Ísafold - 19.11.1913, Page 1

Ísafold - 19.11.1913, Page 1
| Kemur út tvisvar | | í viku. Verð árg. | | 4 kr., erlendis 5 kr. | | eða 1 Jdollar; borg | | ist fyrir miðjan júli | | erlendis fyrirfram. | 1 Lausasala 5 a. eint. | ■ -................... ■ XXXX. árg. Reykjavík, miðvikudaginn 19. nóv. 1913 Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, er ógild nema kom- in só til útgefanda fyrir 1. oktbr. og só kaupandi skuld- laus við blaðið. 92. tölublað Erlendar símiregnir Stór-hneyksli við sænskn hirðina. Khöjti i/. nóv. kl. J.20 síðd. Sendiherra Rússa í Stokkhólmi, Alexander Savinsky, er hlaupinn á burt. Einnig er eiginkona Vilheltns, næstelzta sonar Gústaýs konungs, rússneska prinsessan Maria Pavlovna, horftn heim til Rússlands. Er betta sett í sam- band við njósnarmál pau hin miklu, er staðið haýa utn tíma í Svípýóð. Talið víst, að sendiherrann hafi með aðstoð prinsessunnar komist ýyrir ýms leyndarmál sœnsku stjórnarinnar. Hjónaskilnaður Vilhelms og Maríu er talinn viss. Síðara símskeyti (sjá síðar) herma frekara af þessum tíðindum. Vii- hjálmur Svíaprinz er utigur maður, undir þrítugt, og gekk að eiga konu sína árið 1908. Hún er dóttir Páls stórfursta, sem átti elztu dóttur Georgs Grikkjakonungs. Er hún þvt 4 manneskja frá Kristjáni 9. Dana- konungi og náskyld Kristjáni 10. Nobelsverðlannin. London ij. nóvTkl.^6 síðd. Bókmentaverðlaun Nobels verða petta sinni veitt indverskum |rithöýundi, sem Rabindranath Tajore heitir. Hvenœr ýær Islendingur Nobelsverðlaunl Bandamenn gegn Mexikö. :1 Londort ij. nóv. kl. 6.^0 síðd. Mexíkóstjórn ter að engu að óskum Bandaríkjastjórnar. Bandamenn eru pví að búa undir að setja Mexíkó í landspennu (blokade). Merkur Tyrki látinn. London'fi7. nóv. kl. 4 siðd. Kiamil%Pasha, ýyrverandi stórvezir Tyrkja, dó í dag. Cordosamálið dæmt. Khöfn /7, nóv. kl. 4,jo”síðd. Cordosamálið var dæmt í dag. Louis Cordosa var dæmdur i 18 mán- aða betrunarhússvinnu og sonur hans Harry, sem átti upptök svikanna, var dæmdur í j ára ýangelsisvist. Hirðhneykslið i Svíþjóð. Khöýn 18. nóv. kl. 8 síðd. ^Alexander Savinsky, sendiherra Rtlssa í Stokkhólmi, heftr verið látinn skifta um embættí og taka við sendiherraembætti i Serbíu. Konungsfólkið sænska synjar ýyrir, að skilnaðurinn milli Vilhjálms kon- ungssonar og Maríu Pavlownu standi í sambandi við njósnarmálin. I. O. O F. 9011219. Alþýðufél.bókasafn Templaras. 3 kl. 7— Augnlækning ókeypis i Lækjarg. 2 mvd. 'V-8 Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 1 >—8 Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og i —7 Bæjargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—3 og '» -7 Eyrna- nef- hAlslækn. ók. Austurstr.22 fstdk 1 > -8 íslandsbanki opinn 10—21/* og 61/*—7. K.F.U.M. Lestrar- og skrifstofa 8árd.—10 .íðd. Alm. fundir fid. og sd. 81/* siðd. Landakotskirkja. Guðsþj. 9 og 6 á helgum Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn 11-21/*, 61/*—6'/*. Bankastj. 12-2 Landsbókasafn 12—3 og 6—8. Útlán 1—3. Landsbúnaðarfólagsskrifstofan opin frá 12 *-2 Landsféhirðir 10—2 og 6—6. Landsskjalasafnið hvern virkan dag kl. 12—2 Landssíminn opinn daglangt,(8—9) virka daga helga daga 10—32 og 4—7. Lækning .ókeypis Aus+urstr. 22 þd.ogfsd. 12 -1 Náttúrugripasafnið opið l1/*—21/* á sunnmi, Samábyrgð!Pslands 10—12 og 4—6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl. Talsimi Reykjavikur Pósth.3 opinn dagRngt (8—10) virka daga helga daga 10—9. Tannlækning ókeypis^Austurstr.522 þrd. 2 8 Yifilstaðahælið. HeimsókLartimi 12—1 Þjóðmenjasafnið opið sd, þd. fmd. 12— 2, Nýja Blá sýnir í kvöld og næstu kvöld: Prír féíaqar. Tlorræn íisfmtjncf. Leikin af frú Aggerholm, hr. Aggerholm og Seemann. Bostanjoclo-Cigaretter |mesta úrval í bænum i tóbaks- og sælgætisverzluninni á Hótel Island. Með tækifærisverði eru Bostanjoclo cigarettur seldat í tóbaksverzlun R. I*. LtíVÍ. Verðið er langt fyrir neð- an það, sem áður hefir þekst. Egipzkar Clgarettur frá A. G. Cousis & Co. Cairo svo sem: Dubec Prince of Wales Mondiale og Nr. 3. eru áreiðanlega minst skaðlegar, og um leið bragðbeztar. Hver sá sem reykir af þeim 3— 4 búnt, reykir ekki annað upp frá þvi. Cigarettur þessar hafa hlotið ótal meðmæli. Fást í Levís tóbaksverzlunum. Minningarritið um Björn Jónsson, fyrra bindi með mörgum myndum, er komið út og fæst í bókaverzlunum. Verð kr. 1.50. Sigfús Biöndahl gRödingsmarkt 57, Hamburg 11. Inn- & útílutningsverzlim. TJmboðsverzlun. Allar íslenzkar vörur seldar hæsta verði. Sínmefni: Blöndahl. — Hambnrg. Stjórnarskráin. Vér gerum ráð fyrir, að allir les- éndur vorir hafi með athygli lesið umræður þær, er fram fóru í ríkis- ráðinu í Khöfn (þ. 20. okt.), um stað- festing stjórnarskrárfrv. siðasta þings. Það sem þær fyrst og fremst flytja oss, er að konungur loýar að stað- ýesta stjórnarskrána óbreytta. Þar með er aðalatriðið fengið. Þegar þetta loforð er fengið; væri það bæði ilt og óviturlegt verk af oss, að samþykkja hana ekki á næsta aukaþingi. Því er það, að íslenzkir kjósend- ur verða nú fyrst og (fremst að heimta af þingmannaefnnm öllum skýlaust loýorð um að sampykkja stjskr. óbreytta á aukapinginu. Að fara nú enn að hringla með stjórnarskrárbreytinguna og tefla þar með frv. í tvísýnu, það væri slikt óheillaverk, að firra verður þjóðina. Hvort veruleg hætta muni á því, að unair nýjar breytingr verði ýtt, skulum vér eigi segja, en heyrzt hefir úr herbúðum sambandsflokksins mikl- ar óánægjuyfirlýsingar með stjórnar- skrána, eins og alþingi 1913 gekk frá henni, svo að alveg óvænt kæmi það eigi, þótt einhver úr þeirri sveit yrði til að bregða fyrir hana fæti. En þótt vér viljum láta samþykkja stjórnarskrána óbreytta, fer því fjarri, að í þvi felist já og amen við öllum umræðunum í ríkisráðinu. Eitt viljum vér samt benda á í þeim umræðum, sem oss má vel lika. Það eru þessi orð Zahle for- sætisráðherra: »Það er ekki tilgangurinn, pótt haldið sé áýram að bera upp Islenzk mál í ríkisráðinu, að ná neinum 'tókum a) Dana hálýu á peim sérmálum, sem áskilin eru íslenzku löggjaýarvaldi«. Með þessum orðum hins danska yfirráðherra er viðurkenning fengin fyrir heimildarleysri danskra ráðherra til íhlutunar um íslenzk sérmál. Þvi heimildarleysi hefir jafnan verið haldið fram af vorri hálfu, en eigi fyr en nú komið fram skýlaus viðurkenning frá Dönum. Annars er ýmislegt í ríkisráðsum- ræðum, eigi sízt ræðu íslandsráðherra, sem vér eigi getum fallist á, þótt oss virðist eigi rétt að fara út í þá sálma að þessn s:trr.. Að gefnu tilefni. Amerikuferðir og islenzkur búskapur. Til Ameríku! Til Ameriku! Hversu oft heyrum vér þessi orð bergmála alt fri fiskimiðum til hæstu fjallatinda. Frá götum smáþorpanna, kaupstaðanna og alt til instu býla afdalanna. Til Ameriku 1 bergmálar frá munni til munns einstaklinga þjóðfélagsins. Þetta er apað og eftir étið af þjóð- inni hugsunarlaust. Ameríka er orð- in i meðvitund þjóðarinnar það »Slar- affenland«, sem menn í blindiv trúa, að allir geti lifað í fyrirhafnariaust, enda ekki sparað í bréfum og blöð- um að gylla lífsskilyrðin, með því að segja frá hinum glæsilegu lífs- kjörum einstaklinganna og hinni glæsilegu hlið lifsins, sem átíðast ekk- ert skylt við kosti landsins, heldur er bein afleiðing af ýmsu öðru, sem oftast hefir stóra ókosti í för með sér fyrir þjóðfélagsheildina. Það eru skilyrði fyrir einstaklinginn að safna fé, auði, sem er afleiðing af fólks- fjöldanum, þar sem fólkið hrúgast saman, bæirnir myndast, en einstakir menn eiga landið og það hækkar af- skaplega i verði, án fyrirhyggju eða dugnaðar þess er á, en hefir aftur í för með sér magfaldaða erfiðleika fyrir fjöidann að lifa og að komast áfram. Ef meta skal gæði eins lands, verður að leggja til grundvallar hver- jum vöxtum landið svarar af vinn- unni, sem lögð er Jfram, verður þá að finna út hvaða vinnu það borgar bezt. Hvað vinnan eða framleiðslan heitir skiftir minstu máli, hvort hún heitir hveiti eða kornrækt, grasrækt eða kvikfjárrækt. En þó virðast menn gera þessa talsverðan mun, án þess þeir taki tillit til arðseminnar, og mun það að miklu leyti eiga rót sina að rekja til hégómagirni manna, en að sumu leyti stafa af vanþekkingu, vegna þess, að allan samanburð vant- ar á arðinum, sem jörðin gefur. Amerikumenn taka jarðargróða sinn með þökkum, en vér með vanþökk, og það litur svo út, að mönnum þyki fínna að rækta hveiti í Ame- ríku beldur en að »púla upp á kú- gresi* hér, að eg ekki tali um aldin- rækt, sem menn skoða það dýrð- legasta, en margir lifa sultarlífi á. Þó mönnum hafi ekki allsjaldan ver- ið sýnt fram á, að hveitiræktin í Ameríku geíi ekki meiri arð en gras- ræktin hér ‘á landi, í sambandi við kvikfjárræktina, láta menn það eins og vind um eyrun þjóta og hrópa: Til Ameríku! Til Ameríku! Þessi Ameríkuhugur manna hefir það i för með sér, að menn hafa ekki nema hálfan bugann við atvinnu sína, eða ekki allur fjöldinn, en það er fá atvinna, sem þolir það að hún sé ekki rekin af áhuga og af þekkingu. En þekkingin kemur seint, þar sem áhugann vantar. T. d. má nefna sem dæmi upp á hve áhuginn er lítill hjá búandi mönnum að afla sér þekkingar á þvi, sem lýtur að at- vinnu þeirra, að af Búnaðarritinu, þessu afaródýra, en þó fróðlega riti, og þessu eina Búaaðarriti, sem vér höfum, skuli ekki vera keypt nema utn 100 eintök, fyrir utan þá c. 1100 Búnaðarfélagsmeðlimi, sem þó fjölda- margir ekkert fást við búskap. En um 7000 eru bændur og búandi menn í landinu. Yfirlit yfir hag af búnaðinum er afarerfitt að gefa, vegna þess hve búskapurinn er viltur. Hann er rekinn að meira eða minna leyti sem »lotterí«, og er það eitt sem sýnir á hve afarlágu stigi vér stönd- um með rekstur þessarar annarar aðal-atvinnu vorrar, að vér ekki skulum ennþá vera búnir að læra að reka hann sem aðra verzlun, því búskapurinn er ekkert annað en verzlun, sem rekin er við jörðina. Þó eg viti af afarmörgum dæm- um um það, hversu góðan arð jörð- in gefur hér hjá okkur, þá get eg ekki tilfært þau eins mörg og eg vildi, en vil nefna eitt dæmi, sem eg nýlega varð var var við, og er frá Sell-Látrum, sem er ein af Breiða- fjarðareyjum. Bóndinn þar, hr. Ol. Bergsveinsson, fekk undan 140 ám sítium síðastl. vor 220 dilka nú í haust. Af þessum dilkum var hann búinn að slátra 94, þegar eg hafði fregnir af, og lcgðu þeir sig að með- altali á kr. 14. Geri maður að þeir mundu hafa lagt sig allir á 12 kr. að meðaltali, þá gefa þessar 140 ær af sér í lömbum kr. 2640. Reikni maður 3 pd. ullar til jafnaðar af hverri á, á 85 aura, verða það kr. 235-4-2640—2895 kr. Þetta verður þá árshagnaðurinn brúttó af þessum 140 ám. Mundi þetta ekki þykja góður arður í Ameriku ? Þess má geta Ólafi til hróss að hann kvað vera mjög áhugasamur um atvinnu sina. - $ Annars bónda hefi eg heyrt getið, sem fekk fyrir 200 fjár, sem hann lagði inn, kr. 3700, og var helm- ingurinn af þvi dilkar, en hitt full- orðið fé. Það virðist ekki úr vegi, að Búnaðarfélag íslands reyndi að safna skýrslum um arð nokkurra sauðfjárbúa, úr sem flestum sýslum á landinu, ef það gæti orðið til þess að menn vöknuðu við og færu að fá dálítið meiri áhuga fyrir atvinnu sinni og þeir sannfærðust um, að hún væri þess verð að eitthvað væri fyrir hana gert. Og væri gott ef það yrði til þess, að búandi menn legðu niður þann óvana, að hanga og slæpast niðri í kaupstöðum og sjóþorpum haust og vor — og jafn- vel um heyskapartimann — til þess að snapa sér daglaunaviunu við upp- skipun og útskipun og aðra vinnu, sem þeir gætu af hendingu fengið, þar sem þeir fá vinnuna aldrei til hálfs borgaða, borið saman við það, sem jörðin borgar hana, ef hún fengi að njóta þeirra litlu vinnukrafta, sem menn hafa yfir að ráða óskiftra. Og það er því undarlegra að menn skuli gera sig seka um slikt glapræði, þar sem menn, og það einmitt þessir sömu menn kvarta yfir vinnukrafts- leysinu til reksturs á bújörðum sin- um. Og svo þegar þeir þessir sömu menn ekki fá upp úr -jörðinni, sem þeir hafa vanrækt, nægilegt til að lifa af, þá gera þeir sig seka um þá svívirðilegu goðgá, að bölva jörð- inni og landinu, og svo fara þeir að ákalla Ameriku. En þessir góðu menn gæta ekki þeirrar svívirðing- ar sem þeir gera sér, þegar þeir bölva jörðunum og landinu sem hefir fætt þá og borið og alið. Það er alveg sama eins og þeir bölvuðu föður og móður. Þeir eru föður- og móðurníðingar ! P. Steýánsson frá Þverá,

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.