Ísafold - 20.12.1913, Blaðsíða 1
| Uppsögn (skrlfl.)
| bundin við áramót,
| er ógild nema kom-
| in só til útgefanda
I fyrir 1. oktbr. og
| só kaupandi skuld-
I laus viS blaðið.
H imiimiiniiiiiMiiiiimiiiniiiniiiiiiiiiiiiinniiii')
XXXX. árg.
Reykjavík, laugardaginn 20. des. 1913.
J 100. tölublað
Sparisjöður Landsbankans
verður lokaður, eins og undanfarið, milli jóla og nýárs, dagana 27.
til 31. desbr., að báðum þeim dögum meðtöldum.
Bankastjórnin.
Erlendar símiregnir
Grikkir og Tyrkir.
London 18. des., kl. j síðd.
hnoland f?erir pá tilldqu til sátta, að eyjarnar í Œqeahafi skuli skijt-
ast tnilli Grikkja oq Tyrkja.
Panamaskurðurinn.
London 18. des. kl. 7 síðd.
Sítnað er jrá New-York, að stórkostleq jjársvik hafi komist upp utn
pá, er við skurðgrójtinn á Panatna eru riðnir. Eru pað sérstaklega birgða-
salar peir, er selt haja ejni og áhöld til skurðgrajtarins.
(Símskeytin hafa tafist vegna símslita).
Njósnarmálið í Svíþjóð.
Khöjn 19. des. kl. 4 siðd.
Njósnarmálið tnikla versnar með degi hverjnm. Talið er vist, að aðal-
aðsetur njósnarjlokksins rássneska hafi verið í Khöjn, og búast má við rann•
sókn tmkilli út af pví.
I. O. O F. ^512199.
Alþýðufól.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—
Augnlækning ókeypis i Lækjarg. 2 mvd. >. -8
Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 1 * ~8
Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og l -7
Bæjargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 og > -7
JSyrna-nef-hálslækn. ók. Auaturstriöfstd : -8
íslandsbanki opinn 10—21/* og B1/*—7.
K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8árd.—10 $d.
Alm. fundir fid. og sd. 81/* síbd.
Landakotskirkja. Qubsþj. 9 og 6 á hel* m
Xandakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Xandsbankinn U-21/*, B1/*—01/*. Bankastj. 2
Xandsbókasafn 12—8 og 5—8. Útlán 1—8
Xandsbúnabarfólagsskrifstofan opin frá <2 2
Landsfóhirbir 10—2 og B—6.
Landsskjalasafnib hvern virkan dag kl. 12 -2
Landssíminn opinn daglangt,(8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
Lækning ókeypis'Austurstr. 22 þd.ogfsd. 12 -1
Náttúrugripa8afnib opib l1/*—21/* á sunnu i,
Samábyrgó Islands 10—12 og 4—6.
Stjórnarráósskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjavikur Pósth.8 opinn daglangt
(8—10) virka daga helga daga 10—9.
Tannlækning ókeypis Austurstr. 22 þrd. 2 -8
Vifilstabahælib. Heimsóknartimi 12—1
Þjóðmenjasafnib opib sd, þd. fmd. 12—2.
Nýja Blé
sýnir í kvöld og næstu kvöld:
Calaisbúar.
Frá hundrað ára stríðinu
íransk-enska.
Mynd sögulegs efnis.
Bostanjoclo-Cigaretter
mesta úrval i bænum í
tóbaks- og sælgætisverzluninni
á Hótel Island.
Með tækifærisverði
eru Bostanjoclo cigarettur seldar í
tóbaksverzlun R. P. Lwví.
Verðið er langt fyrir neð-
an það, sem áður hefir þekst.
Sigfús Blöndahl
Rödingsmarkt 57, Hamburg 11.
lnn- & útflutningsverzlun.
Umboðsverzlun.
Allar íslenzkar vörur seldar
hæsta verði.
Símnefni: Blöndahl. — Hambnrg.
Egipzkar Cigarettur
frá A. G. Cousis & Co. Cairo
svo sem:
Dubec
Prince of Wales
Mondiale og
Nr. 3.
eru áreiðanlega minst skaðlegar, og
um leið bragðbeztar.
Hver sá sem reykir af þeim 3—
4 búnt, reykir ekki annað upp frá
þvi.
Cigarettur þ^sjar hafa hlotið ótal
meðmæli.
Fást í
Levís tóbaksverzlunum.
Magnús Th. S. Blöndahl.
Skrifstofa og sýnishornasafn.
Lækjargata 6 B (uppi).
Selur að eins kaupmönnum og
kaupfélögum.
Hugvekjan úr Vigur.
i.
Með viku fyrirvara boðaði Lög-
rétta þau tiðindi, að von væri í næsta
blaði á stjórnmálahugvekju frá síra
Sigurði Stejánssyni í Vigur.
Lögréttu þótti þetta auðsjáanlega
tíðindi. Og ætli öðrum hafi eigi
líka þótt það tiðindi, að eiga von á
að sjá á stjórnmálakoll Vigurklerks
upp úr þeirri pontu ?
Hátið er til heilla bezt! Það var
urfi páskana í vor, að Sigurður Hjör-
leifsson vigðist og fiútti sína nafn-
kunnu páskaprédikun í Lögréttu.
Og nú siglir nafni hans Stefáns-
son í kjölfarið með sína jólahugvekju.
Þessi nýi fagnaðarboðskapur úr
Vigur er þann veg úr garði gerður,
að all-rækilega verður að svara; en i
dag verður Isajold að láta sér'nægja
nokkurar almennar athugasemdir.
Eins og margsinnis hefir verið
skýrt frá hér i blaðinu — og aldrei
verið mótmœlt —, var það fyrirfram
ákveðið af Sjálfstæðismönnum þeim,
er upptökin áttu að samkomulags-
tilraununum 1912, að ej eigi fengist
framgengt þeitn kröfum, skyldi í
jyrsta lagi hætt samningatilraunum
við Dani fyrst um sinn, og í öðru
lagi lýst skýrt stefnumarki voru, þ.
e. meirihluta stefnunni frá 1909.
Allir þeir, sem í þessum upptök-
um áttu þátt, voru snmmála um fyrra
atriðið. En «Heimastj.mennirnir« i
samtökunum vildu halda aðra leið
eða hafa aðra aðferð til að svara
Dönum en þá, er að ofan getur.
Þegar hin alkunnu svör Dana,
nýja uppkastið, eða »grúturinn« svo
nefndi, bárust hingað, var það eigi
nema i samræmi við það, er á undan
var gengið, að vér Sjálfstæðismenn
alment snerumst gegn þessum »vænt-
anlega fáanlegu kostum* og beitt-
umst fyrir hihulagning sambands-
málsins.
Eins og menn muna, var það að
eins einn Sjálfstæðismaður, sem opin-
berlega rauf bundin fastmæli, það
var páskaprédikari Lögréttu. Á hinn
bóginn gerðist Lögrétta og hennar
skyldulið til þess að bregðast fast-
mælunum, með því að sverja við
grútinn.
Sambandsjlokkurinn var til þess eins
stofnaður, að fylgja fram bræðings-
tillögum þingmanna.
Þegar þær voru úr sögunni, þ. e.
þegar nýja uppkastið reyndist hið
eina »væntanlega fáanlega«, var undir-
staðan undir þeim flokki eigi leng-
ur til.
Hann átti þvi að hverfa úr sög-
unni, því að tilveruréttur hans bygð-
ist ? því, sem eigi var lengur til.
En er til þings kemur, verður sú
hin furðulega niðurstaða ofan á, að
halda Sambands-jlokknum ájram, og
einna fremstur allra að halda þvi til
streitu, var jólahugvekjusmiður Lög-
réttu, síra Sigurður í Vigur.
Með þessu baktjaldi, þar sem þeir
nafnar, páska- og jóla-prédikari Lög-
réttu, standa með svipaðri aðstöðu,
— verður þvi að líta á hugvekjuna
úr Vigur.
Hefði sira SigurðurStefánsson, með
sínum miklu hæfileikum, beízt fyrir
þvi í þingbyrjun í vor, að leggja
niður sambar.dsflokkÍKv o? 'eggja all-
ar samingatilraumr við Dani á hill-
una — þá hefði ef til vill verið
hugsanlegt, að það hefði komist i
kring, sem nann nú telur vera hið
eina rétta og eðlilega, að menn
skifti sér í flokka eftir innanlands-
málum, í framsóknar og ihaldsflokk.
En í stað þess hélt sira Sig. Stef.
dauðahaldi í sambandsflokkinn !
Þvi gerði hann það?
Vildi hann halda sambandsflokkn-
uppi til þess að færa nýja uppkastið
yfir höfuð oss ?
Eða til þess að útvega oss enn
lakari kosti ?
Það er býsna ótrúlegt um mann,
er svo ötullega reif niður Uppkastið
1908 (sbr. grein i ísafold í júlí 1908).
Síra Sigurður Stefánsson verður
að gera grein fýrir afstöðu sinni i
þessu efni, áður en hann getur vænzt
þess, að traust verði fest á tali hans
nú, um að leggja niður flokkana.
En þvi virðist hann halda fram i
hugvekju sinni. Það sé ekkert, sem
skilji nú í aðalmálum þjóðarinnar.
Sambands- Sjálfstæðis- og Heima-
stjórnarflokkar sé að eins nöjn, en
stefnumunur enginn.
Hann er því hinn gustmesti útaf
Ávarpi Sjálfstæðismanna, er hann
telur vera til þess, »aú ala á gömlum
jiokkaríg og vekja tortrygni og óhug«.
En fyrr í hugvekjunni segir hann
þó, að ávarpið sé þann veg, að það
megi ttelja pað nokkurn veginn sjálj-
gefið, að hvert einasta tnannsbarn á
Islandi geti skrijað undir petta ávarj>«.
Oss er nú spurn: Hvernig á
ávarp, sem hvert einasta mannsbarn
á íslandi getur skrifað undir, að geta
alið á gömlum flokkaríg og vakið
tortrygni og óhug milli beztu manna?
Þetta er lokleysa, — sem aldrei
hefði hent þann mikilhæfa mann í
Vigur, ef hann væri eigi kominn útá
villigötur, sem hann alls eigi ratar um.
Og þó að eins væri tekin hin
fyrri fullyrðing hans, — sem hér er
bent á — þá hún er líka lokleysa. —
Því miður.
Ávarpsmenn segja, að ej sambands-
málið verði tekið upp aftur, eigi ekki
að láta sér nægja minni kröfur, en
meirihlutakröfurnar frá 1909.
Hvernig fer sira Sig. Stef. að full-
yrða, að hvert mannsbarn á íslandi
skrifi undir þessa kröfu?
Eftir því, sem nú er komið, telj-
um vér meira en vafasamt, að síra
Sig. Stef. geti ábyrgst, að hvert
mannsbarn í Vigur skrifi undir hana.
Níræðisafmæli frú Melsteð.
Frú Melsteð var hálflasin á afmæli
sínu og hafði eigi fótavist. Tók samt
á móti fjölda fólks, sem kom til að
votta henni virðing og flytja henni
heillaóskir.
Símskeyti bárust henni mjög mörg
héðan úr bænum, utan af landi og
utan pollsins. Skólarnir sendu sim-
kveðjur, háskólinn, mentaskólinn o.
s. frv., sömuleiðis borgarstjóri fyrir
hönd bæjarstjórnar.
Ymsar konur í bænum ætluðu að
heiðra frúna með d tgverðarveizlu, en
Tilvaldar jólagjaflr.
Þið eruð komin í öngþveitisvand-
ræði með það, hvað þið eigið að
velja í jólagjöf handa vinum yðar,
vandamönnum og kunningjum!
En þvi í dauðanum kaupið þið
ekki góðar íslenzkar bækur?
Þvi kaupið þið ekki?
Gull eftir Einar Hjörleifsson.
Á guðs vegum eftir Björnson
(í íslenzkri þýðing).
Frið á jörðu eftir Guðmund
Guðmundsson.
Ljósaskifti eftir Guðmund Guð-
mundsson.
Baruabibjlíuna í einu bindi.
Bernskuna hans Sigurbjarnar,
handa börnunum.
Þessar bækur fást í öllum bóka-
verzlunum.
fresta varð henni vegna lasleika frú-
arinnar.
Námsmeyjar i kvennaskólanum
fluttu henni eflirfarandi kvæði, er
ort hafði Guðm. Magnússon:
Heill sé þér, móðir
menta og snillil
Hjörtu, sem þakka,
þú hvarvetna átt.
Kvenlegra dygða,
kvenlegrar prýði
blessandi Ijósi
þú lyft hefir hátt.
Hjá þér í vöggu
hamingjustjarna
landinu fagra
ljómaði skær.
Hjá þér í elli
einnig hún brosir,
hátignar-ljóma
um höfuð þitt slær.
Ljós fyrir öðrum,
ieiðandi blfða,
alúð og yndi
ætíð þú varst.
Því skín svo fagurt,
því skín svo víða
móðurlands bygðum
það merki’, er þú barst.
Ljós fyrir öðrum —,
lifandi kærleik,
heiður og hreinleik
þú hæst hefir sett.
Hver veit hve mikla
hamingju skapað
hefir hin göfgaða
húsfreyjustétt ?
Heill sé þér, móðir
menta og snilli!
Göfgandi dæmi
þú gefur í arf.
Lýsi þitt lífskvöld
landsins þins elska!
Alþjóðar-þökk
fyrir æfinnar starf!
Fjölgun vélbáta.
Þeim fjölgar smátt og smátt um
land alt. Til dæmis má nefna, að
á Stokkseyri bætast i vetur 4 við
þá 7, sem fyrir eru.