Ísafold - 07.05.1913, Blaðsíða 1

Ísafold - 07.05.1913, Blaðsíða 1
■ Kemur út tvisvar í viku. Verð árg. 4 kr., erlendis 5 kr. eða l^dollar; borg- ist fyrir miðjan júll erlendis fyrirfram. Lausasala 5 a. eint. SAFOLD ísafoldarprentsmiðja. Ritstjópi: Ólafur Björnsson. Talsími 48. Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, er ógild nema kom- in só til útgefanda fyrir 1. oktbr. og só kaupandi skuld- laus við blaðið. XXXX. árg. Reykjavík, miðvikudaginn 7. maí 1913. 36. tölublað Kauphækkun þingmanna og síðasta þing. Eftir A. J. Johnson bankaritara. Það er þjóðkunnugt og mun lengi í minnum haft, hvað Björn heit. Jóns- son fv. ráðherra var orðhagur maður á íslenzka tungu. Eitt síðasta merki þessa mtin vera hið stutta en afarsmellna nafn, er hann valdi þinginu síðasta, aukaþinginu 1912. Hanu kallaði það »kauphækkunarþingið þunna«. Róttara nafn verður því ekki valið, því að ómerkilegra þing hefir aldrei verið háð, að minsta kosti ekki síðan alþingi var endurreist. Það drap stjórnarskrár- m á 1 i ðmálið sem það var kallað saman til að afgreiða, breytt eða óbreytt, og meiri hluti þingmanna rauf með því skýlaus og fyrirvaralaus loforð, er þeir gáfu kjósendum í kosningunum 1911. Eftir það liggur ekkert sem heitið getur nýtilegt, nema vörugjaldslögin, og tvær eða þrjár þingsályktunartil- lögur. Það drap, eyddi, eða stór- skemdi flest nýt mál, er fyrir lágu, svo sem t. d. frv. um lækkun ráðherraeftirlauna, frv. um eftirlit með þilskipum og vélabátum, frv. um kaup og útgerð tveggja strandferðabáta, (sem kaupa mátti með ágætum bórgunar- skilmálum), frv. um breyting á lögum um styrktarsjóði handa barnakennur- um, frv. um líftrygging sjómanna, frv. um breyting á bæjarstjórnarlögum Reykjavíkur, (að bæjarbúar fái að velja sjálfir borgarstjóra með eigin atkvæð- um; banamaður þess varð 2. þingm. Rvíkur, Jón Jónsson dósent). Enn fremur má nefna frv. sem stóðu í sam- bandi við stjórnarskrána o. fl. o. fl. Aftur á móti samþykti þingið t. d. lög um annan eins hógóma og það, að selja e g g eftir þ y n g d, eu ekki tölu, — að ógleymdri lotterí vitleys- unni, sem ráðherra þorði svo aldrei að bera fram við konung til staðfest- ingar! Minna má og á sum frv. sem s ý s 1 u- m e n n i r n i r báru fram, eins og t. d. frv. þeirra Guðlaugs og Jóhannesar um að velta s t j ó r n i n n i undanþágu frá bannlögunum, leyfa henui að flytja inn áfengi eftir vild. Þeir hafa lík- lega vonað að njóta góðs af lekanum þeim. Samkomulag og friður var ekki betii en það, að menn sem taldir eru til sama flokks, Iótu ekkert tækifæri ónotað til þess að hanga í hárinu hver á öðrum, enda fór ekki lítill tími þingsins í rifrildi milli þeirra. Vitni um þetta bera þingtíðindin, og þó ekki nærri eins glögt, og ef alt sem sagt var hefði verið hraðritað og fengið að standa óbreytt. H e i 1 u m d e g i var varið til að rífast og svala sér persónulega á audstæðing, undir*því yfirskyni, að það væri gert af umhyggju t'yrir hag landssjóðs! Aeg hér sér- staklega við fyrirspurnina um viðskifta- ráðunautinn, sem Valtýr flutti og ýmsir studdu, sem eru álíka ó f r e k i r til fjár úr landsjóði. Veiður nánar vikið að því síðar. Að þessu yfirveguðu, hygg eg að þeir verði margir, sem taka undir eftirfylgj- andi vísu, sem stórskáldið og vitring- urinn vestur við Klettafjöll, St. G. Stepbansson, hefir ort (ásamt fleirum) um þingið 1912. Hann segir: Hvergi myndi þvílíkt þing Þolað nema íslending: Góðra heita hjásetning, Helztu mála ónýting. Tekið skal það fram, að ekki eiga allir þingm. BÖk á því, hvernig þingið var, og hvernig það fór að ráði sínu. Til þess að vita v i s s u í því, vísa eg ‘) Að eins 5 menn vildu samþykkja stjórnarskr&na, þeir: Benedikt Sveinsson, Bjarni JónBSon frá Vogi, Björn Krisfjáns- son, Skúli Thoroddsen og Þorl. Jónsson. Þingmenn 1 | Sarakv. eldri lögunum Samkv. nýju lögunura Hækkun- in nemur kr !i p< bp a 0 C3 W M cð -S . j§-3 •f a -Ö GQ s <n 03 ÍIP a-s . |F p. bfl P 0 03 w S 10 «3 3 . 13 xo Samtals kr. 1. Ágúst Flygenring í Rdnarfirði 522 522 866 20 886 364 2. Benedikt Sveinsson i Rvik.... 510 510 680 680 170 3. Bjarni Jönsson frá Vogi i Rvik 510 510 680 680 170 4. Björn Jónsson fv, ráðh. i Rvik 510 510 680 680 170 5. Björn Kristjánsson í Rvik .... 610 510 680 680 170 6. Björn Þorláksson á Dvergasteini 14 594 120 714 962 110 1072 358 7. Eggert Pálsson á Breiðabolsstað 9 564 111 675 922 90 1012 337 8. E. Jónss. 1. þm. Rv. áGeldingal. 7 552 111 663 906 90 996 333 9. Einar Jónss. 2. þm. N.-M. á Hofi 11 576 172 748 938 190 1128 880 10. Eiriknr Briem i Rvik 510 510 680 680 170 11. GuðjónGuðlaugsson á Hölmavik 16 606 163 769 978 120 1098 329 12. (iuðl. Huðmundsson á Akureyri 12 582 108 690 946 80 1026 336 13. Haildór Steinsson i Ólafsvik . . 13 588 916o 67960 954 60 1014 33460 14. Hannes Hafstein i Reykjavik. . 510 510 680 680 170 15. Jens Pál88on í Görðum 2 522 522 866 20 886 364 16. Jóh. Jóhannesson á Seyðisfirði 37 732 470 1202 1146 110 1256 54 17. Jón Jónatanss. á Ásgautsstöðum 6 546 60 606 898 70 968 362 18. Jón Jónsson 2. þm. Rvk. i Rvík 2 522 522 696 696 174 19. Jón Jónsson frá Múla 11 576 125 701 938 180 1118 417 20. Jón Magnússon í Rvik 510 510 680 680 170 21. Jón Ólafsson i Rvik 2 522 522 696 696 174 22. Jósef Björnsson á Vatnsleysu . 17 612 231 843 986 120 1106 263 23. Július Havsteen i Rvik 2 522 522 696 696 174 24. Kristján Jónsson i Rvik 510 , , 510 680 680 170 25. Lárus H. Bjarnason Rvik 510 . , 510 680 680 170 26. Magnús Andrésson á Gilsbakka 16 606 77 683 978 50 1028 345 27. Matthías Olafsson 1 Hankadal. 19 624 8376 70 775 1002 60 1062 35426 28. Ólafur Briem á Álfgeirsvöllum 15 600 180 780 970 120 1090 310 29. Pétur Jónsson á Gautlöndnm.. 16 606 181 787 978 160 1138 351 30. Sigurður Eggerz i Vik 16 606 254 860 978 190 1168 308 31. Sigurður Sigurðsson i Rvik .. . . 510 , . 510 680 680 170 32. Sigurður Stefánsson i Vigur .. 15 600 82 682 970 80 1050 368 33. Skúli Thoroddsen 1 Rvik 510 510 680 680 170 34. St. Stefánss. 1. þm. Eyf. Fagrask. 18 618 215 833 994 130 1124 291 35. St. Stefánson 5. kgk.á Akureyri 13 588 111 699 954 80 1034 335 36. Steingrímur Jónsson á Húsavik 14 594 136 730 962 160 1122 392 37. Tryggvi Bjarnason i Kothvammi 11 576 176 752 938 120 1058 306 3Ö. Vaitýr Huðmundsson i Khöfn. 52 822 276 1098 1266 190 1456 358 39. Þórarinn Jónsson á Hjaltabakka 12 582 204 786 946 120 1066 280 40. Þorleifur Jónsson i Hólum.... 23 648 150 798 1034 340 1374 576 Hækkunfn nemur samtals kr. 11,197,75 á reglulegu þingi, þrátt fyrir hinn háa ferðakostnað er þingmenn tóku áður. til þingtíðindanna, sem ættu helzt að vera lesin og rækilega athuguð af hverjum einasta kjósanda í 1 a n d i n u. Þ á mundi »reyndum átu- meiuum^1) siður takast að sá sandi í augu kjósenda. Þ á mundi færri sýslu- menn og aðrir hálaunamenn og þeirra fylgifiskar skipa sæti á þingbekkjunum. En nú er eg kominn að efninu, sem eg ætlaði sórstaklega að ræða um. Kauphækkuninni, sem þing- menn gáfu sór, að þjóðinni al gjörlega fornspurði. Og í þessu sambandi skal þess getið, að á sama tíma sem þeir keyrðu þessa kauphækkun s í n a í gegnum þingið með hraða miklum, sýndu þeir (m. hl.) fádæma smásálarlegan naglaskap, þegar um það var að ræða, að bæta kjör tveggja allfjölmennra stótta í landinu, sem eru afarilla launaðar, sem só yfirsetukvenna og barnakennara: Þá óx þeim alt í augum. Hver þús- und krónu hækkun f þessu skyni þótti þeim ægileg, en sömu hetjunum velflestum, þótti ekki nema sjálfsagt að hækka laun landlæknis — sem hafði 4 þús. í laun — um fimta þúsundið. Og þó var það upplýst fyrir þinginu, að hann hefði að auki svo þúsundum króna skifti fyrir »praxis« hér í Reykjavík. En hann bar sig aumlega, og Bagði meðal annars, að laun sín (þessar 4 þús.) væru »ósamboðin þessu erfiða og vanda- sama embætti og fylsta þörf á ein- hverri uppbót«. (Sjá Alþt. 1912 B I, bls. 45). Og sjá: honum var veitt það sem hann beiddi um, líklega af því að hann v a r h á 1 a u n a m a ð u r. Frumvarpið um kauphækkun þ i n g m a n n a kom fram fyrst í efri deild, einmitt þeirri deildinni, sem e k k i á að hafa upptök að auknum útgjöldum, og voru feður þess og flutningsmenn þeir: Steingrímur Jónsson 4. kgk. þm., sýslumaður á Húsavfk, og Sigurður Stefánsson þm. ísa- fj.kaupstaðar, prestur í Vigur. I fyrstu var svo fyrirmælt f frv., að þingmenn búsettir u t a n Reykjavíkur skyldu hafa 9 kr. á dag í fæðispen- inga, en Reykjavfkur þingm. sama og áður, 6 kr.; auk þess átti að breyta ferðakostnaði, fastákveða hann. En við 2. umr. í e. d. stakk G u ð j ó a G u ð- 1 a u g s s o n þm. Strandamanna upp á því, »að stíga sporið til fulls og ákveða dagkaup þingmanna 10 kr«. Fóllust flutningsmenn fljótt á það. Þeir, Jósef Björnsson,Björn Þorláksson, Guðjón Guðlaugssop, Jón Jónatansson og Þórarinn Jónss., komu svo með breyting artillögu um það, að »alþingismenn skyldu hafa 8 kr. þóknun daglega, bæði fyrir þann tíma, sem þeir sitja á alþingi og fyrir þann tíma, sem fer til ferða að heiman til alþingis, og frá alþingi og heim aftur. Enn fremur skulu alþingismenn, sem búsettir eru utan Reykjavikur, frá 2 kr. aukaþókn- un daglega, meðan þeir dvelja á þing- staðnum«. (Alþt. 1912 A. bls. 386). Þessi tillaga var samþykt, og — er orðin að lögum. Þessi kauphækknn var sótt af miklu kappi, og mætti ekki mótspyrnu nema frá örfáum mönnum. í efri deild- i n n i var að eins e i n n maður, sem barðist á m ó t i heuni, og það vel og röggsamlega, Sigurður Eggerz þm. V.-Skaftafellssýslu. Allirhin- i r studdu hana með orðum og atkvæð- um. í neðri deild var það lfka eink- um e i n n maður, sem einarðlega, heill og óskiftur talaði á móti hækkuninni, og fordæmdi alla hækkun á þingkaupi nú og sfðar. Þessi maður er Bened. Sveins- s 0 n þm. Norður-Þingeyinga. En auk hans töluðu á móti þessu frv. að meira og minna leyti (en þó einkum að því leyti, að það næði fram að ganga á þessu þingi), þeir: Bj. Jónsson frá Vogi, Þorleifur Jónsson í Hólum, Sigurður ráðun. Sigurösson og Jón Ólafsson; eu hann (J. Ó.) seg- *) Úr kvæði St. G. St, Alt er kvæðið prentað i »Sunnanfara«. ist þó e k k i vera á »móti tilgangi frv.« En m e ð frv. töluðu: Hannes Haf- stein, Einar Jónsson 1. þm. Rangæ- inga, Matth. Ólafsson, Guðl. Guðmunds- son, Valtýr Guðmuncfsson og Pótur Jónsson. Og að lokum var frv. samþ. í n. d. án nafnakalls með 16 atkv. gegn 4, en 3 þm. hafa ekki greitt atkv., eða ekki Verið viðstaddir. Hvað nenrar hækknnin mikln ? Ofanskráð skýrsla skýrir frá þvf. En benda vil eg á það hveruig eg reikna, svo enginn misskilningur kom- ist að. Skýrslan er miðuð við r e g 1 u 1 e g t þ i n g. Þingsetudagar áætlaðir 85, eins og þeir voru 1911. En 1909 voru þeir 83. Óhugsandi er, að hægt verði í framtíðinni að komast af með styttri tíma, því altaf vaxa störfin. En svona reikna eg, tek t. d. nr. 6. I. samkv. eldri lögunum: 85 þingd. á 6/00 = kr. 510 14 ferðad. á 8/00 ... = — 84 Ferðakostn aður (1912) — 120 Samtals kr. 714 II. samkv. nýju lögunum: 85 þingd. á 10/00 = kr. 850 14 ferðad. á 8/00 — — 112 Ferðakostnaður (lögbundinn) — 110 Samtals kr. 1072 Mlsmunur 0: h æ k k u n verður 358 krónur eins og skýrslan sýnir, hjá þessum eina þingm. Ferðadagar og ferðakostn- a ð u r (samkvæmt eldri lögunum, í fyrra dálkinum) er miðað við það, sem þingmenn reiknuðu sór á s u m a r - þinginu 1912. Ferðakostnaður í síð- a r i dálkinum er sá, sem n ý j u 1 ö g- i n ákveða. Athugasennlir við skýrsluna. Ferðakostnaður Reykvíkinganna. Kynlegt þykir það sjálfsagt, að sjá það fremst í skýrslunni, að sumir Reykvíkingarnir reikna sór ferðadaga. Ferðadagar í venjulegri merkingu eru þetta vitanlega ekki. En þessir menn voru skifarar neðrl deildar (tveir), og forseti efri deildar (einn) og vegna þeBS taka þeir tveggja daga kaup fram yfir aðra. Fróðlegt væri að vita, við hvað þetta styðst, því aðal verk skrif- aranna er samkv. 13 gr. þingskapanna, að halda »gjörðabók«, og skal sú gjörða- bók lesin upp í byrjun hvers fundar, frá síðasta fundi. Enga gjörðabók geta þeir haldið f y r en þingsetningar- daginn, og þingstörf þingslitadaginn eru sjaldnast svo mikil, að það geti verið tveggja daga verk, að,rita gjörða- bókina frá þeim fundi. Um forsetana er það að segja, að þeir fá sórstakt fó fyrir ritstjórn þingtíðindanna, umsjón með þinghúsinu, skjölum þingsins o. s. frv. Þetta tveggja daga kaup dreg- ur engan mikið, en hór virðist samt vera að ræða um eitt dæmi óágengn- innar við landssjóð. Jóliannes og Valtýr. Sennilega væri það hægt, fyrir kunnuga menn, að athuga ýmsa fetða- kostnaðarreikningana, en sórstaklega eftirtektarverðir eru reikningar þeirra Jóhannesar sýslumanns á Seyðis- firði, og Valtýrs í Khöfn. Jó- hannes reiknar sór 37 ferðadaga og i ferðakostnað 470 krónur, auk 6 kr. á dag í fæðispeninga allan þenn- an tíma. Ferðakostnaður hans verður því í raun og veru 692 krónur. Til samanburðar má geta þess, að síra Björn á Dvergasteini, sem á heima á s a m a stað, — hann á þó lítið eitt 1 e n g r a heim til sín — reiknar sór ekki nema 14 ferðadaga, og 120 kr. í ferðakostnað. Munurinn á ferða- kostnaði þessara tveggja manna er því 4 8 8 kr., eða með öðrum orðum, Jó- hannes tekur mikið meira en þ r e - f a 11 á við Björn. Sr. Björn fór sjóleið. eins og vera bar, en Jóhannes fór 1 a n d v e g í kring um hálft landið eða meira, til að s k e m t a sór að sumra manna á- gizkun, — á landsins kostnað. Víst er það, að það g a t e k k i verið í þágu þingsins. En þrátt fyrir þennan gífurlega ferðakostnað, sem er svo hneykslanleg- ur, að ekki tekur tali, h æ k k a r hann samt eftir kauphækkunar- lögunum um 54 kr. V a 11 ý r reiknar 5 2 ferðadaga til og frá Khöfn — sem er 14—16 daga ferð — báðar leiðir — og 276 kr. f ferðakostnað, auk fæðispeninga 6 kr. f 52 daga = 312 kr. Hans eiginlegi ferðakostnaður verður )ví 588 kr. um há-sumarið J). Varla hefir þó ferðin hóðan til Eng- lands kostað stórfó, því sagt er, að hann hafi farið þá leið með botnvörp- ungi, og þeir taka venjulega einar 1 8 k r. fyrir fæði milli þessara landa en e k k e r t fyrir farið. Og þ e 11 a er maðurinn sem gerði hæztan hvellinn út af ferðakostnaðar- reikningum Bjarna frá Vogi, og lót bngið eyða h e i 1 u m degi — sem kostar um eða yfir 700 kr. — til að rífast um þá og starf hans. Brígslar hann Bjarna um, að »hann sýni lands- sjóði dæmalausa ágengni í reikningum sínum«, að »hann só mjög frekur til fjárins og óhlífinn við landssjóðinn« o. s. frv. Þetta studdu svo ýmsir, með atkvæði sínu ef ekki á annan hátt, sem reynsl- an hefir sýnt, að eru álíka ófrekir til fjár úr landssjóði og Valtýr, og einn meðal þeirra var — Jóhannes sýslumaður! Enginn skilji þetta svo, sem eg álíti )að í sjálfu sór óþarft verk, að athuga reikninga viðskiftaráðunautsins. Það æ 11 i einmitt að athuga ferða- reikninga allra embættismanna sem bezt, eins og t. d. landritara, biskups, landlæknis o. fl., því orð hefir leikið á því, að þeir væru ekki altaf sem sanngjarnastir í garð landssjóðs. En það er blátt áfram hneyksli, að maður, sem er jafn »frekur til fjárins og ó- hlífinn við landssjóðinn« eins og V a 1- t ý r virðist vera (sbr. ferðareikning hans), Bkuli fara að vanda um við aðra í þessum sökum. Og hver t r ú i r því, að Valtýr hafi farið að gagnrýna reikninga Bjarna af umhyggju fyrir landssjóði ? Hækkunin getnr orðið mikln meiri, Eins og skýrlan sýnir, nemur hækk- unin, eins og þingið er n ú skipað, yfir ellefu þúsund krónum, en ef færri Reykvíkingar sætu á þingi, yrði hækkunin m i k 1 u m e i r i. Af þingmönnum er sátu síðasta þing, áttu 16 heima 1 Reykjavík og í grend við hana, og margir af þeim voru þingmenn fyrir fjarlæg kjördæmi, eins og t. d. Norður-Þingeyjars., Norður- Isafj.sýslu, Suður-Múlas., Dalas., Barða- str.s., Eyjafjarðars., o. s. frv. Ef megin þorri þingmanna væri bú- settur í kjördæmunum, mundi vera óhætt að bæta nokkrum þúsundum við þessar framangreindu. Var nokkur þörf á hækkuninni? Nei, og aftur nei. Þingmenn eiga alls ekki að fá 1 a u n fyrir starfa sinn, heldur einungis f æ ð - ispeninga og sanngjarnan ferðakostnað. Ef þessu átti að breyta, á þann hátt að fara að 1 a u n a þá, þá var alveg sjálfsagt að spyrja þjóðina um það áður. Hvort h e n n i þætti nokkur ástæða til þess, það var h ú n hvort sem var, sem átti að b o r g a. En þjóðhetjunum 1912 lá nú meira á að seðja »auragirnd« sína en svo, að þeir gæfu sér tima til þess. Hór skal sýndur reikningur yfir kostnað þingmanna við dvöl þeirra { Rvík eins og n e f n d i n í efri deild taldi hann vera. ‘) Sem knnnugt er kýs þingið nefnd til að úrsknrða og athuga ferðakostnaðar- reikninga þingmanna. Vissulega hefir nefndin 1912 ekki verið hörnndssár fyrir landsjóðs hönd, að g e t a samþ. aðra eins reikninga og þessara manna. Til fróðleiks set eg hér hverjir átta sæti i nefndinni: Björn Þorláksson, Eggert Pálsson .'lafnr Briem, Signrðnr Stefánsson Steingrimnr Jónsson. Eg get getið þess, að i almæli var hér í fyrra snmar, að sr. Björn hefði verið sá eini, sem e k k i vildi samþykkja reikn- ing Jóhannesar. Þingmenn sem ern svona óhæfilega kostbærir landssjóði, þnrfa vissulega að vera atkvæðameiri og þjóðhollari, en þeir Jóhannes og Valtýr.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.