Ísafold - 22.04.1916, Page 1

Ísafold - 22.04.1916, Page 1
Kemur úfc tvisvar í viku. Verðárg. 5 kr., erlendis T1/^ kr. eða 2 dollarjborg- isfc fyrir miðjan júlí erlendis fyrirfram. Lausasala 5 a. eint. ISAFOLD ísafoldarprentsmiðja. Ritstjári: Ólafur Björnsson. Talsími nr. 455. Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, er óglld nema kom- in só til útgefanda fyrir 1. oktbr. og só kaupandi skuld- laus við blaðið. XLIH. árg. Reykjavík, laugardaginn 22 april 1916. 29. tölublað /Alþýðufél.bókasafn Templaras. 8 bl. 7—0 Borgarstjóraskrifgtofan opin virka daga 11—8 Bœjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og i-»7 Bœjargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 og E—7 Islandsbanki opinn 10—4. 4K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8Ard.—lOeibd. Alm. fundir Ad. og sd. 81/* sibd. Landakot.skirkja. Gubsþj. 9 og 6 á helgum Landakotsspítali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn 10—8. Bankastj. 10—12. Landsbókasafn 12—8 og 6—8. ÚtlAn 1—8 Landsbúnabarfélagssferifstofan opin frA 12—2 Landsféhirbir 10—2 og 6—6. liandsskjalasafnib hvern virkan dag kl. 12—2 Landssíminn opinn daglangt (8—9) virka daga helga daga 10—12 og 4—7. WAttúrugripasafnib opiö V/a—W/a A snnnud. Pósthúsib opið virka d. 9—7, sunnud. 9—1. BamAbyrgb Islands 12—2 og 4—6 BtjórnarrAbsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl. Talsimi Reykjavikur Pósth.8 opinn daglangt 8—10 virka daga, helga daga 10—9. Yiíilstabahœlib. fíeimsóknartimi 12—1 Þjó^menjasafnib opib sd„ þd. fmd. 12—2. luiiiamanimniLiijnij • Klæðaverzlun ; : H. Andersen & Sön.: í Aðalstr. 16. ; < Stofnsett 1888. Sími 32. þar ern íotin sanmnð flest þar eru fataefnin bezt. lLUJLimiutxiiimni ttT Vandaðastar og ódýrastar Líkkistur soljum við undirritaðir. Ki8tur fyrirliggjandi af ýmsri gerð. Steingr. Guðmundss. Amtm.stíg 4. Tryggvi Arnason Njálsg. 9. Vonleysingjasveitin, í siðustu ísafold er getið að nokkru þeirra »stjórnmá!amanna« úr Sjálfstæðisflokknum, er skipuðu sér i »þversum«-fylkinguna, þ. e. settu sig gegn þeim lyktum stjórnarskrár- og fánamálsins, er heppilegastar voru eftir atvikum. Ef athugaðar eru hin- ar sálarlegu orsakir, sem verið gátu til þessa atferlis mannanna, þá kem- ur ro. a. í Ijós, að þetta eru alt saman að einhverju leyti pólitiskir »vonbrigðamenn«, sem hefir langað 1 annað og meira en þjóðin og al- þingi vildi fela þeim. Er það al- þekt, að sumir menn komast við slika »meðferð« i það ástand, að til- tektir þeirra verða bæði ráðlausar og hættulegar, og eira þeir þá engu; en eigi þykir skynbærum mönnum neinsstaðar um lönd hæft, að hafa þess konar persónur að leiðtogum! Hjá þeim getur þá margt blandast inn í og saman við. Og ekki sízt það, sem blað B. Kr. virðist nú sið- ast telja aðalundirstöðuna undir flokkaskiftingu manna — þrátt fyrir það, þótt það þykist vera að bann- syngja alla »efnishyggju« —, sem sé hagsmunapólitíkin. Getur verið, að þeim hafi þótt »hagsmunir« sinir að einhverju fyrir borð bornir. Sig. iggerz bjóst við að mega halda ráðherratigninni lengur en þessa fáu mánuði, er hann hékk við völd. Má gera ráð fyrir, að honum hafi sjálfum fundist hann vera »ó- naissandi« (fyrir sjálfan sig að minsta kosti) og ekki mega við því, að Trygging fyrir að fá vandaðar vörur fyrir lítið verð, er að verzla við V. B. 7i. Landsins mestu birgðir af: Vefnaðarvörum Pappir og ritföngum Sólaleðri og skósmiðavörum Pantanir afgreiddar um alt ísland. Heildsala. Smásala. Vandaðar vörur. Odýrar vörur. Verzlunin Björn Kristjánsson, Reykjavík. sleppa embættinu svona fljótt. Þess vegna er eins og hann eigi lífið að verja, er talsmál verður um, að ann- ar taki við, til þess að sjá mdlunum farborða. Honum fanst vist, að hann gæti komið í staðinn fyrir mál- in — þjóðin yrði að sitja undir hon- um, láta hann halda áfram að vera ráðherra 1 Er það þótti ekki kleift, var stillingin á förum og þá lítt um það hirt, gegn hverju væri »barist«. Með áframhaldandi ólátum heldur rann, að sér takist að fá landslýðinn tll þess að hleypa sér upp i sætið aftur. Gætir þess ekki, að næsta itlar likur eru til þess, að allur þorri manna láti blekkjast af hinu sama oftar en einu sinni. Aður var hann óþektur; nú vita menn, hvernig fór, er hann átti að gæta haqsmuna landsins. Bjórn Kristjánsson. Um hann vita menn, að hann hefir gengið með »ráðherrann f maganum« síðustu ár- in, þótt merkilegt megí kalla. En enginn hefir viljað heyra slíkt nefnt á nafn, og hefir hann því átt um sárt að binda. Hefir hann ýmist haldið, að hann gæti komið þessum »vonum« sínum eitthvað áleiðis með ofstopa-ráðríki, sem ekki hefir staðið í neinu réttu hlutfalli við giidi hans í flokki þeim, sem hann hefir talist til, ýmist reynt að fara í hina og þessa útúrkróka, til þess að geta neytt áhrifa á menn nær og fjær. En alt hefir komið fyrir ekki. Sér hann nú ojsóknarmann sinn i öllum þeim, sem ekki vilja hafa saroan við hann að sælda. Og sjálfkjörinn var hann til þess, að setja sig »þvers- um«, er greiða átti úr áhugamálum þjóðarinnar, án þess að konum yrði hreykt upp, enda hafði vonskan soð- ið upp úr þegar, er konungi varð á, að kveðja fekki B. Kr. á sinn fund. Nú hygst hann að hlaða undir sig með málgagni því, sem hanti hefir stofnað, en þo ir þó ekki að kannast við. Bjarni Jónsson Jrá Vogi þóttist heldur ekki fullsaddur. Af honum var tekinn »viðskiftaráðunauturinn« (sællar minningar), og þóttist hann eiga heimtingu á, að fá mikið í stað- inn, helzt að sér yrði í hendur feng- in »stjórn landsins*, eftir þá ágætu æfingu, sem hann hafði nú orðið aðnjótandi, og þá minnisverðu reynslu, sem þjóðin hafði fengið af starfs- hæfileikum hans og afrekum ! Þó að slett væri í hann grísku-dósent, þá var það svo sem ekki nægilegt. Helzta vonin, að eitthvað lyftist undir hann, ef alt væri í uppnámi í landinu. Það var því ekki alveg eftir hans nótum, að fara að leysa úr vandan- um og gefa landsmönnum frið til nytsamra þjóðmálastarfa. Benedikt Sveinsson — lengi afskift- ur, að þvi er honum mun hafa þótt. Hafði áður að eins fengið »bitling« sem endurskoðandi Landsbankareikn- inganna (eftir því, sem blað B. Kr. nefnir þá stöðu), en bygði vonir sín- ar um meira á líkum grundvelli og Bj. J. f- V. Fékk þó á síðasta þingi, þrátt fyrir ærslin, bitling sem yfir- skoðunarmaður landsreikninga. * Kristinn Daníelsson. Með atfylgi B. Kr., er þá réði nokkru í Sjálf- stæðisflokknum,. var prófasturinn gerður að forseta sam. alþiugis i hitt eð íyrra. Þá vildi og B. Kr. jajnvely að hann yrði ráðherra, að sér frágengnum auðvitað! Þóttist þar eiga öruggan fylgismann, þar sem hann hefði gefið honum hlut- deild með sór í »kjördæminu«. Af stjórnmálaspeki þeirri, sem prédikuð er hér suður með sjó, þóttist nú klerkurinn lika orðinn svo ærður í þeim sökum, að ekki mætti hlýða, að honum yrði enginn verulegur só>mi sýndur. En ekki hefir hann búist við, að málalyktirnar í fyrra vor myndu ýta undir það. Skúli Thoroddsen er gamalkunnug- ur vonbiðill ráðherratignarinnar (»fyr- verandi tilvonandit), og var nú ekki einu “sinni boðaður á konungsfund, sem þó hefði vel mátt vinna ti'. Hann hafði þvi ekki mikið að þakka fyrir, og ekki tiltök, að hann »léði því fylgi sitt« nú, að málin yrðu leidd til úrslita að þeim vegi, er hann sjálfur hafði áður stuðlað til að farinn yrði. — Er fram á þing kom, sá hann þó að sér og skildi við hetjurnar hinar, er taldar hafa verið hér að framan. Þannig er þá farið um forkóljana í þversum-menskunni og rök þau, er að því liggja, að þeir utðu við- skila við Sjálfstæðisflokkinn síðastl. ár. Nú eru þeir að reyna að fara í felur með þvi að kalla sinn »flokk« (örfárra manna) hinu gamla nafninu, sem þeim er óheimilt með öilu. En eins og vonbrigðin hafa mark- að hinn pólitiska feril þeirra áður, eins mun vonleysið grúfa yfir hon- um framvegis. Brjánn. -- ■ ■■ ■ ■ -.......... Einar Benediktsson er farinn að gefa út blað enn á ný. Ber það nafnið ))Þ j ó ð s t e f n a<( og er nokkurskonar áframhald af »Þjóð- inni« hans, sem sálaðist eftir nokkrar vikur. • Páll Jónsson málafl.maður ei látinn heita ))ábyrgðarmaður« þess en E. B. skrifar hvert orð í blaðið. Er það sama staglið og áður, út í veður og vind. ,Hringferð Hringsins‘. Svo nefnist hin nýstárlega skemt- un, sem kvenfélagið »Hringurinn« ætlar að efna til á annan í páskum. Svipað fyrirkomulag á skemtudegi og hér er um að ræða er orðið al- gengt eriendis, og margir hér munu kaonast við frá Kaupmannahöfn (Rundskuedeg). Slika daga er uppi fótur og fit í borginni, flestir skemti- staðir ern opnir þeim, sem aðgöngu- hefti dagsins hafa, og allir beztu kraftar hjálpast að að skemta. Líkt þessu verður hér. Kl. 2 e. h. hefst skemtunin, og frá þeim tíma og til kl. 7 e. h. verður jafnan um 2 skemtistaði að velja. Skemtanirnar verða eins fjöl- breyttar og unt er, svo sem: ein- söngvar, kórsöugvar, hljóðfærasláttur bæði f kirkju og annarstaðar, fyrir- lestrar, upplestur o. fl. Hver og einn getur valið skemtun eftir sínu hæfi. Auk þessa hefir félagið opinn veitingasal í Good-templarahúsinu. Þar verður einnig skemt með söng og hljóðfæraslætti allan daginn; en aðeins þeir, sem aðgönguhefti hafa, geta keypt sér hressingu þar. Heftin, sem innihalda aðgöngu- miða að öllum þeim skemtunum, sem dagurinn hefir að bjóða, fást í bókaverzlun ísafoldar og kosta að- eins 1 kr. hvert. Þau eru seld i lokuðu umslagi, og hafa nokkur þeirra það sér til ágætis fremur hin- um, að í þau er festur lítill miði, en honum fylgir aftur einhver hepni: eigulegur hlutur eða leyfi til að fara til ljósmyndara og fá 6 myndir af sér ókeypis, Betri sumargjöf getur enginn gefið en aðgönguhefti að »Hringferð Hringsins«. Allir Reykvíkingar þekkja félagið og eru þvi vinveittir. Þess vegna er betra fyrir fólk að kaupa sér hefti sem fyrst, allir vilja styrkja »Hringinn«. »Hringurinn« hefir starfað í 11 ár, og á þeim tíma hefir hann hjálpað um 60 fátækum, berklaveikum sjúklingum úr Reykja- vík með fjárframlögum. A þessum árum mun félagið vera búið að leggja af mörkum rúmar 7000 kr. 1 " Hæst verð greiðir kjötverzlun E. Milners, Laugavegi 20 B, fyrir nautgripi, eldri og yDgri, einnig kálfa. Borgað samstundis. ísl. eiraskipafélagið Eftir Guðtn. Hannesson. II.. Þriðja gkipið. Mótbárur. Eg býst við að svo hafi fleirum farið en mér, að þeir hafi í fyrstu látið sér fátt um finnast er stjórn Eimskipafélagsins tók að safna fé til þriðja skipsins. Það var ekki liðiÖ ár frá því félagið tók til starfa og reyuslan hlaut því að vera af skornum skamti. Félagið hafði fengið meira fé milli handa, stærri og betri skip en nokkur hafði í fyrstu ætlast til. Byrjunin sýndist fullrífleg til þess að beðið væri rólega eftir því hversu íélaginu farnaðist; að minsta kosti var nógu mikið fé i félagið komið ef illa gengi og fyrir- tækið ylti um koll. Blessaðist það og blómgaðist var engin hætta á því að ekki mætti skjóta saman í eina skútu eða tvær. Óðara en vissan var fengin um, að a!t bæri sig vel voru peningarnir visir. Ymsir Norðlendingar, sem eg hef átt tal við hafa haft lika skoðun. »Þessi tvö skip eru nóg til að byrja með, rneðan óvist er hversu alt gengur. Það hefði legið nær að borga skuldir sem á þeim hvíla heldur en að kaupa þriðja skipið,« sögðu fleiri en einn. En þrátt fyrir aliar mótbárur hefir þó reyndin orðið sú, að allur almenningur hafði svo gott traust á stjórn félagsins og svo mikla umhyggju fyrir því, að flestir létu eitthvað af hendi rakna og fjár- söfnunin gekk ölium vonum framar. Menn skoða það ósjálfrátt shyldu sína að efla Eimskipafélagið, finna það allir hver þjóðarnauðsyn það er, að vér eignumst skip og getum siglt vorn sjó, Frá sjónarmiöi stjórnarinnar. Stjórn Eimskipafélagsins, sem var öllum hnútunum kunnug gat auðvitað Iitið á roálið frá öðru sjónarmiði en allur almenningur. Henni var kunnugt um það, að horfur félagsins voru glæsilegar, þrátt fyrir allar skráveifur sem af stríðinu hlutust. í hennar augum var þvi hér engu i tvisýnu teflt. Þá hafði hún og rekið sig strax á það, að því fór fjærri að tvö skip gætu fullnægt eftirspurninni eftir farmrými, jafnvel félagið orðið fyrir álasi vegna þess, að það varð að neita mörgum um flutning á vör- um. Það þótti því bersýnilegt, að bráðlega hlyti að reka að þyf, að bæta skipi við. Hér var þvi aðeins um það að ræða, hvort réttara væri að hefjast strax handa, eða bíða þess að framliðu tímar og öllum yrði nauðsynin augljós. Nokkuð mun

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.