna. Her- sveitir vaða um bæinn og verður lítill hemill á þeim hafður. Sendi- herrar stórveldanna hafa því mælst til að þau sendi fleiri herskip til Mikla- garðs. Vaxtahækkun. Báðir bankar vorir hafa hækkað vexti af lánum upp i 6 °/0 frá og með þessum degi, sbr. augl. þeirra hér í blaðinu í dag.. Isajold hefir spurst fyrir urn það hjá bankastjórnum beggja bankanna, hvernig á þessari hækkun úr 5 »/4 % upp í 6 % standi. Svarið er hið sama hjá báðum: Vextir haja hcekkað svo mikið erlendis, að við höjum séð okkur nauðugan einn kost að hækka lika. Báðir standa bankarnir svo og svo rnikið í sambandi við erlenda banka, sem hækkað hafa sina vexti og hvor- ugur bankanna stendur sig því við annað en að hækka vextina. hjá sér þegar erlendir viðskiftabankar þeirra hækka vexti við þá. Nýlega hefir þýzki ríkisbankinn hækkað vextina úr 3 % upp i 6 °/0. Nationalbankinn úr 4 r/2 °l0 UPP í 5 V2 % °- s- frv- °g aðrir danskir bankar hækkað enn meira. Bankastjórnir beggja banka munu hafa beðið svo lengi með hækkunina, sem frekast var unt. íslandsbanki hefir t. d alllengi orðið að greiða 6 °/0 af skuldaviðskiftum sínum við brezka, þýzka og norska banka. Það er því nauðsyn ein þ. e. horf- urnar á peningamarkaði heimsins, er valda þessari vaxtahækkun. Er því eigi til neins annað en að taka henni með kristilegri þolinmæði — í þeirri voti, að hún standi eigi ákaflega lengi. Ceres hlekkist á. Ceres lenti á grynningum á inn- siglingu á ísafjörð fyrir nokkrum dög- um. Var lágsjávað og losnaði skipið um flóðið. Erí. símfregtiir. Nobels verðlaunin, Khöfn 20. nóv. 1912. Gerhart Hauptmann Jœr Nobelsverð- laun. Hér er átt við bókmentaverðlaunin. Gerhart Hauptmann er talinn eitt- tvert mesta leikritaskáld Þjóðverja. Hann er fimtugur, f. 1862. Frá ófriðnuiu. Serbar tekið Monastír. Daglegar orustur við Tscha- taldja; ýmsir ofaná. Áttunda þ. m. kom hingað sú fregn að Serbar hefðu tekið Monastír. ísafold flutti þá fregnina og lýsti nokk- uð borginni. Annars mun annar bær, samnefndur, vera til í Tyrklandi, en miklu minni. Símfréttin staðfestir það að Búlgar- ar etu ekki búnir nð ná Tschatnldja- vi'rkjunum enn þá; en jafnframt má sjá það að Búlgarnr hafa ekki veitt Tyrkjum vopnahlé það, er þeir beiddu um. Strandferðir 1913. Lnndritari fekk skeyti um það i gærmorgun, að samkomulag vceri kom ið d milli ráðherra Islands og Samein- aða Jélagsins um strandjerðirnar nœsta dr. — En skeytið hermir ekkert um, með hverjum hætti samkomulag þetta sé. Einkasöluleyfi á steiiiolm. Fiskifélag íslands sækir uni það. í gærkveldi var fundur htldiun í Fiskifélagi íslands til þess að ræða um steinoliumálið. Allir sem töluðu á fundi þessum m. a. þeir Björn Kristjánsson banka- stjóri og Tryggvi Gunnarsson f. banki- stjóri voru eindregnir á því að sjálf- sagt væri að Fiskifélag íslands sækti um einkaleyfi það til steinoliusölu, sem stjórninni var heimilað að veita með lögum frá síðasta alþingi. Að lokum var í einu hljóði sam- þykt svolátandi tillaga: Fundurinn samþykkir, að stjórn Fiskifélagsins sæki til landsstjórnarinn- ar um einkaleyfi fyrir félagið til stein- oiiusölu hér á landi, samkvæmt stein- olíulögunum og að stjórn félagsins haldi áfram að undirbúa málið, bæði hér í bænum og út um landið. -----sse----- dslanó arlanóis. Hjúskapur. Jóhann Sigurjónsson skáld kvæntist þ. 5. nóv. danskri konu, frú Ingeborg Thidemann. Brúð- kaupsferð ætla þau hjónin til Gauta- borgar, Mílnchen, Vínarborgar, Köln, Bremen, Essen, Kristjaniu og Stokk- hólms. í öllum þessum bæjum verð- ur Fjalla-Eyvindur sem sé leikinn, og ætla þau að vera viðstödd fyrstuna allstaðar. Haddapadda, leikrit Guðm. Kambans, hefir stjórn kgl. leikhússins í Khöfn haft til yfirlesturs, og er mælt, að Karl Mantzius, leikhússtjórinn ann- ar, hafi lokið á það miklu lofsorði og tjáð sig um, að sjálfsagt væri, að taka það til leiks. Hvort úr því verður mun samt enn óvíst, með því að Mantzius er á förum frá leikhúsinu. Landsbankinn. Frá þessum degi tekur Landsbankinn fyrst um sinn forvexti af víxlum, og vexti af lánum, öðrum en veðdeildarlánum, 6 °/o P* a-» auk fram- lengmgargjalds. Reykjavík, 19. nóv. 1912. Batikasfjórniti. Frá þessum degi tekur Ísíandsbanki fyrst um sinn í forvexti af víx-um og vexti af lánum öðrum en fasteignar- veðslánum með veðdeildarkjörum: 6% p. a., auk framlengingargjalds. Reykjavík 19. nóvbr. 1912. Sfjórn Ísíandsbanka. Frá stríðiuu. Búlgfarar í orustu. -Zu. o 'SbaUusú ck. l’TAIll ófriðarsvæðið, sjá greinina um ófriðinn. Ýms erlend tfðindi. Varafor8eti Bandaríkja er kjörinn Thomas Riley Marshall landstjóri í Itidiana. Varaforseti er valdalítill mjög. Er embætti það virðingarstaða, en lítið annað. Aðalstarf hans er að skipa forsæti í efri málsstofu þingsins. Hinn nýi varaforseti er hátt á sextugsaldri. Kosningar á Rússlandi. Snemma í þessum mánuði fóru fram kosningar til þingsins rússneska, dúmunnar. Þ. 8. nóv. voru 386 kosningar um garð gepgnar. Var þá búið að kjósa 136 ihaldsmenn, en að öðru leyti höfðu þingsætin lent mjög á við og dreif milli hinna mörgu flokka þar i landi. Stjórnarskifti í Noregi. Úrslitafregn um kosningarnar í Noregi er ókom- in enn, en litlutp vafa bundið, að ger- bótamenn hafi meirihluta í þinginu, öllum óháðir. Stjórnarskifti eru því vís. En hvort úr þeim verður nú þegar eða beðið verður þess, er stór- þingið kemur saman i janúar, er óvíst. Stjórnarforseti er talinn sjálfsagður Gunnar Knudsen og líklegir í hið nýja ráðuneyti Castberg og Lövland, báðir ráðherrar í Noregi fyrir nokkurum ár- um. Kosningarnar hafa gefið málstreitu- mönnum mikinn byr í segl. Ný bók. Ljóð, eftir Sigurð Sigurðsson skáld, eru nýkomin út, 4r/2 arka bók, helztu kvæði höf. Sigurður er orðinn kunn- ur fyrir Ijóðlist sína af kvæðum, sem birzt hafa á við og dreif í blöðum og tímaritum, m. a. hér í blaðinu. Nú hefir Sigurður safnað þeim í litla og laglega ljóðabók, er verða mun ljóð- vinum kærkominn gestur. Væntan- lega verður betur minst á bókina hér í blaðinu síðar. Frá mannainötum. Hljómleikar þeirra frú Valborgar Einarsson og jgfr. Herdísar Matthías- dóttur á sunnudaginn voru fremur fásóttir. Söngskráin var helzti löng, hljómleikarnir tóku meira en il/a klst. Þær skiftust á að syngja og spila undir. Á hvorttveggju kunna þær

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.