Ísafold - 17.05.1913, Page 1

Ísafold - 17.05.1913, Page 1
Kemur út tvisvar í viku. Verð árg-. 4 kr., ertendis 5 kr. eða 1-Jdollar; borp- ist fyrir miðjan júli erlendis fyrirfram. Lausasala 5 a. eint. ísafoldarprentsmiðja. Ritstjóri: Óiafus* Björnsson. Talsimi 48. Uppsögn (skrift.) bundin við áramót, er ógild nema kom iu sé til útgefanda fyrir 1. oktbr. og só kaupandi skuld- laus við blaðið. XXXX. árg. Reykjavík, laugardaginn 17. maí 1913 I. O. O F. b4599. Alþýðufél.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—9. Angnlœknin? ókeypis i Lsekjarg. 2 mvd. 2—8 Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 10—3 Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7 Bæjargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12—8 og B—7 Eyrna- nef- hálslækn. ók. P0sth.str.14A fid. 2—8 íslandsbanki opinn 10—2x/s og B1/*—7. K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8Ard.—10 siðd. Alm. fundir fid. og sd. 8*/• sibd. Landakotskirkja. Guðsþj. 9 og 6 á helgum. Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn U-21/*, B1/*—61/*. Bankastj. 12-2 Landsbókasafn 12—8 og B—8. Útlán 1—8. Landsbúnaðarfólagsskrifstofan opin frá 12—2 Landsféhirðir 10—2 og B—6. Landsskialasafnið hvern virkan dag kl. 12—2 Landssiminn opinn daglangt (8—9) virka daga helga daga 10—12 og 4—7. Lækning ókeypis Þingb.str.28 þd.ogfsd. 12—1 Náttúrugripasafnib opib l1/*—21/* á sunnud. Samábyrgb Islands 10—12 og 4—6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl. Talsími Reykjavíkur Pósth.3 opinn daglangt (8—10) virka daga; helga daga 10—9. Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11—12 Vífilstabahælió. Heimsókt. artími 12—1 f’jóðmenjasafnió opið þrd., firad. og sd. 12—2. Og Reynast bezt! Endast lengst! Jafnframt ódýrnst. Þeir kaupendur ISAFOLDAR ■hér í bænum, sem skift hitfa um heim- ili, eru beðnir að láta þess getið, sem- alira fyrst, í afgreiðslu blaðsins, svo þeir fái blaðið með skilum.. 1913. Frá Rvík 6. júlí með Hólum hrað- ferð til Sauðárkróks. Þaðan með Skál- holti ii. júlí til Akureyrar. Þá með Flóru til Seyðisfjarðar 20. júlí, og þaðan með Skálholti 7. ágúst til Rvíkur. Dvel því á Sauðárkrök frá 8.—11. júlí, á Akureyri frá 14.—20. júli, og á Seyðisfirði i 6—15 daga eftir ástæðum. A. Fjeldsted. Nýja Bió sýnir i kvöld (iaugardag 17. mai) og næstu kvöld: «r 7fer-spæfarar. t>egar íjónin sluppu. Jungfrú haupir sér f)aíf. Pantið bílæli í talsíma 344. Op- inn hálf tkna á undan sýningum. Hvað sem öðru líður — 11. Einn af helztu stjórnmálamönnum hinna fornu Rómverja á að hafa endað allar ræður sinar um það leyti, sem Rómverjar áttu í brösum við Púnverja: Prœterea censeo Cartha- qinem esse delendam: Hvað sem öðru líður — legg eg til, að Kartagóborg sé lögð í eyði. Honum þótti þá mest liggja við um það fyrir landa sína. Eitthvað sviplikt ætti nú að heyrast í forustulúðrum vor íslendinga: Hvað sem öðru líður — skulum vér hætta að eyða kröftum vorum til engis í samliandsmálinu að sinni — hætta að berja hausnum við þvergirð- ingsskap Dana! Hvað sem öðru líður — skulum vér nú snúa oss af óskiftum kröftum að innanþjóðarmálum vorum, sem mest liggur á, samgöngumálum, fjár- málum og — stjórnarskrármálinu. Hvað sem öðru liður — skulum vér fyrst og fremst leggjast nú pe$ar allir á þá sveifina að hrinda mesta nauðsynjamálinu í svipinn: samqönqu- tndli>M, i gott lag. Hvað sem öðru liður — skulum vér allir stiga á stokk og sverja þess eið að linna ekki látum fyr en Eim- skipajélav Islands er fullburða fætt á sumri komanda. Það er ekki lengur ýkjamikill tími til stefnu, nokkurar vikur — rúmir 40 dagar. En á þeim 40 dögum verðum við að komast úr eyðimörku skipa- leysisins og samgöngu-undirlægju- skaparins hjá öðrum — inn á fyrir- heitna landið: eiqin skip, undir yfir- rdðum sjdljra vor. Við veðreiðar erlendis eru veð- reiðamennirnir vanir að geyma bezta sprettinn, til síðasta áfangans. Þá »spurta« þeir eins og kallað er á er- lendum málutn. Þá taka þeir á öllu sem þeir eiga til, spenna jóana af öllum lífs og sálar kröftum til þess að komast fljótt og vel í mark. Við þurfum að fara að þeirra dæmi nú — til 1. júlí! Ekkert má til spara, engis ráðs láta ófreistað, ekkert erfiði eftir telja — til þess að ná markinu fyrir 1. júli: Næqu hlutajé til pess að kaupa tvö ný skip, 385,000 krónur. Það væri meira en sárgrætilegt, það væri sorglegra en tárum taki, það væri hreinn dauðadómur þjóðar- innar, ef hún eigi þekti betur sinn vitjunartima nú en að hún léti þetta hið langmesta velferðarmál sitt í svipinn, þetta jjöregg alls viðskiftalífs sín — grotna sundur í höndum sér i fæðingunni. Ef vér nú, er allir, eða því sem næst allir, virðast vera á eitt mál sáttir, um lífsnauðsyn þessa fyrir- tækis, gætum eigi að staðið að safna því er svarar 3—4 kr. nefskatti — hvað mundum vér þá duga í öðrum málum, þar sem á oss sjálfa reynir, öðrum málum, sem eigi liggur svo mikið við í — sem þessu. Mundum vér þá eigi lenda úti á hinni hálu og ömurlegu braut — traustleysisins á sjálfum oss, trúleysis- ins á getu vorri? Mandum vér eigi verða oss ti! stórminkunar í augum annara þjóða, er til þekkja? Hvað þeir mundu hælast um, mennirnir, sem nú ráða samgöngum vorum, skipakosti, flutnings- og far- þegagjöldum — svo sem einvaldir séu! Það er ekki langt síðan einn þeirra heiðursmanna talaði djarft um það á aðalfundi annars samgöngu-ein- veldisfélagsins, að pað vœri svo setn ekki mikil hcetta d pví, að Islendingar kcetnu pessu gufuskipajélagi i fratn- kvcetnd. Þeir gcetu pað aldrei! Ef til vill hefir sá dándismaður, sem raunar hefir reynst samgöngu- málum vorum einhver óþarfasti mað- ur á síðari árum — hugsað, að harm mundi geta haft það tangarhald á kaupmönnum vorum, að orð hans yrðu sannmæli. Ef til vill stendur það eitthvað í sambandi við þessi orð, það sem nú flýgur um bæinn, að meiriháttar kaupsýslumaður danskur eigi að hafa það launungarerindi með höndum hér i sumar að beitast fyrir því af alefli að koma gufuskipafélagshug- myndinni fyrir kattarnef — með undirróðri við kaupmenn og gulin- um lofofðum um allskonar fríðindi, í niðursettum töxtum o. s. frv. ? En ættum vér ekki að gjalda þeim manni, er slikt reyndi, gráan belg fyrir svartan? Vér værum mannleysur, ef vér gerðum það ekki! Gjaldkeramáliö í yfirrétti. Eftir því sem ísafold hefir frétt, mun gjaldkeramálið verða tekið fyrir í yfirrétti á mánudaginn kemur. Sækjandi i málinu er skipaður Oddur Gíslason yfirdómslögmaður, en verjandi Eggert Claessen. Sækjandi kvað leggja fram sóknar- skjalið á mánudag, og verður þá væntanlega tekinn frestur af umboðs- manni verjanda (E. Cl.), sem er er- lendis. Talið er víst, að enginn yfirdóm- aranna viki sæti fyr en máfið er tekið til dóms, sennilega eftir i1/^—2 mánuði. Fyr kemur því eigi til að skipa setudómara. Indriði Reinholt og bæjar- Stjórnin. Eins og getið var í siðasta blaði tók Reinholt aftur er- indi sitt um sporbrautir í Rvik. Út af þeirri afturköllun samþykti bæjarstjórn á síðasta fundi svolát- andi tillögu: Bæjarstjórninni þykir leitt, að leyfisbeiðandi skuli hafa tekið um- sókn sina aftur án þess að til- greina ástæður og lýsir því jafn- framt yfir, að hún er fús til að taka upp samningsumleitanir aftur, fari leyfisbeiðandi fram á það. Gulísktj. Sólin i sindrandi Ijóma, signdi mín vonarský. Þar geymdi ég gull tninna drautna, og geislann er bjó peitn í. En nú er hún löngu liðin, og litverp tnin vonarský. Þau titra nú pung aj tdrum, tneð talandi sorgum í. Lifið er augnabliks litur, er Ijómar og hverjur og deyr. Mín sœla nú gtdtandi situr, pví sólin ei skín henni meir. 9U—’13 • H. H am ar. Sören Kierkegaard. Aldarafmæli Sörens Kierkegaard var þ. 5. maí siðastliðinn og var þess minst á margan hátt í föður- landi hans, Danmörku. Kierkegaard er einhver allra merk asti heimspekingur Dana. Sóren Kierkegaard. Kierkegaard dó 1855 og hafði þá ritað fjöldamörg heimspekisrit, en aðalrit hans eru: Enten — Eller (1843) og Stadier paa Livets Vej (1845). Yestnr-íslendinga-aimáll. 'Sveinbjörn Sveinbjörnsson tónskáld hefir dvalið i vetur vestur við Kyrra- haf. En í vor kom hann aftur til Winnipeg, efndi þar til samsönga og víðar um bygðir íslendinga í grendinni. — Siðast í apríl ætlaði hann aftur til Skotlands (Edinburgh) og dvelja þar í sumar, en hefir hug á að snúa aftur vestur um haf í haust. Mannalát. Sigrún Ólafsson, kona síra K. K. Olafsson á Mountain N. Dakota. Lézt 6. apríl rúml. þrítug. Eygerður Jónsdóttir Holm, kona Brynjólfs E. Holm í Winnipeg, 35 ára. Ættuð frá Reini á Akranesi. Lézt á páskadag. Guðrún Ólafsdóttir, ekkja Stefáns Jónssonar frá Miðvöllum í Skagafirði. Fluttist til Ameríku 1882. Lézl i Pembina N. Dak. þ. 14. febr., 82 ára gömul. 40. tölublað Ólag á smjörbúunum. Hr. L. Zöllner hefir ekki alls fyrir löngu ritað grein i íslenzk blöð um s m j ö r b ú i n. Heldur hann því fram, að smjörið okkar haldi sér mjög illa, og að þess sóu dæmi, að smásalarnir hat'i orðið að skila smjöri aftur til um- boðsmanna smjörbúanna erlendis. Só þetta satt, sem eg efa ekki — þá er það áhyggjuefni mikið fyrir alla þá, er vinna að íslenzkri smjörframleiðslu og ætti að vera kominn tími til að ráða bót á því sem fyrst. L. Z. legg- ur til, að fenginn sé erlendur sórfræð- ingur til að rannsaka ástand smjörbú- anna. Þetta kynni nú að vera gott að vissu leyti, en þó er það skoðnn mín, að ekki væri alt feugið með því. Fyrir það fyrsta, tæki það all-langan tíma fyrir ókunnugan mann að kynna sór til hlítar staðhætti og kringumstæður hér. Sá maður gæti, að mínu áliti, verið góður og gildur í sínum heima- högum, þótt hann stæði ráðalaus uppi, þegar til íslands kæmi, eða sæi í það minsta ýmsa agnúa á að koma hug- sjónum sínum í framkvæmd. Eg t. d. áleit mig sórfræðing í smjörgerð, er eg var í Danmörku, en er eg hafði kynst íslenzkum ástæðum, komst eg að raun um, að það horfði alt öðru vísi við. Eg varð sem sagt að láta reynsl- una kenna mór, hvernig eg skyldi haga mór í starfi mínu, og eg hygg að reynd- in yrði hór sama, þótt við fengjum nyjan sérfræðing í þeirri grein, nema með því nánari og betri samvinnu milli hans og mín. Reyndar etast eg ekki um, að maður, eins og t. d. prófessor Böggild myndi geta gert hór talsvert gagn. En er nú alt gert, frá smjörbúanna hálfu, sem hægt er, til þess að fá betra smjör? Þvi miður verður að svara því neitandi. Rjómanum t. d. er enn sem komið er mjög mikið ábótavant frá mörgum heimilum, og allir ættu að skilja, að af slæmum rjóma er ekki hægt að búa til gott smjör. í Danmörku eru t. d. ár- lega gerðar ýmsar ráðstafanir til að fá betri mjólk (þar eru nefnilega alt mjólkurbú). Fleiri og færri ganga í fólag o^ kosta mann til að rannsaka mjólkina með bústjórunum frá hverjum fólagsmanni, og er það gert með 3—4 vikna millibili. Sumstaðar er svo mjólkin borguð eftir gæðum, þannig að sú mjólk, sem kemur í fyrsta flokk, fær nokkurs kon- ar verðlaun, sem tekst frá þeim, er hafa 2. og 3. fl. mjólk. Alt er það gert í því skyni að fá betri mjólk. — Állir vita, að það er margfalt hægra að útvega góða mjólk en góðan rjóma. Mjólkina er ekki annað við að gera en kæla hana, en hór verður að skilja mjólkina heima í misjöfnnm húsakynnum og við mis- jafnt hreinlæti. En hvað gerum við? Ekki neitt! Skal eg þar næst minnast á rjóma- skálana. Smjörbúin mega heita í bernsku hór enn þá; þau voru öll stofnuð með skuld og var því eðlilega tekið meira tillit til sparnaðarins en æskilegt hefði verið. Þetta eitt útaf fyrir sig hefir mikið að segja. Ef hús- ið er þannig bygt, að hitinn er eins úti og inni, hvort heldur er nótt eða dagur, þá er ómögulegt að undirbúa rjómann undir strokkunina eins og vera ber. Þar af leiðir, að smjörið verður misjafnara og verra en ella.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.