Ísafold - 07.05.1913, Qupperneq 1
■
Kemur út tvisvar
í viku. Verð árg.
4 kr., erlendis 5 kr.
eða l^dollar; borg-
ist fyrir miðjan júll
erlendis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint.
SAFOLD
ísafoldarprentsmiðja.
Ritstjópi: Ólafur Björnsson.
Talsími 48.
Uppsögn (skrifl.)
bundin við áramót,
er ógild nema kom-
in só til útgefanda
fyrir 1. oktbr. og
só kaupandi skuld-
laus við blaðið.
XXXX. árg.
Reykjavík, miðvikudaginn 7. maí 1913.
36. tölublað
Kauphækkun þingmanna
og síðasta þing.
Eftir
A. J. Johnson bankaritara.
Það er þjóðkunnugt og mun lengi
í minnum haft, hvað Björn heit. Jóns-
son fv. ráðherra var orðhagur maður
á íslenzka tungu.
Eitt síðasta merki þessa mtin vera
hið stutta en afarsmellna nafn, er hann
valdi þinginu síðasta, aukaþinginu
1912. Hanu kallaði það
»kauphækkunarþingið þunna«.
Róttara nafn verður því ekki valið,
því að ómerkilegra þing hefir aldrei
verið háð, að minsta kosti ekki síðan
alþingi var endurreist.
Það drap stjórnarskrár-
m á 1 i ðmálið sem það var kallað
saman til að afgreiða, breytt eða óbreytt,
og meiri hluti þingmanna rauf með
því skýlaus og fyrirvaralaus loforð, er
þeir gáfu kjósendum í kosningunum
1911.
Eftir það liggur ekkert sem heitið
getur nýtilegt, nema vörugjaldslögin,
og tvær eða þrjár þingsályktunartil-
lögur.
Það drap, eyddi, eða stór-
skemdi flest nýt mál, er fyrir
lágu, svo sem t. d. frv. um lækkun
ráðherraeftirlauna, frv. um eftirlit með
þilskipum og vélabátum, frv. um kaup
og útgerð tveggja strandferðabáta, (sem
kaupa mátti með ágætum bórgunar-
skilmálum), frv. um breyting á lögum
um styrktarsjóði handa barnakennur-
um, frv. um líftrygging sjómanna, frv.
um breyting á bæjarstjórnarlögum
Reykjavíkur, (að bæjarbúar fái að velja
sjálfir borgarstjóra með eigin atkvæð-
um; banamaður þess varð 2. þingm.
Rvíkur, Jón Jónsson dósent). Enn
fremur má nefna frv. sem stóðu í sam-
bandi við stjórnarskrána o. fl. o. fl.
Aftur á móti samþykti þingið t. d.
lög um annan eins hógóma og það, að
selja e g g eftir þ y n g d, eu ekki
tölu, — að ógleymdri lotterí vitleys-
unni, sem ráðherra þorði svo aldrei
að bera fram við konung til staðfest-
ingar!
Minna má og á sum frv. sem s ý s 1 u-
m e n n i r n i r báru fram, eins og t.
d. frv. þeirra Guðlaugs og Jóhannesar
um að velta s t j ó r n i n n i undanþágu
frá bannlögunum, leyfa henui að flytja
inn áfengi eftir vild. Þeir hafa lík-
lega vonað að njóta góðs af lekanum
þeim.
Samkomulag og friður var ekki betii
en það, að menn sem taldir eru
til sama flokks, Iótu ekkert
tækifæri ónotað til þess að hanga í
hárinu hver á öðrum, enda fór ekki
lítill tími þingsins í rifrildi milli þeirra.
Vitni um þetta bera þingtíðindin, og
þó ekki nærri eins glögt, og ef alt
sem sagt var hefði verið hraðritað og
fengið að standa óbreytt. H e i 1 u m
d e g i var varið til að rífast og
svala sér persónulega á audstæðing,
undir*því yfirskyni, að það
væri gert af umhyggju t'yrir
hag landssjóðs! Aeg hér sér-
staklega við fyrirspurnina um viðskifta-
ráðunautinn, sem Valtýr flutti og ýmsir
studdu, sem eru álíka ó f r e k i r til
fjár úr landsjóði. Veiður nánar vikið
að því síðar.
Að þessu yfirveguðu, hygg eg að þeir
verði margir, sem taka undir eftirfylgj-
andi vísu, sem stórskáldið og vitring-
urinn vestur við Klettafjöll, St. G.
Stepbansson, hefir ort (ásamt fleirum)
um þingið 1912.
Hann segir:
Hvergi myndi þvílíkt þing
Þolað nema íslending:
Góðra heita hjásetning,
Helztu mála ónýting.
Tekið skal það fram, að ekki eiga
allir þingm. BÖk á því, hvernig þingið
var, og hvernig það fór að ráði sínu.
Til þess að vita v i s s u í því, vísa eg
‘) Að eins 5 menn vildu samþykkja
stjórnarskr&na, þeir: Benedikt Sveinsson,
Bjarni JónBSon frá Vogi, Björn Krisfjáns-
son, Skúli Thoroddsen og Þorl. Jónsson.
Þingmenn 1 | Sarakv. eldri lögunum Samkv. nýju lögunura Hækkun- in nemur kr
!i p< bp a 0 C3 W M cð -S . j§-3 •f a -Ö GQ s <n 03 ÍIP a-s . |F p. bfl P 0 03 w S 10 «3 3 . 13 xo Samtals kr.
1. Ágúst Flygenring í Rdnarfirði 522 522 866 20 886 364
2. Benedikt Sveinsson i Rvik.... 510 510 680 680 170
3. Bjarni Jönsson frá Vogi i Rvik 510 510 680 680 170
4. Björn Jónsson fv, ráðh. i Rvik 510 510 680 680 170
5. Björn Kristjánsson í Rvik .... 610 510 680 680 170
6. Björn Þorláksson á Dvergasteini 14 594 120 714 962 110 1072 358
7. Eggert Pálsson á Breiðabolsstað 9 564 111 675 922 90 1012 337
8. E. Jónss. 1. þm. Rv. áGeldingal. 7 552 111 663 906 90 996 333
9. Einar Jónss. 2. þm. N.-M. á Hofi 11 576 172 748 938 190 1128 880
10. Eiriknr Briem i Rvik 510 510 680 680 170
11. GuðjónGuðlaugsson á Hölmavik 16 606 163 769 978 120 1098 329
12. (iuðl. Huðmundsson á Akureyri 12 582 108 690 946 80 1026 336
13. Haildór Steinsson i Ólafsvik . . 13 588 916o 67960 954 60 1014 33460
14. Hannes Hafstein i Reykjavik. . 510 510 680 680 170
15. Jens Pál88on í Görðum 2 522 522 866 20 886 364
16. Jóh. Jóhannesson á Seyðisfirði 37 732 470 1202 1146 110 1256 54
17. Jón Jónatanss. á Ásgautsstöðum 6 546 60 606 898 70 968 362
18. Jón Jónsson 2. þm. Rvk. i Rvík 2 522 522 696 696 174
19. Jón Jónsson frá Múla 11 576 125 701 938 180 1118 417
20. Jón Magnússon í Rvik 510 510 680 680 170
21. Jón Ólafsson i Rvik 2 522 522 696 696 174
22. Jósef Björnsson á Vatnsleysu . 17 612 231 843 986 120 1106 263
23. Július Havsteen i Rvik 2 522 522 696 696 174
24. Kristján Jónsson i Rvik 510 , , 510 680 680 170
25. Lárus H. Bjarnason Rvik 510 . , 510 680 680 170
26. Magnús Andrésson á Gilsbakka 16 606 77 683 978 50 1028 345
27. Matthías Olafsson 1 Hankadal. 19 624 8376 70 775 1002 60 1062 35426
28. Ólafur Briem á Álfgeirsvöllum 15 600 180 780 970 120 1090 310
29. Pétur Jónsson á Gautlöndnm.. 16 606 181 787 978 160 1138 351
30. Sigurður Eggerz i Vik 16 606 254 860 978 190 1168 308
31. Sigurður Sigurðsson i Rvik .. . . 510 , . 510 680 680 170
32. Sigurður Stefánsson i Vigur .. 15 600 82 682 970 80 1050 368
33. Skúli Thoroddsen 1 Rvik 510 510 680 680 170
34. St. Stefánss. 1. þm. Eyf. Fagrask. 18 618 215 833 994 130 1124 291
35. St. Stefánson 5. kgk.á Akureyri 13 588 111 699 954 80 1034 335
36. Steingrímur Jónsson á Húsavik 14 594 136 730 962 160 1122 392
37. Tryggvi Bjarnason i Kothvammi 11 576 176 752 938 120 1058 306
3Ö. Vaitýr Huðmundsson i Khöfn. 52 822 276 1098 1266 190 1456 358
39. Þórarinn Jónsson á Hjaltabakka 12 582 204 786 946 120 1066 280
40. Þorleifur Jónsson i Hólum.... 23 648 150 798 1034 340 1374 576
Hækkunfn nemur samtals kr. 11,197,75
á reglulegu þingi, þrátt fyrir hinn háa ferðakostnað er þingmenn tóku áður.
til þingtíðindanna, sem ættu helzt að
vera lesin og rækilega athuguð af
hverjum einasta kjósanda í
1 a n d i n u. Þ á mundi »reyndum átu-
meiuum^1) siður takast að sá sandi í
augu kjósenda. Þ á mundi færri sýslu-
menn og aðrir hálaunamenn og þeirra
fylgifiskar skipa sæti á þingbekkjunum.
En nú er eg kominn að efninu, sem
eg ætlaði sórstaklega að ræða um.
Kauphækkuninni, sem þing-
menn gáfu sór, að þjóðinni al
gjörlega fornspurði.
Og í þessu sambandi skal þess getið,
að á sama tíma sem þeir keyrðu þessa
kauphækkun s í n a í gegnum þingið
með hraða miklum, sýndu þeir (m. hl.)
fádæma smásálarlegan naglaskap, þegar
um það var að ræða, að bæta kjör
tveggja allfjölmennra stótta í landinu,
sem eru afarilla launaðar,
sem só yfirsetukvenna og
barnakennara:
Þá óx þeim alt í augum. Hver þús-
und krónu hækkun f þessu skyni
þótti þeim ægileg, en sömu hetjunum
velflestum, þótti ekki nema sjálfsagt
að hækka laun landlæknis — sem hafði
4 þús. í laun — um fimta þúsundið. Og
þó var það upplýst fyrir þinginu, að
hann hefði að auki svo þúsundum króna
skifti fyrir »praxis« hér í Reykjavík.
En hann bar sig aumlega, og Bagði
meðal annars, að laun sín (þessar 4 þús.)
væru »ósamboðin þessu erfiða og vanda-
sama embætti og fylsta þörf á ein-
hverri uppbót«. (Sjá Alþt. 1912 B I,
bls. 45). Og sjá: honum var veitt það
sem hann beiddi um, líklega af því
að hann v a r h á 1 a u n a m a ð u r.
Frumvarpið um kauphækkun
þ i n g m a n n a kom fram fyrst í efri
deild, einmitt þeirri deildinni, sem
e k k i á að hafa upptök að auknum
útgjöldum, og voru feður þess og
flutningsmenn
þeir: Steingrímur Jónsson 4.
kgk. þm., sýslumaður á Húsavfk, og
Sigurður Stefánsson þm. ísa-
fj.kaupstaðar, prestur í Vigur.
I fyrstu var svo fyrirmælt f frv., að
þingmenn búsettir u t a n Reykjavíkur
skyldu hafa 9 kr. á dag í fæðispen-
inga, en Reykjavfkur þingm. sama og
áður, 6 kr.; auk þess átti að breyta
ferðakostnaði, fastákveða hann. En við
2. umr. í e. d. stakk G u ð j ó a G u ð-
1 a u g s s o n þm. Strandamanna upp á
því, »að stíga sporið til fulls og ákveða
dagkaup þingmanna 10 kr«. Fóllust
flutningsmenn fljótt á það.
Þeir, Jósef Björnsson,Björn Þorláksson,
Guðjón Guðlaugssop, Jón Jónatansson og
Þórarinn Jónss., komu svo með breyting
artillögu um það, að »alþingismenn
skyldu hafa 8 kr. þóknun daglega,
bæði fyrir þann tíma, sem þeir sitja
á alþingi og fyrir þann tíma, sem fer
til ferða að heiman til alþingis, og frá
alþingi og heim aftur. Enn fremur
skulu alþingismenn, sem búsettir eru
utan Reykjavikur, frá 2 kr. aukaþókn-
un daglega, meðan þeir dvelja á þing-
staðnum«. (Alþt. 1912 A. bls. 386).
Þessi tillaga var samþykt, og — er
orðin að lögum.
Þessi kauphækknn var sótt af miklu
kappi, og mætti ekki mótspyrnu nema
frá örfáum mönnum. í efri deild-
i n n i var að eins e i n n maður, sem
barðist á m ó t i heuni, og það vel og
röggsamlega, Sigurður Eggerz
þm. V.-Skaftafellssýslu. Allirhin-
i r studdu hana með orðum og atkvæð-
um.
í neðri deild var það lfka eink-
um e i n n maður, sem einarðlega, heill
og óskiftur talaði á móti hækkuninni,
og fordæmdi alla hækkun á þingkaupi
nú og sfðar.
Þessi maður er Bened. Sveins-
s 0 n þm. Norður-Þingeyinga.
En auk hans töluðu á móti þessu
frv. að meira og minna leyti (en þó
einkum að því leyti, að það næði fram
að ganga á þessu þingi), þeir: Bj.
Jónsson frá Vogi, Þorleifur Jónsson í
Hólum, Sigurður ráðun. Sigurösson
og Jón Ólafsson; eu hann (J. Ó.) seg-
*) Úr kvæði St. G. St, Alt er kvæðið
prentað i »Sunnanfara«.
ist þó e k k i vera á »móti tilgangi
frv.«
En m e ð frv. töluðu: Hannes Haf-
stein, Einar Jónsson 1. þm. Rangæ-
inga, Matth. Ólafsson, Guðl. Guðmunds-
son, Valtýr Guðmuncfsson og Pótur
Jónsson.
Og að lokum var frv. samþ. í n. d.
án nafnakalls með 16 atkv. gegn 4,
en 3 þm. hafa ekki greitt atkv., eða
ekki Verið viðstaddir.
Hvað nenrar hækknnin
mikln ?
Ofanskráð skýrsla skýrir frá þvf.
En benda vil eg á það hveruig eg
reikna, svo enginn misskilningur kom-
ist að.
Skýrslan er miðuð við r e g 1 u 1 e g t
þ i n g. Þingsetudagar áætlaðir 85,
eins og þeir voru 1911. En 1909
voru þeir 83. Óhugsandi er, að hægt
verði í framtíðinni að komast af með
styttri tíma, því altaf vaxa störfin.
En svona reikna eg, tek t. d. nr. 6.
I. samkv. eldri lögunum:
85 þingd. á 6/00 = kr. 510
14 ferðad. á 8/00 ... = — 84
Ferðakostn aður (1912) — 120
Samtals kr. 714
II. samkv. nýju lögunum:
85 þingd. á 10/00 = kr. 850
14 ferðad. á 8/00 — — 112
Ferðakostnaður (lögbundinn) — 110
Samtals kr. 1072
Mlsmunur 0: h æ k k u n verður 358
krónur eins og skýrslan sýnir, hjá
þessum eina þingm.
Ferðadagar og ferðakostn-
a ð u r (samkvæmt eldri lögunum, í
fyrra dálkinum) er miðað við það, sem
þingmenn reiknuðu sór á s u m a r -
þinginu 1912. Ferðakostnaður í síð-
a r i dálkinum er sá, sem n ý j u 1 ö g-
i n ákveða.
Athugasennlir við skýrsluna.
Ferðakostnaður Reykvíkinganna.
Kynlegt þykir það sjálfsagt, að sjá
það fremst í skýrslunni, að sumir
Reykvíkingarnir reikna sór ferðadaga.
Ferðadagar í venjulegri merkingu eru
þetta vitanlega ekki. En þessir menn
voru skifarar neðrl deildar (tveir), og
forseti efri deildar (einn) og vegna
þeBS taka þeir tveggja daga kaup fram
yfir aðra. Fróðlegt væri að vita, við
hvað þetta styðst, því aðal verk skrif-
aranna er samkv. 13 gr. þingskapanna,
að halda »gjörðabók«, og skal sú gjörða-
bók lesin upp í byrjun hvers fundar,
frá síðasta fundi. Enga gjörðabók
geta þeir haldið f y r en þingsetningar-
daginn, og þingstörf þingslitadaginn
eru sjaldnast svo mikil, að það geti
verið tveggja daga verk, að,rita gjörða-
bókina frá þeim fundi. Um forsetana
er það að segja, að þeir fá sórstakt fó
fyrir ritstjórn þingtíðindanna, umsjón
með þinghúsinu, skjölum þingsins o.
s. frv. Þetta tveggja daga kaup dreg-
ur engan mikið, en hór virðist samt
vera að ræða um eitt dæmi óágengn-
innar við landssjóð.
Jóliannes og Valtýr.
Sennilega væri það hægt, fyrir
kunnuga menn, að athuga ýmsa fetða-
kostnaðarreikningana, en sórstaklega
eftirtektarverðir eru reikningar þeirra
Jóhannesar sýslumanns á Seyðis-
firði, og Valtýrs í Khöfn. Jó-
hannes reiknar sór 37 ferðadaga
og i ferðakostnað 470 krónur, auk
6 kr. á dag í fæðispeninga allan þenn-
an tíma. Ferðakostnaður hans verður
því í raun og veru 692 krónur.
Til samanburðar má geta þess, að
síra Björn á Dvergasteini, sem á heima
á s a m a stað, — hann á þó lítið
eitt 1 e n g r a heim til sín — reiknar
sór ekki nema 14 ferðadaga, og 120
kr. í ferðakostnað. Munurinn á ferða-
kostnaði þessara tveggja manna er því
4 8 8 kr., eða með öðrum orðum, Jó-
hannes tekur mikið meira en þ r e -
f a 11 á við Björn.
Sr. Björn fór sjóleið. eins og vera
bar, en Jóhannes fór 1 a n d v e g í
kring um hálft landið eða meira, til
að s k e m t a sór að sumra manna á-
gizkun, — á landsins kostnað. Víst er
það, að það g a t e k k i verið í þágu
þingsins.
En þrátt fyrir þennan gífurlega
ferðakostnað, sem er svo hneykslanleg-
ur, að ekki tekur tali, h æ k k a r
hann samt eftir kauphækkunar-
lögunum um 54 kr.
V a 11 ý r reiknar 5 2 ferðadaga til
og frá Khöfn — sem er 14—16 daga
ferð — báðar leiðir — og 276 kr. f
ferðakostnað, auk fæðispeninga 6 kr.
f 52 daga = 312 kr.
Hans eiginlegi ferðakostnaður verður
)ví 588 kr. um há-sumarið J).
Varla hefir þó ferðin hóðan til Eng-
lands kostað stórfó, því sagt er, að
hann hafi farið þá leið með botnvörp-
ungi, og þeir taka venjulega einar
1 8 k r. fyrir fæði milli þessara landa
en e k k e r t fyrir farið.
Og þ e 11 a er maðurinn sem gerði
hæztan hvellinn út af ferðakostnaðar-
reikningum Bjarna frá Vogi, og lót
bngið eyða h e i 1 u m degi — sem
kostar um eða yfir 700 kr. — til að
rífast um þá og starf hans. Brígslar
hann Bjarna um, að »hann sýni lands-
sjóði dæmalausa ágengni í reikningum
sínum«, að »hann só mjög frekur til
fjárins og óhlífinn við landssjóðinn« o.
s. frv.
Þetta studdu svo ýmsir, með atkvæði
sínu ef ekki á annan hátt, sem reynsl-
an hefir sýnt, að eru álíka ófrekir til
fjár úr landssjóði og Valtýr, og einn
meðal þeirra var — Jóhannes
sýslumaður!
Enginn skilji þetta svo, sem eg álíti
)að í sjálfu sór óþarft verk, að athuga
reikninga viðskiftaráðunautsins.
Það æ 11 i einmitt að athuga ferða-
reikninga allra embættismanna sem
bezt, eins og t. d. landritara, biskups,
landlæknis o. fl., því orð hefir leikið
á því, að þeir væru ekki altaf sem
sanngjarnastir í garð landssjóðs. En
það er blátt áfram hneyksli, að maður,
sem er jafn »frekur til fjárins og ó-
hlífinn við landssjóðinn« eins og V a 1-
t ý r virðist vera (sbr. ferðareikning
hans), Bkuli fara að vanda um við
aðra í þessum sökum.
Og hver t r ú i r því, að Valtýr hafi
farið að gagnrýna reikninga Bjarna af
umhyggju fyrir landssjóði ?
Hækkunin getnr orðið mikln meiri,
Eins og skýrlan sýnir, nemur hækk-
unin, eins og þingið er n ú skipað,
yfir ellefu þúsund krónum, en ef
færri Reykvíkingar sætu á þingi, yrði
hækkunin m i k 1 u m e i r i.
Af þingmönnum er sátu síðasta
þing, áttu 16 heima 1 Reykjavík og í
grend við hana, og margir af þeim
voru þingmenn fyrir fjarlæg kjördæmi,
eins og t. d. Norður-Þingeyjars., Norður-
Isafj.sýslu, Suður-Múlas., Dalas., Barða-
str.s., Eyjafjarðars., o. s. frv.
Ef megin þorri þingmanna væri bú-
settur í kjördæmunum, mundi vera
óhætt að bæta nokkrum þúsundum við
þessar framangreindu.
Var nokkur þörf á hækkuninni?
Nei, og aftur nei.
Þingmenn eiga alls ekki að fá 1 a u n
fyrir starfa sinn, heldur einungis f æ ð -
ispeninga og sanngjarnan
ferðakostnað. Ef þessu átti að
breyta, á þann hátt að fara að 1 a u n a
þá, þá var alveg sjálfsagt að spyrja
þjóðina um það áður. Hvort h e n n i
þætti nokkur ástæða til þess, það var
h ú n hvort sem var, sem átti að
b o r g a.
En þjóðhetjunum 1912 lá nú meira
á að seðja »auragirnd« sína en svo,
að þeir gæfu sér tima til þess.
Hór skal sýndur reikningur yfir
kostnað þingmanna við dvöl þeirra {
Rvík eins og n e f n d i n í efri deild
taldi hann vera.
‘) Sem knnnugt er kýs þingið nefnd til
að úrsknrða og athuga ferðakostnaðar-
reikninga þingmanna.
Vissulega hefir nefndin 1912 ekki verið
hörnndssár fyrir landsjóðs hönd, að g e t a
samþ. aðra eins reikninga og þessara
manna.
Til fróðleiks set eg hér hverjir átta
sæti i nefndinni:
Björn Þorláksson, Eggert Pálsson
.'lafnr Briem, Signrðnr Stefánsson
Steingrimnr Jónsson.
Eg get getið þess, að i almæli var
hér í fyrra snmar, að sr. Björn hefði verið
sá eini, sem e k k i vildi samþykkja reikn-
ing Jóhannesar.
Þingmenn sem ern svona óhæfilega
kostbærir landssjóði, þnrfa vissulega að
vera atkvæðameiri og þjóðhollari, en þeir
Jóhannes og Valtýr.