Ísafold - 11.03.1916, Síða 1
n
Kemur út tviavar
í viku. Verð árg.
5 kr., erlendis 7a/2
kr. eða 2 dollarjborg-
ist fyrir miðjan júlí
erlendis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint.
XLIII. árg.
ISAFOLD
tsafoldarprentsmiðja.
Ritstjóri: Dlafur Björnsson.
Talsimi nr. 455.
Reykjavik, laugardaginn n. marz 1916.
Uppsögn (skrifl.)
buadin við áramót,
er ógild nema kom-
in sé til útgefanda
fyrir 1. oktbr. og
só kaupandi skuld-
laus við blaðið.
18. tölublað
Trygging
fyrir að fá vandaðar vörur fyrir lítið verð, er að verzla við
p. b. n
Landsins mestu birgðir af:
Vefnaðarvörum
Pappír og ritföngum
Sólaleðri og skósmíðavörum
Pantanir afgreiddar um alt íaland.
Heildsala. Smásala.
Vandaðar vörur. Ódýrar vörur.
Verzlunin Björn Kristjánsson, Reykjavík.
Bræðurnir Stephensen.
Til móöur þeirra.
Langt er að preyja,
pú Ijós sem ert mín von,
og nú er nóttin lengri,
pvi á e% engan son.
Við undum svo örugg
í ástúð og ró,
en vanstilt er lukkan
á veraldarsjó.
Alt var í ýriði
og alt ýór svo vel,
prátt fyrir aðköst,
en pá kom hún Hel.
Engin móðir skilur
pig alvísa stjórn,
ekkert móðurhjarta
pig Abrahamsýórn.
Fyrst hneig vor Jónas
og pað var okkur pungt,
er hfjjasta hjartað
varð helkalt svo ungt.
En lífstein jeg átti,
sem létti minn harm
er pér, tingi Magnús
eg prýsti mér við barm.
Við elskuðum n af nið
og enn meira af pvi
pú heimtir meiri hluttöku
kjarta mínu i.
Þú haýðir mœtt slysi
svo heilsa pin var veil;
eg hefði boðið líýið
að verða matti’ hún heil.
Svo brotnaði báran
ó, signaði son,
pá sökk niðr’ i hafið
vor dýrmatasta von.
Að lifið hafi tilgang
pvl trúi eg vel;
en sárt er að mata pér,
sviplega Hel.
Og pungt er að skilja pig
skammvinna liý,
svo oýt sýnist endir pinn
örvinglað kíý,
Ellin er dauf peirn,
sem engan á son;
kotn pví og liknaðu oss,
liýandi von.
Svo tregar pú móðir,
svo. hugsið pið hjón,
sem hast eigið metorð,
sem veitir petta ýrón.
Og enginn ykkur láir,
við öll erum jöýn,
og eigutn vísa lending
i sómu tryggu höýn.
En höfnin hún er Guð
sá er gaý oss og tók,
og opnar okkur alliýsins
eilífu bók.
Og hví viltu hreykja pér
haýaldan blá
úr hendi Guðs ei ýýkur
eitt einasta strá.
í febrúar 1916.
Matth. Jochumsson.
Ohollir
stjórnmálastraumar
Ef sú spurning væri lögð fyr-
ir landsmenn, hvernig þeir yndu
því, sem gerðist í ríkisráði*19. júní
f. á. mundi svarið verða mjög á
eina leið hjá langflestum. Þeir
mundu lýsa yfir fullkominni á-
nægju með úrslit þau, er færðu
oss nýja stjórnarskrá og nýjan ýána,
stjórnarskrána með algerri full-
næging fyrirvara alþingis 1914,
og fánann með gerð, sem ekki
heyrist nú, að nokkur amist við,
heldur vinni hug landsmanna
með degi hverjum, sem hann er
dreginn við hún.
Ef landsmenn væru beðnir að
leggja hönd á hjartað og svara
því í fullri einlægni og umsvifa-
laust — hvort þeir teldu lands-
réttindi vor skert með staðfest-
ingarskilyrðum stjórnarskrárinnar
— hversu margir haldið þér, að
mundu svara þeirri spurningu
játandi?
Hún mundi eigi beisin, talan
sú!
Til eru að vísu einstaka menn,
sem eru svo einkennilega blind-
aðir, að líta svo á af sannfæring.
En hinir eru flestir - í að vísu
afarfámennum hópi »þversum«-
manna, sem látið hafa blekkj-
andi óp einstakra leiðtoga í stjórn-
málum vorum tevma sig út á
skynsemi sneiddar villigötur í
þessu máli, án þess að hugsa nokk-
uð, og aý pvi, að í þversum-for-
sprakkanna hópi eru einstaka
gamlir Sjálfstæðis-þingmenn, sem
áður hefir borið talsvert á, og
því haldið um þá, um hugsunar-
laust, að þeir hafi eigi ófyrirsynju
farið að ráðast móti konungsfar-
ar-árangri þrímenninganna.
Það er nú búið að margkryfja
svo til mergjar hinar haldlausu
átyllur »þversumc-inanna til þess
að sporna við því, að við fengjum
stjórnarskrá þá, sem nú erigildi
gengin, að Isafold virðist tilgangs-
laust að vera að fara frekar út í
þá sálma — enda Alþingistiðind-
in senn komin út, svo alþjóð gefst
færi á að dæma milli »þversum-
manna og hinna réttneýndu Sjálf-
stæðismanna í eftirvaradeilunni.
Bezta sönnuninn fyrir því,
hvernig sá dómur muni verða
með þjóðinni er, að ekki hefir
bólað á nokkurri óánægju með
gerðir þingsins í eftirvaramálinu
— frá nokkurum fundi á land-
inu, það vér frekast vitum. En
nærri má geta, að eigi hefði
sparað verið að hóa saman mót-
mælafundum, ef nokkursstaðar
hefðu verið tök á því.
Tsafold er og sannfærð um, að
»þversumc-þingleiðtogarnir vita
sjálfir um hið gagngera fylgisleysi
í landinu við stjómarskrár-eyðilegg-
ingarpólitik þeirra — og að ef hinir
gætnari þeirra hefðu mátt ráða,
hefði þeir eigi viljað láta sakast
nokkuð um orðinn hlut.
piano, flygel
frá ýmsum ágætusru verksmiðjum
Norðurlanda, útvega eg með beztu
kjörum sem hér fást.
Pantanir afgreiddar strax og hljóð-
færin koma með fyrstu skipsferð.
Yigfús Emarsson,
bæjarfógetafulltrúi í Reykjavík.
En svo hefir farið, illu heilli,
að hinir æstari og óskammfeiln-
ari menn í þeim hóp. hafa mátt
sín meira, og sökum áhrifa þeirra
er nú verið að reyna að leiða
yfir landið stjórnmála-foraröldu,
sem upptökin á í blaði, sem ann-
ar bankastjóri Landsbankans
hr. Björn Kristjánsson stofnaði
um nýárið með tilstyrk nokkurra
náinna fylgifiska sinna og kallar
sig »Landið«.
Að hr. B. Kr. skuli hafa látið
óskiljanlega kala sinn, eða jafn-
vel hatur til einstakra fyrri flokks-
manna sinna—teyma sig svo langt
að leggja nafn sitt — leynt að visu
— við öðrum eins óhollustu-
straumum inn í íslenzkt stjórn-
málalíf og »Landið« hans vinnur
að — hefði ísafold sízt varað.
En svo lengi lærir, sem lifir.
Siðferðislegu ábyrgðina á fram-
ferði þessa nýja blaði ber áreið-
anlega fyrst og fremst hr. B. Kr.
Og verður hánn þvi, að láta
sér lynda, að henni sé að honum
beint.
Isafold er eigi ljúft að þurfa
að höggva hart í garð hans, en
hjá því verður ekki komist, með
því háttalagi, er hann sýnir í
seinni tíð. Hans eina afsökun
kann að vera sú, að hann er eigi
lengur með fullu fjöri. Einhver
sérstök tegund tortrygnis-veiki
gagnvart einstökum mönnum sam-
fara hreinni »megalomani« hefir
gerbreytt honum í seinni tíð, svo
að hann er eigi þekkjanlegur
fyrir sama mann. Slíkum mönn-
um væri hentast í tíma að draga
sig út úr stjórnmáladeilum, svo
eigi kæfi þeir það sem vel hafa
unnið, í foræði hins gagnstæða og
flekki þar með að óþörfu stjórn-
málaskjöld sinn á gamalsaldri.
Það er þetta, sem hr. B. Kr.
er að gera nú með »Lands«-póli-
tík sinni.
»Það er óvandari eftirleikurinn«,
segir máltækið.
Frá því um nýárið hefir þetta
hið nýja blað B. Kr., sem sumir
kalla »bankablaðið«, af því að
hann, bankastjórinn, er vitanlegur
faðir og forráðamaður þess, aus-
ið svo úr sér fúkyrðum, fáryrð-
um og svívirðingum um fyrri
flokk8menn B. Kr., að fádæmum
sætir í íslenzkri blaðamensku.
Þótt ef til vill væri réttasta
svarið við slíkum ólátum, að láta
þau sem vind um eyrun þjóta og
virða eigi svars, g æ t i þó sú
þögn misskilist meðal ókunnugra
og þykir oss því réttara við og
við að taka »eldhúsdag« til þvott-
ar hinu ófélega óskabarni, hr. B.
Kr., annars forstjóra Landsbanka
íslands.
Til þess þarf nokkuð sterkan
lút, en vér væntum þess, að þurfa
eigi svo oft til hans að taka.
.Effir fifíögum'
Svo stendur í lögum nr, 12 frá
9. júlí 1909, um stjórn Lands-
bankans, að ráðherra skipi bókara
bankans og féhirði og víki þeim
frá, hvorttveggja y>eftir tillögum«
bankastjórnar, En samkvæmt
sömu lögum ræður bankastjórnin
hina sýslunarmenn bankans og
vikur þeim frá.
Þótt undarlegt megi vii'ðast,
hefir orðið eigi alllítið þref um
skilning þessa ákvæðis. Björn
Kristjánsson hefir haldið því fram
i vetur í blaði sínu, að banka-
stjórnin e i n ætti, samkvæmt
þessu fyrirmæli, að ráða skipun
og frávikningu bókara og féhirð-
Í8. Eftir því ættu afskifti lands-
stjórnarinnar af því atriði að vera
tómt form.
En nú er skipun og frávikning
starfsmanna þessara stjórnarat-
höfn, sem ráðherra ber ábyrgð á,
eins og öðrum stjórnarathöfnum
8inum. Fyrir því er einsætt, að
hann verður að framkvæma þá
athöfn á eindæmi sitt, eins og
hverja aðra stjórnarathöfn. Það
væri hrein mótsögn í því, ef lög-
in ætluðust til þess, að hann
fremdi stjórnarathöfn, án þess að
mega ráða því sjálfur, hvernig
hún væri framin, en bera þó
ábyrgð á henni. Á þenna hátt
yrði ráðherra verkfæri í höndum
bankastjórnar, en hann yrði þó
að bera ábyrgð á því, sem hún
réði í þessu atriði.
Enn gæti svo farið, að banka-
stjórn greindi á um umsækjend-
ur að störfum þessum: Sinn
bánkastjóranna legði með hvorum
af umsækjendum, gæzlustjórarnir
legðu með þeim þriðja eða sinn
með hvorum. Á þann hátt gæti
svo farið, að 3 eða 4 hlytu með-
inæli bankastjórnar, eins eða
tveggja úr henni. Hvernig ætti
ráðherra þá að skipa í stöð-
urnar »eftir tillögum® hennar?
Það væri ómögulegt; með öðr-
um orðum: Þetta ákvæði lag-
anna væri stundum óframkvæm-
anlegt, ef skilningur hr. B. Kr.
væri réttur.
Til samanburðar má benda á
það, að stjórnarráðið skipar póst-
afgreiðslumenn »eftir uppástungu«
póstmeistara (Stj.tíð. B. 1908 bls.
151). Sumstaðar í lögum stend-
ur, að leita skuli »álits« eða »um-
sagnar* hlutaðeigandi sýslunar-
manns, embættismanns eðastofn-
unar (sjá t. d. lög um ræktuhar-
sjóð íslands 2. marz 1900, 3. gr.,
lög um Háskóla íslands nr. 35,
30. júlí 1909, 7. gr.). Slík ákvæði
hafa jafnan verið svo skilin, að
hlutaðeigandi ætti rjett á að segja
álit sitt um málið, en að æðri
stjórnarvöld réði því til lykta og
að úrskurður þeirra væri á þeirra
ábyrgð. Hér er mismunandi orða-
lag, en merkingin sama. Banka-
stjórn, póstmeistari, háskóladeild
0. s. frv. eiga rétt á því að fá
málin til umsagnar. En ráðstöf-
unin verður þó g i 1 d, þótt þeirr-
ar umsagnar sé eigi leitað eða
hún fæst eigi samhljóða, eins og
fyrir getur komið og dæmi var
til sýnt hér að framan.,
Björn bankastjóri Kristjánsson
kvartaði yfir því bæði á þingi í
sumar og síðast nú í blaði sínu,
að það sé óheppilegt fyrirkomu-
lag, að bankastjórnin skipi eigi
alla starfsmenn bankans, þá er
undir hana eru settir, og víki
þeim eigi frá á eigin spýtur. Vill
hann hafa fult einræði banka-
stjórnar yfir því máli. Þettahefir
þó eigí verið gjört 1909, er lögin
um 8tjórn bankans voru sett.
Hefir bankastjóra B. Kr. þá eigi
þótt þörf slíkra fyrirmæla, og
átti hann þó sæti þá á þingi.
Þess munu tæpast dæmi, að fram-
kvæmdarstjórn banka ráði bók-
ara bankans og féhirði. B. Kr.
hélt því reyndar fram á þingi í
sumar (Alþt. 1915 B. III. 1299.
dálki), að framkvæmdarstjórn ís-
landsbanka skipaði þessa menn
á eindæmi sitt. En bankastjórinn
þekki auðsjáanlega ekki reglu-
gjörð íslandsbanka frá 25. nóv.
1903 (Stjórnartíðindi 1903 A. bls.
272).
I 25. gr. þessarar reglugerðar
segir 8vo: »Með sampykki full-
trúaráðs1 ræður hún (þ. e. fram-
kvæmdarstjórnin) útibússtjóra,
gjaldkera og bókara 0g víkur
‘) Auðkent hjer.