Ísafold - 12.03.1913, Qupperneq 1
| iiiiiiiiiiiiiiiiiiiitmiimiiiiiiinmitiiimiiiiinmi |
Kemur út tvisvar
í viku. Verð árg.
4 kr., erlendis 5 kr.
eða 1J dollar; borg-
ist fyrir œiðjau júlí
erletidis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint.
lll^lllllllll■llilllllmlll^llll^n I
Uppsögn (skrifl.)
bundin við áramót,
er ógild nema kom-
in só til útgefanda
fyrir 1. oktbr. og
só kaupandi skuld-
laus við blaðið.
XXXX. árg.
Reykjavík, miðvikudaginn
12. marz 1913.
20. tölublað
Hvítu skræliugjarnir.
Svona líta þeir út »hvítu skrælingjarnir*, er landi vor, Vilhjálmur
Síeýánsson fann á norðurströndum Kanada.
Eru þeir Ijósir á húð og hár og að því leyti ólikir öllum öðrum
skrælingjum. Tilgátur hafa verið uppi um, að þeir kynnu að vera eftir-
komendur hinna fornu norrænu landnámsmanna. Þessi skrælingja-kyn-
kvísl er alls 2000 manns. Lifnaðarhættir, mál og hugmyndir þeirra eru
alt á skrælingja-vísu.
I. O. O F. 943149.
Alþýðnfél.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—9.
Angnlækning ókeypis i Lækjarg. 2 mvd. 2—3
Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 10—3
Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7
Bæjargjaldkerinn Langav. 11 kl. 12—8 og 5—7
Eyrna- nef- hálslækn. ók. Pósth.str.ldAfid. 2—8
tslandsbanki opinn 10—21/* og B1/*—7.
K.F.U.M. Lestrar- og skrifstofa 8 árd,—10 siðd.
Alm. fundir fid. og sd. 81/* siðd.
Landakotskirkja. Gnðsþj. 9 og 6 á helgnm.
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn H-21/*, B1/*—61/*. Bankastj. 12-2
Landsbókasafn 12—3 og 6—8. Útlán 1—8.
Landsbúnaðarfélagsskrifstofan opin frá 12—2
Landsfóhirðir 10—2 og 6—6.
Landsskjalasafnið hvern virkan dag kl. 12—2
Landssiminn opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
Lækning ókeypis Þmgh.str.23 þd.og fsd. 12—1
Náttúrugripasafnið opið l1/*—21/* á sunnud.
Samábyrgð Islands 10—12 og 4—6."
Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjavikur Pósth.3 opinn daglangt
(8—10) virka daga; helga daga 10—9.
Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11—12
Vifilstaðahælið. Heimsóknartimi 12—1
Þjóðmenjasafnið opið þrd., fimd. og sd. 12—2.
Leikfél. Reykjavíkur:
Æfintýri á göngufðr
eftir
C. Hostrup
leikið laugardag 15. marz
kl. 8 siðd. í Iðnaðarmannahúsinu.
Aðgöngumiða má panta í Bókaverzl-
un ísafoldar.
Nýja Bió
í kvöld og næstu kvöld verður sýnt:
Týndi sonurinn — eða
í klóm okurkaría.
Afar-átakanlegur sjónleikur.
Pantið bílæti í talsíma 344. Op-
inn hálf tíma á undan sýningum.
Ofna og eldavélar
selur
Kristján rorgrímsson.
Gjaldkeramálinu áfrýjað
Á laugardaginn var sá úrskurður
kveðinn upp í stjórnarráðinu, að
áfrýjað skyldi gjaldkeramálinu til yfir-
dóms bæði fyrir hönd réttvísinnar
og samkvæmt ósk ákærðs.
Þess mun nokkuð langt að bíða,
að málið verði tekið fyrir í lands-
yfirrétti, þvi að dómurinn er nýlega
búinn að fá 3 vikna páskaleyfi. Fyr
en í öndverðum apríl getur mál-
ið því eigi orðið fyrir tekið.
Enginn veit heldur enn, hverir
muni dæma málið í yfirrétti. Jafn
vel búist við, að allir |þrír yfirdóm-
ararnir víki sæti, þeir Kr. J. og H.
D. vegna þess, að þeir hafa um
málið fjallað á fyrri stigum þess, en
Jón Jensson er mælt, að óski "að
víkja sæti sökum tengda við ákærða.
Tilgátur eru ýmsar um hverir þá
muni dómarar skipaðir. Meðal þeirra,
sem tilnefndir hafa verið, eru þeir
Qafnar Páll Einarsson borgarstjóri og
V. Bjarnason Snæfellinga sýslu-
maður.
»—» ■ mKXtcm .....
JJð verða úti.
Geisar í myrkrunum qrenjandi hríð,
svo vlymur í jjallanna pröngum,
og draugarnir hlakkandi hendast í strið,
með hrynjandi bardagasöngum.
Það ýskrar og vœlir og orgar og hvín,
og illviðra vœtturin dansandi hrín,
með óhljóðum illum og löngum.
Brýzt um í jönnunum jölleitur sveinn,
með frostperlur glarar á kinnum;
hann vilst hefir síðla aj veginum einn,
í voða jrá mannanna innum.
Hann hamast og jannirnar heggur á snið,
með herðunum spyrnir hann byljunum við
svo titrar i taugunum stinnum.
En óðum hann preytist,pví pung er sú hríð,
sem pyrlast um vangana bleika. —
Þó unnustan biði hans broshýr og jríð,
hann byrjar á jótum að reika.
Hann horjir ogjölnar og hnigur í dá,—
nú hvilisthanndúnmjiíkum jönnunum á,
og hœgt slær nú hjartað hans veika.
Nú sér hann að blasir við blikandi höll,
með brennandi, titrandi Ijósum,
er hvílir á glóandi gullsúlum öll,
með glitveggi pakta í rósum.
Hann heyrir par sungið og dansað svo dátt,
við dillandi, leikandi hljóðjæraslátt,
aj kátum og draumhýrum drósum,
Hann ber par að dyrum,erboðiðpar inn,
aj brosleitum, hlcejandi jansi,
en ein, sem hann pekkir, hún kyssir hans
kinn,
i kvikum og lyjtandi dansi.
Hún klæðir hann allan í skínandi skraut
og skrýddan og prýddan hann nemur á
braut,
úr dansandi drósanna kransi.
Hún leiðir hann pögul í litojna sceng,
og legst upp við ólgandi barminn,
svo breiðir hún yjir hann vonanna vceng,
og vejur hann jast inn í arminn. —
Nú vaggar hún rólega værð á hans brá,
og vakir svo dreymandi beðinum hjá,
og kyssir par hýrleitan hvarminn.
TJm daginn í jönnunum fundupeir svein
hjá jreðnum og ísköldum steinum;
hann hajði par látist með lémagna bein,
en lýst hajði’ af svipinum hreinum,
pví kuldinn hann jæðir ojt einhvern yl,
sem að eins í dauðanum verður til, —
já, játt segir ojtast aj einum.
7i. Jiamar.
Erl. símfregnir.
Khöfn 12. marz 1913.
Frá ófriðnum.
Úrslita-áhlaup á Skútarí
er í undirbúningi.
Bæjarstjórnarkosningar i Khöfn.
Við bcejarstjórnarkosningarnar hér\i
bœ í gcer voriifö kosnir 27 jajnaðar-
menn, y gerbótamenn.\ |22 aj borg-
aralista og 1 aj kvennalista.
Bæjarfulltrúum Khafnar hefir ný-
lega með lögum verið fjölgað úr 42
UPP í 5S- Jafnaðarmenn hafa verið
í algerðum meirihluta, en við þess-
ar kosningar skortir þá 1 atkvæði á
algerðan meirihluta, svo að nú verða
þeir að eiga alt undir gerbótamönn-
um. Þeir verða tungan á vogarskál-
inni.
Harald Höffding
heimspekisprófessorinn danski, er
fjölmörgum íslendingum er að góðu
kunnur, átti sjötugsafmæli í gær.
Þá stóð til, að danskir stúdentar
heiðruðu hann með blysför.
Héðan voru honum send sam-
fagnaðarskeyti m. a. frá Stúdenta-
félaginu.
Bankamálserindi
flutt í stúdentafélaginu þ. 9. febr. 1913
af bankastjóra Birni Kristjánssyni.
m.
Hvað er pað pá, sem parj að gera?
1. að leysa Landsbankann úr »álög-
unumc, láta landið leggja til alt
tryggingarféð, sem bankinn hefir
orðið að leggja fram fyrir veð-
deildunum.
2. losa hann við skattana til lands-
sjóðs og byggingarsjóðs, svo að
varasjóður hans aukist því örara.
3. heimila bankanum að hafa vara-
sjóð sinn í veltufé, að minsta
kosti meiri hlutann, en láta banka-
stjórnina eina um það, hvað hún
álitur nauðsynlegt að eiga í verð-
bréfum á hverjum tímum sem er.
4. að leggja bankanum til í bráðina
að minsta kosti 2 milj. kr. veltu-
fé eða 1 milj. kr. í viðbót við
það, sem leyst yrði úr veðbönd-
um.
5. að losa bankann við veðdeild-
irnar og stofna sérstakan veð-
lánabanka, sem reki öll ársvið-
skifti sín við Landsbankann, að
svo miklu leyti sem hann notar
hérlend bankaviðskifti.
6. að gera landsstjórninni að skyldu
að nota Landsbankann einvörð-
ungu fyrir öll viðskifti landsins,
svo sem landssjóðs, póstsjóðs,
ritsímasjóðs og annara opinbera
sjóða, sem og ætti að liggja í
hlutarins eðli, að hún gerði —
af sjálfdáðum.
Um 1. atriðið þarf eg ekki að
vera fjölorður, það liggur svo í aug-
um uppi, að einhverja handbæra
veltufjáreign verður bankinn að hafa,
og það hefir alþingi líka skilið árin
1885 og 1889.
Um annað atriðið geta líka tæp-
lega orðið skiftar skoðanir.
Hversvegna á pjóðbanki að vera
að borga skatt til landssjóðs? Það
er öldungis eins og ef fiskveiðasjóð-
urinn eða ræktunarsjóðurinn væri
látinn borga skatt til landssjóðs, nema
hvað það væri þó ekki eins fjarstætt,
að þessir sjóðir gyldu landssjóði
skatt, vegna þess, að landssjóður
hefir lagt þeim til alt veltuféð. En
í þess stað leggur landssjóður peim
til árlegan fjárstyrk, sem eðlilegt er,
Um raílýsingn Reykjavíknr.
Þegar Reykjavíkurbær keypti Ell-
iðaárnar, var það aðallega gert með
það fyrir augum, að* tryggja bænum
hentugt afl til reksturs rafurmagns-
stöðva. Menn gengu þess ekki duld-
ir þá, hversu mikils virði hentugt
vatnsafl er, ekki sízt í landi, sem
hvorki á kolanámur né olíulindir.
Eftir að bærinn eignaðist árnar,
átti hann að sjálfsögðu þegar að
hefja rannsókn um, hversu mikið
vatn er í þeim bæði sumar og vetur.
Sömuleiðis að athuga hvernig ísinn
hagar sér í miklum frostum. Þetta
varð nú alt i undandrætti, enda álitu
menn víst ekki mikla hættu á því,
að aflið væri ekki nægilegt handa
bænum.
Þegar bæjarstjórn Reykjavíkur sam-
þykti (1908—1909) að reisa skyldi
rafurmagnsstöð, bar henni að láta
gera svona rannsókn, og láta semja
ítarlega kostnaðar-áætlun um stofn-
kostnað og starfrækslu rafmagns-
fiskveiðasjóðnum 6000 kr. á ári og
ræktunarsjóðnum alt andvirði seldra
þjóðjarða.
Um 3. tillögu mína, um að heim-
ila bankanum að hafa varasjóð sinn
:: veltu, í staðinn fyrir að hafa 20 °/0
af sparisjóðsupphæðinni í »tryggum
verðbréfum*, vil eg taka það frarn,
að til mun stjórnin hafa ætlast, að
iessi »tryggu verðbréf* séu jafnan
landbær, ef bankinn yrði fyrir að-
súg (Panik), að bankinn þá gæti
brugðið fyrir sig bréfunum, til þess
að fá skyndilán út á þau.
En hér hagar svo til, að ef um
aðsúg væri að ræða, sem getur aldrei
orðið stórfeldur, eins og hér hagar
til, mundi hver stofnun alveg eins
ána Landsbankanum bráðabirgða-
án út á aðrar eignir hans, víxla,
skuldabréf og annað, ej á lægi og
íún hefði fé. Eins er það, að síðan
ritsíminn kom, getur Landsbankinn
undirbúið að fá sér senda á hverjum
degi þá peningaupphæð, er hann
jarfnast, með símaávísun á íslands-
banka, sem lengi getur útborgað,
vegna hins ríflega seðlaúlgáfuréttar,
sem hann hefir notið; enda mundi
sað fé, sem tekið yrði út úr Lands-
bankanum, jafnharðan safnast að
mestu í íslandsbanka.
llGerum ráð fyrir því, sem þó alls
ekki er ráð fyrir gerandi, að íslands-
banki neitaði að borga út slíkar síma-
ávísanir, til þess að styðja að vand-
ræðunum af uppþotinu, þá væri
Landsbankinn ekkert betur staddur
)ótt hann hefði þessi »tryggu verð-
jréf« til þess að veifa framan í ís-
andsbanka.
Af þessum rökum vona eg að
menn sjái, að engin ástæða er til
fyrir Landsbankann að hafa meira í
verðbréfum en ríflega það, sem
bankastjórnin álítur nauðsynlegt að
hafa til tryggingar erlendu lánstrausti.
Eg kem þá að 4. atriðinu, 2 milj.
kr. veltufjáraukning, sem landið taki
að láni og leggi bankanum.
Áður en eg geri nánari grein fyrir
pví atriði, verð eg að skýra frá hvaða
fé það er, sem Landsbankinn hefir
nú að starfa með.
Það er þá fyrst sparisjóðsfé, ná-
lægt 2l/z milj. og lánið sem eg áður
gat um, 2 milj., er bankanum var
útborgað 1909/1911. Hlaupareikn-
ingsfé tel eg ekki til veltufjár, svo
óstöðugt er það. Um sparisjóðsféð
er það að segja, að það er mjög
stöðvar, sem rekin væri með afli
Elliðaánna. Til samanburðar mátti
þá áætla dieselvélastöð eða gufuafls-
stöð. Mér er 'nú ekki kunnugt um
að nein rannsókn væri gerð við
árnar í þessa átt, en bæjarstjórnin
mun hafa gengið alveg fram hjá
þeim, ekki álitið þær geta komið til
greina. Bæjarstjórnin, eða meiri
hluti hennar, var um þessar mundir
að verða trúaður á gasið, það átti nú
að veita öll þau þægindi, sem raf-
magnið veitir, en verða miklu ódýr-
ara, og eg held hollara líka. Bær-
inn átti að græða á því þúsundir á
fyrsta ári, en rafmagnsstöð gat með
engu móti borið sig, eftir þeirra
dómi, og sízt, ef vatnsafl Elliðaánna
væri notað (samanber grein Krabbe
í ísafold 1908)1 Þrátt fyrir það að
bæjarstjórnin vissi vel, að borgarar
bæjarins eindregið óskuðu, að raf-
magnsstöð væri reist, samþykti bæj-
arstjórnin gasstöðina, og skar ekki
við fingur sér fjárhæðina til hennar
(nálega 400 þús. kr.).
Rafmagnsstöðin hvarf þá úr sög-