Ísafold - 28.12.1912, Síða 1

Ísafold - 28.12.1912, Síða 1
Kemx.i út bvisvar i viku. Verð árg. (80 arkir minst) 4 kr. erlendla 5 krt eða 1*/a dollar; borgist tyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram). ____ ISAFOLD UlipsðEn (skritteg) bnndin tíÞ iramðt, •> óslld ueœa komin Hé til útgefanda fyrir 1. okt. os aaitpaniU iknldlac* vib blaÞiÞ AfjtreiÞila s Anctnritnsti & XXXIX. árg. Reykjavík 28. des. 1912 90. tðlublað. I. O. O. F. 941227«. Alþýðufél.bókasaín Templaras. 8 kl. 7—9. Augnlækning ókeypia í ijækjare:. 2 mva. 2—3 Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 10—6.^ Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4 t Bæiargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12 8 og 5 — 7 Eyrna-,nef-og hálslækn. ók. P08th.str.14A fid. 2 8 tslandabanki opinn 10—2 */* og 54/a—7. K.P.U.M. Leatrar- og nkrifstofa 8 árd.—10 sod. Alm. fundir fld. og ad. 8 * lja síðdegia. Landakotskirkja. öuðaþj. 9 og 0 á helgum Landakot^spítali f. ejúkravitj. 101/?—12 og 4—5 Landsbankinn ll-2l/s., 5>,'a-8‘/s. Pankastj. vxö 12-2 Landsbókasafn 12—3 og 5—8. utlkn 1—8 Landsbúnaðarfélagsskrifstofan opin trA. 12 2 Landsféhirðir 10—2 og 5—6. Landsskjalasafnið hvern virkan dag 12—2 Landsíminn opinn daglangt [8—9] virka dagj*, helga daga 10—12 og 4—7. Lækning ókeypis Þingh.str. 28 þd.og fsd. 12—1 NAttúrugripasafn opið 1 —21/* A suunudögum Samúbyrgð Islands 10—12 og 4—6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 daglega Talsími Reykjavikur (Pósth. 3) opinn daglangt (8—10) virka daga; helga daga 10—9. Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11—12 Vlfíísstaðahrelið. Heimsóknartími 12—1. Þjóðmenjasafnið opið þd., fmd. og sd. 12—2. fsafold 1913. Sú breyting verður á I 8 af O 1 d næsta ár, að hún kernur jafnaðarlega út tvisvap í vilcu, miðvikudaga oglaugardaga, en verður í örlítið minna broti en að undanförnu. Blöðin verða því 104 í stað So hingað til, en verðið þó hið sama 4 kr. Er það von útgefanda, að kaupend- um blaðsins og lesendum þyki vænt um þessa breytingu. Nýir kaupendur fá í kaupbæti 3 af neðantöldum 4 sögum eftir frjálsu vali um leið og þeir borga: 1. Fórn Abrahams (600 bls.) eftir Gustaf fansson. 2. Herragarðssöguna eftir Selmu Lagerlöf. 3. Davíð skygna eftir fónas Lie. 4. Fólkið við hafið eftir Harry Söiberg. Davið skygni er heimsfrægasta skáldsaga fónasar Lie, Herragarðs- sagan einkend sömu snild og önnur skáldrit S. Lagerlöf. Fórn Abra- hams einhver frægasta skemtisaga, sem getur. Isafold er ódýrasta blað Iandsins útbreiddasta blað landsins eigulegasta blað iandsins. Hver íslendingur, sem fylgjast vill með í því, sem er að gerast utanlands og innan, í stjórnmálum, atvinnumál- um, bókmentum, listum o. s. frv. verður að halda Isafold. Kaupbætisins eru menn vin- samlega beðnir að vitja í afgreiðslu ísafoldar. Símið (Tals. 48) eða skrifið 0g pantið Isajold peqar i stað — frestið pvi ekki. ÍSAF0LD er blaða bezt. ÍSAF0LD er fréttaflest. ÍSAFOLD er lesin mest. Kaffiííti. Altaf nægar birgðir hjá Sveitii Jðnssyni, Templarasundi 3. Reykjavík Kostar aðeins 80 aura pd 1 pd. af Kaffitíni jafngildir 1 pd. af brendu og möluðu kaffi á 1.20—1.30 pd. og V2 pd- af export á 0.25. Það er því um 70 a. sparnaður á pundinu. Og það sem mestu varðar: Kaffitinið er hollur og nærandi drykkur og alveg skaðlaus fyrir alla — unga og gamla Einkaumboðsmaður á íslandi: Sveinn JTl. Sveinsson, Havnegade 47 L Khöfn Friður eða ófriður? Frá því vur skýrt í BÍSasta blaði, að fresta þurfti friðarfundinum í Lundún- um, vegna þess að Tyrkir neituðn að semja við Grikki, nema þeir gerðu fyrst vopnahlé. Hversvegna Grikkir hafi neitað að semja vopnahló, eu sœkja þó friðar- fundinn, um það fer ýmsum sögnum. Telja sumir að þetta sóu saman tekin ráð Grikkja og hinna Balkanþjóðanna. Þeim leiki grunur á að Tyrkir vilji nota vopnahléð til þess eins, að draga að sór her og vistir, og þyki því ótryggilegt að þeir sigli um höfin þar syðra eftir- litslaust. Daginn áður en friðarfundur- inn átti að hefjast, lenti líka Grikkjum og Tyrkjum saman í sjóorustu nálægt eyjunni T e n e d 0 s. Skeyti frá Mikla- garði segja að Grikkir hafi mist þar eina vígsnekkju og 2 tundurbáta, en Tyrkir eina vígsnekkju og 1 tundurbát. Nánari fregnir eru ekki enn komnar af lessari viðureign. í síðasta blaði er og frá því skýrt, að sendiherrar stórveldanna í Lundún- nm gengu á fund, til þess að rœða um ýms deilumá!. Svo var líka ráð fyrir gert þegar í fyrstu, en ekki ætluðu þau að hlutast til um friðarsamninga milli Balkanþjóðanna, ef þeim kæmi saman. En þurfi stórveldin að skerast í ófrið- inn, til þess að skakka leikinn á Balk- anskaga, er búist við að sá stórvelda- fundur verði haldirm í Parísarborg. Fer þó enn fjarri því, að sóð só fyrir endann á styrjöldinni á Balkanskaga. Erí. símfregnir. Khöfn a7/la '12. Friðarumleitanirnar. Tyrkir neita að láta af hendi Adríanópel. Litlar friðarhorfur. Forsetaefni Frakka. Poincaró er líklegast for- setaefni Frakka. Poincaré er, eins og lesendur vita, yfirráðherra Frakka nú. Hann er það, sem einna bezt hefir gengið fram í að koma á friði með Balkanþjóðun- um. Önnur forsetaefni hafa verið til- nefnd m. a. Clemenceau, áður yfirráð herra og Leon Bourgeois, ráðherra og þingforseti. Störbruni á Sauðárkrók. Á Þorláksmessu brunnu Gránufé- lagshúsin á Sauðárkrók til kaldra kola. Eldsins varð vart um 2 leytið. Hafði komið upp í ibúðarhúsi Jóns Pálma- sonar verzlunarstjóra og talið víst að kviknað hafi frá ofnpípu í einu her- berginu. Húsin voru eign erfingja Stefáns Jónssonar. Þau voru vátrygð fyrir 15000 kr., en tjónið sagt miklu meira. Innanstokksmunir brunnu allir og talsvert af vörubiigðum. íslandsbanki. Hingað er von á þessum vetri á nýjum bankastjóra til íslandsbanka frá Khöfn. Hann verður settur í þá bankastjórastöðu, er ráðherra Hannes Hafstein hafði. Hann heitir Tofte og hefir verið við deild Prívatbankans Friðriksbergi. Ekki ólíklegt, að honnm sé ætlað að verða eftirmaður Schous bankastjóra við íslandsbanka. Svar frá hr. Jóni Ólafssyni npp á grein hr. Garðars Gislasonar i siðasta blaði, kemst ekki i þetta hlað vegna þrengsla. Kernur i næsta blaði. Lóðargjöld. Útdráttur úr ræöu Sveins Björnssonar um lóöargjöld, A bæjarstjórnarfundi 19. þ. m. (sbr. tillöguna i siöasta blabi). Eg gat um það við fyrri umræðu fjárhags-áætlunarinnar, að þörf væri á að breyta skattgjöldum til bæjarsjóðs. Aleð lögum 19. okt. 1877 um bæjar- gjöld í Reykjavík voru innleidd sem bæjargjöld: lóðargjald og aukaútsvar. Svo virðist sem lögin gjöri ráð fyrir, að lóðargjaldið skuli vera aðaltekju- stofninn. Önnur raun á orðin. Árið 1913 eru lóðargjöld áætluð kr. 12,000 en aukaútsvör kr. 117,000 eða tifalt meira en lóðargjöldin. Útsvörin fara gífurlega hækkandi ár frá ári. Árið i9iOvoruþau kr. 84,000 nú eru þau áætluð næsta ár kr. 117,000. Útsvör óheppilegur tekjustofn. fafnað niður á menn af handahófi, koma oft mjög óréttlátlega niður, fástsjaldan leið- réttingar þótt kært sé. Auk þess eru æim engin takmörk sett. Bæjarstjórn- in getur ákveðið þau útgjöld, sem íenni sýnist. Altaf hægt að fá inn tekjur með því að bæta við útsvars- úlguna því, sem bæjarstj. sýnist, án tillits til gjaldþols bæjarbúa. I.óðargjöld aftur á móti mjög heppi- iegur gjaldstofn. Lóðimar fasteign, sem ekki verður undan skotið og hefir verðmæti, sem jafnan má ákveða með talsverðri nákvæmni. Auk þess vaxa óðir í verði jafnhratt sem bærinn vex og útgjöld hans. Ef lóðargjald því væri hundraðsqjald af verði lóðanna, yxi sá tekjustofn jafnhratt sem útgjöldin yxu. Lóðargjaldið nú ranqlátt. Það er 3 au. af hverri feralin bygðrar lóðar og V* ey. af feralin óbygðrar lóðar. Sama qjald af hverri feralin, hvort sem hún er ;o au. eða 2joo aura virði. Auk þess engin ástæða til að gera mun á bygðri og óbygðri lóð. Hvorttveggja fasteign, hvorttveggja verðmæti auð- velt að ákveða, hvorttveggja hefir nota- gildi samkvæmt verði sínu. Árið 1877 hefir verð lóða hér verið afarlítið. Lóðargjaldið því þá, 3 au. af alin bygðrar lóðar, mjög hátt. Þó talið sjálfsagt þá. Ef nú væri lagt á mjöq lágt lóðargjald, t.d. 2%,en þetta yrði margfalt minna gjald nú en lóðargjaldið sem lagt var á 1877 var þá, látum oss þá sjá hver útkoman yrði fyrir bæjarsjóð. Lóðir, sem goldið var af lóðargjald árið 1911 voru hér um bil 1% miljón ferálna (h. u. b. 300,000 feráln. bygð lóðog 1,200,000 feráln. óbygð lóð). F.f meðalverð á lóðum hér í bæ er talið kr. 2,50 feral., þá gæfi 2% lóðnrgjald bæjarsjóði nú þegar h. u. b. 75,000 kr. eða h. u. b, 61,000 krónum nieira en nú. Hin ranglátu útsvör mætti þá jafnframt lækka úr því, sem nú er. Þetta er að eins nefnt sem dæmi. Auk þess legg eg til að lagt verði á sérstakt verðhækkunargjald af lóðum. Lóðir hækka í verði árs árlega og hafa sérstaklega hækkað undanfarin ár, án þess að nokkuð handarverk hafi verið í þær lagt til að bæta þær. Þótt leitað sé með logandi ljósi, finst engin önnur ástæða til verðhækkunar þessarar en vöxtur bæjarins og um- bætur pær, sem fi bæjarsjóðs er notað til. Er það réttlátt að einstaklingun- um sé gefin þessi verðhækkun, sem bæjarfélaginu og bæjarsjóði er einum að pakka? Er ekki eðlilegt að bæjar- sjóður fái eitthvað af þessari verðhækk- un, úr því hann leggur féð til henn- ar og þarf auk þess mjög á fé að halda? Nú ætlar bærinn að byggja höfn fyrir 1 ^/g miljón. Við það er gert ráð fyrir að lóðir þær, sem ná- lægt höfninni liggja, hækki gifurlega í verði. Af hverju? Af því að lögð er 1 % miljón króna af almannafé í höfn. Einstaklingurinn, sem lóðina á, leggur ekki fram einn eyri sérstak- lega og ekki eitt handarvik. Ef eigi er tekið sérstakt gjald af þessari verð- hækkun, er þá bæjarsjóður ekki að gefa einstökum mönnum stórfé, fé, sem hann þarf sjálfur á að halda? Slíkt er hróplega ranglátt gagnvart öðrum bæjarbúum og auk þess mjög óhyggileg fjárstjórn. Vænti að máli mínu verði vel tekið og nefnd kosin í máiið. Fræöafélagið í Kaupmannahöfn. Heimflutningur Hafnardeildar Bók- mentafélagsins, sem loksins varð fram- gengt fyrir rúmu ári síðan, var óhjá- kvæmileg afleiðing af hinu aukna mentalífi í Reykjavik og vaxandi sjálf- stæðisanda íslenzku þjóðarinnar, sem ekki gat unað þvi, að megiudeild hins elzta og helzta vísindafélags hennar befði bækistöðu sína í framandi landi. Margir heimflutningsmanna munu þó í aðra röndina hafa búist við, að Hafnar- íslendingar mundu fyrir bragðið vinna minna í þarfir íslenzkra bókmenta eftirleiðis, og talið það illa farið, meðan sumir helztu vísindamenn okkar sitja þar suður frá við allar þær auðsupp- sprettur íslenzkra fræða, sem fólgnar eru í handritasafni Árna Magnússonar og víðar. Sem betur fer, er ekki útlit á að svo illa fari. Hið nýstofnaða Fræðafélag mun því vafalaust eiga vin- um að fagna meðal hinna gömlu heim- flutningsmanna, sem að nokkru munu þakka sér, að hér er kominn nýr verka- maður i víngarð íslenzkra bókmenta. Ekkert getur verið fráleitara en að kvarta fyrir hönd Bókmentafélagsins yfir samkepni frá Fræðafélaginu. Fræðafélagið safnar engum »félögum« eins og Bókm.fél. og Sögufélagið, bækur þess eru að eins seldar í lausasölu og keppa því ekki fremur við bækur Bókm.fél. en bækur hvers annars forleggjara gera. Það er að vísu satt, að Bókm.fél. getur ekki gefið þær bækur út, sem Fræðafél. gefur út, en enginn heim- flutniugsmaður mun vantreysta menta- mönnum Reykjavíkur til þess að sjá Bókm.fél. fyrir nógum bókum. Og ekki er það nema gott, að Bókm.fél. hafi hitann í haldinu, að bækur þess séu ekki miður valdar en bækur Fræðafélagsins. Það verður ekki annað sagt en fé- lagið fari myndarlega af stað. Endur- minningar Páls Melsteðs eru að vísu rýrari í sumum greinum en margir höfðu búist við, en þó eru þar kaflar (t. d. um Bessastaðaskóla), sem bæði eru fróðlegir og skemtilegir. Lfklega eru það einmitt þau einkenni Páls, sem vekja mesta samúð hjálesandanum, yfirlætisleysi hans og samræmi, sem hafa gert hann miður færan til þess að rita endurminningar um sjálfan sig. Til þess þarf talsvert af frekju og sjálfsmetnaði og æfisagan verður því merkilegri, sem sálarlif höfundarins hefir verið æstara og umhleypinga- samara. Þetta sést bezt af hinni sjálfs- æfisögunni, sem félagið hefir gefið út, Píslarsögu síra Jóns Magnússonar. Eg hika ekki við að telja bók þessa, sem hingað til að eins hefir verið kunn af útdrætti Þorv. Thoroddsen í Land- fræðissögunni, einhvern merkilegasta vitnisburð um mannlega sál, sem til er á islenzku. Enginn, sem ekki hefir lesið bókina, gæti trúað því, að maður, sem hvorki skortir vit, mentun né mannkosti, gæti borið fram slíkt ofur- magn hjátrúar og heimsku með þeim krafti, sem að eins óbilandi sannfæring getur gefið. Bókin er dýrmæt heim- ild að menningarsögu okkar og hún væri þess verð, að einhver vísinda- maður, sem helzt þyrfti að vera sáfar- fræðingur og geðveikralæknir í einni persónu, reyndi að skýra hana fyrir monnum. N. Islenzk skonnorta ferst. Fimm menn drukna. Nýlega rak skip af hafi fyrir Knar- arneslandi á Mýrum og var á hvolfi. Kom brátt i ljós að þetta var skonnortan Hekla, er lagt hafði út hingað 25. okt. í haust frá Halmstad i Svíþjóð og ekki hafði til spurst síð- an. Skipið var 120 smálestir að stærð, eign Garðars kaupm. Gíslasonar, en var fermt með timbri, er fara átti hingað til bæjarins. Hefir það Hklega verið komið hér nærri landi er þaÖ fórst. Skipverjar voru 5 að tölu, all- ir íslenzkir. Þeir hétu sem hér segir: Sigurður Móesesson, skipstjóri, kvænt- ur maður héðan úr Reykjavik. Þorsteinn Egilsson, stýrim., sömul. kvæntur, úr Hafnarfirði. Benedikt Benediktsson héðan úr bæ, líka kvæntur. Jón Sturluson héðan úr bæ, ókvænt- ur og Jón Móesesson frá Hóli i Dýrafirði, ókvæntur. Biblíufastur konungur. Ensku blöðin flytja bréf frá ritara Englakonungs til Mr. Francis Brading, ritara ritningargjafa trúboðsins. í þessu bréfi segir frá þvi, að hinn núverandi Englandskonungnr hafi lofað Alexöndru drotningu móður sinni, árið 1881, að lesa á hverjum degi einn kapitula í biblíunni, og hafi hann haldið þetta loforð sitt. Leikhúsið. Álfhóll, sjónleikur i 5 þátt- um eftir J. L. Heiberg. Þvíer leikfólagið aðtaka E1 ver- h ö j upp ? Hefir þaS ekki eitthvað kjarnbetra og mikilvægara leikrit að bjóða t Og hverig kemst leikfólagið frá að sýna leik, er svo mikils útbúnaðs og allskonar skrauts þarf við á leiksviðinu. Þetta blessast aldrei! Á þessa eða líka leið talaöi maður við mann, er það spurðist, að Leikfólag Rvíkur hefði í hyggju, að gera Álfhól Heibergs að jóla-leik sínum. Enn voru aðrir, er býsnuðust yfir því, að Álfhóll væri leikinn, af því hanu só hádanskt þjóðrækuis og kon- ungs-hollustu leikrit. En þeir menn, er svo eru þröngsýnir í þjóðernisskoðunum vor á meöal, að þola eigi leikrit, er segir frá danskri þjóðrækni þeir eru patriotiskir idiótar, eð idiotiskir patriotar — þjóðræknisasn- ar, og er eigi orðum eyðandi að fásinnu þeirri. Hitt er eigi nema satt, að Álfhóll er ofboð veigalítið og hugsanarýrt leikrit, svo fáskrúðugt á andlegau mælikvarða, að við liggur, að litlu mundi muna, þótt ekki væri orð t a 1 a S í leiknum, heldur svipbrigði og látæði duga látið - t a 1 a S segi eg af því, að s ö n g u r - i n n má að hinu leytinu alls eigi mlssa sig. Söngvarnir í Álfhól eru því nær allir gamlir og góðir kunningjar. Sumir, eins og t. d. lagið við Geng eg fram á gnípu og Ó, flýt þór nú, snót m í n á hvers manns vörum. Álfbóls- hljómleikaruir eru einstaklega hugðnæm- ir, enda gerðir af miklum meistara, tón- snillingnum Kuhlau. Þeir sem leikhús vilja sækja til þess eins að sjá hugsana-magnþrungin heila- brota-leikrit — eiga ekkert erindi í leik- húsið til að sjá Álfhól. Hinir, sem gaman þykir að annari fæðu við og við — þeir ættu eigi að sitja sig úr færi að sjá Álfhól. Þar er mikið fyrir bæði augu og eyru. Leikfólaginu hefir tekist að færa Álfhól í búning svo góðan, aS fæsta mun hafa órað fyrir. Leiktjöldin eru falleg, búningarnir sórlega smekklegir og hópsýningarnar, dansarnir, fóru mjög snoturlega úr hendi. Seinasti þáttur er lítið annað en dans. Úr honum varð ósköp litið í höndum Boesens leiktlokksins danska í fyrra. En nú var mikil ánægja á hann að hoifa, Tvö börn ^frú Stefaníu) dönsuðu þar m. a., af svo miklum þokka, að lófatak áhorfenda glumdi við á eftir.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.