Ísafold - 20.08.1913, Page 1
iinmi m
Kemur út tvisvar
í viku. Verð árg.
4 kr., erlendis 5 kr.
eða l^d'ollar; borg-
ist fyrir ruiðjan júlí
erlendis fyrirfram.
Lausasala 5 h. pint.
ISAFOLD
ísafoldarprentsmiðja.
Ritstjóri: Ólafur Björnsson.
Talsími 48.
XXXX. árg.
Reykjavík, miðvikudaginn 20. ágúst 1913
f Uppsögn (skrifl.)
| bundin við áramót,
| erógildnemakom-
| in só.til útgefanda
| fyrir 1. oktbr. og
| sé kaupandi skuld-
| laus við blaðið.
66. tölublað
I O O F. 948219.
Alþýðufól.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—9.
Augnlæknins: ókeypis i Lækjarg. 2 mvd. 2—3
Borgarstjóraskrifstof&n opin virka daga 10—8
Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7
Bæjargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12—8 og 5—7
Eyrna- nef- hálslækn. ók. Pósth.str.liAfid. 2—8
íglandsbanki opinn 10—21/* og B1/*—7.
K.F.U.M. Lestrar- og skrifstofa 8 árd.—10 siÖd.
Alm. fundir fid. og sd. 81/* sibd.
Landakotskirkja. öuósþj. 9 og 6 á helgum.
Landakotsspítali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankiun 11-21/*, B*/«—61/*. Bankastj. 12-2
Landsbókasafn 12—3 og B—8. Útlán 1—8.
Landsbúnabarfélagsskrifstofan opin frá 12—2
Landsféhiróir 10—2 og B—6.
Landsskjalasafnið hvern virkanldag kl. 12—2
Landssiminn opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
Lækning ókeypis Þingh.str. 28 þd.og fsd. 12—1
Náttúrugripasafnib opib l1/*—21/* á sunnud.
Samábyrgö Islands 10—12 og 4—6.
Stjórnarrábsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjavikur Pósth.8 opinn daglangt
(8—10) virka daga helga daga 10—9.
Tannlækning ókeypis Pósth.str. láBmd. 11—12
Vifilstaðahælib. HeimsókLartimi 12—1
Þjóbmenjasafnið opib á hverjum degi 12—2.
Nýja BI6
sýnir í kvöld og næstu kvöld:
Járbrautarferð í Kali-
forníu.
Listamyndir frá einum af fegurstu
svæðum jarðarinnar.
Eftirlætið í skrifstofunni.
Amerísk gamanmynd.
Tengdamamma.
Amerísk gamanmynd.
Aðalhlutverkið leikur Mr. Bunny.
Þakjárn
ýmsar lengdir,
er langódýrast í
verzlun B. H. Bjarnason.
Sigíús Biöndahl
Rödingsmarkt 57, Hamburg 11.
lnn- & útflutningsverzlun.
Umboðsverzlun.
Allar íslenzkar vörur seldar
hæsta verði.
Símnefni: Blöndahl. — Hamburg.
Ofna og eldavélar
selur
Kristján rorgrímsson.
Minningarsjóður
Björns Jónssonar.
Tekið móti gjöfum i skrifstofu og
bókverzlun ísafoldar, pappirsverzlun-
inni Björn Kristjánsson og verzlun
Tóns frá Vaðnesi á Laugavegi.
Nýjar bækur:
Ljosaskifti,
ljóðabálkur um kristnitökuna áíslandi,
eftir Guðmund Guðmundsson skáld.
Verð 0.85.
Friður á jörðu,
eftir Guðmund Guðmundsson skáld.
2. útgáfa. Verð 0.75.
Hví slær þú mig?
Erindi Haralds Nielssonar prófessors
um dularfull fyrirbrigði.
Verð 0.40.
Fjármaðurinn,
eftir Pál Stefánsson frá Þverá.
Verð 1 kr.
Fást í bókverzlununum.
Stjórnarskrármálið
1.
Snemma á þinginu báru þeir Bjarni
frá Vogi, Skúli Thoroddsen og Bene-
dikt Sveinsson fram mjög djúptækt
stjórnarskrárfrumvarp. Nefnd 7
manna var skipuð til að íhuga það.
Alit hennar er nú komið. Hún hefir
klofnað. í minni hluta er Bjarni frá
Vogi einn, i meiri hluta eru Jón
Magnússon, Jóhannes T6hannesson,
Pétur Jónsson, Lárus H. Bjarnason,
Jón Ólafsson og Stefán Stefánsson.
Þrír hinir siðastnefndu hafa þó und-
irskrifað nefndarálitið með fyrirvara.
Skal nú greint nokkuð frá tillög-
um meiri og minni hluta.
Meiri hluta álitið.
í áliti meiri hlutans segir, að mál-
ið hafi rætt verið all-itarlega á 12
nefndarfundum og meiri hlutinn
komist að þeirri niðurstöðu að halda
sér í öllum aðalatriðum við frum-
varpið frá 1911.
En helztu breytingarnar frá því
eru, að fjölgun ráðherra er ekki stjórn-
arskrár-ákveðin, heldur leyft að breyta
tölu þeirra með einföldum lögum
og jafnframt ákveðið, að landritara-
embættið leggist niður, ef ráðherr-
um sé fjölgað.
Ríkisráðsákvæðið er felt burtu, en
í stað þess sett inn í frv., að ráð-
herra íslands skuli bera upp fyrir
konungi lög og mikilvægar stjórnar-
ráðstafanir par sem hann (þ. e. kon-
ungur) ákveður.
Tvískifting þingsins vill meiri hlut-
inn halda, skipa neðri deild eins og
nú er gert, en efri deild skipuð 14
pingmönnum kosnum hlutfallskosningu
í einu lagi um land alt. Auk þess
skal kjósa 14 varaþingmenn til efri
deildar.
Kjörtimabilið vill meiri hlutinn
ákveða 4 ár til neðri deildar, en 8
ár til efri deildar og fari helmingur
efri deildar þingmanna frá 4. hvert ár.
Kosningaröttur. Hann vill meiri-
hlutinn ákveða á þessa leið:
»Kosningarétt við óhlutbundnar
kosningar til alþingis hafa karlar og
konur, sem fædd eru hér á landi
eða hafa átt hér lögheimili síðastlið-
in 5 ár og eru 25 ára, er kosningin
fer fram; þó getur enginn átt kosn-
ingarrétt, nema hann hafi óflekkað
mannorð, hafi verið heimilisfastur i
kjördæminu 1 ár og sé fjár síns ráð-
andi, enda ekki í skuld fyrir þeg-
inn sveitarstyrk. Ennfremur eru þau
skilyrði sett, að hinir nýju kjós-
endur, konur, og þeir karlmenn, er
ekki hafa kosningarrétt samkvæmt
stjórnarskipunarlögunum frá 1903,
ýái ekki rétt pann, er hér ræðir um,
öll l einti, heldur pannig, að pegar
semja á alpingiskjörskrá í nœsta sinn
ejtir að lög pessi eru komin í gildi,
skal setja á kjörskrána pá nýja kjós-
endur eina, sem eru 40 ára eða eldri,
og að öðru leyti julhuegja hinum al-
mennu skilyrðum til kosningarréttar.
Nœsta ár skal á sama hátt bæta við
peim nýjum kjósendum, sem eru yy
ára, og svo jramvegis, lækka aldurs-
markið um eitt ár l hvert sinn, til
pess er allir kjósendur, konur sem
karlar, haja náð kosningarrétti svo
sem segir í upphafi pessarar greinar.
Nú hafa hjón óskilinn fjárhag, og
missir ekki konan kosningarrétt sinn
fyrir því.
Með sömu skilyrðnm hafa karlar
og konur, sem eru 3 5 ára eða eldri,
kosningarrétt til ejri deildar. Að öðru
leyti setja kosningalög nánari regl-
ur um kosningar og um það, í
hverri röð varamenn skuli koma í
stað aðalmanna i efri deild«.
Kjörgengi. Kjörgengur til neðri
deildar alþingis er hver sá, sem
kosningarrétt á til deildarinnar; kjósa
má samt þann mann, sem á heima
utan kjördæmis eða hefir átt þar
heima skemur en eitt ár. En heim-
ilisfastur skal hann hafa verið á ís-
landi að minsta kosti siðasta árið
áður en kosning fer fram. Kjör-
gengi til efri deildar á hver sá, er
kosningarrétt á til þeirrar deildar.
Þeir dómendur, er hafa ekki um-
boðsstörf hendi, eru þó hvorki kjör-
gengir til neðri né efri deildar.
Undanþegnir þessu ákvæði eru
núverandi dómarar landsyfirréttar og
breyting búsetuákvæðisins nær eigi
til þeirra, sem sæti eiga á alþingi,
er stjórnskipunarlögin öðlast gildi
(Valtýr ?).
Enn vill meirihlutinn jella burt
ákvæði frv. 1911 um alpýðu-atkvæði
og hafa að eins neðri deild pingsins
rjújanlega og láta kosningar fara
fram eftir þingrof eigi síðar en innan
2. mánaða og stefna þingi saman
eigi síðar en á næsta ári.
Álit minni hlutans.
Minni hlutinn »lætur sér lynda«,
að fyrir brottnám rikisráðsákvæðisins
komi hið nýja ákvæði »þar sem kon-
ungur ákveður*.
En aðalágreiningurinn er um þrent:
1. Fyrirkomulag þingsins: Minni
hlutinn vill að vísu hafa tvískift
þing, en að eins 6 af Efrideildar-
þingmönnum hlutfallskosna, en 8
kosna af Sam. þingi.
2. Kosningarétturinn. Hann vill
minni hlutinn að eins binda við 25
ára aldur, en sleppa öllum öðrum
skilyrðum.
3. Kjörgengi. Minni hlutinn vill
binda kjörgengi við 25 ára aldur
eins og kosningaréttinn, en sammála
minni hluta um landsvist sem skil-
yrði kjörgengis.
Auk þessa ber meiri og minni
hluta það i milli, að minni hlutinn
vill eigi láta stjórninni heimilt að
víkja embættismanni frá, nema eftir
dómi.
Helztu aðrar breytingar frá því,
sem nú er, þ. e. breytingar í frv.
1911, sem eigi hefir verið hróflað
við í þessu frv. eru: 1. Konungur
á að vinna eið að stjórnarskrá Islands.
2. Tekið upp í stjórnarskrána, að
konungur sé ábyrgðarlaus og jriðhelg-
ur. 3. Aukaþing skal kaiiað saman,
ef meiri hluti þíngmanna i hvorri
deild óskar þess. 4. Yfirskoðunar-
menn landsreikninga skulu vera 3
(i stað 2 nú) og kosnir hlutfallskosn-
iiigu.
II.
Það sem aðallega fær Isajold ánægju
í þessu nýju frumvarpi, er það þrent,
að konungkjörna sveitin á nú að
fjúka fyrir ætternisstapa, að yfirdóm-
arar eru undanþegnir kjörgengi og
að leið virðist fundin út úr ríkisráðs-
þrætunni. — Sá er fyrstur benti á
þessa leið var hr Skúli Thoroddsen í
fyrra vetur einhverntima. ísafold
leizt þá þegar vel á hana og hefir
jafnan gert sitt til bæði leynt og
ljóst að halda henni á lofti. Þessi
miðlunartillaga gerir hvorttveggja í
senn að taka sáran brodd úr stjórn-
arskránni í augum vor íslendinga og
er auk þess svo löguð, að ómögu-
lega getur Valdið staðfestingarsynjun
hjá konungi.
En varhugaverðu ákvæðin í þessu
nýja frv. eru í vorum augum fyrst
og fremst skipun ejri deildar. í frv.
1911 var þó eigi gert ráð fyrir meiru
en 10 af 14 efri deildar þingmönn-
um hlutfallskosnum. En nú á það
að vera öll deildin. Þá (1911) var
að vísu gert ráð fyrir lengra kjörtima-
bili, 12 árum í stað 8 nú, en kosn-
ingaréttar — skilyrðið líka nú fært úr
30 upp í 35 ár. Það er mikið íhug-
unarefni, hvort eigi yrði með þessu
fyrirkomulagi riðin of römm ihalds
taug, og mættum vér líta í því efni
t. d. til Dana, hve mjög það hefir
háð þeim að lítið samræmi hefir
verið milli þingdeildanna hjá þeim,
efri deildin (landsþingið) murkað af-
kvæmi neðri deildar (fólksþingsins)
o. s. frv. og verið illur þrándur í
götu þjóðarviljans í ýmsum áhuga-
málum hans svo árum skifti.
Þá þykir oss og nokkuð íhalds-
kend veitingin á kosningarétti til
kvenna og hjúa með þessu 15 ára
skilyrði. Þar tekið með annarri
hendinni það sem gefið er með hinni.
Annars skulum vér eigi að þessu
sinni fara ítarlega út í stjórnarskrána
— eigi svo mikill tími verið til
íhugunar.
Væntanlega er hugsanleg miðlun-
arbraut í ágreiningsatriðum, sem vinni
það á, að miklu mestur hluti þings-
ins geti sammála orðið um málið,
því að það varðar ákaflega miklu
að þéttur meiri hluti sé að' baki
stjórnarskrá þeirri, er þingið sendir
nú frá sér.
Brezkur botnv. strandaði
viö Hjörsey á Mýrum seint í vik-
unni sem leið. Allir skipverjar kom-
ust af, með naumindum þó, og komu
hingað á Ingólfi í gærmorgun og taka
sór fari á Sterling þ. 24. þ. m.
Skipið sökk von bráðara.
Góðum gestum fagnað.
Síðastliðinn sunnudag var, fyrir
fcrgöngu háskólaráðsins, efnt til heið-
urssamsætis í Iðnaðarmannahúsinu
fyrir þá prófessorana Larl Lorentzen
og ^Andreas Heusler. Sátu það undir
40 manns, en mundu þó miklu
fleiri óskað hafa þar að vera. En
skammur frestur til undiibúnings olli,
að eigi varð náð til þeirra.
Vararektor háskólans, Guðm Hann-
esson, stýrði samsætinu í fjarveru
rektors, Guðm. Magnússonar. Hann
mælti og fyrir minni Lorentzen (á
dönsku). Mintist hann Vesturheims
sem framtiðarlandsins i mörgum
skilningi og benti á hvílíkt gagn oss
mætti að því verða að komast í
meiri menningar-kynning við Ame-
ríkumenn. Lorentzen væri fulltrúi
þeirrar menningar, hingað kominn í
því skyni að kynna sér vora menning
og vinna að nánari kynning milli
Vestanmanna og vor. Samúð vor
fylgdi honum og allar góðar óskir.
Þá talaði Björn M. Olsen prófess-
or fyrir minni Heuslers, hóf mál sitt
á þýzku, en sneri síðan yfir á ís-
lenzka tungu, með því að heiðurs-
gesturinn kynni hana alveg eins og
við hinir. B. M. Ó. mintist eldri
þýzkra íslandsvina, svo sem Kon-
ráðs Maurer, Möbiusar o. fl. En í
tölu núlifandi þýzkra vina íslands
væri Heusler einn hinn bezti, enda
einhver allra-færasti og helzti mað-
urinn í íslandsvinafélaginu. Hans
vináttu mættum vér sjálfsagt, svo
sem margra annara útlendinga, þakka
fyrst og fremst okkar gömlu óvið-
jafnanlegu bókmentum. — Gamlar
sagnir vorar hermdu um nomir við
vöggu ómálga barna, þær er spunnu
örlagaþáttu. Það væri víst, að eins
slík norn hafi verið viðstödd við
vöggu Heuslers: Heillanorn Islands.
Lauk máli sínu á einlægum óskum
um og farsæld og hamingju Heusl-
er til handa.
Carl Lorentzen prófessor þakkaði
því næst fyrir hinar ágætu viðtökur,
sem hér ætti hann að fagna frá full-
trúum háskólans, stjómarinnar, al-
þingis, blaðanna, iðnaðar o. s. frv.
Kvaðst hingað kominn sem fulltrúi
New-York-háskólans — og skoða
þessar viðtökur sem samúðarvott við
þá stofnun — og ameríska menning.
New-York háskólinn hefir bundist
fyrir því að koma amerískri menn-
ing í nánara samband við norræna
menning. Mér í því skyni verið
falið að ferðast um Norðurlönd og
kynna mér ástandið. í upphafi, þeg-
ar eg fór að berjast fyrir þessari
hugmynd, var hlegið að mér. En
svo tókst mér að vekja eftirtekt
Vestur-Danans, Niels Poulsen áfyrir-
ætlunum mínum og hann stofnaði
sjóð í þessu skyni, er hann gaf til
100.000 dollara. Svo kom og And-
rew Carnegie til, og nú varð það
úr, að 3 norrænir piltar, einn frá
Danmörku, annar frá Svíþjóð og
þriðji frá Noregi voru styrktir til
að fara til Pittsburgh, til þess að
leggja stund á verkleg fræði við há-
skólann þar. Það var byrjunin að
góðri hreyfingu til aukinna kynna