Ísafold


Ísafold - 10.09.1913, Qupperneq 1

Ísafold - 10.09.1913, Qupperneq 1
iiiIiMH!iiiiiiniiiiiiiiniiii’«niili[iHM!!i:!;.«;i I Kemur út tvisvar í viku. Verð árg. 4 kr., erlendis 5 kr. eða 1J dollar; borg- ist fyrir miðjan júlí erlendis fyrirfram. Lausasala 5 a. eint. | TJppsögn (skrifl.) I bundin við áramót, | er ógild nema kom- | in sé til utgefanda 1 fyrlr 1. oktbr. og I só kaupandi skuld- ! laus við blaðið. ■ ........... ■ Reykjavík, miðvikudaginn 10. sept. 1913. XXXX. árg. I O. O F. 94959. Alþýðafél.bókasafn Templaras. 8 kl. 7~P Augnlæknicg ókeypis í Lœkjarg. 2 myd. : -8 Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 1 3 Bœjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 7 Bœjargjaldkerinn Langav. 11 kl. 12—8 og * 7 Byrna- nef- hálslækn. ók. Pósth.str. 14A fif d • 8 íslandsbanki opinn 10—2*/« og B*/a—'7. K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8árd.—10 iðd. Alm. fnndir fid. og sd. 8*/• sibd. Landakotskirkja. Gnbsþj. 9 og 6 á helgam. Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn U-21/*, 51/*—6'/t. Bankastj. 12*2 Landsbókasafn 12—B og 6—8. Útlán 1—8 Landsbúnabarfélagsskrif8tofan opin frá >2 -2 Landsféhirbir 10—2 og 5—6. Landsskialasafniö hvern virkan dag kl. 12—2 Landsslminn opinn daglangt (8—9) virka daga helga dftga 10—12 og 4—7. Lækning ókeypis Þingh.str. 23 þd. og fsd. lf -1 Ifáttúrugripasafnió opiÓ l1/*—21/* á snnnnd, Samábyrgb Islands 10—12 og 4—6. Stjórnarráósskrifstofnrnar opnar 10—4 dagL Talsimi Reykjavikur Pósth.3 opinn daglor.gt (8—10) virka daga helga daga 10—9. Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11 -12 Vifilstaðahælib. Heimsóki.a,rtimi 12—1 Þjóbmenjasafnió opib á hverjum degi 12—2. Wýja B16 sýnir í kvöld og næstu kvöld: Ný tfzka. Mjög hlægilegt. Sá sem hún elskar. Amerískur sjónleikur. Alheimsfréttir. Nam Nam er framtíðarvindillinn í Reykja- vík. Fæst í tóbaks- og sælgætisverzl. á Hótel Island. Sigfús Blöndahl Rödingsmarkt 57, Hamburg 11. lnn- & útflutningsverzlun. Umhoðsverzlun. Allar íslenzkar vörur seldar hæsta verði. Slmnefni: Blöndahl. — Hamburg. Fánadrápið í Efri deild. Þess gátum vér í siðasta blaði, að 7 hefðu verið fánavinirnir í Ed. við 2. umræðu fánamálsins og með sam- heldni þeirra væri fánafrv. trygð góð afdrif í þinginu. Vér gátum þess og að engin ástæða væri til þess að ætla annað eu að fánavinirnir héldu saman einnig við 3. umræðu. En veðrabrigðin eru stundum skjót í þingsölum vorum! Laugardagurinn varð lukkudagur fánans. Þá var fánafrumvarpið hreins- að, fáninn formerkislaus samþyktur i deildinni. En á mánudaginn snerist blaðið við, og mæðudagur fánans kom í staðinn. Eínn helzti fánavinurinn í deild- inni, síra Siqurður Stefánsson gekk í óvinaflokk fánans, brást algerlega öllum vonum — rauf fylgismanna- flokk fánans og marði í gegn með atkvæði sinu rökstudda dagskrá, sem sennilega verður, því miður, sú tál- gröf, sem fánafrumvarpið eigi rís úr fyrst um sinn. Mánudagsatferlið í Ed. var á þessa leið: Fánafrv. hafði verið samþykt við 2. umr. í Ed. með þeirri breyting, að 1. gr. var breytt svo, að þar stóð: Hér á landi skal vera löggiltur ís- lenzkur fáni, í stað landsíim. Rökstudd dagskrá frá Eiríki Briem um að afgreiða fánamálið ekki frá þessu þingi var þá feld með 7 gegn 6 atkv. Einn þessara 7 var síra Sig. Stef. En við 3. umræðu öndverða reis upp Steinqrímur Jónsson, 3. kgk. og bar upp svolátandi rökstudda dagskrá: »í trausti til þess, að ráðherra skýri Hans Hátign konunginum frá vilja alþingis í þessu máli og beri það upp fyrir honum, og stjórnin síðan leggi fyrir næsta reglulegt alþingi frumvarp til laga um íslenzkan fána — tekur deild- in fyrir næsta mál á dagskrá«. Vitaskuld átti þessi dagskrá að eiga alveg sömu forlög og dagskráin við 2. umræðu, — ekkert það nýtt var fram komið framan við tjóldin, sem breytt gæti afstöðu deildarmanna. En þetta fór eigi all-lítið á annan veg. Eftir ræðu Steingríms töluðu þeir ráðherra og síra Sig. Stefánsson og þykir Isafold rétt, að þær ræður verði landsmönnum kunnar í heild sinni. Þær voru á þessa leið: Ráðherra. Þessi dagskrartillaga, sem fram er komin, gefur mór tilefni til aö bæta nokkrum orðum viS það, sem eg sagði um málið við 2. umræðu hér í deildinni. Þó að eg sé mótfallinn því, að þ e 11 a frumvarp, sem nú liggur fyrir, verði samþykt sem lög frá Alþingi, og verði yfir höfuð að ráða frá því, að málið só afgreitt í frumvarpsformi frá þinginu í þetta skifti, þá er það engan vegin svo að skilja, að eg só andvígur því, að ísland fái sór löggiltan sórstakan fána, er táknað geti stöðu þess sem sórstakt land með sórstakri þjóð, þeg- ar slíkt getur orðið svo, að oss só til nokkurs sæmdarauka. Ástæðurnar fyrir afstöðu þeirri, sem eg nú hefi orðið að taka og verð að taka gagnvart fánafrumvarpinu, eru alt aðrar. Eins og eg hefi margsinnis tekið fram, álít eg máliö ótímabært nú, og óhyggilegt á ýmsan hátt að hreyfa fyrstu málaleitunum við kon- unginn um þetta mál í föstu frumvarps formi, sem ekki má frá víkja, þótt hann hefði eitthvaö að athuga. Þessu máli horfir að því leyti öðruvísi við on öðrum málum, sem þingið hefir til meðferðar, að vór eigum hór að etja gegn þeirri lögskýring eða stjórnmála- kenning frá fornu fari, að fánamál yfirleitt, þ. e. alt er að fána lýtur hór á landi, só »sameiginlegt mál«, og liggi þannig ekki undir valdsvið Alþingis, — auk þess sem málið er þess eðlis, að það tekur sórstaklega til konung- dómsins. Þegar af þeirri ástæðu er nauðsynlegt að varast þær aöferöir, sem hleypt geti stifni í málið frá upp- hafi. Ennfremur er frumvarpið svo stutt- aralegt, óákveðið og að sumu leyti óheppilega orðað, að jafnvel einnig af þeirri ástæðu út af fyrir sig virðist mór það ekki til þess fallið að verða að lögum. Breytingin, sem samþykt var hér í deildinni, að hafa orðið »fána« í stað »landsfána« hefir ekki gert frumvarpið ákveðnara nó minkað hætt una á ágreiniugi og deilum um réttan skilning þess. Só það skilið eins og nefndarálit meiri hluta nefndarinnar hór i deildinni segir að eigi að skilja það, sem sé að það geri enga breytingu á neinum núgildandi lögum, þá er hætt við, að sumum kynni að virðast nokkuð lítið á unnið við það. Eg tel það eina afleiðinguna af því, að byrj- að er frumvarpsleiðina af alþingis hálfu, að ekki hefir verið talið vogandi að fara opinskátt fram á meira en hið allra minsta m i n i m u m. Þó að það skifti litlu í samanburði við annað, má og telja það galia á frumvarpinu, hve orðalagið í 1. gr. : »Hér á iandi skal vera löggiltur fáni« er óviðkunnanlegt, ef ekki villandi, sérstaklega fyrir útlendinga, er lesa lögin á útlenda tungu, og sjá þau dag- sett og staðsett í Danmörku, undir- skrifuð af konnngi á Ámalienborg. Fyrir þá liggur beinast við að halda, að »Hór á landi« merki Danmörk en ekki Island. — En, sem sagt, þetta er nú smáræðl. Af þessum upptöldu ástæðum verð eg að vera þeirrar skoðunar, að ekki só rótt að samþykkja þetta frumvarp, heldur verði að velja aðra leið til þess að láta í ljósi vilja þingsins. I dag- skrártillögunni er einmitt bent á þá leiö, sem eg áiít róttasta. Verði tillagan samþykt, þá mun eg telja mór skylt að bregðast ekki þvi trausti, sem þar er lýst, og gjöra það, sem í mínu valdi stendur, til þess að fá framgengt því, er þar er farið fram á. Mun eg skýra H. Hátign konung- inum frá óskum þingsins, bera fram fyrir hann tillögu um, að fyrir næsta alþingi verði lagt stjórnarfrumvarp um þetta efni, og leggja áherzlu á að því verði framgengt. Ætti það frumvarp að vera í öllu falli skýrara og ákveðn- ara en þetta, ef til vill líka nokkru víðtækara en nefndarálit meiri hlutans hór í deildinni segir fyrir. Ef stjórn- arskrárbreytingin verður samþykt hór í deildinni, og þar af leiðandi auka þing næsta sumar, verður biðin þá ekki löng, þangað til menn fengju að vita af eða á um þetta mál, og tæki- færi til nýrra ráðstafana með nýjum kröftum, ef ekki iánast þessi tiiraun. Þetta álít eg þá aöferð sem só 1 í k- 1 e g u s t til þess að fá framgengt sór- stökum islenzkum fána, sem einhver dálítill fengur væri í; en að samþykkja þetta frumvarp nú, álít eg beint skað- legt fyrir málið sjálft. Því að jafnvel þótt staðfesting fengist, sem mjög verð- ur að telja vafasamt, þá væri þar með loku skotið fyrir tilraunir til þess að fá betri, ákveönari og ef til vill víð- tækari ákvæöi um þetta efni í náinni framtíð. Þeir, sera vilja fánamálinu vel, ættu því að 3amþykkja þessa rök- studdu dagskrá. Sig. Stefánsson. Mér hefir skilist, að mótstaða hæstv. ráðherra gegn þessu frumvarpi væri einkum fólgin 1 því að hann teldi málið ekki nógu vel undir búið til að leggjast að þessu sinni fyr ir Hans Hátign konunginn, sem lög frá alþingi. Málið þess eðlis, að þingið ætti áður að vita um vilja hans. Nú hefir hann lýst því yfir í þess- ari hv. deild, að þessar mótbárur hans snertu alls ekki fánamáiið sjálft, því væri hann einlæglega hlyntur eins og hann þættist áður hafa sýnt í nef nd- i n 11 i, en með frumvarpi þessu væri miklu minna unnið en æskilegt væri. Sökum þess gæti hann ekki lóð flutn- ingi þess fyrir H. H. konunginum það fylgi, sem hann annars teldi sór skylt að veita því. En nú hefir hann lýst því skýrt yfir að hann vilji gera alt sem í hans valdi stendur til þess á næsta þingi að geta lagt fram stjórnarfrumvarp um íslenzkan fána, sem ekki væri v e r r a, heldur betraen þetta frumvarp, sem óneitanlega er að því er mór skilst ekkl svo greinilega orðaö, sem skyldi, og getur því orkað nokkurs tvímælis, hvernig skilja eigi. Svona skýra yfirlýsing hefir hæstv. ráðherra ekki fyr gefið á þessu þingi, að minsti kosti ekki hór í deildinni. Að þessu leyti horfir málinu nokkuð öðruvísi við en áður. En málinu horfir að öðru leyti svo við, hvort sem litið er til þjóðarinnar, þingsins eða afstöðu ráðherrans, að honum má vera það full-ljóst, að só sú leið farin, sem hin rökstudda dag- skrá, sem fram er komin, bendir á og hann ekki getur sýnt þann árangur af viðleitni sinni að koma málinu í betra horf en það nú er í, eða með öðrum oröum kemur með erindisleysu fram fyrir næsta þing, þá muni draga upp þá bliku hér á landi, er það ól kæmi úr, sem hann eða hver ráðherra sem væri mætti lítt á móti halda. Aftur á móti myndi hann hljóta þökk allra góðra íslendinga, ef honum tækist að reka þetta erindi, er hann nú telur sig fúsan til, með góðum árangri. Sjálfum honum væri það og ekki minst hagkvæmt. Frestun málsins myndi og í augum allra einlægra fylgismanna þess talin að hafa verið viturlega ráðin, yrði hún til þess, að fyrir næsta þingi lægi stjórnarfrumvarp um fánann betur úr garði gert að formi og efni en þetta frumvarp, enda skiftir það minstu hvort lög um fánann fást árinu fyr eða seinna. Mái þetta er einn þáttur úr sam- bandsmálinu og mór þykir mikið uudir því komið, að meðferð þingsins á því spilli ekki í neinu góðri samvinnu við stjórnmálamenn Dana og konunginn í sambandsmálinu, en til þess er dag- skrárleiðin að þessu sinni öllu líklegri en frumvarpsleiðin. Eg mun því greiöa atkvæði með dagskránni, en eg tek það skýrt fram, að eg geri það með þeim formála, að hæstv. ráðherra standi við þá yfrlýsing sína, að hann gerl alt sem í hans valdi stendur til þess að koma með betra frumvarp á næsta þingi og fylgi því málinu fram til sigurs með einlægri og röksamlegri viðleitni, að koma því í það horf, er allir róttsýnir menn mega vel við una. Fleiri tóku eigi til máls og hafa fánavinir ýmsir í Ed. sagt ísafold, að þeir hafi með þögninni viljað sýna megnustu vanþóknun sína á þeim brögðum, sem fánamálið hafi verið beitt með frávillings-háttalagi síra Sig. Stef. Rökstudda dagskráin var siðan samþykt með 7 : 6 atkv.: Með henni greiddu atkv.: Stgr. Jónsson, síra Einar Jónsson, Eiríkur Briem, Guðj. Guðlaugsson, Júlíus Havsteen, Sig. Stefánsson og Þórarinn Jónsson. Móti henni greiddu atkv.: síra Björn Þorláksson, Guðm. Björnsson, Hákon Kristófersson, Jón Jónatansson, Jósef Björnsson og Sigurður Eggerz. Var það eigi sízt gleðilegt, að Guðm. Björnsson reyndist nú sem fyrri staðfastur fánavinur. Samkv. því hvernig net öll eru úr garði gerð á þingi, hefðu ýmsir fremur búist við, að hann færi í föt síra Sig. Stef. við þetta tækifæri, úr því nokkur þurfti til þess að verða. — En hann hefir eigi viljað hafa »lík fánans« á samvizkunni og vel sé hon- um fyrir það. í ræðum sínum halda þeir því fram ráðherra og síra Sig. St., að þessi leiðin, sem nú er samþykt, sé líklegri til sigurs en að samþykkja frumvarpið. I því efni erum vér á gagnólíkri skoðun. Vér teljum engan vafa á því, að ef á annað borð er mótstaða af konungsvaldsins hálfu gegn því, að vér íslendingar fáum sérstakan fána löggiltan, þá er það sannarlega ekki ráðið til þess að vinna bug á 72. tölublað þeirri mótstöðu, að hopa á siðustu stundu, sýna á sér veilu, rétt þegar frumvarpið er að sigla inn í þá traustu höfn, sem heitir: Lög frá al- pingi. Vér segjum ef, með þvi að ástæðu- laust virðist alveg að svo stöddu að gera ráð fyrir, að konungsvaldið fari að rísa á móti óskum hinnar isL þjóðar i máli, sem vér hljótum að halda fram, að sé algert sérmál vort. Því þarf endilega að gera ráð fyrir, að konungur vor snúist móti ein- lægum áhugamálum íslenzku þjóðar- innar, sem honum hlýtur að vera ant um að gera til geðs, ef hann vill góður konungur reynast oss, svo sem hann, hinn núv. konungur vor á kyn til ? En ef svo væri, að óvinir vorir i Danmörku hefðu haft fortölur í frammi við konungsvaldið að spyrna á móti því, að vér fáum sérstakan fána — þá getur hver maður sagt sér sjálfur, að óliku traustari er að- staðan og vænlegri til framgangs málinu, ef að baki stendur: sampykt lög frá alþingi og ráðherraembættið lagt við staðfesting, heldur en áskor- un til ráðherra um að tala við kon- ung og gera sitt til, að stjórnarfrv. verði lagt fyrir næsta þing. Að taka. upp þessa aðferðina eftir að málið er búið að ganga í frum- varpsformi boðleið gegnum báðar deildir — það er að sýna veilu, sem aldrei átti til að vera eða fram að koma, og sízt eftir tíðindin í vor. Það hefði verið miklu betra, að ékkert frumvarp hefði komið fram í þinginu heldur en að fá þenna endir á málið. Frumvarpslaust hefði þá átt í þings- ályktunarformi að skora á ráðherra að leggja frumvarp fyrir næsta þing. En sú leiðin var ekki valin, ein- mitt vegna þess, að vinum fánans þótti frumvarpsleiðin tryggari miklu og vænlegri til sigurs. Úr ókurteisinni gagnvart konungi, sem ráðherra talar um og Stgr. Jóns- syni verður svo tíðrætt um i nefnd- aráliti sínu (sjá síðasta blað) finst oss heldur ekkert gerandi. Það er nú einusinni svo, að konungar í þing- ræðislöndum verða oft að gera fleira en þeim gott þykir persónulega. Og ef sá mælikvarðinn væri á lagður hvert frumvarp, að þeim eða þeim konungi persónulega geðjist að því, þá mundu færri frumvörp að lögum verða en hentugt væri. En þegar þingin eru búin að gera frv. að lög- um, þá skal mikið til, að konungs- valdið neiti þeim staðfestingar. Oss er nær að halda, að ef sömu aðferð- inni hefði verið beitt í aðflutnings- bannsfrv., eins og þeirri, sem fán- anum er fyrirhuguð, þá hefði kon- ungsvaldið verið tregt til að sam- þykkja, að bannið yrði lagt fyrir þing sem stjórnarfrumvarp. En ein- mitt vegna þess, að sú aðferðin var höfð í bannmálinu, sem fánavinirnir vildu hafa nú í fánamálinu, þá fór um þau eins og fór, þrátt fyrir megna mótspyrnu mikilsmegandi Dana o.fl. L

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.