Ísafold - 08.04.1916, Side 2
2
ISAFOLD
J
Hct/urfduajffanaMn
TJusfursíræíi 22 — Tafsími 219
hefir nú fengið mikið af nauðsynlegri
Vefttaðarvöm.
f 4^ teR- einl>r> frá o‘24 mtr. til i.oo mtr.
" v/ 4^// 9 — tvíbr. lakal. — 0.9S — — 4.35 —
’ Vaðmálsvendar óbleikt i lakið 1.75
Tvistdúkar — Flónel — Sirz.
Handklæða- og Þerrudreglar, 20 teg.
Handklæði, margar teg.
JTlorgunkjólaefm
margar gerðir — sérlega góð og ódýr.
Garcfinutau
hvít, cream og mislit.
Rekkjuvoðir með vaðmálsvend, Rumteppi, stór og smá
Tvinni — Hortvinni og m. m. fleira smávegis.
>Það tekst ekki, þoka, að þú gerir
038 geig,
Þótt grúfirðu á ströndum og vogum.
Þú situr nú voldug, en samt ertu
fe'gi
Því sól fer nú austan með logum.«
— Sól eilífðarvissunnar — sagði
ræðumaður.
Alt var erindið um það, hver
þörf vaeri á að hreinsa til og lyfta
vanþekkingarþokunni í þessu máli af
hugum manna.
í stuttri blaðagrein er eigi hægt
að fara frekar út í að skýra frá er-
indi þessu.
En því einu vill ísafold bæta við,
að sannarlega er meira bragð og
meiri uppbygging að erindi eins og
þessu — en flestum þeim skyldu-
prédikunum sem varir margra prest-
anna inna af hendi i kirkjum vorum
sunnudag eftir sunnudag.
Norsk listasýning
í Höfn.
Það er enginn kotungsbragur á
Austmanninum, þegar hann kemur út
fyrir landið sitt til þess að sýna sig
og verk sín. Hans sjálfstæða fram-
koma yljar skap viðtakandans og
vekur traust á verkum hans. — Hér
er það gesturinn, sem gefur fyrst
og fremst, og viðtakandi tekur hon-
um með opnum örmum og býður
honum i sína beztu stofu, svo hann
geti talað við hann i næði, gestinn
sinn ljóslynda með fjallablámann í
augunum.
í þetta sinn eru það Danir, sem
bjóða Norðmönnum að sýna listir
sinar í Kaupmannahöfn i sýningar-
höllinni Charlottenborg og Dana-
konungur sjálfur hefir opnað sýn-
inguna ásamt heilli sveit af listavin-
um og prófessorum frá báðum lönd-
um, þar á meðal Thiis listfræðingi og
safnsverði i Kristjaníu — stuðn-
ingsmaður hinnar norsku listar, bæði
heima og erlendis.
Sextiu og fjórir málarar taka þátt
i sýningunni og níu myndhöggvar-
ar, sem til samans sýna fimm hundr-
uð tuttugu og níu verk, og eiga þau
að vera, eftir mati nefndarinnar, sem
hefir valið þau, nægilega stórt brot
af norskri list til þess að sýna í
nágrannalandinu.
Eg geng úr einum sal i annan og
undrast og gleðst yfir, að sjá hvert
listaverkið við annað, hvert öðru
ólikt, þrátt fyrir hinn áberandi skyld-
leika. — Hér er hver sjálfstæðislog-
inn við annan marglitur og þó svo
einfaldur i sinni rammsterku línu,
eins og sjálíur regnboginn. — Það
er svo mikil litagleði og lífsfögnuð-
ur yfir þessari sýningu. Og hún er
svo svöl og frjáls, að hún hefir lik
áhrif á mig og norðurljós — hreins-
andi og göfgandi — og það er þess
vegna ekki undarlegt, að hugur minn
hvarfli til vinanna heima, sem hafa
vakað yfir okkar fáklæddu listagyðju.
— Og það er einmitt þess vegna,
að eg ekki get stilt mig um, að rita
nokkur orð um þessa sýningu.
Skyldleikinn tnilli Norðmanna og
íslendinga er svo auðsær hér.
Og einmitt í hinni nýju listastefnu
sést hann fyrst svo að um munar.
Það er eins og hin forn-norræna
eðliskend blossi þar upp af nýju,
hrein og sterk — en í nýrri mynd.
Enda þótt Frakkar hafi létt undir
fyrir norskum listamönnum með að
finna sjálfa sig og kasta hinni marg-
þæfðu hefð (tradition) (með fullri virð-
ingu fyrir henni) og íslendingar ekki
hafi átt sama fögnuði að fagna, þá
er skyldleikinn merkilega áberandi á
milli okkar og þeirra — það er
sama löngunin — sami óafvitandi
verkblær (tendens) hjá báðum þjóð-
unum, sem einmitt verður svo
áberandi og sjálfstæður, þegar lista-
maðurinn verður sér sjálfum megn-
ugur — þegar hann fer að skilja
sjálfan sig og kryfja sinn verkblæ
(tendens) til mergjar — og vel mundi
Asgrímur svara sér á slíkri sýningu
sem þessari. Og bið eg þann, sem
þetta les, fyrirgefningar á, að eg tók
mér þennan útúrkrók til Islands um
leið og eg tala um listir Norðmanna.
En það er einnig vegna þess, að eg
i íslenzkri list þykist sjá sjálfstæðis-
frjóanga, sem ætti að geta orðið ósvik-
ið fræ á metum heimslistarinnar ein-
hvern tíma úti i framtiðinni. Og
svo að eg snúi mér aftur að efninu,
þá ætla eg að nefna að eins nokkra
af þeim ágætu málurum, sem gista
þessa sýningu, og eg tel þá upp til
hópa, yngri og eldri, vegna þess, að
eg ætla ekki að útskúfa neinum af
þeim, því svo mikil alvara er í þeim
og á bak við þá alla, að þeir verð-
skulda allir virðingu.
Þá finn eg fyrst prófessorinn
Kristján Krogh, hinn ágæta þekta
málara og læriföður við listaháskól-
ann í Kiistjaníu — með mörg lista-
verk — og prófessor Halfdan Ström
einnig með ágæt listaverk — Eirík
Werenskjöld, sem sýnir svo marg-
ar góðar dráttmyudir í svörtu og
hvitu — Henrik Lund, Gustaf Vils
og Rudolf Tygesen, H. Kíttelsen og
Kristen Holbö með hesta á fjalli,
framúrskarandi málverk. Thorleif
Holmböl, Per Debritz, og Per Krogh
með stóra listgáfu sem kemur í
eftirtektarverðum molum. — Margir
eru þeir fleiri, sem eg hefi fest hug-
ann við á míaum mörgu ferðum
gegn um sýningarsalina — en eg læt
nægja að nefna tvo til, sem hafa
dregið mig til sin einna sterkast —
enda þótt þeir séu hver öðrum ólíkir.
Annar er Harald Sólberg, fæddur
1869. Málverk hans eru alveg útaf
fyrir sig, og líkjast engu sem eg
áður hefi séð á myndum, hann, mál-
ar helgiblæ náttúrunnar með hríf-
andi rómantískum og einföldum lit-
um — það er aðdáun mannssálarinn-
ar fyrir hínni hátíðlegn alvöru og
kyrð náttúrunnar, sem hann hefir
málað. Og hann hefir áreiðanlega
hitt nagiann á höfuðið. — Maður
verður betri við að horfa á myndir
hans, hann er svo þögull og sterk-
ur, og svo góður — hann vekur
barnið upp í þeirri sál, sem skilur
hann — og dregur það mótþróa-
laust til sinnar upprunalegu móður
náttúrunnar, úti í hinni djúpu hlust-
andi einveru. Maður man alt i einu
eftir öllum hátíðisdögum heima á
Fróni, og sérstaklega nýjársmorgni
með léttu frosti, í hálfbirtingunni
þegar tunglið er að hverfa á bak við
heimafjallið. Hann Sólberg er ein-
stakur sem málari, næstum merki-
legt að ísland skuli ekki eiga marga
alveg eins og hann. Hinn, sá ein-
asti sem eg hefi tíma til þess að
segja svolítið um 'er Munch — Ed-
vard Munch, hinn norski málara-
jötunn, og það er engin furða þó að
Norðmenn standi framarlega í list-
um á heimsmarkaðinum í augnablik
inu, þar sem þeir hafa sllkan mann
í viðbót við sína eldri listakrafta. Eg
ætla mér ekki að fara að lýsa neinu
af Munchs listaverkum, heldur að-
eins virðingarfylst dáðst að honum.
Hann getur skapað svo mörg stór
verk enn með sinni víðtæku þekk-
ing á listinni og hann hefir háð svo
mörg strið í sínum innra manni og
unnið sigur ofan á sigur — sem glögt
má sjá á verkum hans — að hann
hefir alla þá möguleika sem lista-
maður getur átt til þess að skapa
eitt verkið öðru sterkara og fegurra.
Og það er þess vegna að maður
trúir hinni svokölluðu yngri lista-
stefnu — eftir að hafa séð Munch —
svo einfaldan í sinni meistaralegu
fjölbreytni (variation). Og maður
byrjar að trúa því, að framtíðin eigi
í skauti sínu óunnin lönd, sem listin
ein getur unnið, og að mögulegt sé
að skapa jafn göfga og góða list i
framtiðinni sem nútíðarfyrirmyndina,
Hellas fornmenjar (antiken) og þá
seinni guðsbarna anda, Rafaello, Rem-
brandt og Murillo. En á öðru sviði
í annari frigerðri mynd, þar sem
samlifið milli þjóðar og listamanns
er betur vakandi en nokkru sinni
áður, þar sem þjóðirnar finna vak-
andi en ekki i draummóki, lifsþrótt
sinn, og margfalda hann i frjálsbor-
inni sköpunarþrá, sem er listarinnar
insta eðli. —
Þótt þessi sýning Norðmanna hrífi
sem heild, og sem framúrskarandi
frammistaða, einkum í þeirri nýju
listastefnu, þá skoða eg hana alls
ekki sem hámark hinnar yngri listar
heldur sem sterkan frjóanga, sem okk-
ar jarðar lista-anda er óhætt að
treysta á — og eg tel það vafalaust,
að norska þjóðin eigi eftir að lifa
sína lista-gullöld — sem einmitt nú
er að byrja að rofa fyrir — og hún
muni létta undir fyrir mörgum ljós-
þyrstum afleggjara, að trúa sínum
eigin sérstæðishvötum, og hlúa að
þeim með efnum, sem heyra upp-
runa þeirra til, en ekki hinu gagn-
stæða, áém hinn varhugaverði kenn-
ari, venjan (traditionen), þrykkir inn
i hina auðtiúa manneskjusál — og
kemur henni til að gleyma sinni
nýju fæðingu.
Norski listamaðurinn er nefnilega
ekki dauðdrepinn á endalausum skóla-
bekk, undir yfirumsjón af innilukt-
um kennurum — og liströgurum —
heldur ekki er hann óskólaður —
öðru nær, maðurinn, sem er að
berjast við af öllu sínu ærlega eðli,
að skapa því stað því fagra, sem
hann finnur og sér með öllum sín-
um sönsum og ástríðum — svo
allir megi sjá það, og gleðjast með
honum, hann þarf einungis að vakna
og læra, læra sjálfur, til þess að
byggja sinn eigin skólabekk — og
þá er að taka eftir, hversu langan
tíma það tekur fyrir honum að vakna
— og það virðist vera tiltölu-
lega stuttur timi, sem norski
listamaðurinn þarf til þess að rekast
á — og hann fer svo að leita eftir
því sem til hans friðar heyrir —
trúandi á sjálfan sig — heyandi
hverja baráttuna ofan á aðra í sinni
sterku sál — og hann finnur alt af
eitthvað af kjarnanum — sjálfum
lífskraftinum.
Norðmenn eiga því láni að fagna,
að eiga menrT sem hugsa með —
og deila sálarkjörum með listamönn-
um þeirra, án þess þó að þeir sömu
menn taki þátt i sjálfri listasköpun-
inni (produktionen). Einn af þeim,
sem eflaust stendur fremst, og eg
nefndi hér áður, er jens Thiis, vörð-
ur listasafnsins i Kristianíu, hann er
herra orðsins og því sjálfk jörinn
boðberi — enda verið og er hinn
sanni brautryðjandi fyrir norskar
listir i útlöndum og heima. Einmitt
hann, Jens Thiis, er stuðningsmaður
hinnar nýrri listastefnu — með at-
hugulu auga, margreyndu í lista-
safni heimsins, tekur hann eftir frjó-
öngunum í listaaíannahópnum norska
— og gerist vinur þeirra á ýmsa
lund, og greiðir veg þeirra á meðal
annara þjóða, þar sem hann má því
við koma, sem er oft, þar sem hann
er viða þektur í Evrópu sem lista-
vinur og framúrskarandi sérfræðing-
ingur.
I Danmörku er norskum listum
vel tekið — og er það meira en
bara i orði, þar sem þeir (Danir)
hafa á þessari einu sýningu keypt af
þeim fyrir nokkra tugi þúsunda
króna.
Myndhöggvararnir norsku eiga að
að eins lítinn sal til málamynda á
þessari sýningu. Það er erfitt að
flytja myndhöggvara-verk, og áhætta,
og það er sjálfsagt þess vegna, að
hér eru engin stærri verk — svo
sem »Helferð«. Að tölunni eru það
niu myndhöggvarar, þar af sjö með
eitt og tvö verk. Og hinir tveir,
Jón Visdal með þrjú, hliðarmynd af
Jónasi og Thomasine Lie — og
Ingebert Vik með sjö, þar af er
ung telpa í gipsi, Ijómandi fallegæ
gjörð — og í hinum ýmsu bronce,
marmara og gips myndum, sem fylla
þennan litla sal, má l.ita styrkleik og
fegurð, sem er sköpuð af listamönn-
um, sem finna til og vilja vera
sannir.
Það er engin furða, þó lista-andi
Noregs eigi svo marga góða lista-
menn, sem raun er á, þar sem þeir
að baki sér eiga sterka og hugprúða
þjóð, sem hefir skarað fram úr yfir
langt tímabil í siglingum og iðnaði
— enda hin fjölbreytta norska nátt-
úra með mislyndan illveðursbakka
fyrir brimbarinni, geigvænni strönd,
á móti sóibjörtum, faðmandi fjöll-
um, og sveitasælu blaktandi i sum-
arhyllingunum, hefir ekki verið þeim
neinn slæmur bakjarl, því þó að
andans sjálfstæði sé hjör einnar
þjóðar, verður góður fjárhagur einn-
ig hennar skjöldur — hin sterka
hlíf, sem gerir viljann að veglegri
byggingu. Og Norðmenn safna
öllum kostunum svo dásamlega
saman i eitt, með trúnni á sjálfa
sig og sínum sterka vilja — og vinna
anda sinn upp og fram í ljósið, sem
liggur svo tvískift í hinu norræna
eðli, og enginn, sem sér þessa
sýningu, og skilur hana sem heild,
dylst hugur um að hann stenaur
augliti til auglitis fyrir framan lifs-
bylgju einnar þjóðar — manneflda
og sterka. Og hann finnur bTó'Sið
sitt renna hraðara til hjartans en
áður. Og með nýrri, blómstrandi
lífs-þrá, sendir hann hlýjan huga
sinn, laugaðan í þessari fögru sýnr
þjóðinni norsku, með alúðar þökk
fyrir svo hjartanlega augnabliks-sam-
veru.
Jóh. S. Kjarval.
-----------------------
Guðsþjónustur
próf. Har. Níelssonar.
Aðalfundur þess fyrirtækis var
haldinn þriðjud. 4. þ. mán., og var
fjölsóttur. ,
Fræðslumálastjóri Jón Þórarinsson
stýrði fundinum.
Formaðurforstöðunefndarinnar,As-
geir Sigurðsson konsúll, tók fyrstur
til máls. Honum fórust orð á þessa
leið:
Mér hefir verið falið að skýra frá
fjárhag félagskapar vors undanfarandi
félagsár. Það er þá svo, að tekjurnar
hafa verið kr. 1754.94 og útgjöldin
kr. 1703.70; höfum vér því í tekju-
afgang kr. 51.24. Þetta má nú
kallast góður buskapur, samanborið
við árið á undan. Þá höfðum vér
í tekjuafgang við reikningslok
kr. 26.-64, en Þess t>er að gæta, að
það ár fengum vér inn 297 kr. fyrir
fyrirlestur próf. Har. Níelssonar.
Samkvæmt þessu er nú í sjóði kr. 77.88.
Útgjöldin eru aðallega fólgin í borg-
un til prédikarans, kr. xooo, og húsa-
leigukostnaði.
A árinu hefir próf. Har. Níelsson
flutt 26 predikanir hér í kirkjunnir
en auk þess hefir hann fluttJ. 1 pré-
dikun í Akureyrarkirkju og aðra í-
Hólakirku í sumarfríi hans og enn-
fremur 1 í Hafnarfjarðarkirkju og aðra
á Vífilstaðahælinu. Prédikanirnar
hafa þannig verið 30 alls, sem próf.
Haraldur hefir flutt á árinu.
Aðgöngumiðar að guðsþjónustun-
um seldust
árið 1914 360
— 1915 570
Eg hefi átt tal við ýmsa stuðn-