Ísafold - 26.03.1913, Blaðsíða 1
Kemur út tvisvar
í viku. Verð árg.
4 kr., erlendis 5 kr.
eða 1£ dollar; borg-
ist fyrir miðjan júli
erleníis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint.
AFOLD
Uppsögn (skrifl.)
bundin við áramót,
erógild nemakom
in só til útgefanda
fyrir 1. oktbr. og
sé kaupandi skuld-
laus við blaðið.
ísafoldarprentsmiðja.
Ritstjóri: Ólafur Björnsson.
Talsími 48.
XXXX. árg.
Reykjavík, miðvikudaginn 26. marz 1913.
23. tölublað
I. O. O F. 943289.
Alþýðufél.bökasafn Templaraa. 8 kl. 7—9.
Angnlœkninff ókeypia i Lækjarg. 2 mvd. 3—3
Borgarstjóraskrifatofan opin virka daga 10—3
Bæjarfógetaskrifstofan opirx v. d. 10—9 og 4—7
Bæjargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12—8 og 5—7
Byrna- nef- halalækn. ók. Pósth.str.UAfid. 2—3
íslandabanki opinn 10—2>/« og ð'/i—7.
K.F.U.M. Lestrar- og skrifstofa 8 ard.—10 siod.
Alm. f'undir fid. og sd. 8>/i aiod.
Landakotskirkja. Guosþj. 9 og 6 á helgum.
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn ll-2>/t, 5«/«—6'/«. Bankastj. 12-2
Landsbókasafn 12—3 og 6—8. Útlan 1—8.
Landsbúnaoarfélagsskrifstofan opin frá 12—2
Landsféhiroir 10—2 og 5—6.
Landsskjalasafnid hvern virkan dag kl. 12—2
Landssiminn opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
Lækning ókeypis Þingh.str. 28 þd. ogfsd. 12—1
Náttúrugripasafnið opio l'/í—2>/i á sunnud.
Samábyrgo Islands 10—12 og 4—6.
Stjórnarráosskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjaviknr Pósth.8 opinn daglangt
(8—10) virka daga; helga daga 10—9.
Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14Bmd. 11—12
Viíilstaoahælio. Heimsóknartími 12—1
Þjóðmenjasafniö opio þrd., fimd. og sd. 12—2.
Veðrátta frá 23. til 26 marz.
Sd. Md. Þd. Mvd.
V.ey. - - 3,1 2,1 0,9 o,7
Rv. - - 4.3 0,0 0,2 — 0,5
íf. - -11,0 — 1,8 — 0,3 — i,3
Ak. - -n,5 — 6,0 o,3 — 1,0
Gr. - -14,0 — 7,5 — 2,3 — 2,5
Sf. - -11,6 — 7,7 2,2 — 0,8
Þh. - -iM 2,0 9,0 5,o
V.ey. = Vestmann eyjar. Rv. =
Reykjavík. ís . = ísafjörður. Ak. =
Akureyri. Gr. = Grímsstaðir. Sf.=
Seyðisfjörður. Þh. = Þórshöfn á Fære.
Ofna og eldavélar
selur
Kristján Þorgrímsson.
Leikfél. Reykjavíkur:
Æfintýri á gönguför
eftir
C. Hostrup
leikið í kvöld (miðvikud.)
og föstudag 28. marz kl. 8
Aðgöngumiða má panta í dag í Iðn-
aðarmannahúsinu og á morgun í
Bókverzlun Isafoldar.
Nýja Bíó
Leundardómurmuínunnar
(sjónleikur í 3 þáttum).
Trá ísíandi
(aukamynd).
Pantið bílæti í talsíma 344. Op-
inn hálf tíma á undan sýningum.
Minningarsjóður Björns
Jónssonar.
Forgöngumenn hans hafa beðið
ísafold geta þess, að minniögar-
gjöfum verði veitt viðtaka í ^bók-
verzlun og skrifstofu ísafoldar, papp-
írsverzluninni Björn Kristjánsson og
i verzlun Jóns frá Vaðnesi, á Lauga-
veg.
Undirtektirnar.
.——%——.
Það er óhætt að segja, að fáum
tíðindum hefir verið tekið af meiri
fögnuði í hugum manna alment en
eimskipafélagsfyrirtækinu, sem frá
var skýrt í síðasta blaði.
Öll blöðin, sem á það hafa minst,
hafa lagt eindregið með því — al-
gerlega án flokksgreinarálits. Það
lítur út fyrir, að eimskipafélagshug-
myndin ætli að láta orð skáldsins á
sannast, að »hvernig sem stríðið pá
og ,pá er blandið* þá er þó eitt
»brœðrabandið* og það er »að elska,
byggja og treysta á landið«.
Og hver er það, sem metið fær
til fulls nú, hvílíkt framsóknarmark
er á því fyrir þjóð vora, — hve mjög
við hljótum að vaxa í augum sjálfra
vor, ef vér þetta sinni getum sam-
einað krafta allrar þjóðarinnar, hvað
sem öðrum deilumálum líður, ef vér
getum losað oss úr smámenskuhjúp
persónulegfa væringa, öfundsýki og
annara vondra þjóðarfylgja — til
þess að hrinda þessu mikilsverða
velferðarfyrirtæki í framkvæmd!
Ef það tekst, þá er það áreiðan-
lega vottur um, að vér séum á bata-
vegi eftir barnasjúkdóma þá, er því
miður hafa helzti um of við loðað
hið unga innlenda stjórnarfyrirkomu-
lag vort — og lýst sér í flokkahat-
urs- og flokkahagsmuna-feni, sem alt
of mörg góð máÍ vor hafa druknað í.
Það sem nú er að gerast með
þjóð vorri, með stofnun þessa eim-
skipafélags — munu niðjar vorir
telja eigi lítið Grettistak til þess að
gera oss sjálfstæða þjóð í beztn
merkingu og þeir munu kunna kyn-
slóðinni þessarri miklar þakkir, ef
henni tekst að koma þessu mikils-
verða fyrirtæki myndarlega á stað.
En lítill ljómi mun verða um nöfn
þeirra manna, ef nokkurir verða
meðal Zawismanna, er reyna að spilla
því og leggja stein í götu þess.
Slíkur þjóðarmetnaður ætti í þetta
mál aðkomast, að landsmenn ynduþví
alls eigi, ef einhverir vor á meðal
gerðust þeir þjóðræknislausu vargar
í véum að ljá sig til þess að verða
þrándar í götu þessa fyrittækis, svo
að eigi gæti úr því orðið — fyrir,
ef til vill, stuttrar stundar hagnað
hjá keppinautum, er alt vilja til þess
vinna að kyrkja það í fæðingunni.
Hlutafjárútboðið hefir nú verið
sent út um land alt með póstum og
maður fenginn í hverjum hreppi til
þess að safna hlutum. Ríður nú á
því, að hver einstaklingur setji það
eigi fyrir sig, þótt forgöngumaður-
inn á hverjum stað sé eigi af sama
stjórnmálasauðahúsi og hann sjálfur,
að sjálfstæðismaðurinn í N-sveit láti
það eigi hafa áhrif á sig, þótt heima-
stjórnarmanni þar í sveitinni hafi
falin verið forgangan, né heldur
heimstjórnarmaðurinn í B-sveit láti
fæla sig frá hluttöku þótt sjálfstæðis-
maður sjái um hlutasöfnun.
Af forgöngumannanna hálfu hefir
eindregin áherzla verið á það lögð
að útiloka allar flokka- og stjórn-
mála-deilur í þessu máli. Gallharðir
sjálfstæðis- og heimastjórnar-menn
hafa tekið höndum saman um for-
gönguna og eins verða allir án flokks
greinarálits út um bæi og sveitir að
taka höndum saman um hluttökuna.
Isaýold hefir heyrt utan að sér, að
einhverir hafi skilið inngangsorð
hennar í síðasta blaði svo, sem hún
vildi eigna forgöngumönnum þessa
fyrirtækis sina skoðun á sambands-
málinu. En það er mikill misskiln-
ingur, því að oss er kunnugt um,
að ýmsir af aðalforkólfum þess eru
þar á alt annari skoðun en vér.
Rússneska keisaraættin 300 ára.
Hér í Reykjavik er þegar tekið að
safna hlutum. A örstuttum tíma í
gær var safnað hátt á annan tug
þúsunda króna (um 17000). Þaðer
góð byrjun — en að eins byrjun, sem
verður að eiga sér jafngott framhald,
ef nokkuð á úr framkvæmdum að
verða.
Reykvíkingar ættu nii að ganga
undan öðrum landsmönnum með
góðu eftirdæmi.
Enginn, sem nokkuB getur, má
draga sig í hlé.
En fyrst og fremst nær þó þessi
áskorun til kaupmanna. Þeim, er
kunnugt um þörfina, peim má ætla
mesta getuna, á peim stendur máhð
og fellur.
Það ætti eigi að vanta nafn eins
einasta þeirra meðal hluta-áskrifenda.
Einum þingmanna, sem talaði á
fundi sem haldinn var um daginn
um þetta mál, varð það að orði, að
þeir þingmenn, sem eigi greiddu
atkvæði með stvrk þeim, sem gert
er ráð fyrir að fara fram á úr lands-
sjóði — peir vœru ekki lslendingar!
Mundi eigi mega segja líkt um þá
kaupmenn, sem skærust úr leik um
hluttöku í félaginu?
Vér ætlum lesendum vorum að
svara þvíl
Þ. 6. maiz var um alt Rússavcldi haldið hátíðlegt 300 ára afmæli
Romanof-keisaraættarinnar á veldisstóli Rússlands.
Ættfaðir hennar hét Michail Feodorovitch Romanoý og var kjörinn
i>* 'j *ws$t&ft$$%tl8$
keisari 1611. Árin á undan hafði stjórnleysi ríkt í landinu Og hörm-
ungar ýmsar heimsótt það. Aður réð tíkjum norræn konungsætt,
Hræreks-ættin, en varð aldauða 1598.
Með Romanof-ættinni hefst nýtt timabil í sögu Rússa. Margir dug-
andi stjómarar hafa verið af þeirri ætt, en þeirra merkastur Pétur mikli
Og hqnum næst Katrín önuur.
Á myndinni er efstur Pétur mikli, þá til vinstri Katrin II, en til
hægri ættfaðirinn Michail. Neðst eru keisarahjónin núverandi, sitt hvoru
megin við uppstigningar-kirkjuna í Moskwa. Utan um eru vopnmerki
Rússlands, kórónur 0. s. frv.
Nýrþingflokkur.
Slæðingur er um það meðal stjórn-
málafólks, að bœndur á pingi muni
mynda nýjan flokk í sumar: bœnda-
flokk — til að vega upp móti hinu
fjölmenna embættisliði. Hinum
nýja flokki eru taldir þessir þing-
menn: Jón Jónatansson, Sigurður
Sigurðsson, Þorleifur í Hólum,
Stefán í Fagraskógi, Ólafur Briem,
Jósef Björnsson, Tryggvi og Þórar-
inn Húnvetningar.
Sagt er, að drögin til þessarar
flokksmyndunar hafi gerð verið í
þingiok í fyrra.
Hvað sem öðru liður, þá er eitt
víst, að f á i r verða þeír eigi flokk-
arnir á þingi í sumar, ef marka má
það sem bak við tjöldin heyrist.
Nýr konungkjörinn!
Fullyrt er, að Agúst Flygenring
kaupm. segi af sér þingmensku og
að því sé von nýs konungkjörins.
Hver mundi það hnossið hljóta?
Torsefaskiffitt [Batidaríkjutti.
Hinn nýi Bandaríkjaforseti Woodrow Wilson átti ágætum viðtökum
að fagna, er hann settist í forsetastólinn þ. 4. marz síðastliðinn.
Hann flutti þá skörulegt erindi um stefnuskrá sína. Þykii honum
kveða altof mjög að misskiftum kjörum manna þar í landi: Annars vegar
óhemju auður, en hins vegar nístandi, ömurleg örbirgð. Taldi hann
þetta stafa af fyrirkomulaginu, sem haft væri á námu og verksmiðjurekstri.
Að ráða bót á því meini taldi hann eitt af aðal-verkefnum hinnar nýju
stjórnar.
Wilson jorseti með fólki sínu.
WíIsod og fólk hans er mjög listelskt. Kona hans er listfenginn málari og
sö'muleiðis ein dætranna. Önnur er söngmær góð, og hin þriðja fæst við listnám
við listaháskólann i Filadelfiu.
Síðar í ræðu sinni lagði hann mikla áherzlu á að fá verndarlög fyrir
þá sem minniháttar eru i þjóðfélaginu og góða heilbrigðislöggjöf, eftirlit
með því sem fólk iegði sér til munns o. s. frv.
Yfirleitt kendi eigi svo lítið jafnaðarstefnuhugsana i ræðu forsetans.