Ísafold - 08.04.1916, Page 3
ISAFOLD
Með pví að kaup prentata frá o$ með pessum
degi hœkkar að miklum mun (2j°l0) neyðast undir-
ritaðar prentsmiðjur til að hcekka verð á prentun að
sama skapi.
Þetta tilkynnist háttvirtum viðskiftavinum vorum.
Reykjavík, i. apríl 1916.
Hlutafélagið Gutenberg
Þorv. Þorvarðsson. Friðfinnur Guðjónsson. Þórður Sigurðsson.
ísafold Félagsprentsiniðjan
Olafur Björnsson. Steindór Gunnarsson.
Prentsm. Bún Prentsm. 1». 1». Clementz
Pétur Halldórsson. Þ. Þ. Clementz.
Sími 586.
Símnefni: Kjarval
Pósthólf 595.
Hotel Island
nr. 28 a og b
(Gengið úr Aðalstræti)
Ráðningaskrifstofa íslands
Og
Ferðamannaskrifstofa
ræður karla og kouur til allskonar vinnu til lands og
sjávar.
Leiðbeiuir ferðamönuum og útvegar þeim flestar
nauðsynjar.
Ennfremur annast undirritaður kaup og sölu i fasteignum og lausum munum.
Fastur skrifstofutími kl. 4—5,
en annars er skrifstofan venjulega opin allan daginn.
Tf). Tt. S. Kjarval.
Þegar utanbæjarmenn . óska að skrifstofan útvegi sér starfsfólk, þá
geri þeir svo vel að láta beiðninni fylgja borgun undir svar.
ingsmenn þessa fyrirtækis og hafa
þeir allir lýst yfir því, að þeir væru
fúsir til að styrkja það áfram með
sömu fjárframlögum og síðastl. ár.
Eg sé þvi ekkert, frá fjárhagslegu
sjónarmiði, því til fyrirstöðu að
fyrirtækið geti haldið áfram.
í nafni nefndarinnar vil eg þakka
öllum þeim, sem styrkt hafa þennan
félagsskap vorn með fjárframlögum
eða á annan hátt. Sérstaklega vil
eg þakka gjaldkeranum fyrir vel unn-
ið starf; einnig organistanum og
söngflokk hans; og ennfremur um-
sjónarmanni vorum, Helga jónas-
syni.
Svo vil eg í nafni nefndarinnar,
og eg Þykist mega það líka í nafni
allra þeirra, sem þátt hafa tekið í
félagsskapnum, þakka vorum kæra
bróður og meistara próf. Har. Níels-
syni fyrir allar þær ánægjustundir,
sem vér höfum notið hér á þessum
stað.
Það hefir verið ráðist á hann op-
inberlega fyrir staifsemi hans. Þessu
mátti hann búast við. Það er nokk-
uð sem kemur fyrir alla, sem braut
vilja ryðja fyrir nýjar hugsanir; en
hann mun ekki kippa sér upp við
það, og hver sem hlustaði á fyrir-
lestur hans á sunnudaginn varkann-
ast við, hve aðdáanlega hann kann
að verja málstað sinn.
Að slíkar árásir skaði málefni vort,
það held eg, fyrir mitt leyti, ekki.
Það mun vera svo með hina and-
legu fæðu sem hina líkamlegu, að
sé hún holl og maður finni að hún
geri manni gott, þá sækist maður
eftir henni, hvað svo sem aðrir,
sem aðrar skoðanir hafa, segja.
Eg vil biðja alia, sem hér eru
samankomnir, að votta þakklæti sitt
til próf. Haralds Njelssonar með því
að standa upp.
Fundurinn greiddi prófessornum
þakklætisatkvæði í einu hljóði. Og
prófessorinn þakkaði í fjörugri ræðu.
Meðal annars mintist hann þar á
aðal-starfsskilyrðin, sem hann hefði
sjálfur sett frá byrjun fyriitækisins,
þau, að söfnuðurinn gæti sagt hon-
uir. upp á hverri stundu sem væri,
en að hinu leytinu hefði hann áskil-
ið sér að mega segja alt það á pré-
dikunarstólnum, sem samvizkan byði
sér. Auðvitað væri hann fús á að
hlusta á allar leiðbeiningar frá safn-
aðarmönnum, meðal annars um það,
hve varlega skuli tala; en samvizka
sjálfs hans verði þó æfinlega að
vera dómarinn um það, að hve
miklu leyti hann eigi að fara eftir
leiðbeiningunum.
Því næst var samþykt í einu hljóði
og með öllum atkvæðum fundar-
manna að halda fyrirtækinu áfram
næsta ár.
Forstöðunefndin var endurkositi
í einu hljóði: Asgeir Sigurðsson
konsúll, Einar Hjörleifsson rithöf-
undur, Halldór Þórðarson bókbindari,
frú Helga Johnson, frú Louise Jens-
son, Olafur Rosenkranz kennari og
síra Sig. P. Sívertsen dócent.
í umræðum, sem urðu á eftir
•nefndarkosningunni, kom fram nokk-
ur óánægja út af þvf, að vegna að-
streymis að guðsþjónustunum væri
oft örðugt mönnum, sem hefðu að-
göngumiða, að fá sæti. Til þess að
tryggja sér sæti, yrðu menn að
koma nokkuð löngu áður en guðs-
þjónusturnar byrjuðu. Það væri
ýmsum óþægilegt, og auk þess spilti
það loftinu í kirkjunni. Sumir vildu
láta loka kirkjunni fyrir öðrum en
þeim, sem hefðu aðgöngumiða. For-
stöðunefndinni var falið að ihuga
málið og ráða fram úr því.
Norræna stúdentusainbandið, er
eitis og áðar er getið komið á lagg-
irnar hér á landi, með sérstakri deild
í höfuðataðnum. Næstkomandi föstu-
dag byður það upp á góðgœti, þar
sem er erindi um Suður-Jóta flutt af
magister Holger Wiehe.
Kvölðskemtanir eru með mesta
móti í Keykjavík f vetur. Naumast
líður svo nokkurt kvöld, að eigi só
til skemtana kvatt á mörgum stöðum.
í fyrrakvöld var troðfuit < Báru-
búð til að hlýða á gamanvísur , 0. fl.
hjá Bjarna Björnssyni og var hlegið
dátt. í gærkvöldi hafði Hvítabandið
inni góðgerða-kvöldskemtun. Svo eru
Bíóin á öðru leytinu, og alt er þetta
mjög vel sótt, eins og d/rtíðin só
ekki til.
Nýr barnaskóli. Svofelda tillögu
um bygging nys barnaskólahúss sam-
þykti bæjarstjórn á fimtudag, með
4 : 3 atkv.:
»Bæjarstjórnin felur skólanefndinni
að taka til sórstakrar yfirvegunar
nauðsyn og möguleika þess að byggja
á næ3ta ári nýtt barnaskólahús fyrir
bæinu eða viðbót við núverandi skóla-
hús.«
Flora tekin. í gær barst skeyti
um það, að Flora hefði verið tekin,
eftir að hún fór frá Færeyjum, af
brezku herskipi og höfð til Stornoway
á Skotlandi. Þetta tefur svo skipið,
að naumast muu þess von fyr en um
miðja næstu viku.
Gaskol fengin. Loksins kom hið
langþráða gaskolaskip, sem von hefir
verið á um langan tíma. Leit svo út
lengi, að bærinn mundi verða gaskola
laus og loka yrði fyrir gaskolanotkun
að svo og svo miklu leyti. Farmurinn
sem nú er kominn mun, að ,þv< er
gasstöðvarstjórinn segir, endast fram <
ágústmánuð. Búið er að gera ráðstöf-
un til að ná < annan gaskolafarm svo
drjugan, að dugi til sumars 1917.
Þurfamannahæ’i. Nú er bæjar-
stjórnin búin að samþykkja að kaupa
örkina gömlu við Hverfisgötu : Bjarna-
borg, fyrir þurfamannahæli.
Mjólkursölu-eftirlit. Efnarannsókna-
stofu landsins hefir nú verið falið að
hafa eftirlit með mjólkursölu bæjar-
ins og skal greiða henni 60 kr. á
mánuði fyrir. Samningurinn er gerður
til eins árs.
Nýtt ættarnafn. Einar Indriðason
bankaritari hefir fengið leyfi stjórnar-
ráðsins til að taka upp ættarnafnið
V < ð a r.
Messað < dómkirkjunni á morgun
kl. 12 síra Jóh. Þorkelsson, kl. 5 s<ra
Bjarni Jónsson. ,
Gullfoss kom < mcú-gun frá Vest—
fjörðum til Hafnarfjarðar. Gert er
ráð fyrir að hann fari áleiðis til út-
landa á þriðjudagskvöld.
»Þversum« hernaðurinn er mikill
< »Landinu«, þótt eigi muni hann
skeinuhættur < landinu. ísafold er að
sjálfsögðu þeim, þversum-’nerrunum,
þyrnir < auga, af þvi hún eigi vildi
láta þeim haldast uppi < fyrravor að
fremja þann verknað, er kostað hefði
oss það, að vera nú bæði stjórnarskrár-
og fánalausir. Sá verknaður hefir verið
nefndur sinu rótta nafni hór < blaðinu
og er þeim, eins og eðlilegt er, ekki
sem bezt við það.
Þrátt fyrir »bannið« hór um árið
fyrir starfsmenn Landsbankans að skrifa
< blöð deilugreinar, hefir samt B. Kr.
látið »þarfasta« þjóninn sinn < bank-
anum fara á stúfana með atyrða-grein
um ísafold < blaði hans < fyrradag.
Eru það sömu brigzlin og fúkyrðin,
sem ísafold er orðin vön úr þeim
rauni — og kippuin vór oss ekki upp
við það.
Það er að eins eitt atriði, sem vér
vildum athuga.
Þjónninn segir um herra sinn, að hann
hafi »vitanlega < engu breytt stefuu
sinni og starfsemi í þjóðmálum« slðan
Björn heit. Jónsson dó, og verið hans
samverkamaður o. s. frv. Vill með öðr-
um orðum láta svo skilja, að hin sjálf-
sagða og afarnauðsynlega gagnrýning
ísafoldar á stjórnmálastarfsemi B. Kr.
siðasta árið, snúist um leið gegn B. J.
heitnum.
Þessa lævísu staðhæfingu og fjar-
stæðu v e r ð u r að kveða niður.
Sannleikurinn er sá, að meðan B, J.
naut gat h a n n haldið < hemilinn á
B. Kr., svo eigi lenti hann < gönu-
skeiðum og öfgum með sínu ofstopa—
fulla ráðríki. En sfðan hefir breyting
orðið á B. Kr., svo að ókleift hefir
verið upp á síðkastið við hann að
tjónka. Övildin til einstakra manna og
ráðríkið taumlausa fengið með öllu
yfirhöndina.
Bæknr Hjálpræðishersins.
Nýlega hefir Hjálpræðirherinn gef-
ið úr æfisögu Davíðs Livingstone í
íslenzkri þýðingu eftir Halldór Jónas-
son cand. phil. Er það bók sem
vel er þess verð að kaupa og lesa.
Etin fremur hefir herinn haft til
sölu (á dönsku) bækur um William
Booth.s'tofnandi hersins, konu hans
og enn fremur um John Wesley,
trúboða — alt mjög góðar bækur.
Sameinuðu ölgerðarhúsin
dönsku (De forenede Bryggerier) áttu
nýlega 25 ára afmæli. Var þá gefið
út mjög prýðilegt minningarrit um
starfsemi þeirra, þykk bók, prýdd
fjölda mynda.
Þessi ölgerðarhús eru mjög góð-
kunn hér á landi — vegna ölteg-
undanna, sem þau hafa haft á boð-
stólum, en það eru m. a. Krone-öl,
Dobbelt-öl og Maltöl.
Sameinuðu ölgerðarhúlin eru eitt-
hvert stærsta og merkasta fyrirtæki
Dana — í sinni röð.
Tilhæfulausar sögur
ganga hér i bænum um, að Eim-
skipafélagsstjórnin hafi átt að halda
fund nýlega, og ákveðið að stöðva
Gullfoss hér og láta hann hvergi
fara vegna ófriðarhættu.
Enginn flugufótur er til fyrir
þessu eða öðrum sögum af líku tagi.
Yfirleitt mun alt of mikið skrafað
um og gert úr hættu þeirri, sem
nú eigi að vera búin siglingum milli
landa af kafbátum og tundurduflum.
Leiðrétting. Skipstjórinn á
fiskiskipinu Esther, sem bjargaði báta-
skipshöfnunum og getið var i síð-
asta hlaði, beitir Guðbjartur Ólafs-
son, eu ekki Guðjón.
Skipstrand,
Þilskip frá Færeyjum, »Teistin<
að nafni, strandaði á miðvikudag
skamt frá Kúðaósi fyrir austan Mýr-
dalssand. Skipshöfnin bjargaðist.
Ttelen KeKer
Fyrirlestur eftir
prófessor Har. Níelsson
fæst i
Isafotd.
Verð 25 au.
Veðurskýrsla.
Fimtudaginn 16. marz.
Vm. logn hiti 1.2.
Rv. n. kul, frost 1.0.
íf. logn, frost 1.8.
Ak. s. andvari, frost 5.8.
Gr. logn, frost 6.0
Sf. n.a. kaldi, hiti 0.4.
Þh. F. n. kul, 0.6.
Föstudaginn 17. marz: v
Vm. logn, frost 0.5.
Rv. logn, frost 5.5.
íf. a. kaldi, 2.2.
Ak. v. gola, 1.2
Gr.
Sf. n.a. st. kaldi, hiti 1.9.
Þh. F. s.s.a. st, gola, hiti 5.2
Laugardaginn 18. marz.
Vm. n.v. stormur, frost 0.6.
Rv. n. kaldi, frost, 1.5.
íf. n.a. kaldi, frost 5.7.
Ak. n.v a. kaldi, frost 1.5.
Gr. n.a. st. kaldi, frost 3.0.
Sf. logn hiti 0.7.
Þh. F. logn hiti 2.6.
Sunnudaginn 19. marz.
Vm. logn, hiti 1.7
Rv. logn, frost 6.3
ísaf. logn, frost 6.3
Ak. logn, frost 5.0
Gr.
Sf. n.a. stinnings kaldi, frost 0.9
Þórsh, F. logn, frost 1.3
Mánudaginn 20. marz.
Vm. logn, frost 0,5
Rv. logn, frost 5,0
íf. logn, hiti 2,3
Ák. logn, frost 3,0
Gr. logn, frost 9,1
Sf. logn, hiti 1,1
Þh. F. n.a. kaldi, hiti 3,2
Þriðjudaginn 21. marz.
Vm. s.s.a. st. kaldi, hiti 3,9
Rv. a. andvari, hiti 1,0
íf. logn, frost 2,7
Ak. s.v. andvari, frost 4,0
Gr.
Sf. n. kaldi, frost 2,3
Þh. F. n.a. st. kaldi, hiti 1,7
Fimtudaginn 23. marz.
Vm. s.a. andvari, hiti 1,2
Rv. logn, frost 2,5
íf. logn, frost 4,6
Ak. s. kul, frost 7,0
Gr. s.v. andvari, frost 7,0
Sf. n. st. kaldi, frost 3,7
Þh. F. n. stinning8 kaldi, hiti 0,3
Miðvikudaginn 29. marz.
Vm. n.v. kul, frost 0,1
Rv.. logu, frost 1,5
íf. n.a. st. kaldi, frost 1,9
Ak. n. sn. vindur, frost 8,0
Gr.
8f. n. st. kaldi, frost 5,7
Þh. F. a.n.a. stormur, frost 3,0
Fimtudaginn 30. marz.
Vm. logn, frost 1.8.
Rv. n.v. kaldi, frost 2.4.
íf. n. rokstormur, frost 7.8.
Ak. logn, frost 4.0.
Gr. logn, frost 7.5.
Sf. n. kaldi, frost 4.0.
Þh. F. v. kaldi, hiti 3.0.
Sunnudaginn 2. apríl.
Vm. a. stormur, hiti 2.4
Rv. a. snarpur vindur, hiti 1.0.
íf. n.a. stormur, frost 3.3.
Ak. n.n.a. gola, snjór, frost 1.5.
Gr. n.a. snarpur vindur, snjór, frost 6.5.
Sf. n.a. st.kaldi, snjór, frost, 0.2.
Þh. F. s.v. st.kaldi, hiti 8.5.