Ísafold - 24.05.1916, Page 1

Ísafold - 24.05.1916, Page 1
Kemur út tvisvar í viku. Verðárg. 5 kr., erlendis 7J/2 kr. eða 2 dollarjborg- ist fyrir miðjan júlí erlendis fyrirfram. Lausasala 5 a. eint. ISAFOLD ísafoldarprentsmiðja. Ritstjóri: Dlafur Björnsson. Talsími nr. 455. XLIII. árg. Reykjavík, miðvikudaginn 24. maí 1916. Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, er ógild nema kom- in só til útgefanda fyrir 1. oktbr. og só kaupandl skuld- laus vlS blaöið. 38. tölublaí Skúli Thoroddsen alþingismaður andaðist sunnudaginn 21. þ. m. eftir nokkura legu og undanfarandi vanheilsu hin síðustu ár. — Hann var fæddur í Haga á Barðaströnd 6. jan. 1859, og voru foreldrar hans hið nafnkunna skáld Jón Thoroddsen sýslumaður og kona hans Kristín Þorvaldsdóttir frá Hrappsey. Var Skúli næstelstur þeirra bræðra fjögra, er allir urðu nafnkunnir menn. Hann útskrifaðist úr latinuskólanum árið 1879, tók embættispróf i lögfræði við Hafnarháskóla árið 1884. Var fyrst málflutningsmaður í Reykjavík, en varð skömmu seinna sýslumaður og bæjarfógeti á ísafirði. Þar lenti hann í fyrstu orrahríðinni, og urðu fleiri áður lauk. Árið 1892 hófust mál hans vestra, »Skúlamálin«, en þeirri ákæru á hendur honum lauk svo, að hann var alsýknaður af hæstarétti 1895, en varð þó að láta af embætti. Þótti sem hann hefði verið ofsöknum beittur og vann hanu sér þá þegar mikið orð. Var hann þá og tekinn að hafa afskifti af lands- og stjórnmálum, og urðu þau afskifti mikil, er fram í sótti, og öll í hina frjálslegustu átt. Hann átti vestra mikinn þátt í kaupfélags- og verzlunarmálum, rak sjálfur verzlun, er hann hafði látið af embætti og eins er hann hafði fluzt suður til Bessastaða, er hann keypti, og síðan hingað til Reykjavíkur. Vegna þjóðmálaáhuga síns stofnaði hann blaðið »Þjóð- viljann«, er hann var ritstjóri að og hélt úti til seinustu áramóta. Skúli var fyrst kjörinn á þing af Eyfirðingum árið 1890, rúmt þrítugur, og hefir verið alþingismaður síðan. En 1893 var hann þingmaður ísfirðinga og nú síð- ast Norður-ísafjarðarsýslu. Kvæntur var hann Theodóru Guðmundsdóttur (prófasts Einarssonar). Lifir hún mann sinn með 12 börnum (af 13) og eru meðal þeirra Guðmundur læknir á Húsavík, Skúli eand. jur., Unnur gift Halldóri Stefánssyni lækni, o. fl. Hefir frú Theodóra ávalt verið talin hægri hönd manns síns, í hinni mikilvægu þjóðmála- starfsemi hans allri. Skúli var mikill maður á velli og hinn álitlegasti. Skörungur á þingi og hvar sem hann kom fram, meðan kraftar leyfðu. Áhugamaður og mælskumaður og einarður vel. Hafði einatt með höndum hin vandasömustu störf í opinberum málum þeim, er hann fekst við, eða undir hann komu á þingi, og varð kunnur af. Þó mun landsmönnum nú og framvegis sérstaklega minnisstæð framkoma hans í millilanda- nefndinni, Dana og íslendinga, árið 1908, er hann átti sæti í. Ætíð var hann í fjárlaganefnd á þingi, og sat nú í milliþinganefnd í launamálunum. Starfsemi hans í opinberum málum verður nánar minst síðar í blaði þessu. ArþýÖufól.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—8 Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 31—8 Bœjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4~7 Bœjargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 og 6—7 íslandsbanki opinn 10—4. K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8árd.—lOsiðd. Alm. fundir fid. og sd. 81/* síöd. Landakotskirkja. Guílsþj. 9 og 6 á helgum Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn 10—8. Bankastj. 10—12. Landsbókasafn 12—8 og 6—8. Útlán 1—8 Landsbúnabarfélagsskrifstofan opin frá 12—2 Landsféhirbir 10—2 og 6—6. Landsskjalasafnib hvern virkan dag kl. 12—2 Landsaiminn opinn daglangt (8—9) virka daga helga daga 10—12 og 4—7. Náttúrugripasafnib opið VJt—2J/a á sunnud. Pósthúsib opib virka d. 9—7, sunnud. 9—1. Samábyrgb Isiands 12—2 og 4—6 Stjórnarrábsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl. Talsími Reykjavikur Pósth.8 opinn daglangt 8—10 virka daga, helga daga 10—9. Yifilstabahælib. Heimsóknartimi 12—1 jÞjóbmenjasafnib opib sd., þd. fmd. 12—2. Siðasta heyleysisvorið. Eftir Guðm. Hannesson. II. (Síðaii kafli). í orði kveðnu kannast flestir við, að þetta þyrfti að verða síðasta hey- leysisvoiið og horbúskapurinn að hverfa úr sögunni. En undir niðri er fjöldi manna sannfærður um, að við pessu verði ekki qert, að heyleysi og horfellir hljóti að vera hér viðurloðandi með- an landið byggist. Þessir menn hafa það hörmulega álit á íslenzkri bændastétt, að hún geti aldrei séð, að horbúskapurinn sé stórtjón og annað ekki, að menn- ingarbúskapur geti aldrei þrifist hér á landi, þó öllum öðrum þjóðum hafi hann orðið til stórhagnaðar. Þeir halda, að engiu gróðafluga sé syo baneitruð, að íslenzkir bændur gíni eigi yfir henni ver en nokkur þorsk- ur, jafnvel þó sómi stéttarinnar liggi við, að endalaust muni bændur stofna bæði mannorði sínu og aleigu í voða, ef hin minsta von sé til þess, að ná 4 nokkra skítuga blóðpeninga. Eg er algerlega laus við þessa skaðræðistrú og íslenzkir bændur <eiga ekki slikt álit skilið. Það var einu sinni sú tíðin, að kýr voru settar svo djarft á, bæði hér á landi og annars staðar, að þær voru reisa i hörðum vorum eða féllu jafnvel úr hor. Nú munu þess fá dæmi, að minsta kosti norðanlands, að kúm sé ekki aetlað sæmilegt fóður í hvaða ári sem er. Sjálfsagt hafa margir trúað því fastlega fyr, að bændur kæmust aldrei svo langt, að ekki yrði hor- fellir á kúm. Þessi trú hefir þó orð- ið sér til skammar. Það var einu sinni sú tíðin, að kindur voru settar svo djarft á, að horfellir hlaut að verða, ef nokkuð verulegt bar út af. Nú ætla flestir kindum sínum sæmilegt fóður, þó ekki séu það allir. Væri ekki ann- að að fóðra en kýr og kindur, myndi öllu borgið, ef vetur er ekki ódæma harður. Að miklu leyti höfum vér lært gætilegan ásetning fyrir féð. En herzlumuninn vantar. Það, sem oss er mest áfátt i, er ásetningur hrossa. Þeim er víða bætt ofan á aðrar skepnur fyrirhyggjulaust, og það eru þau, sem voðinn stafar af framar öllu öðru. Allur hrossa- búskapur bænda verður að gerbreyt- ast, í þá átt, að reynt sé að hugsa minna um höfðatöluna en kyngóða verðmæta gripi, sera vel sé farið með og fult fóður ætlað. Þetta búskaparlag hafa nágranna- þjóðirnar tekið upp fyrir löngu og stórgrætt á því. Ef vér eigum að græða á hrossarækt, hljótum vér að fara að þeirra dæmi. Anmrs étur tjón hörðu áranna upp allan gróð- ann í góðu árunum, þó töluverður geti hann verið. Nei, það er engin hætta á því, að horbúskapurinn haldist hér við að eilífu nóni. Aldrei hefir verið búið eins vel á landinu og nú og með hverju ári breytist margt til batnað- ar. Sú framförin, sem nú ríður mest á, er, að reka af sér slyðruorð- ið og gera fellirinn landrækanl Þetta stendur hvorki í valdi þings né stjórn- ar. Bændur einir geta rekið þennan óvætt af höndum sér hvenær sem •þeir vilja. En hvernig eigum vér þá að losna við heyleysi og felli? Hver úrræði eru bezt og hentugust af þeim, sem um er að tala? Að sjálfsögðu er það al%erle%a óum- flýjanleqt, að bcendur hafi kappnóa fóð- ur handa öllum skepnum sínum, ekki fyrir meðalvetur, heldur fyrir harð- asta vetur, sem leqst snernma að og helst látlaust til jardaga. Og það má enginn ætla sér að útvega sér fóð- urbæti að vetri eða vori. Á haustin verður ýóðrið að vera ýengið. Að setja á aðfl'utt fóður, sem fyrst á að út- vega að vetrinum, er ekkert annað en að setja á hafísinn. Þó svo vildi til í vetur og vor, að allar samgöng- ur væru opnar og þar á ofan að landssjóður lægi með miklar mat- vörubirgðir, þá var hvorttveggja til- viljun ein, sem ekki er að treysta framvegis. Það er þá um tvo kosti að velja: 1) Áð leggja hvorki aðaláherzluna á fyrningar né fækkun skepna að haustinu, þó heyskapur verði rýr, heldur kaup á útlendum eða innlend- um fóðurbceti, — ekki að vetri eða vori, heldur strax að haustinu. 2) Að hafa aldrei búin stcerri en svo, að hey séu ncegileg ýyrir allar skepnur. Til þess að komast hjá því, að rýra um of bústofninn í grasleysisárum, yrði þá sjálfsagt að hafa rlflegar ýyrningar. Um þessa tvo kosti hafa bændur að velja. Að setja nokkra skepnu á guð og gaddinn skyldi engum koma til hugar, sem vill bóndi heita. Og sá er kosturinn beztur, sem að öllu samtöldu gefur mestan hagn- að í aðra hönd, en það hlýtur aftur að verða misjafnt eftir því hvert verð er á kjöti, heyi og fóðurbæti. Án þess að eg ætli að reikna hér saman, hversu verð á heyi og fóð- urbæti svari hvort til annars, þá má eflaust fullyrða, að oft geti það orðið góður hagnaður að kaupa ýóðurbceti, ekki sizt lýsi, í samanburði við að fækka mjög fénaði. Má meðal ann- ars benda á grein Jóns Þorlákssonar verkfr. í Lögr. 1914 (bls. 100). Ef verð er skaplegt á fóðurbæti og flutn- ingar ekki mjög erfiðir, þá getur slíkt fóður orðið jafnvel ódýrara en hey. Eins og öllum er kunnugt, gripa nú bændur ætíð til fóðurbætiskaupa, ef i harðbakka slær að vorinu og aefir oft komið það að gagni. Korn- ið er þá tekið hjá kaupmanninum —• eý pað er pá til — með því verði, sem hann setur á það. Þessi aðferð er auðvitað mjcg hættuleg og dýr. Venjulegar birgðirkaupmanna hrökkva skamt til fóðurkaupa, ekki sizt er tafis legst að landi. Um annað get- ur ekki verið að tala, en að heilar sýslur slái sér saman í vænan skips- íárm að haustinu til og kaupi þá jafnframt með stórkaupaverði. Laus- ega telst mér svo til, að heill farm- ur »Goðafoss« (rúm 1000 tonn) sé 2—3ja vikna fóður handa skepnum öllum í Húnav.-, Skagaf).- og Eyja- : jarðarsýslum. Ef bændur hafa framtakssemi til jess að koma þessu í verk i tíma, )á er ekki nema gott um það að segja. Eg geri þá ráð fyrir, að fyr- irfram væri það athugað, hversu þetta svaraði kostnaði með því verði á leyi, fóðurbæti og kjöti, sem væri oað árið. Fóðurbætiskaup bænda eru nú að öllum jafnaði gerð fyrir- lyggjulítið, verða dýrari en ástæða er til og engin, er hafis bannar sigl- ingar. Þá er og ekki farið að gefa óðurbæti fyr en hey eru komin að jrotum, i stað þess að gefa hann jafnt allan veturinn. Þó framfaramönnum kunni ef til vill að lítast bezt á fóðurbætiskaup- in, þá segir mér svo hugur um, að treglega gangi að koma þeim í það lag, sem nokkur trygging sé í 0: nægar birgðir að haustinu. Þær þurfa nefnilega að vera aýskaplega miklar, ef verulega á að muna um þær. Hætt þykir mér og við, að hinn gíf- urlegi kostnaður vaxi mönnum í aug- um. En ef þessu úrræði er slept, er um ekkert annað að gera, en gamla margreynda fyrningabúskapar- lagið, að hafa ekki búið stærra en svo, að heyin séu kappnóg fyiir all- ar skepnur. Fyrst vil eg taka það fram, að það takmark, sem forðagæzlulögin stefna að 0: nægilegt fóður fyrir næsta vet- ur, er algerlega rangt, algerlega ófull- nægjandi. Reynslan hefir sýnt það, að forða- gæzlumönnum getur algerlega skjátl- ast í því, hvað heyin hrökkvi, hafa jafnvel orðið snemma heylausir sjálfir!1) Stundum eru heyin óvenju- lega létt, stundum illa verkuð og ber þetta alt að sama brunni: að fyrn- ingar verður hver bóndi að haýa, setja drjúgum minna á, en ætk mætti að heyin leyfðu. En hve miklar purfa pá ýyrningarn- ar að vera ? Ykja miklar þurfa þær ekki, ef að eins er hugsað um það, að vera byrgur fyrir veturinn. En þetta er ekki nóg. Næsta sumar getur orðið grasleysis- eða óþurka- sumar og þá verður bóndinn neydd- ur til þess, að fækka fé sínu óhæfi- lega mikið. Fyrir þetta sker má sigla með ríflegum fyrningum, og ^) Slíkir forðagæzlumenn ættu að losa sig við starfann.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.