Ísafold


Ísafold - 12.02.1916, Qupperneq 1

Ísafold - 12.02.1916, Qupperneq 1
Keraur út tvisvar í viku. VerS árg. 5 kr., erlendis kr. eða 2 dollarjborg- ist fyrir miðjan júlí erlendis fyrirfram. Lausasala 5 a. eint. ísafoldarprentsmiðja. Kitstjólfi: Ólafur Ejörnsson. Talsími nr. 455. Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, er ógild nema kom- in bó til útgefanda fyrir 1. oktbr. og só kaupandi skuld- laus við blaðið. XLIII. árg. Reykjavík, laugardaginn 12 febriiar 1910 11. tölublað A lþýrmfél.bókasafto TemplaraB. 8 kl. 7—9 BorgarstjóraBkrifstofan opin virka daga 11 -B Bœjarfópetaskrifstofan opin y. d. 10—2 og 1—7 .Bíöjarcrjftldkerinn LanfAsv. 5 kl. 12—8 og —7 íslandebanki opinn 10—4. K.F.UJH. Lestrar-og skrifstofa 8Ard.—10 .iðó. Alm. fnndir fid. og sd. 81/* alðd. Landakotskirkja. Guðsþj. 9 og 6 & hel* .m LandakotsBpítali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn 10—8. Bankastj. 10—12. tiandsbókasafn 12—8 og B—8. ÚtlAn 1—8 LandsbúnaöarfólagsBkrifstofan opin frá 22-2 Landsféhirhir 10—2 og 6—6. Landsskjalasafnih hvern virkan dag kl. 12-2 Lands8Íminn opinn daglangt (8—9) virka daga helga daga 10—12 og 4—7. !ÍAttúrngripa8afniB opih Vfa—2*/a A snnnv d. PÓ8thúsið opió virka d. 9—7. snnnnd. 9—1. Bamábjrgh Islands 12—2 og 4—6 ■StjórnarrAOsskriffttofnrnar opnar 10—4 d&gl. Talsimi Reykjavíknr Pósth. 8 opinn daglangt 8—10 virka daga, helga daga 10—0. Vifilstabahœlið. Heimsóknartimi 12—1 ÞjóBmenjasafnih opió sd., þd. fmd. 12—2. LlimmrJJAILLllTJTJTTll Klæðaverzlun H. Andersen & Sön.£ Aðalstr. 16. Stofnsett 1888. Sfmi 32. . far eru fötin sanmnð flest ■ i þar eru fataefnin bezt. - ^rTni.tnmmnmrrrr flötog opprétt, frá H. Hindsbergs konungl. hirðhljóðfærasmiðju í Kaup- mannahöfn. Sérstaklega ágæt, údýr og hæfileg i hús hér eru smáflýge þaðan. Hljóðfærin hafn hlotið ein- róma lof og i. verðlaun á sýning- unni í London 1909. Borgunarskilraálar ágætir. Einkaumboðsmaður fyrir ísland. Vigfús Einarsson, bæjarfógetafulltrúi í Reykjavík. Hæst verð greiðir kjötverzlun E. MilnerS, Lnugavegi 20 B, fyrir nautgripi, eldri og yngri, einnig káifa. Borgað samstundis. Draupniseðlið — * Það eru nú nærri 3 ár siðan heilla- ríkasta itórmdl vort komst inn á dag- skrá bl'ða vorra, þ. e. stojnun Eim- skipaýélags Islands. TJm oý verðnr það aldrei brýnt fyrir íslendingum, hve vafalaust það á að eiga ýrumburðarréttinn í hugum landsmanna — fyrir ofan þjóðmála- deilur og stéttarigstildur það, sem nú virðist ætla — illu heilli — að reyna að koma sér »á efsta borðið* með bolabröoðum. Þegar um var að tefla fyrstu spor- in í Eimskipafélagsáttina fór Isafold (19'/s-—T3) um þau orðum, sem vér leyfum oss að taka nú upp: tNauðsynina sér hver maður ís- lenzkur, er nokkuð hugsar um þetta mál. Hinu er meiri hætta á, að þótt menn sjái, að hér er um að tefla mikla og máttuga lyftistöng lands- ins og þjóðarinnar, til þroska og sjálfstæðis — láti þeir gamla þjóð- löstinn — gamla þrándinn í götu vorri — tómlœtið islenzka sitja í fyr- irrúmi huga sins og lama sjálfsagðar lífsskilyrðaframkvæmdir. En petta sinni verðum vér að varpa rómlætinu, varpa áhugaleysinu, varpa afskiftaleysinu fyrir ætternis- stapa, svo að eigi þurfi skáldið að spyrja í pessu mdli: eða viljum vér ei neitt? — heldur heyrist þúsund raddað hróp landshornanna milli: Allir eitt! o. s. frv., því nú atlum við að eignast skipU Fjörsprettur sá, sem hin islenzka þjóð tók þá hefir af sér leitt »Foss- ana* tvo, sem heita mega fljótandi óskabörn þjóðarinnar — ekki sízt eftir það, að þeir máttu sýna sig í þjóðaraugsýn með þjóðernismerki Islendinga við hún. En — betur má, ef duga skal! »Við ætlum nú að eignast skiplc — var sagt 1913. Sú byrjun var svo góð, að nú hlýtur viðkvæðið að vera þetts! Við ætlum nú að eignast fleiri skip. Góð byrjun gefur von um enn betra framhald. Og það á að verða leikandi list, ef bærilega er að verið — um fram alla muni samtaka, — án flokksgrein- arálits. Þarfleg hugvekja í þessa átt hefir nýlega komið í Vestra (18. janúar), eftir Sig. alþingismann Steýdnsson og leyfum vér oss að taka upp hér meginhlutann úr grein hans: »Arið 1910 voru inneignir í öllum sparisjóðunum samtals 61/* miljón liðug. Þá átti 24. hver maður á landinu fé í sparisjóði. Innieignir höfðu þá siðustu 5 árin aukist um 2 miljónir og 300 þús. kr. A þeim árum var þó ekkert annað eins veltiár til lands og sjávar og átið sem leið, og sum árin miklu lakari en í meðallagi. í lok síðasta árs og má því vel búast við, að inneignir í sparisjóð- um verði komnar upp í 10 miljónir eða þvi sem næst. Það er gott til þess að vita, er þeim fjölgar, sem ávaxta vilja fé það, er þeir hafa afgangs nauðsynlegum útgjöldum, í stað þess að eyða þvi i óþarfa. Það flýtir fyrir þvi, að þjóðin komist úr vesalmenskukútnum og verði fjárhagslega sjálfstæð. An þess sjálfstæðis samfara sannri menning er alt sjálfstæðisskraf og sjálfstæðisbrölt »reykur, bóla, vind- skýc. En svo gott sem það er að sjá þjóðina efnast fyrir sparsemi og fyr- irhyggju, þá er hitt þó ennþá skemti- legra, er hún verður samtaka um að styðja að nytsemdar fyrirtækjum, er hljóta eftir eðli sínu að hrinda henni hröðum fetum áleiðis í sjálfstæðis- áttina. Hver slík hreyfing er vitjunar- tími þjóðarinnai. Og að þekkja þann vitjunartíma er þjóðinni lifs nauð- synlegt. Stofnun Eimskipafélagsins var slík- ur vitjunartlmi. Með henni var stefnt að þvi marki, T rygging fyrir að fá vandaðar vörur fyrir lítið verð, er að verzla við V. B. Ji. Landsins mestu birgðir af: Vefnaðarvörum Pappír og ritfóngum / Sólaleðri og skósmíðavörum Pantanir afgreiddar um alt ísland. Heildsala. Smásala. Vandaðar vörur. Odýrar vörur. Verzlunin Björn Kristjánsson, Reykjavík. Símneftii: „Business“ Símar 550 & 283. Jón Síverfsen Ingólfsstræíi ÍO' sjCailösala í íínum, netfagarni, Ro&lum iÍQSSÍans o. s. Jrv. ^ímðoéssata i cTT o lum S £ a 11 i. Að gefnu tilefni skal þess getið, að hr. Olafur Rósenkranz, eins og áður er auglýst, hefir nú eigi önnur siörf á hendi fyrir lsafoldarprentsmiðju en undir- búmni> hmnar dansk-islenzku orðabókar, og eru við- skiftavinir mínir pvi beðnir um eftirleiðis að snúa sér með öll viðskifti til mín eða til prentsmiðjusijór- ans, hr. Herberts M. Sigmundssonar. ReykjavíJc 12. fébrúar 1916. Olafur Bjórnsson. að létta af oss margra alda oki er- lendrar áþjánar og þoka oss upp í tölu hinna sjálfstæðu þjóða heimsins í verzlun og viðskiftum. En um þetta þarf ekki að fjölyrða, allir íslendingar viðurkenna það að minsta kosti í orði kveðnu. En það er ekki nóg. Sýn mér trú þina af verkunum. Það hefir veiið látið mikið yfir hinum góðu undirtektum landsmanna undir fjárframlögin til Eimskipafé- lagsins. Þegar litið er á í hve mikið hér var láðist og hins vegar hina rót- grónu vantrú margra vor á sjálfum okkur, þá er ekki ástæða til annars en að vera ánægður og þakka guði fyrir að svo er komið sem er um það mál. En sé aftur litið á framlögin i sam- bandi við. inneignir landsmanna i sparisjóðunum, þá eru þau óneitan- lega ekki mjög stórvaxin. Um það leyti, sem hlutafjársöfn- unin hófst, hafa landsmenn að öll- um líkindum átt inni í sparisjóðum um 8 miljónir króna. Hlutafjárupphæð landsmanna mun hafa numið um 370 þús. króna, eða að eins rúmum */21 af þeirri upp- hæð. Til þess einir að vera um þá upp- hæð þurftu inneignamennirnir ekki að láta nema tæpa 3 af hnndraði af inneign sinni, að meðaltali. Þá hefði lítið munað um það. Þótt þeir hefðu ekki haft meiri trú á fyrirtækinu en svo, að það gæti brugðist til beggja vona, að þeir sæn nokkurn eyrir aftur af þeim framlögum, þá gat það naumast tal- ist mikil fórnfýsi fyrir jafn nytsamt og þjóðarnauðsynlegt fyrirtæki i sjálfu sér. En hér var sannajlega um enga fórnfýsi að ræða heldur hreint og beint gróðabragð, sem litlu var til hætt. Þjóðin mun sem betur fór ekki hafa haft svo magnaða vantrú á fyrirtækinu og framkvæmd þess, að hún teldi því fé algerlega á glæ kastað, er til þess var varið. Hitt mun hafa valdið meira um, að hluttakan varð ekki svo almenn sem skyldi, að mönnum óx fyrir- tækið svo í augum og gerðu sér ekki nógu ljósa nauðsyn þess og þýðingu. En hvorugu þessu ætti nú lengur að vera til að dreifa. Vér eigum þegar tvö góð skip, sem bráðum hafa í heilt ár flutt oss nauðsynjar vorar frá útlöndnm og jafnan siglt rreð fullfermi. Og vér höfum nú þegar grœtt stórýé d pessum tveim skipum. Engin þjóð i heiminum hefir lík- lega á þessum skelfingartfmum, er vér nú lifum á, fengið vörur sfnar með jafn lágu flutningsgjaldi frá útlöndum eins og vér árið sem leið. Flutningsgjald af stykkjafarmi þ. e. öllum innfluttum vörum, nema salti og kolum, hefir hjá oss verið eins og áður en styrjöldin mikla hófst. Annarstaðar í heiminum hefir þetta gjald hækkað stórkostlega sök- um ófriðarins. Þetta nemur stórfé, sjálfsagt mörg- um gufuskipaverðum. Og hverjum eigum vér þennan gróða að þakka ? Eimskipafélaginu og engum öðrum. Eða dettur nokkrum f hug, að t. d. Sameinaða gufutkipafélagið eða önnur útlend félög, sem flytja vör- - ur hingað, mvndu ekki hafa hækk- að flutningsgjaldið, ef þau hefðu verið ein um hituna? Auðvitað græðir Eimskipafélagið að öllum líkindum minna fyrir þetta, en landsmenn lika þeim mun meira. Eimskipafélagið hefir verið féþúfa vor að þessu leyti þetta eina ár síðan það tók til starfa. Þetta ætti vissulega að sannfæra hvern einasta hugsandi íslending um gagn og nauðsyn þessa nýstofnaða félags vors og efla trú þjóðarinnar á því. Vér höfum vissulega nógu lengi horft á það haldandi að oss hönd- um, að aðrar þjóðir flyttu margar miljónir króna frá oss heim til sín í flutningsgjöldum og þeim vanalega afarháum. En nú höfnm vér séð, að það er utidir sjálfum oss komið, hvort vér horfum enn um langan tíma á þessa sorgarsjón. Það hafa Fossarnir okkar þegar kent oss. Þeir hafa kent oss að vér þurf- um að auka skipastólinn og auka hann fljótt. Ekki minna en eitt skip á ári í næstu 4—5 ár. Og vér getum pað ef vér viljum. Eg hefi heyrt suma vera að spá þvi, að hin nýja hlutafjársöfnun til Eimskipafélagsins myndi ekki ganga eins vel og sú fyrri. Því miður geta þessir menn reynst sannspáir, en ekki er mér Ijóst á hverju þeir byggja þessar hrakspár V

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.