Ísafold - 12.01.1916, Page 1
Kemur út tviavar
i viku. Verð irg.
4 kr., erlendis 5 kr.
e&a 1»/, dollar; borg-
i»t fyrir miðjan júli
erlendii fyrirfram.
Lansasala 5 a. eint.
ísafoldarprentsmiðja Rítstjðr!: ÚlEjlir Björnssan. Talsítm nr. 455
TJppsðgn (skrifL)
bnndin við iramót,
er ógild nema kom-
in sé til útgefanda
fyrir L oktbr. og
8é kanpandi sknld-
lans við blaðið.
XLIII. árg.
Reykjavík, miðvikudaginn 12. janúar 1916.
3. tölublað
Aljþýnufél.bókasafn Templaras. 8 kl. 1—9
Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 11—8
Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7
Bæjargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 og 5
íglandsbanki opinn 10—1.
K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8 Ard,—10 slSd.
Alm. fundir fld. og sd. 8>/a siðd.
Landakotskirkja. Guösþj. 9 og 6 á helgnm
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Iiandsbankinn 10—8. Bankastj. 10—12.
Landsbókasafn 12—3 og 5—8. Útlán 1—8
Landsbúnaðarfélagsskrifstofan opin frA 12—2
Landsféhirbir 10—2 og B—8.
Landsskjalasafnib hvern virkan dag kl. 12—2
Landsslminn opinn dagiangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 1—7.
HAttúrngripasafnib opið l‘/«—2»/a A snnnnd.
pósthúsib opib virka d. 9—7, sunnud. 9—1.
SamAbyrgb Islands 12—2 og 4—6
StjðrnarrAbsskrifstofnrnar opnar 10__1 dagl.
Talsimi Reykjavikur Pósth.8 opinn daglangt
8—10 virka daga, helga daga 10—9.
VifilstabahæliB. Heimsóknartimi 12—1
þjóBmenjasafnið opiB sd., þd. fmd. 12—2.
V1
Klæðaverzlun
H. Andersen & Sön.
Stofnuð 1888,
Aðalstr. 16.
Simi 32.
þar eru fötin saumnð flest
þar eru fataefnin bezt.
'IJ AJf .1T'il tjinnD3'3vi mjjt’F.
Yerzlunaryiðskifti Islands.
Trassaskapur hjá sýslumönnum.
Nýlega er komið út fri Hagstofu
Íslands, hefti með skýrslum um verzl-
un íslands 1913.
Samkvæmt henni hafa viðskifti
landsins numið alls nærri milj.
krónutn. Þaraf aðfluttar vörur nál.
16.800.000 kr. og útfluttar 19.130.000
krónur.
Árið 1909 var ný aðferð tekin
UPP um útreikning aðfluttu vörunn-
ar. Fyrir þann tíma var reiknað tít-
söluvetð hennar, en síðan hefir verið
fariö eftir innkaupsverði, að viðbætt-
um flutningskostnaði, en tolli og
álagning kauptnannsins slept. Eftir
eldri aðferðinni gat útkoman stund-
um orðið sú, að aðflutningur reynd-
ist talsvert meiri en útflutningur —
eins og landsbúskapurinn bæri sig
ei. En pað var aðeins á pappírnum,
en eigi I verunni. Hagstofan hefir
nú unnið það þarfa verk að reyna
að >leiðrétta< svo skýrslurnar frá
1895—19°^> að tölurnar verði sam-
bærilegar við árin eftir 1909. Hefir
hún gert það þann veg, að draga
frá útsöluverðinu greidda tolla og að
auki 20% af vöruverðinu, sem hún
áætlar að svari til álagningar kaup-
manna.
Þannig leiðrétt verða verzlunarvið-
skifti íslands frá 1895 — 1913 á þessa
leið:
Aðflutt. Útflutt.
1000 kr. 1000 kr.
1895 5.202 7.210
1896 5-9S9 6.634
1897 6.047 6.073
b-i co 'sO 00 5-457 5-999
1899 5.841 7.362
1900 6.528 9.000
1901 7.405 9.136
1902 7.907 10.147
1903 8.226 10.207
1904 8.441 9.877
1905 10.503 12.752
1906 11.747 13-499
1907 13-479 15.426
1908 11.232 12.075
1909 9.876 13.129
1910 11.323 14.406
1911 14.123 IS.691
1912 iS-347 16.558
1913 16.718 19.128
Eins og menn sjá, er það enginn
smáræðisvöxtur, sem verzlunin hefir
tekið þessi 18 ár, og enn meira
mun að honum kveða tvö árin síð-
ustu, sem enn vantar skýrslur um.
Eins og vant er hefir það komið
fram við samning verzlunarskýrsln-
auna, hve mikillar vanrækslu eða
trassaskapar kennir hjá sýslumönn-
um og bæjarfógetum um innkeimtu
verzlunarskýrslna.
Um þetta efni segir svo í verzl-
unarskýrslu Hagstofunnar:
»Þar sem um tollvörur er að ræða,
hefir útkoman úr verzlunarskýrslun-
um verið borin þar sem unt er sam-
an við vörumagn það, sem tollur
hefir verið greiddur af. Eirs og að
undanförnu hefir það hvarvetna kom-
ið i ljós, að upphæðin verður minni
eftir verzlunarskýrslunum heldur en
eftir tollreikningunum. En þar sem
það liggur i augum uppi, að minna
hefir ekki verið flutt inn eða út af
tollvörum, heldur en tollreikning-
arnir telja, þá heíir því sem á vant-
ar allstaðar verið bætt við útkomuna
úr verzlunarskýrslunum, þannig, að
sama verð hefir verið sett á það,
sem á vantaði, eins og A þvi, sem
upp var gefið*.
Það sem eftir samanburðinn við
tollreikningana hefir orðið að bæta
við innkomnar verzlunarskýrslur nem-
ar á aðfluttum vörum nærri 1.580.000
kr. eða 15 9%, en á útfluttum vör-
um um 3.800.000 kr. eða 29 5%.
Á aðfluttum og útfluttum vörum
munar þetta 23.6%, eða nærri V*
hluta. Athugun hefir aðeins verið
hægt að gera á tolluðum vörum, og
þó eigi öllum, en alls eigi á toll-
frjálsum vörum. En líklegt þykir,
að vanhöldin muni eigi minni vera
á öðrum vörum, og þykir hagstof-
unni liklegt, að á þær vöiur vanti
2—3 milj. kr. virði.
Um þetta efni fer Hagstofan þess-
um orðum:
Samanburður sá, sem hér hefir
verið gerður, bregður alt annað en
fögru ljósi yfir verzlunarskýrslurnar.
í rauninni er það landinu til stórr-
ar vanvirðu að láta annað eins sjást,
og það hlýtur að veikja traustið á
áreiðanleik skýrslna vorra yfirleitt,
þegar það sýnir sig, þar sem unt er
að koma að nokkurri prófun á þeim,
áö þeim er svo stórlega ábótavant.
En það verður að segja hverja sögu
eins og hún gengur, ef ske kynni
að þeir, sem hér eiga hlut að máli,
sæju að hér þarf veralegra umbóta
við, og gerðu það sem í þeirra valdi
stæði til þess, að skýrslurnar yrðu
fullkomnari og betri framvegis. Það
sem samanburðurinn einknm virðist
leiða t ljós, er það, að innheimtunni
á skýrslunum sé harla ábótavant.
Það er að vísu ekki tiltökumál, þótt
eitthvað falli undan af þeim vörum,
sem enginn tollur er greiddur af,
því að innheimtumönnum getur oft
verið ókunnugt um, þótt eitthvað
sé fiutt af sliku, einkum inn í land-
ið; á útflutningi ber meira. Hins-
vegar virðast skýrslur ættu að geta
komið um allar vörur, sem tollur
er greiddur af, því að þar er inn-
heimtumönnum (sýslumönnum og
bæjarfógetum) kunnugt um innflytj-
endur og útflytjendur. Það er nú
samt varla við þvf að búast að full-
komið samræmi geti fengist milli
tollreikninganna og verzlunarskýrsln-
anna, enda sök sér, þótt eitthvað
félli úr af þeim vörum, sem pantað-
ar eru af mörgnm í smáum stíl, svo
sem vindlum, tóbaki o. fl. En ef
litið er á samanburðinn hér að fram-
an, þá sést, að af aðfluttu vörunum
hafa skýrslurnar einmitt verið einna
lakastar um salt, sement, trjávið, kol
og steinolíu, alt vörur, sem fluttar
eru inn mestmegnis eða eingöngu
af fáum mönnum í stórum stíl, svo
að um þær virðist innheimtumönn-
um hafa átt að vera innanhandar að
fá fullkomnar skýrslur, svo að ekk-
ert vantaði á, en i því efni hljóta
sumir þeirra að hafa gengið mjög
slælega fram. Þó vantar tiltölulega
enn meir af útfluttu vörunum, sem
sjilfsagt stafar að nokkru leyti af
því, að ýmsir af útflytjendunum eru
útlendingar, sem ef til vill eru farnir
af landi burt, þegar farið er að
heimta skýrslurnar inn um áramót.
Af slikum mönnum ætti að heimta
skýrslurnar jafnóðum og þeir flytja
út, en bíða ekki áramóta. Það væri
auðvitað langæskilegast, að allar verzl-
unarskýrslur væru innheimtar jafn-
óðum og vörurnar eru fluttar út eða
inn, en þó að vöruflytjendur væru
fáanlegir til þess að gefa skýrslurnar
á þann hátt, er hætt við að það
strandaði á innheimtunni, því að við
þá breytingu væri þörf á miklu ár-
vakrari og natnari innheimtu heldur
en\ nú. Annars ætti fyrirkomulag
það sem nú er að geta verið sæmi-
lega nothæft, ef innheimtumenn gerðu
sér alment far um að ná inn skýrsl-
um frá öllum þeim inn- og útflytj-
endum, sem þeir vita um, og þá
fyrst og fremst öllum þeim, sem
greitt hafa einhvern toll«.
Þessar aðfinningar Hagstofunnar
verða þeim sem hlut eiga að máli
væntanlega tilbærileg viðvörun fram-
vegis. Það er sýslumannastéttinni
hneisa, ef annað eins ólag helzt á-
fram, eins og legið hefir í landi
undanfarið.
Og þessar aðfinningar verða von-
andi einnig til þess að brýna fyrir
öllum öðrum, sem opinberar skýrsl-
ur eiga að semja, hve afarmikið velt-
ur á. því fyrir sanna þekking um
hag landsins, og þar af leiðandi álit
þess út á við, að þær séu samdar
með samvizkusemi og nákvæmni —
ekkert felt undan.
Skemdirnar á Goðafossi.
Goðafoss skemdist nokkuð fyrir
skömmu norðanlands, þó eigi meira
en svo, að haldið gat til Khafnar.
Var þar gert við hann. Það kost-
aði 42.000 kr. Ekki lendir þetta
tjón á Eimskipafélaginu, heldur á
vátryggingarfélagiuu, sem skipið er
vátrygt í.
Hlutafél. 'Vðlundur,
Trésmíðaverksmiðja — Timburverzlun
Reykjavík.
Hefir ávalt fyrirliggjandi miklar birgðir af sænsku timbri (unnu og óunnu),
vanalegar, strikaðar innihurðir af flestum stærðum og allskonar lista til
húsbygginga.
Fræðandi tölur
í sambandi við heimsstyrjöldina.
íbúatala Frakk- Nýlega eru komnar
lands og ófrið- út skýrslur um íbúa-
töluna í Frakklandi
árið 1914. Þær eru eru eigi ná-
kvæmar yfir þau héruð, sem að
nokkru leyti lúta nú Þjóðverjum, en
þau eru 10 alls.
Dánir á árinu eru taldir 647.549
eða 58.740 fleiri en 1913. Fæðing-
ar eru taldar 594,222 eða 10.232
færri en árið á undan. Arið 1914
hefir Frökkum fækkað um 53.327
manna. Tala hjónabanda hefir mink-
að um 78.742.
En ef litið er aðeins á 5 síðustu
mánuði ársins 1914, verða áhrif stríðs-
ins ljósari. A þeim tima ern taldir
dánir 32Í.018, en fæðingum hefir
fækkað um 6.676. Hjónabönd eru
67°/0 fátiðari en ella og skilnaðir, er
1913 á sama tíma reyndust nál.
6.300 eru á þessu timabili 1914 ekki
flein en 2.014.
íbúatala. Þann ^ÚSt r9r5
Berlínarborgar. var íbúatala Berlinar-
borgar 1.918.966, en
1. april 1914 2.053.302. Mann-
fækkunin nemur I34.f66. Fæðing-
ar voru í júlí 1914 3.224, en i júlí
1915 aðeins 2,415. Aftur eru hjóna-
vigslur tíðari 1915: í júlf 1914
reyndust þær 1.213, en í júlí 1915
1.429.
Hvað striðið Svissneskir hagfræð-
kostar á mann. ingar hafa reiknað út,
að auknar rikisskuldir
vegna stríðsins nemi: í Sviss 80
frönkum á mann, í Ungverjalandi
134 frönkum, f Austurríki 176 fr.,
1 Þýzkalandi 260 fr., í Frakklandi
340 fr., í Bretlandi 585 fr.
Tekjur Bret- Arsfjórðunginn i. júli
lands. —30. sept. námu
ríkistekjur Bretlands
51.569.628 sterlingspundum eða
928.253.304 kr., m. ö. o. hátt upp
í miljarð, en þetta er 15.888.345
sterlingspundum meira en í fyrra
(reiknað í krónum: 285.990.210^.).
... A einu ári frá því
tryggingin stnðlð hófst hafa 3 S70i
danska. striðs-sjóvátryggingar-
skírteini verið keypt
í Danmörku. Vátryggingarfúlgan var
alls rúmar 567 miljónir króna og
iðgjöldin 8 miljónir og 200 þúsund
kr. En tjónið, sem bætt hefir verið,
er að eins 1.217.000 kr. En til
hliðar hefir verið lagt fyrir tilkyntu
eða óúrskurðuðu tjóni 4.400.000 kr.
Gróði vátryggingarfélaganna því nærri
2 miljónir og 600 þús. kr.
íslenzki fáninn. Einkar falleg lit-
mynd er komin á markaðinn af (s-
lenzka fánanum blaktandi yfir Lög-
bergi. Frum málverkið hefir gert Jón
prófessor Helgason, sem er snjall mái-
ari, þótt í hjáverkum hafi. Prent-
myndin er gerð í Leipzig og hefir Pét-
ur Halldórsson bóksali gefið út. í
baksýn er Þingvallavatn og fjöllin
kringum það, framar á myndinni Þing-
vallabær, en fremst Lögberg — milli
gjánna — og þar fáninn þríliti hátt
við hún. Svo er aðalmyndin umkrýnd
ótal fánum, en undir henni »röðull ár-
faguré! — yfir framtíðarinnar íslandi,
með eigin fána. Myndin er sérstök
heimilisprýði og ódýr mjög, 2 kr. —
Sennilega væri heppilegt að fá einnig
af henni minni útgáfu, svo aS sem út-
breiddust verSi, »inn á hvert heimili«.
Amerfknskipið »Vesla« kom hlng-
aS aðfaranótt sunnudags, hlaðiS vörum,
sem nú er verið aS hlaða í hið nýja
vöru-forðabúr landssjóðs, gamla Lands-
bankann. Farþegar voru: Ó. Johnson
konsúll og Guðm. Thorsteinsson list-
málari.
Skipafregn : G u 11 f o s s fór héð-
an til útlanda í gær kl. 4. Farþegar:
Westskov verzlunarstj. og frú, Matth.
Einarsson læknir og frú, Carl Olsen
stórkaupmaður og frú, Egill Jacobsen
kaupm., Hallgr. Benediktsson kaupm.,
ungfrú Soffía Helgason, Gústav Grön-
vold kaupm., Gunnar Hjörleifsson,
Jón Björnsson kaupm., Haraldur Árna-
son kaupm., H. S. Hanson kaupm.,
Pótur Ólafsson konsúll, Hensen bakari,
Kristján Torfason kaupm., L. Miiller
0. fl.
F 1 o r a fór til Austfjarða og út-
landa í fyrrakvöld. Meðal farþega:
Síra Pótur Þorsteinsson frá Eydölum
með frú sinni.
Bæjarstiórnarkosning.
Á Akureyri fór fram kosaing á
Liugardag. Kosning hlutu Jón Berg-
sveinsson síldarmatsmaður (af verk-
mannalista) með 174 Va atkv., Ingi-
mar Eydal (af sama lista) með 132V*
atkv. Auk þeirra voru kosnir Magn-
ús Kristjánsson með 74 V2 atkv. og
Böðvar Jónsson gæzlustjóri með
56 Ví atkv.
Á Isafirði fór einnig fram bæjar-
stjórnarkosning á laugardaginn.
Kosnir voru: Af A-lista: Arngrimur
Bjarnason prentari. Af B-lista: Jón
A. Jónsson bankastjóri, Guðm. L.
Hannesson konsúll, Sig. Kristjáns-
son kaupm. og Sigurjón Jónsson
framkvæmdarstjóri. Af C-lista: Helgi
Sveinsson bankastjóri, Axel Ketils-
son kaupm., Guðm. Guðmundsson
frá Gufudal og Magnús Magnússon.