Ísafold


Ísafold - 02.07.1913, Qupperneq 1

Ísafold - 02.07.1913, Qupperneq 1
■ 1=1—................ 1 Kemur út tvisvar 1 í viku. Yerð árg. I 4 kr., erlendis 5 kr. I eða 1^-dollar; horg- I ist fyrir miðjan júlí | erlendis fyrirfram. | Lausasala 5 a. eint. XXXX. árg. ísafoldarprentsmiðja. Ritstjóri: Ólafup Björnsson. Reykjavík, miðvikudaginn 2 júlí 1913. Talsími 48. | Uppsögn (skrifl.) | | bundin við áramót, | | erógild nemá kom- | | in sé til útgefanda [ I fyrir 1. oktbr. og j | só kaupandi skuld- | I laus við blaðið. J |j|jjj 1111111 »in|,"»,n",|nnnn,n||,n||1||n|||||,n||,íi 53. tölublað Deildarforsetar alþingis 1913. Magnús Andrésson forseti neðri deildar. Stefán Stefánsson forseti efri deildar. Ófriður hafinn milli Balkan-bandaþjóða. Khöfn, x. júli 1913 Búlgarar hafa byrjað ófrið gegn Orikkjum og Serbum fyrirvaralaust. Snarpar orustur nálægt Yskub. Eins og þruma úr heiðskiru lofti koma þessi afar-óvæntu ófriðar- tíðindi rétt eftir að bandaþjóðir eru búnar að taka miðlunarboðum Rússakeisara. Ótrúlegt mjög, að stórveldin láti þessi nýju styrjaldar-ósköp við gangast — eftir öll stóru orðin þeirra. I. O. O F. 94749. Alþýðufól.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—9. Augnlækning ókeypia i Lækjarg. 2 mvd. 2—3 Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 10—3 Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7 Bæjargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12—8 og 5—7 Eyrna- nef- hálslækn. ók. Pósth.str.láAfid. 2—8 íslandsbanki opinn 10—21/* og ö1/*—7. B.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8árd.—10 siðd. Alm. fundir fid. og sd. 81/* síód. Landakotskirkja. GuÓsþj. 9 og 6 á helgum. Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn 11-21/*, 51/*—61/*. Bankastj. 12-2 Landsbókasafn 12—3 og 5—8. Útlán 1—8. Landsbúnaðarfólagsskrifstofan opin frá 12—2 Landsfóhirðir 10—2 og 6—6. Landsskjalasafnið bvern virkan dag kl. 12—2 Landssíminn opinn daglangt (8—9) virka daga helga daga 10—12 og 4—7. Lækning ókeypis Þingb.str. 23 þd.ogfsd. 12—1 Náttúrugripasafnið opið l1/*—21/* á sunnud. Samábyrgð Islands 10—12 og 4—6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl. Talsími Reykjavíkur Póstb.3 opinn daglangt (8—10) virka daga helga daga 10—9. Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11—12 V-ífilstaðabælið. Heimsókn artimi 12—1 í»jóðmenjasafnið opið á bverjum degi 12—2. Nýja Bié sýnir miðvikudag, fimtudag og föstudag (virka daga kl. 8‘/2 og S1/^ sunndaga kl. 6, 7, 8 og 9) Vesalingarni;. (Hinir ógæfusömu). Mesta aðsóknarleikrit heimsins. 2. þáttur: Galeiðuþrællinn horgarstjóri. Langardag 5. júli og næstu kvöld verður sýndnr 3. þáttur: Cosette, fósturdóttir galeiðuþrælsins. Verð aðgöngnmiða sama og áður. Sigíús Blöndahl Rödingsmarkt 57, Hamburg 11. Inn- & útflutningsverzlun. Ifmboðsverzlun. Sfmsk. Blöndahl. — Hamburg. Ofna og eldavélar selur Kristján F*orgrímsson. MinningarsjóðuF Björns Jónssonar. Tekið móti gjöfum t skrifstofu og bókverzlun ísafoldar, pappírsverzlun- inni Björn Kristjánsson og verzlun Tóns frá Vaðnesi á Laugavegi. Nýjar bækur: Ljósaskifti, ljóðabálkur um kristnitökuna áíslandi, eftir Guðmund Guðmundsson skáld. Verð .90. Friður á jörðu, eftir Guðmund Guðmundsson skáld. 2. útgáfa. Verð 0.75. Hví s'ær þú mig? Erindi Haralds Níelssonar prófessors um dularfull fyrirbrigði. Verð 0.40. Fást í bókverzlununum. Þeir kaupendur ISAFOLDAR hér í bænum, sem skift hafa um heim- ili, eru beðnir að láta þess getið, sem allra fyrst, í afgreiðslu blaðsins, svo þeir fái blaðið með skilum. Alþingi. Þingið sett. Alþingi var sett í gær. Gengu þíngmenn fyrst til kirkju, eins og venja er til, og steig þar í stólinn síra Kristinn Daníelsson prófastur og og hafði hann valið sér að texta: Matth. 12. kap., 31.— 32. v., er svo hljóðar: Þess vegna segi eg yður, að sérhver synd og lastmæli mun verða fyrirgefið mönnunum, en lastmæli gegn andan um mun eigi verða fyrirgefið. Og hver sem mælir orð gegn manns- ins syni, honum mun verða fyrirgefið, en hver sem talar gegn heilögum anda, honum mun eigi verða fyrirgefið, hvorki í þessum heimi, nó heldur hinum til- komanda. Þvinæst söfnuðust þingmenn sarn- an í neðrideildarsal alþingis. Ráð- herra las upp venjulegt konungs-bréf um setning alþ. og bætti því við, að konungur hefði beðið sig flytja alþingi kveðju sína og óskir um heillavæn- legt starf þingsins landi og þjóð til gagns og góðs. Stóð þá upp Sig. Stefánsson þingm. ísafjarðar og bað konung lengi lifa, en þingmenn tóku undir með níföldu húrrahrópi. Þá gekk i forsæti aldursforsetinn Júlíus Havsteen. Lét hann fyrst prófa kjörbréf nýkosnu þingmannanna og reyndist ekkert athugavert við þau. Því næst var kosinn forseti samein. þings, og hlaut kosningu Jón Magnússon, þingm. Vestmanneyinga með 20 atkv. Ldras H. Bjarnason þingm. Reyk- víkinga hlaut 18 atkv., en 2 seðlar auðir. Hinn nýi forseti lét það vera sitt fyrsta verk í forsetastól að minnast þriggja þingmanna, er látist hafa sið- an á þingi í fyrra, þeirra Björns jónssonar, Jens Pálssonar og Jóns Jónssonar frá Múla. Hlýddi þing- heimur standandi á þau minningar- orð. Þessu næst var kosinn varaforseti i sameinuðu þingi, síra Si°. Steýáns■ son með 20 atkv. Eiríkur Briem hlaut 7 atkv.,P L.-H. B. 2, en 10 seðlar voru auðir. Skrifarar í samein. þingi voru kjörnir Jóh. Jóhannesson með 22 atkv. og Olafur Briern með 19 atkv. Þá var kosin kjörbréýanefnd og hlutu kosningu Björn Þorláksson, Guðjón Guðlaugsson, Jóh. Jóhannes- son, Kristján Jónsson og Ólafur Briem, allir með 17—18 atkv. Loks var Hákon Kristófersson kos- inn til Efri-deildar með 19 atkv., en Magnús Kristjánsson hlaut 18. í neðri deild var forseti kjörinn Magnús Amlrésson þingrn. Mýramanna rneð 15 atkv. Jón Ólafsson hlaut 8, en 2 seðlar auðir. Fyrri varaforseti varð Jón Ól. með 15 atkv, og annar varaforseti dr. Valtýr með 13 atkv. Skrifarar Eggert Pálsson og Jón Jónsson. í eýri deild var I jörinn forseti Stei'án Stefánsson 4. konungkj. með 11 atkv., en Júl. Havsteen hlnut 2, 1 seðill auður; varaforseti Guðjón Guðlaugsson með 7 atkv. og 2. varaforseti Einar Jóns- son þingm. Norðmýlinga með 8 at- kvæðum. Skrifarar Björn Þorláks- son og Steingrímur Jónsson. Var þar með lokið embættism.- kosningu þingsins. Skrifstofustjóri þingsins er ráðinn Halldór Daníelsson yfirdómari. Flokkaskiftiiig. Við kosningarnar i gær riðluðust gömlu flokkarnir Heimastj. og Sjálf- stæðisfl. algerlega. Aðalkappið var um forsetakosninguna i sam. þingi. Þykjast menn vita, að atkvæði þau, er L. H. B. fekk, hafi vtrið 8 frá gömlum Sjálfstæðism., en 10 frá gömlum Heimastj.mönnum, og að kosningu J. M. staðið einir 5 gamlir Sjálfst.m. og þá 15 gamlir Heima- stjórnarm. Hvað annars verður um flokkaskift- ingu í þinginu er ókfleift að segja að svo stöddu. Sagt er, að ráðherra og ýmsir með honum vilji halda uppi Sambandsflokknum frá siðasta þingi, en hversu margir þeir verða, er á þá sveif hallast, er eigi hægt um að vita nú. Hitt mun rétt, að 10 gamlir Heimastjórnarmenn hafa tekið sig út úr og mynduðu flokk út af fyrir sig í kosningunum. Það eru: Eggert Pálsson, Einar Jóns- son þm.Rang., Eiríkur Briem, Guðm. Eggerz, Halldór Steinsson, Jón Jóns- son sagnfr., Jón Ólafsson, Júlíus Havsteen, Láros H. Bjarnason og Stefán Stefánsson frá Fagraskógi. Þessir 10 voru það, er veittu L. H. B. fylgi til forsetamensku í samein- uðu þingi. Þá hafa 7 Sjálfstæðismenn mynd- að flokk með sér, er heldur saman um kosningar, og eru það: Benedikt Sveinsson, Bjarni Jónsson, Björn Kristjánsson, Hákon Kristófersson, Kristinn Daníelsson, Skúli Thorodd- sen og Þorleifur Jónsson. Þeir munu kosið hafa L. H. B. forseta samein. þings. Þá er og á döfinni að stofna bændaflokk, eins og getið var hér í blaðinu í vetur, og kvað fæð- ingarhríðin standa þessa dagana. Geta þeir þá orðið 4 flokkarnir í þinginu — auk flokksleysingja. — Sjálfstæðisfl., Heimastj.fl., Sambands- fl. og Bændaflokkur. Flokkar segjum vér, en ætti raun- ar heldur að vera; flokka-nöýn, með- an ekki er til annað en ramminn, meðan steýna þeirra er með öllu ómörkuð. Um steýnuna verður að fá greinar- gerð áður en stofnað er til fylgis eða andstöðu, hvort heldur er í blöðum eða meðal alþýðu. Á nöýnunum ætti enginn að láta teyma sig. Minning Björns Jónssonar. Andvari er um það leyti að koma út. Flytur hann mynd af Birni Jónssyni og ítarlega æfisögu hans eftir Einar Hjörleifsson. Islandsbanki. Aðalfnndur hans er haldinn í dag. Frá þessum mánaðamótum lætur Emil Schou af bankastjórastörfum. Siglir hann á Botniu næst og mun ætla að dveljast um hríð á Norður- Englandi sér til heilsubótar. Banka- stjórar verða áfram Sighvatur Bjarna- son og Tofte, jafnir að völdum, og, eftir því sem sagan segir, þótt ótrú- leg sé, verður Kristján Jónsson þriðji bankastjórinn (sbr. greinina Ótrúleg ráðstöýun hér í blaðinu). Otrúleg ráðstöfun. Sú saga gekk hér í bæ í gær, að búið væri aði gera Kristján Jónsson háyfirdómara að þriðja bankastjóra íslandsbanka fyrst um sinn, setja hann í stöðu þá, er ráðherra H. Hafstein hefir haft orlof frá siðast- liðið ár og hefir enn. Fylgdi það með, að þessi ráðstöfun hefði gerð verið af erlendu bankaráðsmönnun- um 3 og ráðherra, að fornspurðum íslenzku bankaráðs-mönnunum, unz þeim í fyrradag hafi verið tilkynt að svona ætti þetta að vera, svo væri úrskurðað af meiri hluta banka- ráðsins. Þessi einkennilega ráðstöf- un kvað eiga að verða heyrinkunn á aðalfundi íslandsbanka í dag. Þessi saga er ein af þeim, sem allir er heyra, svara til um: Þetta er ekki satt! Þetta er óhugsandi! Þetta hlýtur að vera tilbúningur! Svo ótrúlegt finst hverjum manni það og frámunalega óviðkunnanlegt, að æðsti dómari landsins gerist undir- tyllubankastjóri í prívatbanka, við hliðina á háyfirdómaraembættinu. Sú skoðun er með réttu að ryðja sér æ meira rúms með þjóðinni, að dómarar alment eigi engin annarleg störf að, hafa á hendi. Hvað þá heldur æðsti dómari landsins! Að hann taki að sér svo háttað starf, setji hér er um að tefla, við einstakra manna bankastofnun, er svo og svo oft þarf að leita dóm- stólsins, sem hann er æðsti maður i — það nær ekki neinni átt!

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.