Ísafold - 19.08.1916, Page 2

Ísafold - 19.08.1916, Page 2
2 ISAFOLD undirbúnings sakanaála og lögreglu- mála; sýslumönnum sé falið að setja grunaða menn í höft og hafa þá í haldi þangað til þeir verða leiddir fyrir dómara, taka lögregsluskýrslur af vitnum og grunuðum mönnum og taka á móti sektum í almennum lögreglumálum og útkljá slík mál tH fulls, ef lögákveðið hámark sektar fyrir brotið fer eigi fram úr 200 kr., og kærandi, ef nokkur er, sam- þykkir, en ella sé málinu skotið til lögmanns. 2. SkiJtamAl. Uppskrift og virð- ing dánarbúa, þrotabúa og annara búa í umboði lögmanns og fullnaðarskifti á óbrotnum búum og yfirleitt öl! þau störf við skifti, sem eru um- boðslegs eðlis. En öllum ágreiningi við skifti eða út af skiftum sé skotið til lögmannsúrskurðar. 3. Fótretaqerðir. Almennar fó- getagerðir, fjárnám eftir dómum, lög- tök og fjárnám, án undánfarins dóms eða sáttar, skal fela sýslumönnum; framkomin mótmæli gegn þessum gerðum skulu þeir úrskurða; en þeim úrskurði má skjóta til lögmanns; þó getur slíkt málskot eigi stöðvað gerðina. 4. Uppboðsmál. Auglýsing og birt- ing nauðungaruppboða og strandupp- boða, og uppboða á þrotabúum og dánarbúum, er eigi er gengið við arfi og skuldum, svo og annara upp- boða, ef þess er krafist; samning uppboðsskilmála, þó eigi á einkaupp- boðum, nema þess sé krafist; upp- boðshaldið sjálft, innheimta uppboðs- fjár á stranduppboðum, og uppboð- um í áðurgreindum búum, svo og á öllum uppboðum, er haldin eru, að ráðstöfun hins opinbera. Um mót- mæli og úrskurði, við uppboðið, fer sem við fógetagerðir. 5. Notarialgerðir. 6. Skattheimta. Sýslumenn inn- heimta manntalsbókargjöld öll, þau er nú eru, ábúðar- og lausafjárskatt, tekjuskatt, húsaskatt, hundaskatt og alþýðustyrktarsjóðsgjald, svo og auka- tekjur fyrir störf þau, er þeir inna af hendi, gjöld fyrir leyfisbréf, er þeir láta úti, og bjargráðasjóðsgjöld, samkvæmt lögum nr. 45, 10. nóv. 1913; ennfremur sektir, nema toll- sektir, og aðrar óvissar tekjur lands- sjóðs. Fyrir þessum innheimtum geri þeir reikningsskil,. á þann hátt, sem lög mæla fyrir. 7. Gerðir dllar við skipströnd, þær er eigi þurfa að koma til dómara aðgerða. 8. Lö%skránin% skipshafna í og úr skiprúmi. 9. Heilbriqðismál, í samvinnu við héraðslækni og hreppsnefndir. 10. Afgreiðsla leyfisbréja tíl at- vinnureksturs, borgarabréfa, til verxl- unar og iðnreksturs, leyfisbréfa far- andsala, skipstjóra-, stýrimanna- og vélstjóraskirteini, og lausamensku- leyfi. 11. Afgreiðsla annara leyfisbréja: til að vera fullveðja, til að sitja í óskiftu búi, skilnaðarleyfi hjóna að borði og sæng, og önnur leyfisbréf, sem sýslumenn afgreiða. 12. Lögqildinq atvinnubóka. 13. ' Tilnejning matsmanna og skoð- unarmanna utan réttar. 14. Landskijtamál, samkv. 1. nr. 43, 10. nóv. 1913. Sýslumaður sé formaður yfirmatsmanna. 15. Ajgrieðssa vegabréja. 16. Afgreiðsla vottorða um upp- runa innlendrar vöru. 17. Eftirlit með ómyndugra Jé og fjárhaldsmðnnum ómyndugra í um- boði yfirfjárráðanda. 18. Skýrslur, er sýslumenn og hreppstjórar nú afgreiða til stjórnar- ráðs og hagstofu, aðrar en dóm- skýrslur, skiftaskýrslur, skipaskýrslur og yfirfjárráðaskýrslur. 19. Borgaraleg hjónavígsla. 20. Hjónaskilnaðarmál. 21. FormannsstörJ i skattanefnd. 22. Eignarnám verzlunarstaða í kauptúnum. Mótmæli úrskurðar lög- maður. Yfirleitt er ætlast til, að sýslu- mönnum verði falin öll þau umboðs störf í héraði, sem sýslumenn hafa nú á hendi, og eigi eru sérstaklega falin öðrum starfsmönnum, Umskipunsýslumannahefirnefndin komist að þeirri niðurstöðu, að hag- kvæmast„væri að haga henni svo, að embættin séu auglýst af stjórnarráð- inu og umsóknir stilaðar til stjórn- arráðsins, en sendar sýslunefndum, og kjósi þær úr 3 af umsækjendum, ef fleiri eru, en stjórnarráðið skipi einn jf þeim 3 í embættið. Um laun sýslumanna segir nefnd- in, að með því að þingin séu svo lítil muni embættisrekstur þeirra eigi taka nema nokkurn hluta starfs- krafta þeirra, svo að þeir geti stund- að aðra atvinnu við hliðina. Telur hún þvi launin sæmileg þannig: 1. fl. 2 þing með 800 kr. árslaun. 2. -24 — — 480 — — 3- - S5 — — 360 — — 4.-18 — — 240 — — í Reykjavík, á Akureyri og ísa- firði gerir nefndin ráð fyrir að fela megi tollvörðunum sýslumannastörfin, án sérstakra launa fyrir þau. Nokkurar aukatekjur eiga sýslu- menn hins nýja tíma að hafa. Stðrf tollvarða. Þau eiga að tillögum neÍDdarinn- ar að verða: a. Innheimta aðflutningsgjalds, toll- gæzla og reikningsskil fyrir þess- ari innheimtu. b. Afgreiðsla skipa, innheimta af- greiðslugjalds,vitagjalds og hafnar- gjalds, svo og reikningsskil fyrir þessum gjöldum. í Reykjavík býst þó nefndin við, að bæjar- stjórnin skipi mann, til að inn- heimta hafnargjöldÍD, og verði honum launað úr hafnarsjóði. c. Firmaskrásetning og önnur störf samkvæmt firmalögunum. d. Mæling skipa, og skrásetning, sé falin tollvörðunum í kaup- stöðunum, Reykjavík, Akureyri, ísafirði og Seyðisfirði, og sé það á valdi skipaeigenda, á hverjum stað þeir kjósa að láta skrásetja skip sín. Talið er sjálfsagt, að tollverðir setji tryggingu, er gild verðurtekin, fyrir innheimtum, sem þeir hafa á hendi fyrir landssjóð. Laun eiga tollverðir engin að fá föst, en hafa í kaup hundraðsgjöld- in af tollunum, skipagjöld 0. s. frv. Auk þessarar skiftingar á störfum núverandi sýslumanna leggur nefnd- in loks til, að yfirjjárráð ómyndugra á öllu landinu verði falin einum manni, vfirfjárráðanda, búsettum í Reykjavík með 3500 kr. árslaunum auk skrifstofukostnaðar. Slysför Hinn 10. f. mán. hvarf stúlka frá Hrauni í Grindavík. Þórunn Jóns- dóttir, ættuð af Mýrum. Var henn- ar víða Jeitað, en hún fanst loks þann 12. ágúst rekin af sjó, ekki langt frá Hrauni. íslejizk menning og þýzk. íslendingur, sem dvalið hefir 14 ár i Þýzkalandi, sagði mér nýlega að hann hefði stöðugt lesið þar íslenzk blöð, en aldrei myndi hann, að pau hefðu sagt rétt jrá nokkrum atburði i Þýzkalandi. Sjálfsagt hefir hann þá ekki tekið tillit til allra einföld- ustu frétta, mannsláta 0. þvíl. Eg er hræddur um að ofmikið sé satt í þessu. Þjóðverjar þekkja oss og land vort manna bezt, og segja svo rétt frá flestu er að íslandi lýtur að varla sézt stafvilla í mannsnafni, en vér erum svo ófróðir um þá að minkun er að. Að minsta kosti verður ekki annað séð á blöðunum. Það má ekki minna vera en að vér látum Þjóðverja njóta sannmælis og séum ekki að breiða út lygi og last um þá, mennina sem vilja efla sóma vorn á alla lund flestum framar. í »Vísi« stóð nýlega grein: »Þýzka menningin« og er þar bor- in saman tala glæpamála í Þýzka- landi og Englandi »um 10 ára skeið« (hvaða 10 ári) og er sagt að íarið sé eftir þýzkum heimildum, sem þó eru ekki tilgreindar. Höf. telur að á þessum 10 árum hafi þessi glæpamál komið fyrir í Þýzka- landi og Englandi (Stóra-Bretlandi?): ►h *-* CI CS ro • H # • I a -c 1 1 J! *2 ^ bfi s a vo cs 00 00 ^ o • • fO M O 1* ci -é- t—4 0 • H OO 0 "3 ►H 0 a ON vo CS cs • N • S 3 'X • c A -<TJ öp 'h-H i ‘53 s /V. CD 3 > “3 6 s cS CJ a 3 O 00 öfi ”55 CS " >0 3 cs xo '53 4-» ~3 Jí, mikill má munurinn vera ef hér er rétt farið með. Að vísu búa um 65 miljónir manna í Þýzka- landi og að eins 45 mill. í Bret- landi, en þó tekið sé tillit til þessa er munurinn svo mikill, að hann er næsta lygilegur, og lygilega gott sið- ferðið í báðum löndum, sérstaklega þetta Paradísar-ástand í' Bretlandi. Því mfcur hef eg ekki i hönd- um nákvæmir skýrslur um glæpamál i ýmsum löndum pg efast um að þær séu hér til. Aftur á móti ern nákvæmar skýrslur til um Þýzka- land. Hið helzta sem eg hef fund- ið viðvikjandi þessu máli og bera má saman er þetta: Bulletin de l’Institut internationale de Statistique 1903 telur:8) Á árunum 1896—1899 voru að meðaltali dæmdir sökum glæpa og lögbsota samtals: 1 Þýzkalandi 469.133 menn eða #77 aj 100.000 íbúum. 1 Englandi 614.636 menn eða 1329 af 100.000 ibúum. J) I blaðinu stendur nauðungar- mál. 2) Eg er ófróður í þessum efnum og get því heimilda minna, sem eg að öðru leyti vísa til. I Frakklandi (1910)a) 694.441 menn eða 1342 aj 100.000 ibúum. Að samtölu eru þá glæpir og lög- brot nálega hálju tíðari í Englandi og Frakklandi en Þýzkalandi og ekki verður talá glæpamanna á Bret- landi minni þó farið sé eftir The Statesments Yearbook (1914). Hún telur að 1912 hafi verið dæmdir: fyrir meiriháttar yfirsjónir (indictable offences) ................ . 50.448 - minni yfirsjónir (non indict. off.)......... 792.401 samtals dæmdir árið 1912 842.849 Fyrir brunamál voru dæmdir: Á Þýzkal. 492 eða 0.9 af 100.00 íb. - Engl. 58 — 0.1 - 100.00 — Fyrir skemdir á eignum voru dæmdir: Á Þýzkal. 13.011 eða 24 af 100.000 ib. - Engl. 12.473 — 31 - 100.000 íb. F^rir meiðsl og áverka (lezione personale) voru dæmdir: á Þýzkal. 1 t6.786a)e.2i8afioo.oooíb - Engl. 31.347 eða 78 - ioo.oooíb. Af þessu verður eigi mikið ann- að ráðið en að sumir glæpir séu tíðari á Þýzkalaudi, aðrir á Bretlandi, því erfitt er að bera saman ólík lönd með ólíkri löggjöf og ólíkum skýrslum. Því miður hef eg ekki skýrslur frá Bretlandi um nauðgunar- mál o. þvil. en hitt er auðséð, að eitthvað er bogið við tölurnar i »Visi«. Því fyrir nauðgunarœál m. m. (Unzucht und Nothzucht) vóru að meðaltali dæmdir árlega á Þýzka- landi árin 1903—1907, 5413 menn.* 2 3) Eg býst við að Bretland standi ekki langt að baki í þessum efnum þrátt fyrir alia guðhræðsluna. Þó. þessar upplýsingar séu ekki svo rækilegar sem skyldi ættu þær að nægja til þess að sýna að þessi Visis-grein er rugl eitt.4) Hún stingur í stúf við þýzku greinarnar um Island. Þar sést þýzka menningin margfróð, sannorð og nákvcem, en eftir slíkum greinum sem þessari að dæma, ætti íslenzka menningin að koma fram i því, að hlaupa athugunarlaust með hverja lygasögu. í sambandi við þetta verður mér að minnast á ummæli og fregnir blaða vorra um Norðuralfu-ófriðinn, Þjóðverja og bandamenn.sem eruaðal- lega eftir enskum heimildum, og hins- vegar af hryðjuverkum Þjóðverja og grimd. Mér virðist að flestar af þessum fréttum séu líkar Vísis-grein- inni, ýmist einhliða eða algerlega rangar. Eg hef litið i opinberar skýrslur um hryðjuverk Þjóðverja og bandamanna í ófriðnum og eg sé þar engan mun. Hermenn allra hafa haft hverskonar óhæfu í frammi, og hvernig á annað að vera er fjöldi miljóna manna safnast saman. Slikt hefir ætíð fylgt hernaði frá elztu timum,Sþví ætíð eru misjafnir sauð- ir i mörgu fé. Eg sé heldur ekki að bandamenn geti svarað mjög djarft úr flokki hvað yfirgang snert- ir við smáþjóðir, sem þeir þykjast þó öllum fremur vernda. Þjóðverjar 1) L’année Sociale internationale 19x3—14. 2) Af þessu voru nálega alt lítil- fjörlegir áverkar: 116.067. 3) Conrads Handwörterb. und Staatswissensch. (Kriminalstatistik). 4) Þetta er ekki svo að skilja að eg telji blaðið Visi standa öðrum íslenzkum blöðum að baki eða vera ósannorðara. Svipaðar greinar hafa víða sézt, þó sagt sé að Vestur- heimsblöðin flytji mestar fjarstæður um alt er að ófriðnum lýtur. réðu á Belgiu og skal eg ekki af- saka það, en hvernig hafa Bretar farið með Búa, Bretar og Rússar með Persíu, bandamenn með Grikkland, og taka ekki Bretar skipin hér á ferðum milli hafna o. s. frv.? Það er v’’st óhætt að segja, að allir þessir góðu herrar spyrji hvorki um lög né sanngirni, heldur að eins um eigin hag og bolmagnið. Hnefa- réttinn nota þeir allir hispurslaust. En eitt hefir stríðið kent öllum svo ekki verður umvillzt: Um stór- þjóðirnar vissi enginn áður hver þeirra ætti mest undir sér, en nú er það deginum ljósara, að ein skar- ar svo stórkostlega fram úr hinutn að allar hinar gera ekki betur en vega á móti og þessi þjóð eru Þjóð- verjar. Þeir hafa lagt undir sig stór landflæmi, en ekki bandamenn, þrátt fyrir allar þeirra sigurfréttir. Banda- menn eru líklegahelmingiliðfleiri,hafa miklu meira úr að spila til allra hluta, sækja vörur hvert á lané sem þeim sýnist og þó hafa þeir ekki getað unnið bug á Miðveldun- um eftir 2 löng ófriðarár. Og það er hugarburður einn, að halda það' að þetta stafi alt af þvi, að Þjóð- verjar hafi verið svo vel und;r stríð- ið búnir að vopnum og verjum- Ekkert annað en andlegir yfirburðir Þjóðverja hafa unnið þetta krafta- verk, vísindi þeirra, hugvit og fram- sýni. Þegar öll »sund voru lokuð* bjuggu þeir til sprengiefni úr tré,. kamfóru úr terpentínu og þegar hún fékst ekki úr einhverjum inn- lendum efnum, dúka úr ilígresi, eins- konar leður og góða dúka úr pappírr kátsjúk úr öðrum einfaldari efnumr áburð og sprengiefni úr loftinu og nú sigla verzlunarskip þeirra neðan- sjávar alla leið til Ameríkul Afreks- verk eru þetta, sem allir hljóta að dást að, og afreksverk er að rækta svo landið að allir geti feng- ið föt og fæði, — 65 milj. mannaf Um hreysti þeirra í orustum vita allir, en herstjórn sinni eiga þeir eflaust frekar að þakka sigursæld- ina, því aðdáanlega hreysti hafa líka mótstöðumenn þeirra sýnt t. d. Frakkar hjá \^rdun. Það er enn öll— um hulið hver ber hærri hlut að lokum í þessari so glegu styrjöld helztu menningarþjóða heimsins, sem allar hafa mikla kosti og allar ættu að gera bandalag sln á milli, en eitt er ómótmælanlegt, að hvað' stjórnsemi og hlýðni, ýms vísindi, hug- vit og herkcensku snertir ber ein langt af öllum og pað eru Þjóðverjar. Guðm. Hannesson. Sáðmaðurinn. Grein með þeirri fyrirsögn flytur blaðið »íslendingur« þ. 28. júlí um ferðalag og erindisflutning sira Har- alds prófessors Níelssonar á norður- landi i sumar. Þar segir m. a.: »Þegar Reykdælir fréttu það, að síra Haralds væri von austur eftir, ákváðu þeir að fara þess á leit við hann, að hann héldi fyrirlestur í Breiðumýri. Varð hann við þeirri bón. Flutti hann þann fyrirlestur á mánudaginn var. En þegar til komr var fjölmennið úr sveitinni svo mik- ið, að húsakynni nægðu ekki á Breiðumýri, þinghúsið þar rúmaði ekki mannsöfnuðinn. Var þá það ráð tekið, að fara að Einarsstöðum og halda fyrirlesturinn i kirkjunni þar. Að þessu dáðist síra Haraldur mjög og fór um það þessum orðumr »Þennan rúmhelga dag, um há- túnasláttinn, var brakandi þerrir, svo>

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.