Ísafold


Ísafold - 11.10.1916, Qupperneq 1

Ísafold - 11.10.1916, Qupperneq 1
Kemur út tvisvar í viku. Veiðárg. 5 kr., erlendis Fj^ kr. eða 2 dollar;borg- Ist fyrir miðjan júlí erlendis fyrirfram. Lausasala 5 a. eint. ísaioldarprentsmiðja. Ritstjári: Dlafur Ejarnsson. Talsími nr. 455. Uppsögn (skrifl. bundin við áramót, er ógild nema kom- in só til útgefanda fyrir 1. oktbr. og só kaupandl skuld- laus vlð blaðið. XLIII. árg. Reykjavik, miðvikudaginn 11. október 1916. 76. tölublað Hlutafél. ,Völundur‘ íslands fullkomnasta trésmíðaverksmiöja og timburverzlun Reykjavík hefir venjulega fyrirliggjandi miklar birgðir af sænsku timbri, strikuðum innihurðum af algengum stærðum og ýmislegum listum. Smiðar fljótt og vel hurðir og glugga og annað, er að húsabyggingum Iýtur. Kosningaskriístoía Sjálfstæðismanna í Templarasundi 3 er opin daglega kl. 6-10 síðdegis Kjörskrár liggja frammi til athugunar. Allar upplýsingar viðvíkjandi kosningunum gefnar. Komið á skrifstoíuna. Framkvæmdanefndin. Alþýöafél.bóbasafn Templaraa. R kl. 7—9 Borgarstjóraskrifstofan opin virka áaga 11 ~8 Brojarfóg ><a^krifstofan opin v. d. 10—2 og 1 ~7 . Bœjargjaldkerinn Lanfásv. 5 kl. 12—8 og *—7 fslandsbanki opinn 10—4. K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8 árd,—10 Alm. fundir fid. og sd. 8*/s sibd. Landakotskirkja. önbsþj. 9 og 6 á helfeum L&ndakots8pitali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn 10—8. Bankasti. 10—12. Landsbókasafn 12—8 og 6—8. Útlán 1—8 L&ndsbúnabarfélagsskrifstofan opin frá X2—2 Landsfóhirbir 10—2 og 6—6. Landsskjalasafnib hvern virkan dag kl. 12—-2 Landssiminn opinn daglangt (8—9) virka c’nga helga daga 10—12 og 4—7. ‘Listasafnið opib hvern dag fcl. 12—2 Háttúrngripasafniö opib l*/a—2*/s á snnnnd. Póethúsið opiö virka d. 9—7, snnnud. 9—1. Samábyrgb Islands kl. 1—5. Stjórnarráftsskrif&tofurnar opnar 10—4 dagl. Talsimi Röykjavlkur Pósth. 8 opinn 8—12. Vifilstaðahælib. Heimsóknartlmi 12—1 3f»jóbmenjasafni7) opib hvern dag 12—2 Horfurnar. Pingmannakjörið í höfuðstaðnum. Margar fljúga nú kviksögurnar um kosuingahorfurnar í ýmsum kjör- dæmum, hver annari gagnstæðar. Fullyrðingar um fylgi þá eins og þá annars þingmannsefnis — fljúgast bókstaflega L Er þetta að vísu ekki óeðlilegt, þar sem nú stendur svo á, við þessar kosningar, að ekkert sér- stakt stórmál er uppi á baugi, því miður, er gangi beint framan að ’kjósendum og heimti svar: »Ertu með eða ertu móti mér?« Hagaðu þar eftir kosningu þinni! Nei, eins og sakir standa, hafa kjósendur ekki þessa mælisnúru held- ur verða að fara eftir því trausti, sem þeir yfiileitt finna hjá sjálfum sér, til hins einstaka þingmannsefnis, þeim vonurn, sem þeir þykjast mega igera sér um vilja og hæfileika fram- bjóðendanna við rækslu þingstarf anna. En undirstaðan undir því trausti •og þeim vonum hlýtur að sjálf- sögðu að vera undanjarin reynsla. Hér í Reykjavík eru þrír af 6 frambjóðendum gamlir þingmenn. 'Om einn þeirra bœjarfóqetann skal eg ekki fjölyrða sökum þess, að eg hefi jafnan litið svo á, sem hann stöðu sinnar vegna ætti að vera laus við þingstörf og að það hafi verið raiígt af Heimastjórnarmönn- um að leggja svo fast að houum um framboð, sem orð leikur á. Og sama gildtr líka um borgarstjórann. En um hina 2 gömlu þingmenn- ina, þá Magnús Blöndahl og Svein Björnsson hefi eg það að segja, að eg þekki ekkert til þingmeskustarfa þeirra, — báðir hafa þeir verið fulltrú- ar Reykjavíkur, — sem ætti að hafa getað svift þá trausti, kjósenda hér. — Enda hefi eg hvergi séð neitt borið fram í þá áttina. Eg vil spyrja samborgara mína: Er nokkur ástæða til að ætla, að þeir muni bregðast framvegis? Er ekki einmitt fylsta ástæða til að gera sér beztu vonir um þá, bæði sem þingmenn allrar þjóðarinnar og þing- menn, sérstaklega fyrir höfuðstað- inn. Hefir ekki Magnúsj Blöndáhl á þingi verið aðalforgöngumaður hajn- argerðarmdls Reykjavikur, sem nú er að komast i framkvæmd höfuðstaðn- um og öllu landinu til gagns og blessunar. Eða mundu ekki sjávarútvegsmenn, hvort heldur eru atvinnuveitendur svonefndir eða atvinnuþiggjendur, mega treysta Magnúsi Blöndahl að gæta hagsmuna þeirra á þingi i bezta lagi ? Eg tek þetta aðeios sem dæmi, er snerta mjög hagsmuni þessa bæj- arfélags, en vildi gjarna síðar minn- ast á fleira. Mundi i annan stað vera ástæða til fyrir Reykvíkinga að skifta um í fyrra þingsætinu á siðustu tveim þingum, fulltrúasæti hr. Sveins Björns- sonar. Það mun vera fátítt, að jafn ungur maður hafi rotið svo a!- menns trausts, bæði utan þings og innan, eins og hr. Sv. Bj. Óllum eru kunn hin miklu og góðu afskifti hans af samgöngu- málum vorum, sbr. Eimskipafélag íslands. Á þingi hafa honum verið falin hin mikilverðustu nefndarstörf og veit eg ekki annað en að starfshæfi- leikar hans hafi hlotið almenna við- urkenningu meðal allra flokka. Enn má minna á afskifti hans af staðfestingu stjórnarskrár og fáua, einnig af brezku samningunum, sem hann hefir ómaklega verið mjög lagð- ur í einelti fyrir af sumum mönn- um, er þó verða að játa nú þegar, að í þeim felist mesta sjálfstœðisvið- urkenning, sem hin íslenzka þjóð enn hafi hlotið, þ. e. að brezka stjórnin semnr beint við íslenzku stjórnina. Og fyrir hinum sömu mönnum ligg- ur einnig að verða að viðurkenna, að sjálfir samningarnir hafi verið eins góðir fyrir þetta land eins og fram- ast var hægt að búast við, eins og sakir stóðu. Þetta mun sannast áð- ur en varir! Hið síðasta góða spor til eflingar sjálfstæði þessa lands i verki eru framkvæmdir hr. Sv. Bj. fyrir Bruna- bótafélag íslands, sem hann hefir komið á laggirnar sem framkvæmd- arstjóri þrátt fyrir mikla erfiðleika.1) Eg á bágt með að skilja, að Reyk- víkingar telji sig hafa efni á þvi, að steypa þessum manni úr þingsessi. Og þetta veit eg, að margir játa með mér, alveg án flokksgreinarálits, hvort sem þeir hafa heitið eða heita Heimastjórnarmenn, Verkamenn, Langsum-menn eða Þversum-menn. Menn úr öllum þessum flokkum hefi eg hitt, sem eru fullkomlega ráðnir i því að taka þessa tvo reyndu þingmenn Reykvikinga, M. Bl. og Sv. Bj. fram yfir hina frambjóðend- urna. Svo á það líka að vera. T. d. vita verkamenn vel, að báð- ir þessir menn hafa sýnt, að þeir ern, ekki aðeins í orði kveðnu, held- ur líka í verki, hlyntir þeirra áhuga- málum og miklu likleqri til að geta eitt- hvatgert fyrir þeirra málá þingi heldur en þeir, tveir sem nokkurir menn úr stjórnum verkmannafélaganna hafa komið að til framboðs, svo sem i nafni verkmannaflokksins, þótt hvor- Sjá-aðra grein hér í blaðinu: Brunabótafélag íslands. Ritstj. ugur sé úr peim hópi, fremur en M. Bl. og Sv. Bj. Eg sé, að andstæðingablöð þeirra M. BI. og Sv. Bj. láta sér ant um að koma þeirri trú inn hjá almenn- ingi, að þeir sé ofboð jylgislitlir. En sú ferðin kringum sannleikann, er fýluferð, því fólkið gripur í sinn eiginn barm og talar við nágranna sína og finnur víðast hvar annað uppi á teningnutn — mikið 0% vax andi fylgi með þessum mönnum. Því segi eg það, að allar horjurn- ar hér í höfuðstaðnum eru fyrir kosn- ing, einmitt peirra Magnúsar Blöndahls og Sveins Björnssonar, ef fylgismenn peirra gera skyldu sína, pd að sakja sjálfir kjórjund. Eg veit, að það sem eg hér hefi flutt fram segi eg í nafni svo margra reykvikskra kjósenda, að eg leyfi mér að kalla mig reykvíkskan: A-Ö. Uie fyrirkomulag seðlabanka og seðlaútgáfu. Bráöabirgðasvar til herra Björns Kristjánasonar. I. Inngangur. Fyrir skömrnu er kominn út sér- prentaður greinaflokkur, sem herra bankastjóri Björn Kristjánsson hefir ritað í blaðið »Landið« og nefnir »SeðIabankar«. Eg minnist þess, að blað herra bankastjórans lét fylgja upphafi þessarar greinar snotur með- mæli til lesendanna og þar með til- mæli um að kynna sér efni þeirra með athygli, með því að i þeim fengi almenningur hina sönnu fræðslu um þessi mikilvægu fjármái, og væri hún honum einkarnauðsynleg. Eg bjóst því við mikluaf þessari »fræðslu« Landsbankastjórans, en vildi helzt njóta hennar, er hún væri komin öll, bjóst þá við heildarlegra yfirliti og veigameiri áhrifum af rökfærslum hans. Mér tókst og eftir mikla fyr- irhöfn, að ná í hinn sérsprentaða bækling, sem er eigi að finna á hverju strái, hvað sem veldur. Og svo settist eg við fætur bankaspekings- ins, til að »fræðast«. Eg hafði áð- ur gluggað lítilsháttar i bækur þær um bankamál, sem erlendir fræði- menn í þeirri grein hafa ritað, og hlakkaði nú til að fá kjarnann í því fræðikerfi framsettan á islenzku af þeim manni, er mest hefir um banka mál ritað hér, og eg, bæði þess vegna og eins stöðu hans vegna, aðalstjórnanda þjóðbanka vors, bjóst við að gera mundi þetta skarplega og ítarlega, vel og samvizkusamlega. En eg var ekki búinn að lesa margar blaðsiður í bæklingnum, er eg komst að raun um, að mér mundi ekki verða að vonum minum. Því lengra sem á lesturinn leið varð mér te ljósaraL svo hvimleitt sem það var mér, að hér var alls eigi á ferðinni óhlutdrægur fræðari fólksins. Og þegar eg hafði lokið lestrinum, lagði eg bæklinginn frá mér með þeim leiðindatilfinningum, að eg hefði verið að lesa sóknar eða varnarskjal frá heldur óhlutvöndum málflutn- ingsmanni, sem og hefði sýnt það um leið, að hann væri laklega að sér í ýmsum atriðum þess, er hann væri að rita um og gerði sig einnig sekan um mótsagnir. Og höfundurinn mótaðist frekar leiðinlega í hug minum, er eg t. d. rakst á klausu þá, sem stendur að lesa á 4. bls. í bæklingnum og bar hana saman við síðustu setninguna í honum. A 4. bls. stendur svo: ». . . . íslendingar eru flest- um málum kunnugri en stærri fjármálum. Þeir eru uppaldir við vöruskiftaverzlnnina gömln, og hún er alt annað en lögnð til þess að fræða menn um peningamálin. A alþingi voru er þekkingin i þessum efnum eðlilega jafnsljó, þvi jafnvel þar meta gamlir og reyndir þing- menn bankaseðla gullsigildi, hvernig sem á stendur. Má sjá það í umræðunum á þingi 19x4. En auðvitað veldur þekking- arleysi mest þeim skoðunum*. En ábls. 31 klykkirhöf. »fræðslu«- bækling sinn út með þessum orðum: »Að lokum leyfi eg mér enn að mælast til þess, að þjóðin láti álit sitt í ljósi um þetta mál, því hér þarf bráðra að- gerða við«. Eg býst við, að fleiri lesendum en mér finnist ekki sem bezt sam- ræmi milli þessara tveggja tilvilnuðu staða og að þeir saman bornir beri ef tíl vill helzt vitni i þessa átt: Fyrst vill höf. koma því inn hjá fólki, að hann standi öðrum íslend- ingum, jafnvel öllu alþingi, framar um þekking á bankamálum. Með þá trú á það svo að halda áfram lestrinum — fram til loka. Þá á »sérfræði« — myndugleiki (autoritet) höf. að vera búinn svo að verka á fólkið til samþykkis við hin- ar framsettu skoðanir, að óhatt er að skirskota til dóma þjóðarinnar. En slóttugheit höf. verða samt, eins og stundum vill verða, það endaslepp, að hann varar sig ekki á mótsögninni i upphafi og endanum, og rekur sig því á, þ. e. bankamála- »sérfræðingurinn«, byrjunargerfi höf. rekur sig á — já, ætli maður verði ekki að kalla það — pjóðmdlaskúm- inn, lokagetfi höfundar, Eg hefi einhvers staðar rekið mig á, að hr. B. Kr. ‘ segir — litillátlega eins og samir — eina rökfærslu reka aðra i grein »eins og minni«, svo að ekki megi rífa neitt út úr samhengi. Mun eg að sjálfsögðu, þar sem slikur maður á í hlut, gera mér far um, eftir því sem mér er unt, að temja mér þá reglu í at- hugasemdum þeim, er fara hér á eftir, um leið og eg leyfi mér að taka fram, að þær eru að eins til bráðabirgða og vildi eg síðan, ef hr. B. Kr. þá ekki með kylfuslögum þekkingar og »fræðslu«-einlægni verð- ur þegar búinn að steinrota mig, reyna að gera það svo fullkomlega, sem mdlejnið á skilið, ef aðrir mér færari menn verða þá ekki búnir að þvi. Frh. Íslenzkur bautasteinn frá Grænlandi. í Arsuk-firði, skamt frá Ivigtut á Grænlandi, hefir fundist bautasteinn, letraður rúnum. Er hann kominn Khafnar, og hefir Finnur Jónsson prófessor þýtt rúnirnar á þessa leið: »Hér liggur Össur Asbjarnarson«. Er þvi um að tefla minnisvarða frá landnámstimum íslendinga á Grænlandi. Ætti steinninn þvi heima hér á Þjóðmenjasafninu, og verða væntaulega gerðar ráðstafanir til að koma því i kring.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.