Ísafold - 24.09.1913, Side 1

Ísafold - 24.09.1913, Side 1
Kemur út tvisvar í viku. Yerðárg. 4 kr., erlendis 5 kr. eða 1-J dollar; borg- ist fyrir miðjan júlí | eriendis fyrirfram. 1 Lausasala 5 a. eint. I XXXX. árg. ísafoldarprentsmiðja. RitstjÓFÍ s ÓlafuP Björnsson. Talsími 48. Reykjavík, miðvikudagiim 24. sept. 1913 Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, er ógild nema kom- in bó til útgefanda fyrir 1. oktbr. og só kaupatidi skuld laus við blaðið. 76. tölublað Störborgir framtiðarinnar. Svona gera ýmsir sér í hugarlund að útlit stórborganna verði með tím- anum. Manna- og vagnaferð er nú orðin svo gífurleg víða í stórborgum, að stórhættuleg er lífi og limum — enda dagleg dæmi slysa af umíerð- inni. Sá sem gert hefir myndina hér að ofan, amerískur maður, hugs- ar sér að minka umferðina á sjálfum strætunum, með því að skifta henni á mörg loft, ef svo mætti segja. í neðstu hæð eru járnbrautir, inn og út úr borginni, á næstu hæð er neðanjarðarbraut til flutninga frá einum bæjarhluta til annars. I þriðju hæð koma strætisvagnar (sporvagnar) og aðrir flutningavagnar. Fjórða hæð svarar til götulegunnar, sem nú er og er ætluð til mannaferða, en þrep liggja þaðan niður að sporvögn- um. Enn eru svo tvær hæðir til mannaferða. Smjörsalan 1912. Silfurbrúðkaup. I. O O F. H49269.________________________ Alþýðufól.bókasafn Templaras. 3 kl. 7—P Augnlœkninjr ókeypis i Lækjarg. 2 mvd. -1 Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 1 * -3 Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og = -7 Bæjargjaldkerinn Laufásv. B kl. 12—8 og * -7 Eyrna- nef- hálslækn. ók. Pósth.str. 14A fif 2 —8 íslandsbanki opinn 10—21/* og B*/*~7. K.F.U.M. Lestrar- og skrifstofa 8 árd.—10 iVI. Alm. fundir fid. og sd. 81/* slbd. Landakotskirkja. Gubsþj. 9 og 6 á hel>*d.m Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn 11-21/*, B1/*—61/*. Bankastj. .2 2 Landsbókasafn 12—3 og B—8. Útlán 1—8 Landsbúnaöarfélagsskrifstofan opin frá 1 -2 Landsfóhirbir 10—2 og B—6. Landsskialasafnió hvern virkan dag kl. 32-2 Landsslminn opinn daglangt (8—9) virka d-aga helga daga 10—12 og 4—7. Lækning ókeypis Þingh.str. 23 þd.ogfsd. lr -1 Náttúrugripasafnió opib l1/*—21/* á sunnv d. Samábyrgð Islands 10—12 og 4—6. Stjórnarráðsskrif8tofurnar opnar 10—4 dagl. Talsimi Reykjavikur Pósth.3 opinn daglangt (8—10) virka daga helga daga 10—9. Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11 12 Yifilstaóahælió. Heimsóktwirtími 12—1 ÞjóbmenjasafniB opib á hverjum degi 12—2, Nýja BI6 sýnir í kvöld og næstu kvöld: Illþýðið. Leikið af ítölskum leikurum. Þessi mynd er einna bezt leikin allra hinna ágætu mynda er sýndar hafa verið hér í bænum. Sund og björ-gun. (Aukamynd). Myndin sýnir björgun og lífgunar- tilraunir á druknuðum manni. muttið effir Tiam Tlam. Reykið Egypskar Cigarettur frá A. G. Cousie & Co, Kairo; þær eru óefað bragðbeztar og minst skað- legar. Sérstaklega skal eg leyfa mér að mæla með: Prittce of Wafes, JTlancíiaíe og Tlr. 3. Þessar tegundir, ásamt ýmsum fleir- um, fást í tóbaksverzlun & JSqvl Sigfús Blöndahl Rödingsmarkt 57, Hamburg 11. Inn- & útflutningsverzlun. Umboðsverzlun. Allar íslenzkar vörur seldar hæsta verði. Slmneíni: Blöndahl. — Hamburg. Gerist kaupendur i Isafoldar nú við ársfjórðungaskiftin — 1. október — Verð til ársloka að eins 1 króna. Yfir- og undir-þjóð. Um þessar mundir er að koma út á norsku ritverk allmikið: Ræður og blaðagreinir Björnstjerne Björnson. Slíkt meistaramark er á flestu því, sem þar er skráð, að mesta unun er að lesa fyrir snildarbragðið eitt. En þessi bók er þó sérstaklega fróðleg og verð athyglis fyrir oss íslendinga, vegna nokkurra greina, sem i hana eru teknar, þar sem Björnson lýsir og gagnrýnir sambandið milli Noregs og Sviþjóðar, eins og það var á þeim tíma (1875—1885), sem greinarnar voru ritaðar. Það sem Björnson þar er fyrst og fremst að brýna fyrir löndum sín- um er þetta, að þeir megi með engu móti skoða Svía sem y/?rþjóð, eins og mörgum þeirra, einkum háyfir- völdum og efnuðum kaupsýslumönn- mönnum hætti við. Þessir menn séu jafnan til taks við nærri hvert framsóknarspor, sem Norðmenn ráð- ist i til að auka efnalegt, andlegt og pólitískt sjálfstæði sitt — með þess- ar og þvilíkar viðbárur: »Við skulum fara varlega ! Hvað ætli Svíar segi við því, ef við gerum þetta ? Hvað ætli konungur segi ?c Og Björnson segir, að þessir sænsk- hugsandi landar sínir muni aldrei eftir því, að konungurinn sé Norðmanna- konungur — þeir hugsi og tali altaf um hann sem Svíakonung I Ætli hagi ekki dálítið líkt til hjá oss íslendingum nú, eins og hjá Norðmönnum fyrir einum manns- aldri ? Þekkjum vér eigi sömu raddirnar meðal vor, sem Björnson er að lýsa? Mundi þurfa frekari vitna við en t. d. síðasta alþingis ? Var það ekki keimlík rödd var- færninnar og beigsins við hvað Dön- um litist um þetta og hitt, sem heyrð- ist við og við bæði úr stjórnarstóln- um og þingmannaþóftum sumum hverjum ? í fánamálinu, í stjórnar- skrármálinu o. s. frv. ! Jú, því verður eigi neitað ! Sá hugsunarháttur er kominn með litla fingurinn inn i of mörg lög- gjaf&hugskot, að yfirþjóðin, sem alt- af þurfi svo og svo mikið tillit til að taka og leyfis spyrja — það sé þjóðin við Eyrarsund — og sami hug- arslæðingurinn er kominn me8 alla hendina inn i sum stjórnmálamanna- hugskotin ! Því fór t. d. eins og fór í fána- málinu í Efri-deild! En við öfugstreyminu sem lýsir sér í þessu, verður að gjalda mjög varhuga og risa örugglega móti því. Einkum kemur þó þessi öfug- streymishugsunarháttur fram, þegar minst er á konungsvaldið. Það er eins og ýmsir menn telji sjálfsagt, að konungur vor sé fyrst og fremst eða því nær eingöngu hagsmuna- gætir Dana hér á landi — komast með öðrum orðum aldrei lengra en það, að skoða hann sem Danakon- ung, einnig hér á landi, en ekki ís- endingakonung. Slíkur hugsunarháttur er hættuleg- ur sjálfstæði voru. Hann verður að uppræta ! Danir eru engin yfirþjóð vor! Vér eigum alveg sömu siðferðiskröfu til fullkomins þjóðarsjálístæðis eins og þeir, eigum rétt á i því efni að standa alveg jafnfætis þeim. Þessu geta Danir ekki neitað 1 Vér erum alveg eins og Danir sérstök þjóð, í sérstöku landi, tölum sérstaka tungu, eigum sérstakar bók- mentir, sérkennilega landshætti, sam- eiginlega sögu — yfirleitt alt það, sem annars er talin undirstaða þeirr- ar sameiningar einstaklinganna, sem ríki er kallað. Þar á höfðatalan alls ekki að koma til greina. Eða minsta kosti sæti sizt á Dönum að bera hana fyrir sig, því að þá yrði lítið úr sjálfstæðisrétti þeirra gagnvart stór- þjóðunum. Þetta verðum vér íslendingar að hafa vel hugfast í öllum stjórnmála- gjörðum vorurn og halda öllu því óhikað fram, er vér teljum horfa oss til sjálfstæðisauka ogþjóðþrifa, en láta það eigi sífelt þvælast fyrir oss, hvað Danir muni segja um fram- kvæmdir vorar! Með því móti kæmumst við aldr- ei neitt áfram, því að það er nú einusinni svo komið, að hagsmunir íslendinga rekast eigi ósjaldan á hags- muni Dana, einkum í viðskiftalífinu. Þessi yfir-þjóðarkredda, sem hér hefir lýst verið og bólar því miður á hér í landi, á sér auðvitað enn dýpri rætur í Danmörku en hér í landi. Hún lýsti sér t. d. í fána-afrekinu 12. júní. Hún lýsir sér og greini- lega í flestum skrifum Knuds Berlin t. d. nýlega í grein i Köbenhavn, þar sem hann fjargviðrast allmjög yfir því, að síðasta alþingi skuli hafa samþykt lögin um landhelgissjóðinn, án þess að spyrja Dani fyrst! Sami hugsunarhátturinn lýsir sér enn í grein, sem nýlega birtist i 0stsjœllands Folkebíad. Þar er sagt eitthvað á þá leið frá (að vísu ranglega), að Zahle yfirráðherra Dana hafa skipað íslenzkum lögreglustjórum að vernda dannebrogsflaggið! Er þar auðvitað blandað málum, en sýnir þó, ásamt vanþekkingunni, hvernig ýmsir Dan- ir lita á: — að danskir ráðherrar geti svona upp úr þurru farið að vas- ast í íslenzkum sérmálum! Þessari yfirþjóðarkredduDanaverð- um vér íslendingar jafnan að vera á verði fyrir og mótmæla jafnharðan — í hverri mynd, sem hún kemur fram. Og ef svo óliklega skyldi fara, að á henni bólaði eitthvað í einstökum þeirra mála, sem alþingi hefir nú af- greitt — þá ríður á, að vel sé móti tekið fyrst og fremst af málsvara voram og fulltrúa hjá konungsvald- inu og ef brestur skyldi á því verða þá af þjóðinni. Festu og stilling verðum vér að sýna í þessum efnum, en jafnframt fulla einurð og kjark. Á þvi veltur siáifstæðisframsókn vor! Árið 1912 störfuðu hór á landi alls 31 smjörbú, en útflutt smjör nam rúmum 353,000 pundum. Að meðal- tali verður útflutningur á bvert bú því nál. 11,400 pd. Lægst hefir smjör- verðið verið 80-90 au. Smjörgerðinni fer fram meðárihverju, smjörið eykst og verðið hækkar. Árið 1910 voru flutt út 300,000 pd, árið 1911 342,000 pd. Hæst á útflutningsskránni stendur Baugstaðabúið með 33,000 pd., næst Rauðalækjarbúið með rúm 30 þús. pd., en þrjú þau næstu eru Hróarslækur með 29,500 pd., Rangárbú með 27,700 og Saudvík með 23,500 pd. Hór fer á eftir skýrsla um útflum- ing frá einstökum syslum árin 1911 og 1912 ásamt tölu smjörbúa — töl- urnar þýða tvípund, (kílgr.) Sýslur Smjör- bú 1911 1912 Árnessýslu 12 91525 91700 Rangárvallas. 6 49675 3M0 Borgarfjarðars. 10285 9050 V.-Skaftafellss. 1 5410 7125 S.-Þingeyjars. 2 4500 3322 Eyjafjarðars. 2 2400 2858 Skagafjarðars. 2 2800 2805 Mýrasýslu 1 1150 1860 Snæfellsness. 1 1580 1190 Kjósarsýslu 1 1625 205 ♦ Einar ská!d Hjörleifsson og frú hans áttu silfurbrúðkaup 22. þ. mán. Meðal samúðar- og heillaóska-skeyta þeirra, er þeim bárust þann dag, voru þessar vísur frá Þorsteini Erlinassyni: Svo hátt var nú komið að hrlmsilfri sló á hlíðar, pó fanst vúr par vor. Þeim varð stundum brátt, en pau blessuðu pó um brekkur 0% sléttur pau spor. 0% pau leiddust áfram,pví aftaninn hlýr par ofar með qullkranzinn beið. Núfylgir parvinunum vordraumur nýr með vonunum okkar á leið. Þau merkja ekki hrimið, sem markar par spor, pví mundin, sem leiðir, er hlý. Hverlaut, sempar greri,við geislana i vor er grcen undir silfrinu pví. Síra Matthías er væntanlegur hingað suður í næsta mánuði og dvelst líklega hér í borginni meiri part vetrar. Góður gestur og til þess vís að leggja drjúgan skerf til andlegrar fjöraukn1- ingar meðal vor.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.