Ísafold - 20.11.1912, Síða 1
Komu út fcvisvtir i viku. Verð &rg. (80
arkir minat) 4 kr. erlendia 6 ki» eöa 1 ll%
dollar; borgist fyrir mibjan júli (erlendin
fyrir fram).
ISAFOLD
Uppeögn (skrifieg; bundin vib &ramót, er
ógiin neroa komm só tll útgefanda fjriit
X. okt. uaapandi ekuldlans vl^ blaMb
Afgrei^sla: Aueturðtrtetl 8,
XXXIX. árg.
Keykjavik 20 nóv. 1912.
77 tölublað
I O. O, F. 938309
KB 13. 13. 9. 10. 26. 9. G
Alþýbufól.bók»eafn Templavas. 8 kl. 7-9
Augnlækning ókeypi«« i líækjarfir. 2 mvd. 2—8
Borgttrstjóra3krifstofau opin virka daga. i0—ö
Brojarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og
Bæjargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12—8 og^o-■"
Eyrna-,nef-og hálalæku. ók. P0sth.Btr.14A fid.2 8
tslan'lsbanki opinn 10—2 og 5l/»—7.
K.P.O.M. Lí-a rar- og skrifstoía H &rd —10 »0(1.
Alm. fundir fii. og ad- 8*/* síbdogia.
Landakotskirk,i«- önbsþj. P og 8 A helgum
Landakotsspítali f. sjúkravitj 1.0'»*«—12 ok 4—5
Landsbankinn U-21/*, 51 :*-«»/*. Bankastj. viM2-2
Landsbókasafn 12 -8 og 5—8. Utl&u 1—8
Landabúnabarfólapsskrifstofftn opin tr& 12—2
LandsfóhirMr 10—2 og 5—8.
Laud iftkjalasafni^ hvern virkan dag 12-2
Landslminn opinn daglangt [8—9] virka dagt»,
helga daga 10—12 og 4—7. . ,
Lrokniug ókeypis Þingh.str. 23 þd.og fei. 12---1
N&ttúrugripasafn opib »llt—2 x/s & aunnudögum
Sam&byrgö Islands 10—12 og 4—6.
RtjórnarrAösskrifstofurnar opnar 10—4 dagloga
Talslmi Reykjavíkur (Pósth. 8) opinn daglangt
(8—10) virka daga; helga daga 10—9.
Tannlrokninff ókeypis Pósth.str. 14B md. U -12
Vifllsstabahroliö. Heimsóknartimi 12-V
Þjóömenjasafnib opi^ þd., f'md. og sd. 1
ísafold.
Til nýárs kemur Isajold altaf út
tvisvar í vika, miðvikudaga og laug-
ardaga.
Vegna óska margra kaupenda hér í
bæ og auglýsenda er meiningin að
reyna að koma á þeirri reglu, að blað-
ið jafnan komi út um hádegisbilið.
Þvi eru auglýsendur vinsamlega
beðnir að skila auglýsingum kvoldinu
áður en pœr eiga að koma í blaðið.
Framvegis verður Jsajold og seld í
lausasölu, 5 aura blaðið.
Útgej.
Ofriðurinn
á Balkanskaga.
Frá hernaðarstöðvunum berast ná-
lega engar aðrar fréttir en þær, sem
herstjórnirnar hafa leyft að mætti
senda. Þess vegna er valt að treysta
á áreiðanleik þeirra. Fréttum frá
Miklagarði trúir enginn framar. Þær
hafa varla reynst annað en ósannindi.
En þær fréttir, sem Búlgarar leyfa að
senda, virðast vera æði óljósar og ó-
greinilegar.
Frá orustunni miklu við Lule Bur-
gas eru fréttirnar ennþá ekki nærri eins
greinilegar og vænta mætti, ekkert
ábyggilegt hægt að segja um mann-
fallið i þeirri orustu. Hvað Búlgarar
hafi mist þnr margt manna er með
öllu ókunnugt, en haldið að nær 40
þúsundir Tyrkja hafi annaðhvort orðið
þat óvígir eða fallið. Her Tyrkja
hafði barist þar um slóðir í 3 sólar-
hringa, að því er sagt er, án þess að
fá nokkuð að eta. Óbreyttu hermenn
irnir börðust eins og hetjur, en þeir
yfirbuguðust af hungrinu og þess
vegna biðu Tyrkir lika ósigur og ekki
vegna annars. Svo lítil var forsjá
herstjórnar Tytkja, að hermennirnir
urðu að svelta dögum saman, þótt
höfuðborgin lægi að baki hersins og
járnbraut til þess að flytja vistir á.
Álíka litla fyrirhyggju hafði herstjórn-
in sýnt í ýmsum öðrum mikilsvarð-
andi efnum.
Frá orustunni sem kend er við
Tschorlu er fréttirnar, ef nokkru
munar, enn þá ógreinilegri og skal
því ekki fjölyrða urn hana hér, en
víst er að Tyrkir fóru þar miklar ó-
farir og hröktust þaðan smátt og smátt
austur undir Tschataldja virkin.
Kortið, sem hér er prentað til
skýringar, er af landtanganum, sem
Mikligarður stendur á; er Marmara-
hafið að sunnan, en Svaitahaf að
norðan og austan, en Sæviðarsund
(Bosporus) aðgreinir heimsálfurnar.
Vestast á þessu korti má sjá bæinn
Tschorlu, við járnbrautina til Mikla-
garðs. Þaðan hefir svo her Tyrkja
hrakist til Tschataldja, sem einnigmá
sjá á kortinu. Tschataldja er lírill
bær með um 1000 ibúum, en rétt
fyrir austan hann eru hin frægu
Tschataldja-virki. Þaðan eru um 30
rastir til Miklagarðs.' Virkin eru reist
á hálsi einum, er þar liggur yfir þvert
landið, flói skerst inn í landið sunnan
frá Marmarahafi, en Derkos vatnið sést
að norðanver ðu Á milli þess og fló-
ans eru að eins 25 rastir. Að þess-
um virkjum eru Búlgarar komnir, en
ekki fara enn sögur af að þeir hafi
brotist yfir þau og þó er talið víst að
þeim muni takast það, ef ekki verður
áður friður á kominn. Þó er þarua
talið ágætt til varnar og það því fremur
sem herskip Tyrkja ættu að geta veitt
herliðinu stuðning bæði að sunnan og
norðan.
Orð leikur á þvi, að sambandsþjóð-
irnar vilji fyrir hvern mun ná Mikla-
garði á vald sitt. Talið að her Búlg-
ara, Serba og Grikkja eigi að ganga
í nokkurskonar hátíðagöngu inn í
borgina og síðan eigi að syngja messu
í Sofíukirkjunni frægu. Hefir þar
eigi verðið sungin messa eftir kristn-
um sið, síðan 29. mai 1452
Þótt fréttirnar frá Miklagarði virðist
mjög óáreiðanlegar, er þó auðséð, að
horfur þar eru iskyggilegar. Sagt að
soldáninn sé fluttur þaðan yfir til Asíu
og fjöldi kristinna manna flýr úr bæn-
um , þeir sem komist geta. Konur
og börn hafast við úti á skipum og
ýmsir leita á ttáðir herskipa þeirra, er
stórveldin hafa sent til Miklagarðs.
S’.gt að tyrkneskir hermenn kenni
kristnum mönnum um ófarir sínar.
Fjö’di kristinna manna var í her Tyrkja
og þeir þykja hafa gefist þar illa í
Zilivríu, sem er þrjár rastir vegar frá
Miklagarði, er sagt að 70 kristnir
tnenn hafi verið myrtir. A höfninni
lenti tyrkneskum og grískum sjómönn-
um saman í áflogum og bard.iga og
mistu þar lífið nær 50 tnanna. Her-
sveitir vaða um bæinn og verður
lítill hemill á þeim hafður. Sendi-
herrar stórveldanna hafa því mælst til
að þau sendi fleiri herskip til Mikla-
garðs.
Vaxtahækkun.
Báðir bankar vorir hafa hækkað
vexti af lánum upp i 6 °/0 frá og með
þessum degi, sbr. augl. þeirra hér í
blaðinu í dag..
Isajold hefir spurst fyrir urn það
hjá bankastjórnum beggja bankanna,
hvernig á þessari hækkun úr 5 »/4 %
upp í 6 % standi.
Svarið er hið sama hjá báðum:
Vextir haja hcekkað svo mikið erlendis,
að við höjum séð okkur nauðugan einn
kost að hækka lika.
Báðir standa bankarnir svo og svo
rnikið í sambandi við erlenda banka,
sem hækkað hafa sina vexti og hvor-
ugur bankanna stendur sig því við
annað en að hækka vextina. hjá sér
þegar erlendir viðskiftabankar þeirra
hækka vexti við þá.
Nýlega hefir þýzki ríkisbankinn
hækkað vextina úr 3 % upp i 6 °/0.
Nationalbankinn úr 4 r/2 °l0 UPP í
5 V2 % °- s- frv- °g aðrir danskir
bankar hækkað enn meira.
Bankastjórnir beggja banka munu
hafa beðið svo lengi með hækkunina,
sem frekast var unt. íslandsbanki
hefir t. d alllengi orðið að greiða
6 °/0 af skuldaviðskiftum sínum við
brezka, þýzka og norska banka.
Það er því nauðsyn ein þ. e. horf-
urnar á peningamarkaði heimsins, er
valda þessari vaxtahækkun. Er því
eigi til neins annað en að taka henni
með kristilegri þolinmæði — í þeirri
voti, að hún standi eigi ákaflega lengi.
Ceres hlekkist á.
Ceres lenti á grynningum á inn-
siglingu á ísafjörð fyrir nokkrum dög-
um. Var lágsjávað og losnaði skipið
um flóðið.
Erí. símfregtiir.
Nobels verðlaunin,
Khöfn 20. nóv. 1912.
Gerhart Hauptmann Jœr Nobelsverð-
laun.
Hér er átt við bókmentaverðlaunin.
Gerhart Hauptmann er talinn eitt-
tvert mesta leikritaskáld Þjóðverja.
Hann er fimtugur, f. 1862.
Frá ófriðnuiu.
Serbar tekið Monastír.
Daglegar orustur við Tscha-
taldja; ýmsir ofaná.
Áttunda þ. m. kom hingað sú
fregn að Serbar hefðu tekið Monastír.
ísafold flutti þá fregnina og lýsti nokk-
uð borginni. Annars mun annar bær,
samnefndur, vera til í Tyrklandi, en
miklu minni.
Símfréttin staðfestir það að Búlgar-
ar etu ekki búnir nð ná Tschatnldja-
vi'rkjunum enn þá; en jafnframt má
sjá það að Búlgarnr hafa ekki veitt
Tyrkjum vopnahlé það, er þeir beiddu
um.
Strandferðir 1913.
Lnndritari fekk skeyti um það i
gærmorgun, að samkomulag vceri kom
ið d milli ráðherra Islands og Samein-
aða Jélagsins um strandjerðirnar nœsta
dr. —
En skeytið hermir ekkert um, með
hverjum hætti samkomulag þetta sé.
Einkasöluleyfi á steiiiolm.
Fiskifélag íslands sækir uni það.
í gærkveldi var fundur htldiun í
Fiskifélagi íslands til þess að ræða
um steinoliumálið.
Allir sem töluðu á fundi þessum
m. a. þeir Björn Kristjánsson banka-
stjóri og Tryggvi Gunnarsson f. banki-
stjóri voru eindregnir á því að sjálf-
sagt væri að Fiskifélag íslands sækti
um einkaleyfi það til steinoliusölu,
sem stjórninni var heimilað að veita
með lögum frá síðasta alþingi.
Að lokum var í einu hljóði sam-
þykt svolátandi tillaga:
Fundurinn samþykkir, að stjórn
Fiskifélagsins sæki til landsstjórnarinn-
ar um einkaleyfi fyrir félagið til stein-
oiiusölu hér á landi, samkvæmt stein-
olíulögunum og að stjórn félagsins
haldi áfram að undirbúa málið, bæði
hér í bænum og út um landið.
-----sse-----
dslanó arlanóis.
Hjúskapur. Jóhann Sigurjónsson
skáld kvæntist þ. 5. nóv. danskri
konu, frú Ingeborg Thidemann. Brúð-
kaupsferð ætla þau hjónin til Gauta-
borgar, Mílnchen, Vínarborgar, Köln,
Bremen, Essen, Kristjaniu og Stokk-
hólms. í öllum þessum bæjum verð-
ur Fjalla-Eyvindur sem sé leikinn, og
ætla þau að vera viðstödd fyrstuna
allstaðar.
Haddapadda, leikrit Guðm. Kambans,
hefir stjórn kgl. leikhússins í Khöfn
haft til yfirlesturs, og er mælt, að
Karl Mantzius, leikhússtjórinn ann-
ar, hafi lokið á það miklu lofsorði og
tjáð sig um, að sjálfsagt væri, að taka
það til leiks. Hvort úr því verður
mun samt enn óvíst, með því að
Mantzius er á förum frá leikhúsinu.
Landsbankinn.
Frá þessum degi tekur Landsbankinn fyrst um sinn forvexti af víxlum,
og vexti af lánum, öðrum en veðdeildarlánum, 6 °/o P* a-» auk fram-
lengmgargjalds.
Reykjavík, 19. nóv. 1912.
Batikasfjórniti.
Frá þessum degi tekur
Ísíandsbanki
fyrst um sinn í forvexti af víx-um og vexti af lánum öðrum en fasteignar-
veðslánum með veðdeildarkjörum: 6% p. a., auk framlengingargjalds.
Reykjavík 19. nóvbr. 1912.
Sfjórn Ísíandsbanka.
Frá stríðiuu. Búlgfarar í orustu.
-Zu. o 'SbaUusú ck.
l’TAIll
ófriðarsvæðið, sjá greinina um ófriðinn.
Ýms erlend tfðindi.
Varafor8eti Bandaríkja er kjörinn
Thomas Riley Marshall landstjóri í
Itidiana. Varaforseti er valdalítill mjög.
Er embætti það virðingarstaða, en lítið
annað. Aðalstarf hans er að skipa
forsæti í efri málsstofu þingsins. Hinn
nýi varaforseti er hátt á sextugsaldri.
Kosningar á Rússlandi. Snemma í
þessum mánuði fóru fram kosningar
til þingsins rússneska, dúmunnar.
Þ. 8. nóv. voru 386 kosningar um
garð gepgnar. Var þá búið að kjósa
136 ihaldsmenn, en að öðru leyti
höfðu þingsætin lent mjög á við og
dreif milli hinna mörgu flokka þar
i landi.
Stjórnarskifti í Noregi. Úrslitafregn
um kosningarnar í Noregi er ókom-
in enn, en litlutp vafa bundið, að ger-
bótamenn hafi meirihluta í þinginu,
öllum óháðir. Stjórnarskifti eru því
vís. En hvort úr þeim verður nú
þegar eða beðið verður þess, er stór-
þingið kemur saman i janúar, er óvíst.
Stjórnarforseti er talinn sjálfsagður
Gunnar Knudsen og líklegir í hið nýja
ráðuneyti Castberg og Lövland, báðir
ráðherrar í Noregi fyrir nokkurum ár-
um.
Kosningarnar hafa gefið málstreitu-
mönnum mikinn byr í segl.
Ný bók.
Ljóð, eftir Sigurð Sigurðsson skáld,
eru nýkomin út, 4r/2 arka bók, helztu
kvæði höf. Sigurður er orðinn kunn-
ur fyrir Ijóðlist sína af kvæðum, sem
birzt hafa á við og dreif í blöðum og
tímaritum, m. a. hér í blaðinu. Nú
hefir Sigurður safnað þeim í litla og
laglega ljóðabók, er verða mun ljóð-
vinum kærkominn gestur. Væntan-
lega verður betur minst á bókina hér
í blaðinu síðar.
Frá mannainötum.
Hljómleikar þeirra frú Valborgar
Einarsson og jgfr. Herdísar Matthías-
dóttur á sunnudaginn voru fremur
fásóttir. Söngskráin var helzti löng,
hljómleikarnir tóku meira en il/a klst.
Þær skiftust á að syngja og spila
undir. Á hvorttveggju kunna þær