Ísafold - 19.03.1913, Síða 1
'H i'iiiiiiMiniiiniiiniiiiiiiimirniiiiiiiinmiiiiinii
| Kemur út tvisvar |
[ í viku. Verðárg. |
| 4 kr., erlendis 5 kr. |
| eða 1 Jdollar; borg- |
1 istfyrirmiðjanjúií f
[ erlendis fyrirfram. I
| Lausasala 5 a. eint. 1
iiiiiimiimiiniiiaiininiiiuii«Mimniiiumif«ii |
Uppsögn (skrifl.)
bundin við áramót,
er ógild nema kom-
in só til útgefanda
fyrir 1. oktbr. og
só kaupandi skuld-
laus við blaðið.
I iniiiiiiiiiimiimiimiiiiimiiiliniiiiiiliiiiirtiilii I
XXXX. árg.
Reykjavik, miðvikudaginn 19. marz 1913.
22. tölublað
Georg Grikkjakonungur myrtur.
L&aÉS®.______
Khöfn 18. marz '13, að kveldi.
Georg Grikkjakonungfur
var myrtur í Saloniki í dag
seinni partinn.
Georg konungur var svo sem kunn-
ugt er sonur Kristjáns 9. Danakonungs
og bróðir Friðriks 8., þriðji elztur þeirra
systkina (f. 24. des. 1845). Varð kon-
ungur Grikkja 1863, valinn í þann
sess af þjóðfundi Grikkja 30. marz 1863,
og hefði því átt 50 ára ríkisstjórnar-
afmæli um aðra helgi, ef lifað hefði.
— Georg var að mörgu merkur þjóð-
Georq Grikkjakonmgur höfðingi og mun nánara af honum
(myrtur 18. marz 1913). sagt síðar.
Konstantín heitir elzti sonur Georgs konungs, sá er nú tekur við
ríkjum eftir föður sinn, og er maður á fimtugsaldri (f. 1868). Hann er
kvæntur Sofíu systur Vilhjálms Þýzkalandskeisara.
I. O. O F. 943149.
Leikfél. Reykjavíkur:
Æfintýri á gftnguffir
eftir
C. Hostrup
íeihið 2. páshadag hí. Sllu
Aðgöngumiða má panta í Bókverzl-
un ísafoldar í dag og laugardag nk.
Nýja Bi6
sýnir afbragðsmijnd
2. páshadag.
En í hvöíd Tiíanic-síiísið
0. fí. í síðasía sinn.
Pantið bílæti í talsíma 344. Op-
inn hálf tíma á undan sýningum.
Gleði-tíðindi.
í vetur, er hið tnýja uppkasti var
á sinni stuttu leið til grafarinnar,
benti í s a f o 1 d á, að bezt mundi
nú að leggja satnbandsmálið á hilluna,
en snúa sér af alvöru og eindrægni
að innanlandsmálum, og þá fyrst og
fremst jjármálum og samgöngumál-
um.
Lika hugsun munu æði margir
góðir menn í landi voru hafa alið í
brjósti þá. Fyrsti bjarti fram-
kvæmda-vorgróður þeirrar hugsunar
virðist oss gleði-tíðindi þau, er ísa-
f o 1 d hefir að flytja%sendum sínum
nú:
Askorun pá um stoýnun íslenzks
eimskipaýélags, er ýjólmargir mcetir og
mikilsmegandi menn haýa ýyrir beitt
sér og nú kemur ýyrir almemnings
sjónir.
Þörf gerist engin að rekja hér ítar-
lega rökin að nauðsyn þessa félags-
skapar fyrir land vort og þjóð. Það
er rækilega gert í áskoruninni sjálfri.
Nauðsynina sér hver maður íslenzk-
ur, er nokkuð hugsar um þetta mál.
Hinu er meiri hætta á, að þótt
menn sjái, að hér er um að tefla
mikla og máttuga lyftistöng framtíð-
ar landsins og þjóðarinnar, til þroska
og sjálfstæðis, — láti þeir gamla
þjóðlöstinn, — gamla þrándinn í
götu vorri, — tómhetið íslenzka sitja
í fyrirrúmi huga síns og lama sjálf-
sagðar lífsskilyrða-framkvæmdir.
En petta sinni verðum vér að
varpa tómlætinu, varpa áhugaleysinu,
varpa afskiftaleysinu fyrir ætternis-
stapa, svo að eigi þurfi skáldið að
spyrja í pessumáli: eða viljum vér
ei neitt? — heldur heyrist þúsund-
raddað hróp landshornanna milli:
’-Allir eitt — til að hrinda þessu
stórmikla þjóðþrifa — og sjálýstœðis-
máli — í horf.
Vér ætlum nú að eignast skipl
Gera má ráð fyrir, að nú sem
ella íísi upp meðal vor trúarlitlir
menn, barlómsprédikarar, er reyni
að telja kjarkinn úr oss, reyni að
draga úr framkvæmdunum. Vér sé-
um eigi færir um að eiga sjálfir
skip, sjá sjálfir um samgöngur vorar.
Það er sami sónninn og nú kveð-
ur við i einstaka dönskum blöðum,
sem fengið hafa fregnir um þessa
fyrirhuguðu félagsstofnun. Þau taka
það fram, að þingið hafi mörgum
sinnum ætlað að gera alvöru úr því
að taka samgöngurnar, en tslending-
ar aldrei reynst pví vaxnir.
Það lítur svo út sem þessi »vin-
samleguc blöð þar suður við Eyrar
sund huggi sig við, að ekkert verði
úr þessu.
En gaman væri að sýna það nú
í verki, að huggunarvon danskra
blaða í þessu efni, sé tálvon.
Spyrjum að leikslokum!
En ef þau eiga að verða að ósk-
um, verður vel að vinna að því að
bæla niður’ »barlómsprestana«. Þeir
eru ýalsspámenn. Og gætið yðar fyrir
falsspámönnum I ■' ' - i :. ýý- ' ’\r7P
Vér verðum að trúa á, að þetta
fyrirtæki blessist. Vér verðum að
treysta sjálfum oss til þess að láta
það dafna.
Trúin á það og traustið á því, er
trúin á landið, trúia á mátt vorn
sjálfra, trúin á framtið vora!
Án hennar megum vér eigi vera,
ef eitthvað á að komast í framkvæmd,
sem nokkuð sópar að.
Nafn Jóns Sigurðssonar höfum vér
á vörunum í tíma og — ótíma stuud-
um: Vér sverjum við hugsjónir hans
og viljum fyrir þeim berjast, vér vilj-
um halda í það horfið, sem hann
benti til.
En hvað mundi frekara í anda
hans en ýramkvæmd sú á sjálýstæðis-
hugsjónum vorum, sem felst í stofn-
un félagsskapar þess, sem hér er á
döfinni?
Og hvað mundi síður í anda hans,
en að tala margt um þetta — og
láta svo ekkert úr ýramkvæmdum verðal
Er óhætt að treysta tölum þeim,
sem í hlutar-útboðinu standa? Er
óhætt að treysta útreikningi forgangs-
mannanna?
Svo spyrja ef til vill sumir.
Vér hyggjum, að því megi óhikað
svara játandi.
Svo marga hreinsunarelda hefir
málið gengið gegnum frá því, að
tekið var að undirbúa það í desbr.
síðastliðnum.
Og þess má og geta, að á fundi,
sem haldinn var fyrir skömmu af
forgöngumönnum Tyrirtækisins með
þingmönnum, blaðamönnum o. fl.,
voru allir reikningar rækilega gagn-
rýndir og prófaðir með ótal fyrir-
spurnum.
Þeitn fyrirspurnum svöruðu for-
göngumennirnir svo skilmerkilega og
ábyggilega, að ástæðulaust virðist
með öllu, að tortryggja tölur þeirra.
38/, 000 kr.
Það er fúlgan, sem safna þarf í
hlutum, til þess að koma fyrirtæk-
inu fram, svo vel sem vera þyrfti.
Það er mikið fé fyrir eigi f)öl-
mennari eða efnaðri þjóð.
Fjórar krónur hér um bil á nef,
25—30 kr. á hvert heimili.
En engin hætta er á því, að eigi
takist að safna þessu fé, ef viljinn
er öflugur og nógu almennur.
Og ef hann verður það eigi —
þá er það af því, að þjóðin þekkir
ekki sinn vitjunartíma. En þá má
hún lika vara sig á exinni!
Til kaupmannastéttarinnar íslenzku
mun nú litið af alþjóð með eftir-
væntingu. A henni veltur svo afar-
mikið í þessu máli, á atfylgi henn-
ar, áhuga hennar, þjóðrækni hennar.
Undir því kemur auðvitað mest,
hvort félagsskapur þessi dafnar vel.
Undirtektir kaupmanna hér í bæ
hafa reynst mjög góðar alment, svo
sem nöfnin undir áskoruninni ber
með sér.
Of marga vantar samt enn í hóp-
inn, og það eigi hvað sízt »stóru
spámennina« suma. En vitanlega
láta þeir eigi á sér standa, þegar til
kemur — heldur sýna nú í verkinu,
að brigzlin um óþjóðrækni, sem
stundum hafa þeir bornir verið, sé
óréttmæt og staðlaus.
Gæfu og gengis óskum vér þess-
um fyrirhugaða félagsskap.
Draupnis-eðlið á hann að eignast!
Svo mælir um og leggur á hver
einasti góður íslendingur.
En til þess að það verði dugir
eigi annað en láta hendur standa
fram úr ermum — um land alt —
hvort heldur er í »borg eðahreysi«.
í þessu máli eigum vér að vera
og verðum líka: Allir eittl
Erl. simfregnir.
Khöfn 18. marz 1913.
Frá styrjöldinni.
Engar úrslita-orustur. Skeyti ýara
sífelt milli stjórnanna í Norðurálýu
um miðlun aý hálýu stórveldanna.
Sundurpykki ýer vaxandi milli Balkan-
bandapjóðanna.
Sýning Ásgríms
hefst á morgun.
Einu sinni á ári gefst mönnum
tækifæri til að sjá málverk Asgríms
saman komin á einn stað, þar sem
þau njóta sín bærilega.
Að þessu sinni opnar hann mál-
verkasýningu á morgun og heldur
henni opinni 10—14 daga.
Mörg eru þar ný málverk, sem
hann hefir málað í sumar og eins
eldri málverk, er aldrei hafa sýnd
verið áður.
Gullfallegar landslagsmyndir úr
Hornafirði, Borgarfirði og Arnarfirði,
persónumyndir m. a. alveg nýmáluð
mynd af Birni Jónssyni.
Núna um hátíðirnar ættu Reyk-
víkingár að beina göngu sinní í
Vinaminni. Þess mun engan iðra.
Ýms erlend tíðindi
frá útlöndum og greinar verða að
bíða vegna þrengsla.
Á næstunni birtast í kroníku ísa-
foldar ýmsar greinar m. a. um kven-
réttinda- og verkmannahreyfinguna á
Bretlandi eftir tvo Englendinga í
Lundúnum, er lofað haía að senda
ísafold pistla við og við.
Grein um Rousseau, frakkneska
heimspekinginn, eftir nemanda einn
í kennaraskólanum, Guðm. R. Ólafs-
son, kemur og bráðlega í blaðinu.
Eimskipafélag
íslands.
Forgöngumean að stofnun innlends
eimskipafélags hafa sent út hluta-
útboðskjal, sem hér fer á eftir í út-
drætti:
Islendingar !
»Navigare necesse« (siglingar eru
nauðsyn).
Orð þessi eiga máske frekar við um
oss'íslendinga en um nokkra aðra þjóð
Norðurálfunnar. Oss eru siglingar
fremur öðru nauðsyn vegna þess að vór
byggjum eyland, sem eigi liggja að
aðra leiðir en sjórinn. Okkar sam-
göngumál eru því og verða fyrst og
fremst skipamál. I mörgum öðrum
Norðurálfulöndum fara aðflutningar að
landinu og flutningar frá því að miklu
leyti fram á járnbrautum. Vór verðum
að nota skipin aðallega. Og því meira
sem landinu fer fram, atvinnuvegum
þess, framleiðslu, menningu o. s. frv.,
því meiri verður þörfin á áreiðanleg-
um, reglulegum og góðum skipaferð-
um.
Þótt mörgum hætti við að hafa eigi
svo glögt auga, sem skyldi, fyrir því
hvert lífsskllyrði er þjóðfélögum í
heild sinni, að samgöngurnar séu góð-
ar, höfum vér Islendingar þó lengi haft
vakandi auga fyrir því, að oss væri
nauðsynlegt að fórna talverðu af vor-
um litlu efnum fyrir samgöngumálin.
(Hór fer eftir yfirlit yfir hvað gerst
hefir að því er skipagöngurnar snertir
síðan árið 1875).
Ef vór lítum á þetta stutta yfirlit
yfir samgöngumálasögu vora síðan 1875,
þá sjáum vér, að vór höfum haft þær
nær altaf í höndum erlends (dansks)
fólags. Vór sjáum ennfremur, að
óánægja heftir stöðugt verið með sam-
göngurnar,
Ef litið er á hvað óánægjunni veld-
ur, þá er þetta helzt:
1. Ferðirnar óheppilegar. a) F æ r-
eyjaferðir. Þrátt fyrir marg ít-
rekaðar óskir fæst ekki, að hætt. só við-
komum í Færeyjum. Þetta lengir ferð-
irnar. Vér höfum hinsvegar engin eða
nær engin viðskifti við Færeyjar og
þurfum því eigi á viðkomum þar að
halda. b) Viðkoma í öðrum
löndum en Danmörku. Fyrst
í stað (fyrir 1874) gekk illa að fá við-
komur í Bretlandi. Síðan fengust þær,
en óhagkvæmar fyrst í stað (sumpart í
Leirvík á Hjaltlandi!). Fargjaldi og
flutningsgjaldi haldið óeðlilega háu í
samanburði við flutningsgjaldið frá
Kaupmannahöfn. Og nú þetta ár gert
enn betur: gjaldið frá Bretlandi hækk-
að úr því sem áður var. 1909 neitaði
Samein. félagið að gera samning um
viðkomur í Hamborg. Nú neitar það
enn. Þvertekur fyrir að láta skipin
koma við í Þýzkalandi og hækka því
um leið flutningsgjöld á vörum, sem
þaðan koma (yfir Kaupmannahöfn) um
25%.
2. Áhöfn skipanna útlend. Yfir-
menn og hásetar skilja eigi mál vort,
en af því leiðir örðugleika og misskiln-
ing. Þessu fæst eigi bseytt.
3. Félagið á varnarþing í öðru
landi, og því örðugt að ná rótti sín-
um, oft nær ógjörningur.
4. Ferðunum stjórnað frá Kaup-
mannahöfn, frá fjarlægu landi, af
mönnum, sem ókunuir eru íslenzkum
staðháttum og fslenzku viðskiftalífi og
eiga þvf erfitt með að fullnægja við-
skiftakröfum vorum. — Og fleira mætti
telja.
Af þessum ástæðum fer því fjarri
að þetta lífsskilyrði viðskiftalífsins á
landi voru, skipaferðirnar, séu í því
horfi, sem þær ættu að vera og gætu
verið.
Vér erum eindregið þeirrar skoðun-
ar, að fyr komist þetta eigi í lag, en
skipaferðirnar séu kornnar í hend-
ur íslendinga sjálfra, orðnar innlend-
ar að öllu leyti. Þá ráðum vór sjálf-
ir hvert skip vor sigla. Þá látum vér
þau sigla til þeirra landa, sem bjóða
oss bezt kjör á hverri vörutegund og
gefa oss bezt fyrir afurðir vorar, og
ekki annað. Þá skipum vór skipin ís-
lendingum, sem tala vora eigin tungu.
Þá eigum vór hægt með að ná rótti
vorum, ef traðkað er, fyrir innlend-
um dómstólum. Þá verður ferðunum
stjórnað af innlendum mönnum, sem
þekkja landshagi og þarfir viðskiftalífs
vors. Þá höfum vór fengið tryggingu
gegn óeðlilegri hækkun flutningsgjalda
og fargjalda vegna vöntunar á sam-
kepni, þá, og fyr ekki — og þar
með stigið stórt og mjög þarflegt
spor í áttina til efnalegs sjálfstæðis.
Síðan á síðasta sumri og oft áður
hafa margir af oss hugsað talsvert um
það mál, hvort eigi væri tiltækilegt að
stofna hér innlent gnfuskipafélag.
Vór höfum aflað oss ýmsra upplýsinga
sem nauðsynlegar eru í máli þessu,
rætt það ítarlega vor á milli, og er-
um nú komnir að þeirri niðurstöðu, að
gera tilraun til þess að koma á fót
slíku fyrirtæki.
Að ráðast í fyrirtækið svo stórt, að
vór getum nú þegar tekið að oss
allar samgöngur við útlönd, það kem-
ur eigi til mála. Til þess brestur okk-
ur efni, reynslu o. fl. Strandferðirnar
treystum vór oss heldur eigi til að taka
í byrjun.
Vór höfum því ákveðið að reyna að
stofna fólag með tveim nýbygðum skip-
um. Annað stærra og hraðskreiðara,
en hitt með líkri stærð og gerð og
með að minsta kosti eins miklum hraða
og beztu skipin, er nú ganga hór við
land (Botnía og Sterling). Bæði hafi
þau kælirúm, og annað farþegarúm