Ísafold - 18.06.1913, Page 1
| Kemur út tvisvar |
| í viku. Vérð árg. [
| 4 kr., erleudis 5 kr. §
[ eða ljdollar; borg- |
| istfyrirmiðjan júlí |
I erlendis fyrirfram. I
| Lausasala 5 a. eint. |
■ >.................... ■
| Uppsögn (skrifl.) |
1 bundin viS áramót, |
f erógild nema kom- |
| in só til útgefanda |
| fyrir 1. oktbr. og j
I só kaupandi skuld- .
1 laus viS blaSiS. 1
XXXX. árg.
Reykjavík, roiðvikudaginn 18 júní 1913
49. tölublað
I. O. O F. 946209.
Alþýðufél.bókasafn Templaras. 3 kl. 7—9.
Augnlæknmg ókeypis i Lækjarg. 2 mvd. 2—3
Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 10—3
Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7
Bæjargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12—3 og 5—7
Eyrna- nef- hálslækn. ók. Pósth.str. 14A fid. 2—8
íslandsbanki opinn 10—21/* og 5^/a—7.
ÍI.F.U.M. Lestrar- og skrifstofa 8 árd.—10 siðd.
Alm. fundir fid. og sd. 84/« siðd.
Landakotskirkja. Guðsþj. 9 og 6 á helgum.
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinh 11-21/*, 61/*—61/*. Bankastj. 12-2
Landsbókasafn 12—3 og 5—8. Útlán 1—8.
Landsbúnaðarfólagsskrifstofan opin frá 12—2
Landsfóhirðir 10—2 og^5—6.
Landsskialasafnið hvern virkan dag kl. 12—2
Landssíminn opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og£4—7.3*
Lækning ókeypis Þingh.str.23 þd.ogfsd. 12—1
Náttúrugripasafnið opið l1/*—21/* á sunnud.
Samábyrgð Islands 10—12 og 4—6.^
Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsími Reykjavikur Pósth.3 opinn daglangt
(8—10) virka^daga^helga daga 10—9.
Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11—12
Yífilstaðahælið. Heimsóki.artimi 12—1
p>jóðmenjasafnið opið þrd., fimd. og sd. 12—2.
Ofsia og eldavélar
selur
Kristján f’orgrímsson.
Hýja Bié
sýnir i kvöld (laugardag 14. júní)
og tiæstu kvöld:
Lista-íeikfimi.
Intiörotsþjófur t)já sjálf-
um sér.
Jtvernig kvenfðíkið á að
fara með eiginmenn sína.
t>að sem allir ungir menn
þurfa að vita.
Abætir. Frá fánadeginunt,
(skrúðgnnga, minnisvarðiun og Jón
Sigurðsson),
Takið oftii ! Nýja Bíó er hið
einasta leikhiís bæjarins, sem sýnir
þessar myndir og jafnan mun sýna
myndir af þvi, setn mestt eftirtekt
vekur i bæuum.
Pantið bíiæti i talsíma 344. Op-
inn hálf tima á undan sýntngum.
Erl.. simfregnir.
Khöfn 18. júní.
Danir um Vals-afrekið.
Dönsk blöð létu sér i
fyrsto nægja aðallega að
skýra frá atbnröunuin.
Einstöku þeirra létu í Ijósi,
aö þeim þætti fyrir þessu.
Eftir birtingu síma-
skýrslu Vals-skipstjórans
erfána-hertakantalinfylli-
lega lögnm samkvæm.
Mótmæliu talin vottur
um skilnaðarhug íslend-
inga.
Að svo stöddu skal ekki farið
frekar út í þessa umsögn danskra
blaða. Það mun koma í ljós á sín-
um tíma, að löginæti-fullyrðing þeirra
er lítils virði.
Og gaman er að sjá þau benda
á Jón Jónsson, Lárus H. Bjarnason
o. s. frv., sem íslenzka skilnaðar-
menn.
í næsta blaði mun Isajold birta
umsagnir nokkurra lögfræðinga bér
í bænum um Vals-afrekið.
Hér í bænum hefir sú saga geng-
ið, að stjórnarráðið hafi átt að fá
skeyti frá flotamálastjórninni dönsku
viðvikjandi þessu fánamáli, en það
er eigi satt, eftir þvi, sem ísafold
hefir fengið vitneskju um.
Fánamálið.
Tvær hliðar.
Löggilding á alþingi.
Hvar sem til hefir spurst um land
alt hefir Vals-afrekið 12. júní spurst
jafnilla fyrir — og alstaðar hefir
það gefið fána-hreyfingunni íslenzku
nýjan byr undir vængi.
Vals aýrekið hefir á sér 2 hliðar,
laga-hlið þ. e. lögleysu- og þjóðern-
is-hlið, þ. e. móðgun við íslenzkt
þjóðerni.
ísafold hefir átt tal við marga lög-
fræðinga vora síðustu dagana, og
meðal þeirra einhverja beztu lög-
fræðinga landsins.
Allir eru þeir á einu máli um það,
að framiu hafi verið skýlaus löqleysa
af Vals-manna hálfu, er fáninn var
tekinn, og engir þeirra viljað viður-
kenna, að Sökriqsartikelbrev frá 1752,
sem skírskotað hefir verið til, sé að
nokkru nýtt til varnar afrekinu.
Þetta bréf eða reglugerð talar ekki
um báta, heldur koýýardi- skip og
kaper-skip. Það hefir aldrei verið
birt hér á landi — og getur því af
þeirri ástæðu eigi komið til greina.
Loks mæla íslenzk lög, svo sem lög
annara þjóða tvimælalaust svo fyrir,
að haýnir heyri jafnan undir lög-
sagnarutndæmi hlutaðeigandi löqreglu-
stjóra.
Frá, laganna sjónarmiði mun það
því aldrei varið, að rétt hafi verið
að farið af Valsmnnnaforingjanum.
Afrekið er og verður lögleysa, sem
að sjálfsögðu verður að mótmæla af
hálfu íslenzkra stjór -arvalda af ein-
beittri festu Og alvöru.
En pótt svo væri, að Vals tiltekt-
irnar yrðu fóðraðar með lagakrókum
og bjargað úr lögleysudýinu — þá
verður móðgunin, sem hér hefir sýnd
verið islenzku þjóðerui, aldrei burtu
skafin.
Islenzki fáninn bláhvíti er orðinn
miklum meirihluta þjóðarinnar tdkn
hins íslenzka pjóðernis, þótt eigi sé
löggiltur og engu síður viðkvæmt
mál en löggiltir fánar annara þjóða
eru þeim.
Fyrir stórmiklum meiri hluta þjóð-
arinnar er það svo, að honum finst
þjóðerni sínu misboðið, þegar fán-
anum er misboðið. Svo er það og
tjáir því eigi að neita.
Og enginn vafi er á því, að í aug-
um þeirra Vals-manna hefir fáninn
verið hið sama — tákn íslenzks
þjóðernis — og pess vegna með hann
farið eins og gert var.
Dettur nokkurum manni í hug,
að Valsmenn hefðu farið að gera út
her-tökubátinn, ef í afturstafni kapp-
róðrarbátsins hefði venð dreginn upp
vasaklútur Einars Péturssonar eða
»svunta kærustunnar«, eins og J. Ol.
alþm. kemst að orði?
Nei, siður en svo!
Og ef vasaklútur hefði verið,
dettur þá nokkurum manni í 'nug,
að orðið hefði orsök þeirra tíðinda
í landi, sem raun varð á?
Það nær eigi neinni átt!
Nei, á bak við öll þessi tíðindi
liggur fyrst og fremst þetta: Fáninn
er þjóðernis-tákn vort og þjóðernis-
tilfinningu vorri var sár móðgun
sýnd — með a f r e k i n u,
Þ e 11 a er það, sem kveikt hefir
gremjubálið í hjörtum íslendinga um
land alt.
Var það tnjög illu heilli, að Vals-
menn skyldu verða til þessa verks,
því að nú leit svo út, sem misklíða-
öldumar milli vor og Dana mundi
lægja, þar sem það var eindreginn
vilji orðinn þjóðarinnar að leggja á
hilluna fyrst um sinn aðal-deiluefnið:
Sambandsmálið.
En gott er til þess að vita fyrir
oss, að ef nýtt skæru-bál verður úr
þessu milli þjóðanna, þá eru það
eigi vér, sem upptökin eigum.
Nú veltur alt á því, hvað hin
danska stjórn segir um Vals-tiltektirnar,
hvort hún lýsir vanþóknun eða vel-
þóknun á hinu framda verki.
Geri hún hið fyrra og láti sjá það
í framkvæmdinni, þá megum vér
því vel una.
En verði hitt uppi á teningnum,
virðist það ótvírætt benda til þess,
að ný stefna sé í upprás sunnan um
haf frá Eyrarsundi — skilgetin systir
þeirrar, sem gagnvart Finnum er beitt
af Rússa hálfu og — eftir því sem
Danir sjálfir halda fram — einnig
þeirrnr, sem landar þeirra eiga við að
búa á Suður-Jótlaudi.
Og er þá að taka því eins og
mónnum sæmir.
En hvað sem öðru líður, þá er eitt,
sem alþingi í sumar má eigi undir
höfuð leggjast.
Það verður að löggilda íslenzka
fánann eins vítt og valdsvið þess
frekast leyfir.
Þd er ekkert til leugur, er tálmi
því, að hann verði upp tekinn á allar
fánnstengur þessa lands.
Stefnum að því!
Carl Kuchler
er væntanlegur hingað til Reykja-
vikur þ. 28. júní ásamt dóttur sinni.
Hann er nú staddur á Færeyjum,
fer þaðan þ. 18. júní á Ceres til
Seyðisfjarðar, dvelur þar frá 21. til
26. júní og kemur svo hingað á
Skálhold. Héðan ætla þau feðgin að
fara gangandi til Þinevalla. Geysis,
Heklu og Eyjafjalla, fara svo norður
til Akureyrar þ. 3. ágúst, og ætla
gangandi þaðan til Mývatns. Heirn
fara þau aftur þ. 30. ág. á Ingólf
frá Akureyri.
Þessa ferð fer Kuchler á eigin
spítur, í því skyni mest að kynna
landið dóttur sinni. Ktichler hefir
jafnan verið mjög vinsamlegur í vorn
garð, gert mikið tií að auka þekk-
ingu á íslandi út um heim. Slikum
mönnum sæmir oss að taka vel á
móti og sýna góða gestrisni, hvar
sem kO'r.-.
17. júní.
í gær var 102 ára afmæli Jóns
Sigurðssonar.
Þess var minst hér í bæ þegar
frá morgni með því, að dregnar voru
veifur á stöng um allan bæ.
En sá var munur frá fyrri árum,
að í gær sást ekki einn einasti dansk-
ur ýdni um alla borgina, nema hvað
sagt er, að 2 klst. um morguninn
hafi hann sést á hegnjngarhúsinu,
en síðan. yerið dreginn niður.
Var þetta aúSv.'^ð ný« svar við
tiltektunum 12. júní, sællar mínri-'
ingar.
Opinberar byggingar drógu eng
an fána á stöng, og svo var og um
nokkura kaupmenn, en víðast hvar
blasti sá bláhvíti við loft. Skaftaði
bærinn i hreinum íslenzkum litum
á 102 ára afmæli Forseta, og hefir
aldrei sómt sér betur.
Til stóð, að efnt yrði til hátíða-
brigða á íþróttavellinum um kvöld-
ið og eins, að söngfélagið 17. júní
syngi úti, en hvorttveggja fórst fyrir
af óviðráðanlegum ástæðum. En með
því, að leitt þótti, að eigi yrði af-
mælisins minst eitthvað sérstaklega
og búist við, að almenningur mundi
lítt una því — tók stjórn stúdenta
félagsins sig til siðari hluta dags og
gekst fyrir skrúðgöngu að minnis-
varðanum á Stjórnarráðsblettinum um
kvöldið kl. 9.
Hófst lúðrahljómur á Austurvelli
kl. 8V2, en síðan gengið x skrúð-
göngu með íslenzka fána í fylking-
arbroddi um Kirkjustræti, Aðalstræti
og Austurstræti upp að minnisvarða.
Var þar saman kominn mikill mann-
söfnuður.
Upp við minnisvarðann mælti
Trúmála-hygleiðingar
frá nýguðfræðilegu sjónarmiði.
XI. Jesús Kristur guðs sonur.
(SíSari hluti).
Postulatímabilið skildi viS hina miklu
vaudaspurningu um guðs sonerni Jesú
Krists óútkljáSa. En kirkjan gat ekki
látiS þar viS sitja. Fyr eða síðar varð
hún að taka spurninguna upp til ræki-
legrar meðferðar, það því fremur sem
þegar áður en postulatímanum lýkur
er tekið að bóla á kenningarstefnum,
sem gátu beint orðiS háskalegar fyrir
hina ungu kristni, næðu þær að festa
rætur meðal manna.
Þegar hér er komið sögunni hafði
spurningin um guSs-sonernið að nokkru
leyti breytt viðhorfi. Þetta orsakað
ist af því, hversu megináherzlan í með-
vitund safnaöanna hafði smámsaman,
eftir því sem leið á postula-tímabilið,
færst yfir á guðlegu hliðina á persónu
Krists. Var það eðlileg afleiöing þess,
að trúarefniðer nú: guðs sonur, hafinn
til dýrðar, miklu fremur en guðs son-
ur, opinberaður í holdi. Nú er ekki
lengur spurt um það, hvernig maður-
inn Jesiis geti jafnframt verið guðs
sonur, heldur um hitt, hvernig guðs
sonurinn Kristur hafi jafnframt getað
verið maður. í þeirri mynd taka hinir
svo nefndu Gnóstikar spurningutia til
meöferöar. Og þeir sjá enga leiö til
að sameina þetta tvent, svo að niður-
staðan verður sú, að þeir neita m an n -
d ó m i Krists. Hann hafi að vísu birzt
á jörðu í mauns hkama, en að réttu
lagi hafi þetta veriö einber sjónhverf-
ing.
En þeirri niðurstöðu gat kirkjan ekki
Ólufur Björnsson ritstjóri nokkur
orð fyrir minningu Jóns Sigurðsson-
ar1) og var undir tekið með ferföldu
húrrahrópi. Síðan mælti formaður
Stúdentafélagsins, Halldór Jónasson
cand. fyrir minni íslenzka fánans og
var hrópað fyrir honum ferfalt húrra.
Loks var íslands minst með ferföldu
húira. En í milli lék lúðraflokkur-
inn ættjarðarlög.
Var svo aftur gengið i skrúðgöngu
niður i Austurvöll og skildu menn
þar.
Stúdentafélagið lét leggja vegleg-
an pálmaviðarsveig, með bláum og
hvítum silkibÖndum, framan á minn-
isvatðnnn.
Ymsar verzíanir í bænum skreyttu
glugga sína fagurlega íslenzkum
litum og höfðu frammi myndir og
smástyttur af fóni Sigurðssyni. Flest-
ar verzlanir voru lokaðar síðari hluta
dagsins. I Nýja Bíó var auk venju-
legra mynda sýndar skuggamyndir
frá Fánadeginum (12. júní) og að
lokum stór mynd af Jóni Sigurðs-
syni. Var henni tekið af mikium
fögnuði og lófataki.
Yfirleitt mátti segja, að 17. júní
væri veglega minst i gær, en lengst
munu menn samt minnast þess, hve
mikið var um þann b 1 á h v í t a og
iítið um þann rauðhvíta.
*) Þess er rétt að geta, að eldri menn
og sjálfsagðari miklu til að minnast For-
seta, synjnðu, er þeir vorn beðnir, með
þvi að bundnir voru flestir á Bókmenta-
félagsfundi og þess vegna tók Ó. B.
að sér — á síðBstu stundu — að segja
nokkur orð.
Prestskosningin
um Holt undir Eyjafjöllum fór
fram laugardag 14 þ. m. og var
Jakob Óskar Lárusson kosinn með
199 atkv., síra Kjartan Kjartansson
hlaut 8, eitt atkv. ógilt.
unað. Svo sannfærðir sem kristnir menn
voru nú orðnir um, að »skylt sé að hugsa
um Krist svo sem um guð, svo sem
dómara lifenda og dauöra« — eins og
komist er að orði í elztu kristilegu pré
dikuuinni, sem til er utan nýja testa-
mentisins (hinu svo nefnda s í ð a r a
Klemensarbréfi) — vegna þess starfs,
sem hann hafi leyst af hendi, þá var
sannur manndómur hans altof augljós
og áþreifanlegur til þess, að nokkur
skynsemi þætti í því að synja fyrir
harrn. Kirkjan var um þessar mundir
orðin aðallega heiðingja kirkja, sem átti
erfitt með að átta sig á kristindómi
Páls, svo mjög sem þar gætti gyöing-
legra hugtaka. Aftur á móti var guð-
fræði Jóhannesar guðspjalisins miklu
aðgengilegri hugsun þeirra kristinna
manna af heiðinglegvi rót, sem nú voru
orönir langsamlega meiri hluti í söfn-
uöunum, auk þess sem hugmyndin um
hið guðlega »orð«, sem þar var að
finna, var einmitt ein af uppá-
haldshugmyndum þeirra tíma, bæði
innan og utan kirkjunnar, einkum með-
al Stóumanna. Til þessarar hugmynd-
ar, eins og Stóuspekin fylgdi henni
fram, gripu því trúvarnarmenn 2. ald-
ar fegins hendi, til þess að sanna mönn-
um hve vel það gæti fariö saman, að
Kristur væri hvorttveggja í senn guðs
sonur og santiur maður : Kristur só
guðs sonur af þv/ að »oröiö« (þ. e.
hin guölega alheim3skynsemi, sem eftir
skoðun Stóumanna átti að hafa skilið
sig frá guödómnum, til þess að starfa
í heimiuum) hafi tekiö sér bústað í
honum. Þetta guðlega orð só »guð«,
af því að það sé útgengið frá guði.
Því sé líka Kristur guð; þó ekki í
algerðri merkingu, því að i algerðri
merkingu sé ekki nema e i n n guð,
faðirinn. Kristur só óæðri guð, annar
í röðiuni eða »hinn annar guð«. Sam-