Ísafold - 08.04.1916, Síða 3

Ísafold - 08.04.1916, Síða 3
ISAFOLD Með pví að kaup prentata frá o$ með pessum degi hœkkar að miklum mun (2j°l0) neyðast undir- ritaðar prentsmiðjur til að hcekka verð á prentun að sama skapi. Þetta tilkynnist háttvirtum viðskiftavinum vorum. Reykjavík, i. apríl 1916. Hlutafélagið Gutenberg Þorv. Þorvarðsson. Friðfinnur Guðjónsson. Þórður Sigurðsson. ísafold Félagsprentsiniðjan Olafur Björnsson. Steindór Gunnarsson. Prentsm. Bún Prentsm. 1». 1». Clementz Pétur Halldórsson. Þ. Þ. Clementz. Sími 586. Símnefni: Kjarval Pósthólf 595. Hotel Island nr. 28 a og b (Gengið úr Aðalstræti) Ráðningaskrifstofa íslands Og Ferðamannaskrifstofa ræður karla og kouur til allskonar vinnu til lands og sjávar. Leiðbeiuir ferðamönuum og útvegar þeim flestar nauðsynjar. Ennfremur annast undirritaður kaup og sölu i fasteignum og lausum munum. Fastur skrifstofutími kl. 4—5, en annars er skrifstofan venjulega opin allan daginn. Tf). Tt. S. Kjarval. Þegar utanbæjarmenn . óska að skrifstofan útvegi sér starfsfólk, þá geri þeir svo vel að láta beiðninni fylgja borgun undir svar. ingsmenn þessa fyrirtækis og hafa þeir allir lýst yfir því, að þeir væru fúsir til að styrkja það áfram með sömu fjárframlögum og síðastl. ár. Eg sé þvi ekkert, frá fjárhagslegu sjónarmiði, því til fyrirstöðu að fyrirtækið geti haldið áfram. í nafni nefndarinnar vil eg þakka öllum þeim, sem styrkt hafa þennan félagsskap vorn með fjárframlögum eða á annan hátt. Sérstaklega vil eg þakka gjaldkeranum fyrir vel unn- ið starf; einnig organistanum og söngflokk hans; og ennfremur um- sjónarmanni vorum, Helga jónas- syni. Svo vil eg í nafni nefndarinnar, og eg Þykist mega það líka í nafni allra þeirra, sem þátt hafa tekið í félagsskapnum, þakka vorum kæra bróður og meistara próf. Har. Níels- syni fyrir allar þær ánægjustundir, sem vér höfum notið hér á þessum stað. Það hefir verið ráðist á hann op- inberlega fyrir staifsemi hans. Þessu mátti hann búast við. Það er nokk- uð sem kemur fyrir alla, sem braut vilja ryðja fyrir nýjar hugsanir; en hann mun ekki kippa sér upp við það, og hver sem hlustaði á fyrir- lestur hans á sunnudaginn varkann- ast við, hve aðdáanlega hann kann að verja málstað sinn. Að slíkar árásir skaði málefni vort, það held eg, fyrir mitt leyti, ekki. Það mun vera svo með hina and- legu fæðu sem hina líkamlegu, að sé hún holl og maður finni að hún geri manni gott, þá sækist maður eftir henni, hvað svo sem aðrir, sem aðrar skoðanir hafa, segja. Eg vil biðja alia, sem hér eru samankomnir, að votta þakklæti sitt til próf. Haralds Njelssonar með því að standa upp. Fundurinn greiddi prófessornum þakklætisatkvæði í einu hljóði. Og prófessorinn þakkaði í fjörugri ræðu. Meðal annars mintist hann þar á aðal-starfsskilyrðin, sem hann hefði sjálfur sett frá byrjun fyriitækisins, þau, að söfnuðurinn gæti sagt hon- uir. upp á hverri stundu sem væri, en að hinu leytinu hefði hann áskil- ið sér að mega segja alt það á pré- dikunarstólnum, sem samvizkan byði sér. Auðvitað væri hann fús á að hlusta á allar leiðbeiningar frá safn- aðarmönnum, meðal annars um það, hve varlega skuli tala; en samvizka sjálfs hans verði þó æfinlega að vera dómarinn um það, að hve miklu leyti hann eigi að fara eftir leiðbeiningunum. Því næst var samþykt í einu hljóði og með öllum atkvæðum fundar- manna að halda fyrirtækinu áfram næsta ár. Forstöðunefndin var endurkositi í einu hljóði: Asgeir Sigurðsson konsúll, Einar Hjörleifsson rithöf- undur, Halldór Þórðarson bókbindari, frú Helga Johnson, frú Louise Jens- son, Olafur Rosenkranz kennari og síra Sig. P. Sívertsen dócent. í umræðum, sem urðu á eftir •nefndarkosningunni, kom fram nokk- ur óánægja út af þvf, að vegna að- streymis að guðsþjónustunum væri oft örðugt mönnum, sem hefðu að- göngumiða, að fá sæti. Til þess að tryggja sér sæti, yrðu menn að koma nokkuð löngu áður en guðs- þjónusturnar byrjuðu. Það væri ýmsum óþægilegt, og auk þess spilti það loftinu í kirkjunni. Sumir vildu láta loka kirkjunni fyrir öðrum en þeim, sem hefðu aðgöngumiða. For- stöðunefndinni var falið að ihuga málið og ráða fram úr því. Norræna stúdentusainbandið, er eitis og áðar er getið komið á lagg- irnar hér á landi, með sérstakri deild í höfuðataðnum. Næstkomandi föstu- dag byður það upp á góðgœti, þar sem er erindi um Suður-Jóta flutt af magister Holger Wiehe. Kvölðskemtanir eru með mesta móti í Keykjavík f vetur. Naumast líður svo nokkurt kvöld, að eigi só til skemtana kvatt á mörgum stöðum. í fyrrakvöld var troðfuit < Báru- búð til að hlýða á gamanvísur , 0. fl. hjá Bjarna Björnssyni og var hlegið dátt. í gærkvöldi hafði Hvítabandið inni góðgerða-kvöldskemtun. Svo eru Bíóin á öðru leytinu, og alt er þetta mjög vel sótt, eins og d/rtíðin só ekki til. Nýr barnaskóli. Svofelda tillögu um bygging nys barnaskólahúss sam- þykti bæjarstjórn á fimtudag, með 4 : 3 atkv.: »Bæjarstjórnin felur skólanefndinni að taka til sórstakrar yfirvegunar nauðsyn og möguleika þess að byggja á næ3ta ári nýtt barnaskólahús fyrir bæinu eða viðbót við núverandi skóla- hús.« Flora tekin. í gær barst skeyti um það, að Flora hefði verið tekin, eftir að hún fór frá Færeyjum, af brezku herskipi og höfð til Stornoway á Skotlandi. Þetta tefur svo skipið, að naumast muu þess von fyr en um miðja næstu viku. Gaskol fengin. Loksins kom hið langþráða gaskolaskip, sem von hefir verið á um langan tíma. Leit svo út lengi, að bærinn mundi verða gaskola laus og loka yrði fyrir gaskolanotkun að svo og svo miklu leyti. Farmurinn sem nú er kominn mun, að ,þv< er gasstöðvarstjórinn segir, endast fram < ágústmánuð. Búið er að gera ráðstöf- un til að ná < annan gaskolafarm svo drjugan, að dugi til sumars 1917. Þurfamannahæ’i. Nú er bæjar- stjórnin búin að samþykkja að kaupa örkina gömlu við Hverfisgötu : Bjarna- borg, fyrir þurfamannahæli. Mjólkursölu-eftirlit. Efnarannsókna- stofu landsins hefir nú verið falið að hafa eftirlit með mjólkursölu bæjar- ins og skal greiða henni 60 kr. á mánuði fyrir. Samningurinn er gerður til eins árs. Nýtt ættarnafn. Einar Indriðason bankaritari hefir fengið leyfi stjórnar- ráðsins til að taka upp ættarnafnið V < ð a r. Messað < dómkirkjunni á morgun kl. 12 síra Jóh. Þorkelsson, kl. 5 s<ra Bjarni Jónsson. , Gullfoss kom < mcú-gun frá Vest— fjörðum til Hafnarfjarðar. Gert er ráð fyrir að hann fari áleiðis til út- landa á þriðjudagskvöld. »Þversum« hernaðurinn er mikill < »Landinu«, þótt eigi muni hann skeinuhættur < landinu. ísafold er að sjálfsögðu þeim, þversum-’nerrunum, þyrnir < auga, af þvi hún eigi vildi láta þeim haldast uppi < fyrravor að fremja þann verknað, er kostað hefði oss það, að vera nú bæði stjórnarskrár- og fánalausir. Sá verknaður hefir verið nefndur sinu rótta nafni hór < blaðinu og er þeim, eins og eðlilegt er, ekki sem bezt við það. Þrátt fyrir »bannið« hór um árið fyrir starfsmenn Landsbankans að skrifa < blöð deilugreinar, hefir samt B. Kr. látið »þarfasta« þjóninn sinn < bank- anum fara á stúfana með atyrða-grein um ísafold < blaði hans < fyrradag. Eru það sömu brigzlin og fúkyrðin, sem ísafold er orðin vön úr þeim rauni — og kippuin vór oss ekki upp við það. Það er að eins eitt atriði, sem vér vildum athuga. Þjónninn segir um herra sinn, að hann hafi »vitanlega < engu breytt stefuu sinni og starfsemi í þjóðmálum« slðan Björn heit. Jónsson dó, og verið hans samverkamaður o. s. frv. Vill með öðr- um orðum láta svo skilja, að hin sjálf- sagða og afarnauðsynlega gagnrýning ísafoldar á stjórnmálastarfsemi B. Kr. siðasta árið, snúist um leið gegn B. J. heitnum. Þessa lævísu staðhæfingu og fjar- stæðu v e r ð u r að kveða niður. Sannleikurinn er sá, að meðan B, J. naut gat h a n n haldið < hemilinn á B. Kr., svo eigi lenti hann < gönu- skeiðum og öfgum með sínu ofstopa— fulla ráðríki. En sfðan hefir breyting orðið á B. Kr., svo að ókleift hefir verið upp á síðkastið við hann að tjónka. Övildin til einstakra manna og ráðríkið taumlausa fengið með öllu yfirhöndina. Bæknr Hjálpræðishersins. Nýlega hefir Hjálpræðirherinn gef- ið úr æfisögu Davíðs Livingstone í íslenzkri þýðingu eftir Halldór Jónas- son cand. phil. Er það bók sem vel er þess verð að kaupa og lesa. Etin fremur hefir herinn haft til sölu (á dönsku) bækur um William Booth.s'tofnandi hersins, konu hans og enn fremur um John Wesley, trúboða — alt mjög góðar bækur. Sameinuðu ölgerðarhúsin dönsku (De forenede Bryggerier) áttu nýlega 25 ára afmæli. Var þá gefið út mjög prýðilegt minningarrit um starfsemi þeirra, þykk bók, prýdd fjölda mynda. Þessi ölgerðarhús eru mjög góð- kunn hér á landi — vegna ölteg- undanna, sem þau hafa haft á boð- stólum, en það eru m. a. Krone-öl, Dobbelt-öl og Maltöl. Sameinuðu ölgerðarhúlin eru eitt- hvert stærsta og merkasta fyrirtæki Dana — í sinni röð. Tilhæfulausar sögur ganga hér i bænum um, að Eim- skipafélagsstjórnin hafi átt að halda fund nýlega, og ákveðið að stöðva Gullfoss hér og láta hann hvergi fara vegna ófriðarhættu. Enginn flugufótur er til fyrir þessu eða öðrum sögum af líku tagi. Yfirleitt mun alt of mikið skrafað um og gert úr hættu þeirri, sem nú eigi að vera búin siglingum milli landa af kafbátum og tundurduflum. Leiðrétting. Skipstjórinn á fiskiskipinu Esther, sem bjargaði báta- skipshöfnunum og getið var i síð- asta hlaði, beitir Guðbjartur Ólafs- son, eu ekki Guðjón. Skipstrand, Þilskip frá Færeyjum, »Teistin< að nafni, strandaði á miðvikudag skamt frá Kúðaósi fyrir austan Mýr- dalssand. Skipshöfnin bjargaðist. Ttelen KeKer Fyrirlestur eftir prófessor Har. Níelsson fæst i Isafotd. Verð 25 au. Veðurskýrsla. Fimtudaginn 16. marz. Vm. logn hiti 1.2. Rv. n. kul, frost 1.0. íf. logn, frost 1.8. Ak. s. andvari, frost 5.8. Gr. logn, frost 6.0 Sf. n.a. kaldi, hiti 0.4. Þh. F. n. kul, 0.6. Föstudaginn 17. marz: v Vm. logn, frost 0.5. Rv. logn, frost 5.5. íf. a. kaldi, 2.2. Ak. v. gola, 1.2 Gr. Sf. n.a. st. kaldi, hiti 1.9. Þh. F. s.s.a. st, gola, hiti 5.2 Laugardaginn 18. marz. Vm. n.v. stormur, frost 0.6. Rv. n. kaldi, frost, 1.5. íf. n.a. kaldi, frost 5.7. Ak. n.v a. kaldi, frost 1.5. Gr. n.a. st. kaldi, frost 3.0. Sf. logn hiti 0.7. Þh. F. logn hiti 2.6. Sunnudaginn 19. marz. Vm. logn, hiti 1.7 Rv. logn, frost 6.3 ísaf. logn, frost 6.3 Ak. logn, frost 5.0 Gr. Sf. n.a. stinnings kaldi, frost 0.9 Þórsh, F. logn, frost 1.3 Mánudaginn 20. marz. Vm. logn, frost 0,5 Rv. logn, frost 5,0 íf. logn, hiti 2,3 Ák. logn, frost 3,0 Gr. logn, frost 9,1 Sf. logn, hiti 1,1 Þh. F. n.a. kaldi, hiti 3,2 Þriðjudaginn 21. marz. Vm. s.s.a. st. kaldi, hiti 3,9 Rv. a. andvari, hiti 1,0 íf. logn, frost 2,7 Ak. s.v. andvari, frost 4,0 Gr. Sf. n. kaldi, frost 2,3 Þh. F. n.a. st. kaldi, hiti 1,7 Fimtudaginn 23. marz. Vm. s.a. andvari, hiti 1,2 Rv. logn, frost 2,5 íf. logn, frost 4,6 Ak. s. kul, frost 7,0 Gr. s.v. andvari, frost 7,0 Sf. n. st. kaldi, frost 3,7 Þh. F. n. stinning8 kaldi, hiti 0,3 Miðvikudaginn 29. marz. Vm. n.v. kul, frost 0,1 Rv.. logu, frost 1,5 íf. n.a. st. kaldi, frost 1,9 Ak. n. sn. vindur, frost 8,0 Gr. 8f. n. st. kaldi, frost 5,7 Þh. F. a.n.a. stormur, frost 3,0 Fimtudaginn 30. marz. Vm. logn, frost 1.8. Rv. n.v. kaldi, frost 2.4. íf. n. rokstormur, frost 7.8. Ak. logn, frost 4.0. Gr. logn, frost 7.5. Sf. n. kaldi, frost 4.0. Þh. F. v. kaldi, hiti 3.0. Sunnudaginn 2. apríl. Vm. a. stormur, hiti 2.4 Rv. a. snarpur vindur, hiti 1.0. íf. n.a. stormur, frost 3.3. Ak. n.n.a. gola, snjór, frost 1.5. Gr. n.a. snarpur vindur, snjór, frost 6.5. Sf. n.a. st.kaldi, snjór, frost, 0.2. Þh. F. s.v. st.kaldi, hiti 8.5.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.