Ísafold - 28.05.1913, Page 1

Ísafold - 28.05.1913, Page 1
| Kemur út tvisvar | í viku. Yerð árg. 1 4 kr., erlendis 5 kr. | eða l^dollar; borg- | istfyrirmiðjanjúli 1 erleiidis fyrirfram. [ Lausasala 5 a. eint. H I I | ' » ■ I'H'IIHHI » ii «illi»inmi m | Uppsögn (skrifl.) | | bundiu við áramót, | I er ógild nema kom f | in só til útgefanda | I fyrir 1. oktbr. og f | só kaupandi skuld- | | laus við blaðið. | ■............................“■=» ■ XXXX. árg. Reykjavík, miðvikudaginn 28. maí 1913 43. tölublað Baídvin L. Baídvinsson. Skýrt var frá því i síðasta blaði, að þessi landi vor væri orðinn aðstoðarráðherra í Mani- tobastjórninni. Baldvin er nú maður hátt á sextugs aldri og hefir dvalið vestra um 40 ár. Hann hefir jafnan verið í fremstu röð landa þar og ein- hver helzti íslenzkur maður í flokki íhaldsmanna, sem nú sitja að völdum í Kanada. Baldvin er sagður dugmikill og mælskur vel, fylginn sér og drengur góður. Enginn íslend- ingur vestan hafs hefir áður hlotið svo veglega og ábyrgðar- mikla stöðu þar í landi. I. O. O P. P4599. Alþýðafól.bókasafn Templaras.^SJJkl. 7—9. Angnlœkning: ókeypia i Lækjarg. 2 mvd. 2—3 Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 10—3 Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7 Bæjargjaldkerinn Langav. 11 kl. 12—3 og 5—7 Eyrna- nef- hálslækn. ók. Pósth.str.l4Afid.2—8 íslandsbanki opinn 10—21/* og 51/*—7. K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8Ard.—10 síðd. Alm. fundir fid. og sd. 81/* sibd. Landakotskirkja. Gnbsþj. 9 og 6 á helgnm. Landakotsspítali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn 11-21/*, 51/*—61/*. Bankastj. 12-2 Landsbókasafn 12—3 og 6—8. Útlán 1—8. Landsbúnaðarfólagsskrifstofan opin frá 12—2 Landsfóhirbir 10—2 og 6—6. Landsskjalasafnió hvern virkan dag kl. 12—2 Landssiminn opinn daglangt (8—9) virka daga helga daga 10—12 og 4—7. Lækning ókeypis Þingh.str.23 þd.ogfsd. 12—1 Náttúrugripasafnió opib l1/*—21/* á sunnud. Samábyrgð Islands 10—12 og 4—6. Stjórnarrábsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.J Talsími Reykjavikur Pósth.3 opinn daglangt (8—10) virka daga; helga daga 10—9. Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11—12 Vifilstaðahælib. Heimsókua.rtimi 12—1 Þjóbmenjasafnib opið þrd., fimd. og sd. 12—2. Og Veyastíokkuíinn Reynast bezt! Endast lengstí Jafnframt ódýrust. Nýja Bíó sýnir í kvöld (miðvikudag 28. maí) og næstu kvöld: 1. ökumaður af ást. 2. Tfinn mikti bifreiða- kappahstur við Dieppe. 3. fttta börn kapteinsins. Pnntið bílæti í talsíma 344. Op- inn hálf tíma á undan sýningum. Þeir kaupendur ISAFOLDAR hér í bænum, sem skift hafa um heim- ili, eru beðnir að láta þess getið, sem- allra fyrst, í afgreiðslu blaðsins, svo þeir fái blaðið með skilum. Ofna og eldavélar selur Kristján norgrímsson. Nýr konungkjörinn. Skeyti kom í gær til stjórnarráðs- ins um, að Guðmundur Bjornsson landlæknir væri skipaður konung- kjörinn þingmaður í stað Augusts kaupm. Flygenring. Stjórnarfrumvörpin íslenzku munu lögð fyrir i ríkis- ráði á morgun. Danska stjórnin fer frá. Búist er við þvi, að danska stjórnin beiðist lausnar nú þegar. Eimskipafélagið. Undirtektir Vestur-lslendinga. Þegar fyrst var riðið úr hlaði með boðsbréfið til stofnunar Eimskipafélags- ins gat Isaýold þess, að vænta mætti, að Vestur-íslendingar létu sig málið nokkru skifta og mundu ef til vill létta undir með söfnun hlutafjárupp- hæðarinnar, sem er óvenju há eftir íslenzkum mælikvarða. Svo virðist, sem landar vorir vestan hafs vilji sýna það nú sem fyr, að Atlanz- hafið, sem á milli liggur, er ekki nema »vík í milli vina«. Bráðabirgðastjórnin hefir skrifað nokkrum löndum í Winnipeg og beðið þá að gangast fyrir hlutasöfn- un meðal íslendinga vestan hafs. Hafa þeir þegar myndað með sér nefnd til að greiða fyrir málinu, en töldu sig þurfa að fá nokkru nánari kynni af málinu og gerðu ráðstafanir til að ráðgast við bráðabirgðastjórn- ina hér heima. Ur bréfum hefir það frézt, að menn vestra hafi áhuga á máli þessu og séu allflestir fúsir að styðja það á þann hátt, sem bezt mætti henta landinu og þjóðinni til þrifa. Af b'öðunum hefir oss borist »Heimskringla« þ. 17. f. m., birtir hún hlutaútboðsbréfið og í næsta blaði, þ. 24. apríl, flytur hún langa grein um málið. Þar segir meðal annars: »Enginn vafi er á því, að þetta er jöfnum höndum þarflegasta og þjóð- legasta fyrirtækið, sem íslendingum hefir nokkurn tíma hugkvæmst, og sem framtíðarheill allrar islenzku þjóðarinnar krefst, að sem allra fyrst komist í framkvæmd« .... »Það þarf naumast að taka fram, að Vestur-íslendingar muni finna sér bæði ljúft og skylt, að sinna mála- leitun Austur-íslendinga að einhverju leyti, hvort sem það verður gert með beinum hlutakaupum eða á ein- hvern annan hátt, sem eigi veitti þeim síðri styrk, enda jafnvel meiri en um væri beðið, og gerði þeim mögulegt að byrja siglingar á eigin reikning*. Blaðið telur heppilegast að byrja félagið án »veðsölu og stórskulda ábagga«, finnur að því, að eigi sé sagt hver eigi að vera framkvæmdar- stjóri og eigi sagt, hvort stjórnin hafi heitið félaginu ríflegum landssjóðs- styrk — en það telur blaðið sjálfsagt að félagið fái. Þá er lauslega skotið fram þeirri uppástungu, að Vestur-íslendingar leggi saman 500 þús. krónur (137,000 dali), kaupi skip og láni oss Austur-íslendingum gegn því, að við höldum þvi við og ávöxtum féð sem í þvi stendur sanngjörnum vöxtum. Oss hér á landi mundi þá kleift að hafa saman fé i hitt skipið og byrja mætti þá skuldlaust. Viötal viO mann úr bráðabirgOa- stjórninni. ísafold átti tal við mann úr bráða- birgðastjórn Eimskipafélagsins út af undirtektum V.-Isl. Setjum vér hér innihald viðræðurmar. Hann sagði, að bráðabirgðastjórnin hefði álitið rétt að bjóða Vestur-ís- lendingum hluttöku i félaginu; verið í vafa um að tækist að ná saman hér á landi öllu fénu til tveggja skipa; gert sér von um svo góðar undirtektir meðal þeirra, að þeirra hluttaka mundi reka á endahnútinn til að ná saman öllu fénu. Hefði alls eigi búist við svo stórtækum undírtektum, sem stungið er upp á i »Heimskringlu«. Ef Vestur-Islend ingar gerðu alvöru úrað leggja einir til féð alt til annars skipsins, þá yrðum við hér heima að leggja alt féð til hins skipsins. »Getum við byrjað skuldlausir, þá megnar ekkert vald að koma okkur fyrir kattarnef. En svo hátt þorð- um við ekki að hugsa. Skipin urðu að vera tvö, svo ollu landinu kæmi að gagni. En alt það fé, sem til þess þarf, hugðum við ómögulegt að fá, nema með lánsfé að nokkru. Við höfum orðið að byrja alt með lánum: verzlun, botnvörpuútgerð, girðingar o. s. frv. Það er svo lítið fé handbært í landinu. — En hver veit nema við ætlum nú að verða menn til að leggja saman hér í landi alt að 400 þús. krónum til Eimskipa- félágsins. Hvervetna, um land alt, fær málið ágætar undirtektir. Allir virðast vilja styrkja þetta mál. Ná- kvæmlega vitum við ekki hve mikið safnað er eða muni safnast. Hlut- takan er almenn, sægur af 25 og 50 króna hlutum; stærsta hluttaka eins manns er 10,000 krónur; margir milli 1000 og 5000. Það er ekkert ólíklegra, að hærri fjárhæðin (383 þús. kr.) fáist, en sú lægri (230 þús. kr.). Máske verða undirtektir landa vorra vestan hafs til að herðaámeð það, sem á kynni að vanta. A hvern hátt, sem afráðið verður að þeir taki þátt í þessu máli veit eg að þeir gera það með einlægum hug, til að gera það eitt í málinu, sem að beztu gagni komi oss. Að við ekki gátum nafns þess manns, sem vér höfum fengið hjá loforð um að taka að sér fram- kvæmdarstjórnina stafar eingöngu af þvl. að hann gat ekki af alveg sér- stökum ástæðum, sem við urðum að virða, gefið heimild til þess að nafn sitt væri látið uppi. Hins vegar fanst okkur skylt að láta menn vita, að við hefðum trygt okkur manninn í þetta vandasama starf og töldum liklegt, að menn myndu trúa því, að valið væri ekki alveg út í bláinn, er svo mörgum mönnúm kæmi ein- róma saman um hæfileika hans. Eins og kunnugt er, getur stjórn in ekki lofað neinum landssjóðstyrk. Það er alþingis að ákveða það. Um það, að alþingi mundi taka vel í þann strenginn, gerðum við okkur góðar vonir þegar eftir hinar géðu, undirtektir, sem málið fekk á fundi þeim, sem við áttum með þing- mönnum áður en hlutaútboðið var birt. Siðan höfum við ekki heyrt annað en góðar undirtektir, frá þing- mönnum sem ekki voru á fundinum, eins og nær öllum öðrum hér á landi. — Við búumst við þvi að mikið safnist i næsta mánuði. Þá byrjar kauptíð víða, fisk- og síldveið- ar á Austfjörðum o. s. frv., losnar um fé hjá mörgum. Menn verða vel að muna, að aldrei getur safnast of mikið; því betur sem fyrirtækið er f]áð þvi öruggara er það. Sigríður Sigurðardóttir, kona Skúla lœlcnis Arnasonar i Skdlholti. EJ eg cr að gá yfir gróandi sveit, hvar góðmenskan kyrláta yljar sinn reit, til hennar eg huganum renni. Og pá er hér meira en eg œtlaði aj yl, og öðru pví fleira, sem hún átti til, ej lítið er horfið með henni. Við heyrum um rausnarleg höjðingjaból, aj hetjum, sem móðirin bóndanum ól, aj veizlum og viðhajnardógum. En hver lét í dagslitið heiðurinn sinn ? Og hver bar par mönnunum sólskinið innl Þeir smámunir sjást ekki l sögum. Þeir leituðu pangað, sem pörfnuðust yl, og purjtu ekki fylgdar, sem áttu ekkert til. Skógmálin og skógstjórinn. Eftir Guðin. Davíðsson. Eitis og kunnugt er, voru það þeir próf. Prytz og kapt. Ryder, er fyrstir stofnuðu til skógræktartilrauna hér á landi, og opnuðu augu Islendinga á þýðingu skóganna fyrir land og lyð. Þeir höfðu lika fyrst. í stað yfirumsjón skóginálanna, og allar fratnkvæmdir á hendi, áður en landsstjórnin hór tók það að ser, og fórst þeim það vel. Þeir sendu hingað út erlendau skóg fræðing, er ferðaðist um landið og at hugaði skógleifarnar, og stofnaði til skógræktartilrauria. En það sáu þeir brátt, að hér þurfti innlenda menn með þekkingu og áhuga til að starfa að skógræktinni, ætti hún að eiga nokkra framtíð fyrir höndum. Þess vegna fengu þeir því til leiðar komið, að fjórir menn voru setidir til Danmerk- ur með styrk frá alþingi til að nema verklega skógrækt. Að loknu námi skyldu þeir svo vittna að skóggræðslu og leiðbeina mönnum hér heima. Auð- vitað hefði það verið hygnara að senda þá til Noregs í slikum eriudagjörðum, þar sem landslag og loftslag er líkara því, sem á sór stað á íslandi. í öllum löndum, þar sem nokkur skógyrkja á sór stað, er henni stjórn- að af sórfróðum mönnum — lærðum skógfræðingum, — sem ekki eru það eingöngu á pappírnum, heldur Hka í reyndinni. Starf þeirra er meðal ann- ars að vekja áhuga almennings á skóg- græðslu. Þeir eru jafnan óþreytandi að fræða almenning í ræðu og riti um þ/ðing skógræktarinnar. Og í því skyni láta þeir útbýta til alþ/ðu skóg- ræktarritum svo þúsundum skiftir, Þeir pekkja, pótt peir séu smáir. Það sást engu hreyktpar sem Sigríður var, en sarnt lœrðist óvíða betur en par að sjá hvað er gull par sem gljáir. Hjá vinjáu blómunum vakti’hún ogsat, sern verða undir hcel, pví pau duga ekki í rnat, en skernta með götunni og skreyta. Og einum er Jœrra, sem lék sér við Ijóð, sem leita eftir vinum, en feilin og hlióð, rneð vorinu á veginn til sveita. Ogstjarnan hin hlýja, sernhjáokkur skín, er hugljúja Sigríður, minningin pín. Hún rann pegar sígin var sunna; og Ijósustu geislana á leið hennar ber, sem Ijóðin og vorkvöldin átti með pér, og alt setn var salast að unna. Þ. E. sem ræða um meðferð skóga og gróð- ursetning, ásamt hvetjandi og vekjandi áskorunum um að gróðursetja tró og runna á bersvæði, og heima í kring- um bændab/lin og ibúðarhúsin. Auð- sætt er því að góð skógræktarstjórn getur unnið landinu ómetanlegt gagn, þar sem hún er. Og það hafa þeir séð, brautryðjendur ísíenzku skógmál- anna, að íslenzk skógmálastjórn mundi á sama hátt geta látið gott af sór leiða fyrir Island, eins og annarstaðar. Þess- vegna afhentu þeir ekki skógmálin til stjórnarinnar hór, fyr en þelr voru búnir að koma því til leiðar, að stofn- að var skógstjóra embættið, eða réttara sagt innlend skógmálastjórn komin hér á fót. Hvorugur þessarra sæmdarmanna á því sök á því, að skógmálin eru komin í þá niðurlæging, sem þau nú eru. Sagt var að þeir hefðu farið fram á að íslenzkur maður yrði styrkt- ur af alþingi til að nema skógfræði í útlöndum og tæki svo við skógmála- stjórninni hér. En eins og kunnugt er, hefir ekkert úr því orðið; — betra þótti að taka útlendan mann í þá stöðu, bráðókunnan landi og þjóð, og algerlega óþektan að nokkrum skóg- ræktarframkvæmdum, enda fer stjórn skógmálanna undir eins hnignandi, er hún kemst í hendur þessa manns. Fáir eða engir embættismenn lands- ins þurfa eins mikið saman við alþ/ðu að sælda; eins og skógstjórinn. Af því er meðal annars augljóst hve mikils- varðandi það var að hafa íslenzkan mann í skógstjóraembættinu. Og þeg- ar þar við bætist að raálefnið, sem hann átti að starfa fyrir, var því sem nær algerlega óþekt öllum þorra lands- manna. Raunar var búið að rita tölu- vert um skógrækt af fyrirrennara skóg- stjórans, en það var mest alt á dönsku, og fór því fyrir ofan garð og neðan

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.