Ísafold - 19.07.1916, Side 3

Ísafold - 19.07.1916, Side 3
I ISAFOLD > þá við miklu meiri ráðdeild, svo þegar Sonni segir eitthvað, sem hinum finst ófullkomið, kemur óð- ara leiðrétting hins eldra bróður. — Sonni var vanur að meta alt, eink- um fyrst, á stundlega og jarðneska alin og lýsa öllu umhverfi, eins og hann hafði skynjað það í þessu lífi; en hinn fullorðni stefnir að því í sínum svörum, að lýsa öllu hérna megin sem endurskini eða jafnvel skugga hinnar komandi tilveru. Loks skal þess getið, að móðir Sonna komst svo langt, að hún ját- aði hiklaust, að hún væri orðin full- komlega ánægð, þótt guð hefði tekið hann til sín, því hann hefði ekki tekið hann nema að nokkru leyti frá sér. — Varð Sonni þá óvenju glaður. M. J. Erl. símfregnir (frá fréttaritara Isaf. og Morgunbl.). Kaupm.höfn, 14. júlí. Höll, sem Vilhjálmur Þýzkalandskeisari átti í Aþenuborg, er brunuin. Vegna allsherjarverk- falls á Spáni hefir Altons konungur nnmið stjórnar- skipunarlögin úr gildi fyrst um sinn. Kaupmannahöfu 15. júlí. Bretar hafa tebið Mam- etz-skóginn. Rússar sæbja ákaft fram hjá Kovel. Katbátskauptarið sem feom til Baltimore, er 2000 smálestir ad stærð. Herlög eru látin gilda i Spáni vegna altnenns verfefalls. % Þaö var Tatoi-höllin í Aþenuborg, sein brann. — — Þjóðverjar liata lagt hald á alt togleöur af hjól- hestahringum í öllu þýzka rikinu. Kaupm.höfn, 18. júlí. Bússar sækja fram fyrir suðvestan Luzk og hafa tekið 13 þús. fanga. Bússar sækja og á á her- línunni hjá Riga. Bandameun auka stór- skotahríð sina á vestur- vígstöðvunum. — 300 lík sjóliðsmanna hafa rekið á land á Norö- urlöndum. Metznikoff er látinn. ■-- ■' ------------ Erl. símfregnir Opinber tilkynning frá brezku utan- rikisstjórninni i London. London, ódagsett. Eftirfarandi skeyti hefir komið fá aðal- stöðvunum i Frakklandi, dags 14. júlí. Það er nú unt að segja nákvæmar frá orustunni sem hófst snemma f morgun. Eftlr ákafa stórskotahríð var áhlaup gert kl.- 3,25 í morgun. Óvinirnir voru reknir úr skotgröfunum á allri árásarlinunni og é 1- vér tókum marga fanga. Áköf orusta hef- ir staðið i allan dag og höfum vér stöð- ugt unnið nokkuð á. Vér höfum nu á voru valdi aðra varnarlínu Þjóðverja milli Ba- zentin le Petit-þorpsins og Longueval- þorpsins, að báðum stöðum meðtöldum, og allan Trouer-skóginn. í þeim skógi komum vér flokk úr Royal West Kent her- dcildinni til hjálpar. Hafði sá flokkur orð- ið viðskila við aðallinuna i bardögunum ný- lega, og var alveg umkringdur af Þjóð- verjum. Þeir stóðust samt árásir Þjóð- verja i 48 klukkustundir i norðurhluta skóg- arins. Þjóðverjar gerðu tvö grimmileg á- hlaup, sem mishepnuðust með öllu. Síðar gerðu þeir eitt áhlaupið enn og þeim tókst að ná þorpinu Bazentin le Petit en fót- göngulið vort rak þi þaðan aitur að vörmu spori. Alt þorpið er á voru vatdi London ódagsett. Vér höldum áfram að vinna á á herlinu vorri. Á einum stað höfum vér hrundið óvinunum yfir i þriðju varnarlinu Þjóðverja, sem er rumlega 4 mílur fyrir aftan fyrstu iínu þeírra, senv var hjá Fricourt og Mametz. Síðustu 24 klukkutima höfum' vér tekið rúmiega 2000 fanga, þar á mcðal einn hershöfðingja þriðju lifvarðarsveitarinnar. Ails höfum vér tekið rúmlega 10 þus. fanga síðan orustan hófst. Vér höfum og náð miklum birgðum af allskonar hergögnum. London, 18. júli. Hersveitir vorar hafa unnið enn fleiri þýðingarmikla sigra. Norðvestur af Bazen- tin le Petit-skógi gerðum vér áhlaup á aðra varnarlinu Þjéðverja og tókuin hana á 1500 metra löngu svæði. Fjöldi fallinna Þjóðverja var á þessu svæði og ber það vott um hið mikla manntjón, sem þeir liafa beðið siðan vér hófum sóknina. Austan við Longueval höfum vér stækk- að skarð það, er vér liöfum höggvið i aðra varnarlinu Þjóðverja, með þvi að ná á vort vald hinum ramlega viggirtu stöðvum hjá Waterlot bænum. í vinstra herarmi vorum, í Ovillers La Boiselle hefir staðið látlaus höggorusta sið- an 7. julf. Þar höfum vér nú tekið leif- arnar af hinum sterkustu vigstöðvum óvin- anna. Handtókum vér þar 2 liðsforingja og 124 hermenn úr lifvarðarsveitinni. Voru það leifar hins hrausta setuliðs Þjóðverja þar og er nú alt þorpið á voru vaidi. Skjöl, sem komist hafa i vorar hendur, sanna það, að Þjóðverjar hafa beðið mikið manntjón i siðustu viðureigninni. Þar er meðal annars sagt að ein „hersveit (com- pany) hafi mist alla sina menn nema einn liðsforingja og 12 liðsmenn og séu þeir svo að þrotum komnir að þeim sé eigi meira ætlandiv. Önnur hersveit »eralger- lega óvfgfær; þeir sem eftir lifa eru svo aðfram komnir að þeir geta ekki barist lengur: ef stórSítotahrfðinni léttir ekki verður hersveitin bráölega upprætt; það er nauðsynlegt að henni sé bjargað<. í einu herfylki »eru nú sem stendur 3 liðs- foringjar. 2 undirliðsforingjar og 19 liðs- menn.< . / Heykiavlknr-annáii. Vöruflntningaskip til Vesturheims- farar hefi* landstjórnim leigt, seglskip 1500 smál. að stærð, og á að greiða fyrir það 65000 kr. leiga á mánuði. Skipið heitir Bisp. Skipafregn. Goðafoss er kominn til Khafnar. í s 1 a n d kom þangað um miðjan mánuð og á að fara þaðan aftur á fimtudag. B o t n i a fór héðan í gær. Farþegar: Mr. Irwin, Frithjof Nielssen umboðs- sali, sr. Páll Sigurðsson, ungfrú Sigr. Björnsdóttir (Jenssonar). Skipið flutti og 125 hesta til Ðanmerkur. Jarðarför Jóns Ólafssonar fer fram í dag. Húskveðju flytur síra Eiríkur Briem prófessor, en í kirkjunni taiar síra Bjarni Jónsson. Haralður Nielsson prófessor dvelst þessa dagana á Akureyri og hefir bæði pródikað þar og flutt ýms erindi — jafnan við svo mikla aðsókn, að marg- ir' verða frá að hverfa. Skaftfellingaför. í kynnisför þeirri, sem um er getið i síðasta blaði, að 3 Skaftfellingar sóu í för kringum landið eru þessir: Hjalti Jónsson frá Hoffelli í Hornafirði, Þorbergur Þorleifsson frá Hólum í Hornafirði og Sigurður Jóns- son frá Stafafelli í Lóni. Alt ungir menn er stunda búskap. Til síldveiðanna norðanlands eru allir sunnlenzku botnvörpungarnir nú farnir — svo dauft er nú á Reykja- víkurhöfn eftir múkinn, er allur flot- inn lá þar í sinni dýrð. Margir stórir vélbátar eru einnig farnir nörður á síldveiðar. Skógræktin. Leiðrétting. í ísafold, tölublað 21. júní, hefir G. Davíðsson skrifað grein »Skóg- ræktarpistilU. Ósvífni hans og heimsku ætti eg ekki að vikja að, því eins og eg hefi sagt honum áðnr, veit eg hversvegna hann kemur fram þannig, og þar að auki er nú venju- lega svo, að því minni gaum, sem menn gefa að götustráki, sem er að æpa eftir þeim, þess fljótara hættir hann. En grein hans gefur mér tækifæri til að taka fram sitthvað skógræktinni viðvíkjandi, sem mig Iangar til að tala um. Það er nú fyrst skóghögg á Þing- völlum. Eg efast ekki um, að illa sé ennþá farið með skógana, að því er snertir högg, á allmörgum stöð- um, en skógræktarmennirnir eru of fáir til að þeir geti haft eftirlit al- staðar. Alt er undir því komið, hvott hreppstjórar vilja gera skyldu sina og skýra skógræktarstjórninni frá því, þegar þeir hafa gengið úr skugga um, að menn höggva skóginn á ólögl^gan hátt. Að eins einn hiepp stjóri,í Borgarhreppi I Mýrasýslu hefir hingað til gert svo. Þar hafði eg eftirlit i fyrra, og mál reis út af því, sem lauk svo, að hlutaðeigendur fengu viðvörun. Þetta ár hafði eg gert ráð fyrir að hafa eftirlit í Arnessýslu, þar á meðal í Þingvallasveitinni. Svo er mál með vexti, að eg hefi reynt áður að rannsaka Þingvallasveitina í því skyni. Menn hefa oft tekið það fram við mig, að sé einkum frá prestssetrinu höggvið allmikið ár hvert, en prest- urinn sagði mér að hann vissi ekki hvar viðurinn hafði verið tekinn og að maðurinn sem var vanur að höggva væri ekki viðstaddur þá. Eg fór samt um nokkurn hluta hins víð- lenda skógsvæðis, en gat ekki fundið neitt sérstaklegt. Þó hafði hingað og þangað verið höggvið smárjóður. Sjötta júní í ár gáði eg að girð- ingunum á Þingvöllum, þær voru þá i góðu lagi. Aðeins var hliðið i elztu girðingunni skemt, en eg gerði við það svo, að skepnur gátu ekki komist að. Þann 25. júní bað eg prestinn að gera við hliðið, eb þegar eg kom þangað 9. júli hafði ekkert verið gert, en hliðið var þá brotið í sundur. Þá bað eg hótelstjórann að gera við það. Plönturnar voru samt óskemdar. í vor fór eg þess á leit við tvær sýslunefndir að ráði I þjónustu sina 2 fasta starfsmenn til að hafa með höndum skógarhögg það, er fer fram árlega í sýslunni. Sýslunefndin í Arnessýslu svaraði mjög svo kurteis- lega, að henni fyndist hugmyndin góð, en (yrst um sinn myndi hún ekki vilja taka beinlínis þátt i því, heldur óskaði þess, að skógræktar- stjórinn sæi um að ráða mennina, og að þeir yrðu iaunaðir að nokkru af þeim sem létu höggva, en að nokkrn úr landssjóði. En sýslunefndin í Mýrasýslu svar- aði blátt áfram án frekari skýringa, að hún sæi sér ekki fært að verða við málaleitun skógræktarstjóra. Þetta er auðvitað hið hægasta, að skjóta frá sér öllu, sem getur valdið óþægindum, en ilt fyrir mál, sem þarf að fá stuðning, einkum af hálfu sýsíunefnda, til þess að ná framför- um. Þar sem kvörtun yfir að menn fæiu illa með skógiun, fyrst kom þaðan, og þessi sýsla er hin skóg- auðugasta á landinu, (4000 vallardagsl. af skóglendi) hefði eg ekki búist við slíku svari. Þá er nú flutningurinn. Eg efast stórlega um, að sá skógarvörður, sem nefndur er i grein G. Davíðssonar mundi vilja játa að hann segði af sér stöðu sinni vegna þess, að hann .varð að vinnn við flutninga. Hver mað- ur sem vill sjá, mun vera ljóst, að hér er um mikilsvert stnrf að ræða. Skóglendið þar, sem er hið bezta og viðlendasta, liggur alt of langt frá fjölbygðri sveit. Ef við getum ekki hagnýtt okkur það með þvi að fleyta niður viðnum þá er yfirleitt ókleift að rækta þar skóg í stórum stíl. Viðurinn, um 140 hestar, sem var settur í ána í fyrra, var að mestu leyti tekinn á land í Skeiðum við Utriða og seldur þar. Nokkur hluti af honum kom niður að Kiðjabergi og var seinna bjargað þar. í ár voru settir t ána við Laugar- vatnshóla 300 hestb., 950 baggar. Af þeim hafa 870 verið teknir á land við Skálholt, við Útriða og Fjall á Skeiðum, en hinn hluti viðarins við Kiðjabergsferjuna fyrir snnnan ána. Þar er fyrirætlað að selja hann í ágúst. Heldur vei hefir farið fyrir okkur að fleyta, enda þótt vér höf- um ennþá iitla reynslu, talsvert greiðara hefði það samt gengið, ef þeir sem eg gerði samninga við um flutning á viðnum niður að Hóli, hefðu haldið samninginn, svo að við hefðum verið færir um að byrja flutningana 15. mai eins og jeg hafði gert iáð fyrir. Tvisvar (tvö ár) hefir samningurinn verið rofinn. Ef hann er ekki haldinn í þriðja skifti þá muDdi vera bezt að taka burt girð- inguna í þvi skóglendi og snúa sér til annarra manna. A. F. Kojoed-Hansen. Bændur svara. Veltiár. — Dýrtíð. Eftir sira Magnús Bl. Jónsson i Vallanesi. •Varðar mest til allra orða, að nndirstaða rétt sé fnndin.< Það hefir orðið umtal, eigi all- litið um veltiár annars vegar og dýr- tíð hins vegar hér á landi, stafandi af heimstyrjöldinni. Umtal þetta hófst fyrir alvoru á alþingi 191S, með tilraun bjargráðanefndar, til að hefta að nokkru leyti útflutning á neyzluvörum, framleiddum í landinu, og frumvarpi sömtl nefndar um út- Mjólkurfélag Reykjavíkur heldur fund í Bárubúð sunnudaginn 30. júlí «kl. 4 síðd. Aríðandi að félagar sæki fuudinn. flutningsgjald. Hvorttveggja þetta er felt í þinginu. Þetta hefði ekki vakið neina sér- lega eftirtekt í landinu, befði að eins verið frá þvi sagt, sem öðrum þing- fregnum. Og svo aftur, á sínum tíma, skýrt frá því, hvernig sam- komulag náðist um þetta mái. En þetta er ekki látið nægja. Sum blöðin hefja þegar harðvítugar árásir á bændur á þingi, út af þessu. Tala nm, og marg-endurtaka »bænda- valdið* á þingi, stéttar-hagsmuna- pólitík, stórgróða bænda, þeim að þakkarlausu og fleira þess háttar. Yfir höfuð liggja þingbændum, og þar með landbúnaðarmönnum yfir- leitt, all-þungt á hálsi fyrir fram- komu og hugsunarhátt. Og svo er þessu aftur svarað af ýmsum málsmetandi mönnum. Mörg svörin eru góð, og á þeim talsvert að græða, til upplýsingar landbúnað- inum, og hag þeirra, er hann stunda. En í engri af þessum svar-greinum bænda, er »ísafoldc svo nefnir, hef eg séð það skýrt fram sett, hver þessi gróði landbúnaðarins er, af styrjöldinni. Hve miklu betur hagur bænda stóð 1915, heldur en t. d. 1913 og 1914. Þetta er þó sannarlega undirstaðan. Mergurinn málsins. Sé mismunur- inn mjög mikill frá venjulegu, all- sæmilegu árferði, þá standa þeir, sem skattgiida vildu stórgróðann, þeim mun betur að vígi, sem hann er meiri. Sé hann tiltölulega smár, verður hið gagnstæð? ofan á. Og áður en lagður var ákveðinn dóm- ur á framkomu þingbænda, eða landbúnaðarmanna, yfirleitt i land- inu, sem flestir munu hafa fylgt þeim að máli, er það varð kunnugt út um land, virðist mér, að ástæða hefði verið til, að rannsaka, hversu mikill þessi gróði landbúnaðarins var. Og fella svo dóm bygðan á rökum. í stað slikrar rannsóknar er talað um þakkarlausan stórgróða bænda annars vegar, og skort þeirra á fórn- fýsi og hluttekningu hins vegar við bágstadda samþegna, sem líði að ósekju skort sprotticn af sömu rót,. sem gróði bændanna. En stórgróði, og stórgróði. Það er óákveðin stærð. Hvað er stórgróði ? Hann er til 1913 og því tjáir ekki að segja, að þeir fari með ósatt mál, er urn hann tala. En hve almennur er hann? Það er annað mál. Hér er farið með hálfsagða sögu, hálfan sannleik. En gefið út sem heil saga, fullur sann- leikur. Báðir hafa hér nokkuð fyrir sér; þeir sem tala um stórgróða, og þeir, sem telja gróðann smáræði. Þeir líta að eins á sína hliðina hvorir. Hvort- tveggja er til. Og auk þess er til hið þriðja. Það eru til landbú, og þau ekki svo fá yfir landið, sem biða skaða af völdum styrjaldarinn- ar. Hvar er þá hið rétta í máli þessu ? Til þess að finna það, má hvorki einblina á það mesta, né minsta, heldur athuga, hvort landbúnaður- inn yfirleitt hefir grætt, og sé svo, þá hve mikið. Eg vil nú leyfa mér að benda á að- ferð til þessa, og leitast við að sýna mismuninn á hagnaðinum í árslok 1914 og 1915. Sé gengið út frá manntali þvi,. sem Sveinn alþm. Bjömsson gefnr upp í þingræðu sinni 31. ágúst

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.