Ísafold - 11.10.1916, Síða 3
ISAFOLD
TUíar vörur
fyrir kvenfólk, karltnenn og börn, og til notkunar innanhúss og utan,
er og verður langbezt að kaupa hjá
7f, S. Jfansoti, Laugavegi 29, Heyhjavík.
Enginn skyldi því kaupa þæp vörur anuarstaðar, án þess að skoða
birgðirnar hjá Hanson fyrst.
Virðingarfyist.
Talsími 159. 7i. S. Jíanson.
Raykjavíkur Apótek
mælir með sínu ágæta og alþekta
Kreóiíni tii fjárböðunar,
sem viðurkent er af Stjórnarráði íslands.
cTfíe tRritisfí ÍDominions
S^eneraí GÍjnsuraneo @0. JSfó, JSonóonf
tekur að sér vátryggingar á húsum, innbúum og vörum. Iðgjðld
hvergi laegri. Aðalumb-'ðsmaður fyrir ís'and.
Sími 28 . Garðar Gíslason.
Kosnfngaskrifstofa Sjálfstæðis-
manna. Hún er í Templarasundi 3
og opin daglega kl. 6—10 síðd. Þar
eru veittar allar uppl/singar viðvíkjandi
kosningunum. Þar liggur og frammi
kjörskráin og geta menn þar gætt
að því hvort þeir sjúlfir eða aðrir, sem
þeir eru kunnugir, eru á kjörskrá.
Látinn er í fyrradag í Landakots-
spítala Hildibrandur Kolbeins
son í Nyjabæ, roskinn borgari þessa
bæjar, alkunnur og góðkunnur Reyk-
víkingur. Banamein hans var blóð-
eitrun, er hann hafði fengið við slátrun
um daginn. Hann lætur eftir sig konu
og eina dóttur.
Páll Asgeirsson veitingamað-
ur (frá Stað í Hrútafirði) lézt i
Landakotsspítala .9. okt.
Hjúskapnr. Vilmundur Jónsson cand.
med. & chir. og jungfrú Kristín Ólafs-
dóttir stud. med. frá Bjarðarholti.
Gift 9. okt.
Daníel Kristinsson póstmaður og
jungfrú Ása Guðmundsdóttir (kaupm.
Böðvarssonar). Gift 9. okt.
Þorsteinn Siguiðsson kaupm. og
iunefrú Þóranna Símonardóttir. Gift
7. okt.
Guðm. Guðmundsson skipstjóri (frá
Nesi) og jungfrú Kristín Teitsdóttir.
Gift 7. okt.
Hjónaefni. Jón Bjarnason (dbrm.
Jónssonar) og jungfrú Guðrún Einars-
dóttir.
Skipafregn:
G u 11 f o s s fór fram hjá Cape Race
á Nyfundnalandi þ. 7. okt. og ætti að
geta komið hingað aðfaranótt föstudags
eða svo.
Barst Eimskipafólaginu skeyti um
ferðir Gullfoss frá Newfoundlandi, eftir
loftskevti frá skipinu.
Farþegar eru 36 — mest Vestur-
íslendingar.
Gullfossi og farþegum hans ætti að
fagna með veifum á hverri stöng, er
hlngað koma.
Goðafoss er væntanlegur hingað
í dag.
C e r e s fór vestur og norður um
land á mánudag með fjölda farþega.
Meðal þeirra : Guðm. Björnsson syslu-
maður frá Patreksfirði, Snæbjörn frá
Hergilsey, Sigurjón Jónsson framkv.stj.
frá ísafirði, læknarnir Sigvaldi Kalda-
lóns og Vilmundur Jónsson.
F 1 ó r a llggur hór á höfninni og
bíður skipunar frá Björgvin um hvert
halda skuli.
í s 1 a n d kom til Eskifjarðar í
fyrradag.
Christian IX, skipið, sem Ás-
geir Pétursson átti einu sinni, er nú
kominn á sænskar hendur. Kom það
á sunnudagsmorguninn með vörur
faingað.
Skallagrímnr sekknr á höfninni.
A sunnudagsmorguninn brá Reykjavík-
urbúum heldur en ekki í brún, er þeir
sáu grilla í 2 siglutró og ofan á reyk-
háf á skipi einu fram undan Kvöld-
úlfshúsunum austan til i borginni. —
En svo stóð á sjón þessari að um nótt-
ina hafði botnvörpungurinn Skallagrím-
ur stein-sokkið, þar sem hann lá fyrir
akkerum í bezta veðri. Bar slys þetta
svo snögt að, að 2 skipverjar, sem lágu
í rúmum sínum í skipinu fengu nauðu-
lega lífi bjargað með því að komast i
skipsbátiun. Voru þeir rótt slopnir út
í bátinn, er Skallagrímur fór í kaf.
Um tildrögin til þessa óvænta slyss
er enn ókunnugt, með því að rann-
sóknum er ekki lokið. En þess er
getlð til að botns-sogpípur (ventilar)
hafi opnast og sjór þann veg komist
í skipið.
Bjorgunarskipið »Geir« kom á vett-
vang mánudagsmorgun og hefir slðan
verið að undirbúa tilraunir til að ná
skipinu á flot og tekst það væntanlega
einhvern daganna.
SkipiS er vátrygt hjá Trolle og
Rothe.
Skörulegt þÍDgmaunsefni.
Það hefir verið skýrt frá því í
bæjarblöðunurp, að á næstsíðasta
bæjarstjórnarfundi hafi dýrtiðarnefnd
bæjarstjórnarinnar »lagt fram« frutn-
varp til bráðabirgðalaga um ákvörð-
un hámarks á húsaleigu i bænum.
Frumvaip þetta var samið sim-
kvæmt tillögum Ágústs Jósefssonar
bæjarfulltrúa, en þegar það var lagt
fram mátti strax sjá það á svip sumra
bæjarfúlltrúanna, að þeir myndu hafa
ýmislegt við það að athuga. — En
það er nú ný og gömul regla og
líklega undantekningarlaus, að »eng-
inn gerir svo öllum líki.«
Etr, svo var bæjaifulltrúunum gef-
inn hálfsmánaðarftestur, til að at-
huga frumvarpið, og hefði átt að
mega ætlast til þess, að þeir á þeim
tíma gætu myndað sér ákveðnar skoð-
anir um það og samið breytingatil-
lögur, ef svo vildi verbast. Að
minsta kosti varð að ætlast til þess
af þeim, sem sjáifir telja sig frum-
kvöðla málsins og manna bezt hlutu
að vita, til hvers var ætlast.
En viti menn, þegar á næsta fund
kom, og ganga átti til atkvæða um
frumvarpið, stóð sá fulltrúinu upp,
sem telja mun sig helztan verka-
mannaíulitrúanna og nú er að bjóða
sig fram 11 þings í höfuðstað lands
ins, og lýsti þvi yfir i hæfilega
mörgum orðum, að svo margir og
mikilvægir annmarkar væru á frum-
varpinu, að hann treysti sér ekki
til að greiða því atkvæði, eins og
það lægi fyrir '— en ákveðnum
breytingartillögum hafði honum ekki
auðnast að koma saman á þessum
14 dögum, sem hann hafði haft það
til athugunar! Og ef ekki hefði
notið við annara Jörundi snjallari,
þá hefði hann líklega orðið að horfa
upp á það, að málið hefði lognast
út af i höndum bæjaistjórnarinnar!
Og þó var vandinn ekki annar
en sá, að fella 1 burtu 2—3 línur
úr frumvarpinu. En sá vandi var
ofvaxinn Jörundil — Og loks fór
það nú svo, að Jörundur samþykti
frumvarpið óbreytt í aðalatriðum;
burtfelling þessara lína tókst sem sé
ekki hönduglegar en svo, að það,
sem átti að breyta, varð óbreytt!
Nærri má geta, að Reykvíkingum
hlýtur að vera það keppikefli, að fá
slikan mann á þing.
Jörundur lýsti þvi yfir á fundi
þessum, að hann væri einn af frum-
kvöðlum þessa máls, en frumvarp
hafði hann ekki treyst sér til að
semja. Og þegar frumvarpið kom
fram, fann hann því margt til for-
áttu — en ákveðnar breytingatillög-
ur treysti hann sér ekki til að gera.
— Og þegar breytingatillagan kom
fram, samþykti hann hana, án þess
þess að taka eftir því, að það sem
breyta átti var óbreyttll
Það gengur eitthvað undan hon-
um Jörundi þegar hann kemur á
þing!
G. /.
* Veðurskýrslur.
Mlðvlkudaglnn 27. sept.
Vm. a. st. kaldi, hiti 9.0
Rv. sa. kul, hlti 10.3
íf. logn, hltl 9.1
Ak. — — 7.5
Gr. — — 3.0
Sf, sv. kul, hltl 13.1
Þh. F, sa. andvarl, hltl 9.4
Fimtudaginn 28. sept.
Vm. a. andvari, hiti 7.2
Rv. logn, hiti 7.7
ísafj. logn, hit-i 4.1
Ak. logn, þoka, hiti 2.5
Gr. logn, hiti 2.5
Sf. logn, hiti 1.1
Þórsh. F. na. kaldi, hiti 9.0
Föstudaginn 29. september.
Vm. n.n.a. kaldi, hiti 4.9
Rv. logn, hiti 5.6
ísafý. v. kul, þoka, hiti 5.5
Ak. logn, hiti 0.0
Gr. logu, frost 1.0
Sf. iogn, frost 0.1
Þórsh., F. a.n.a. kul, hiti 7.1
Laugardaginn 30. sept 1916.
Vm. logn alskýjaS hiti 6.0
Rv. logn alsk/jað hiti 6.7
íf. logn sk/jað hiti 6.7
Ak. s kul 8k/jað 2.5
Gr. s andvari sk/jað heiðsk. frost 0.5
Sf. gola heiðsk. frost 2.0
Þh. F. gola hálfheiðsk/rt hiti 0.7
Mánudaginn 2. október.
Vm. logn, hiti 2.6
Rv. logn, hiti 4.0
ísafj. s.v. stinnings gola, hiti 7.4
Ak. s. stinnings gola, hiti 7.0
Gr.
Sf. logn, hiti 5.6
Þórsh., F. n. kul, hiti 3.5
þriðjudaginn 3. október.
Vm. v. andvari, hiti 6.1
Rv. logn, hiti 7.0
ísafj. s.v. hvassviðri, hiti 8.5
Ak. s. snarpur vindur, hitl 7.5
Gr. s. kul, hiti 2.0
Sf. logn, hiti 5.3
Þórsh., F. s.s.v. gola, hiti 7.5
Mlðvikudaginn 4. okt.
Vm. a. gola, hiti 6.1
Rv. a. kul, hiti 6.5
íf. a. sn. vindur, hiti 3.8
Ak. a. st. kaldi, hiti 2.5
Gr. logn, kuldi 1,5
Sf. na. kul, hitl 2.5
Þh. F. nnv. andvari 7.0
Fimtudaginn 5. okt.
Vm. asa. andvari, blti 4.5
Rv. a. gola, hiti 3.8
ís. logn, hiti 2.6
Ak. s. andvari, hiti 10.0
Gr. logn, kuldi 1.0
Sf. logn, hiti 0.3
Þh. F. na. kuh, hiti 7.0
Föstudaginn 6. október.
Vm. a. hvassviðri, hiti 6.1
Rv. a. andvari hiti 3.0
ísafj. logn, hiti 0.0
Ak. logn, hiti^O.O .
Gr. s. andvari, frost 1.5
Sf. logn, regn, hitr 2:1
Þórsh., F. a. gola, hiti 7.01
Laugardaginn, 7. okt..
Vm. a. stormur, hiti 6:1)
Rv. a. gola, hitt 5.5
ís. logn, hiti 1.1
Ak. s. andvari, hiti 1.5<
Gr, r. kul, kuldi 1.0
Sf. Iogn, hiti 3.1
Þh. F. na. gola, hiti 7.0
Sunnudaginn, 8. okt.
Vm. sa. andvari, hiti 7.5
Rv. a. gola, hitl 5,6
íf. s. st. kaidi, hiti 7.6
Ak. s. kaldi, hiti 7-0
Gr. sa. gola, hiti ‘2.2
Sf. logn, hiti 2.9
Þh. F. logn, hiti 5.0
Mánudaginn 9. okt.
Vm. n.v. kul, hiti 5,0
Rv. logn, hitl 5,0
ís. n.a. stormur, hiti 1,8
Ak. n. gola, hiti 5,0
Gr. logn, hiti 0,0
Sf. logn, hiti 5,1 .
Þh. F. v.s.v. stinnings gola, hiti 9,2
Hindsberg
Piano og Flygel
eru viðurkend að vera þau beztu og vönd-
uðustu sem búin eru til á Norðurlöndum.
Verksmiðjan stofnsett 1853.
Hljóðfæri þessi fengu »Grand Prix« i
London 1909, og eru meðal annars seld:
H. H. Christian X.
H. H. Haakou VII.
Hafa hiotið meðmæli frá öllum helztu
tónsnillingum Norðurlanda, svo sem t. d.:
Joackim Andersen, Professor Bartholdy,
Edward Grieg, J. P. E. Hartmann, Pro-
feasor Matthison-Hansen, C. F. E. Horne-
mann, Professor Nehelong, Ludwig Schytte,
Aug. Winding, Joh. Svendsen, J. D. Bonde-
sen, Aug. Enua, Charles Kjerulf, Aihert
Orth.
Nokkur hljóðfæra þessara eru ávalt
fyrirliggjandi hér á staðnum, og seljast
með verksmiðjuverði að viðhættum flutn-
ingskoatnaði.
Verðlistar sendir um alt land, — og
fyrirspurnum svarað fljótt og greiðlega.
G. Eiríkss, Reykjavík.
Einkasali fyrir ísiand.
Askrifendur Isafoldar
eru beðnir að láta afgreiðslu blaðsins
vita ef villur skyldu hafa slæðst inn
í utanáskriftirnar á sendingum blaðs-
ins. Talan framan við heimilisfangið
merkir að viðkomandi hafi greitt and-
virði blaðsins fyrir það ár, er talan
segir,
Nærsveitamenn
eru vinsamiega beðnir að vitja
Isatoldar í afgreiðsluna, þegai
þeir eru á ferð í bænum, einkum
Mosfellssveitarmenn og aðiir, sem
flytja mjólk til bæjarins daglega
Áfgreiðskr* opin á hverjum virkum
degi kl. 8 á morgnana til kl. 8 á
kvðldin.
cSezf aó auglýsa
í fSsafoíó.
Skrifstofa
bæjargjaldkera
verður opin frá 1. október
10—12 og 1—5
á hverjum virkum degi.
Schannong9
Monument Atelier
O. Farimagsgade 42.
Köbenhavn O.
Verðskrá með myndum ókeypis
Hross tapao.
Undirritaður hefir tapað rauðri
hryssu, mrk.-; 2 fj. fr. h., sn. a. v.
b. fr. Þeir sem kynu að verða varir
við hryssu þessa eru vinsamlega
beðnir að gera mér viðvart.
Jón Bjarnason
Arnþórsholti, Lundareykjadal
Borgarfjarðarsýslu.
Brúknð innlend
Frímerki
kaupir hæsta verði
Sig. Pálmason, Hvammstanga.
Rafmótorar, Dynamo,
hitunaráliöld
og ýmsar aðrar vélar og áhöld er lúta að
rafmagni, útvegar nndirritaður frá enskum
og amerisknm verksmiðjnm.
Kostnaðaráætlanir gerðar nm raflýsing
sveitaheimila, einstakra hygginga, skipa
stærri og smærri og mótorbáta.
Aðgerðir á mótorum gerðar. Skrifið
eftir okeypis npplýsingnm.
S. Kjartansson,
Pósthólf 383 Reykjavik
Styrktarsjóður
skipstjóra og stýrimanna
við Faxaflóa.
Þeir, sem vilja sækja um styrk úr
téðnm sjóði, verða að hafa sent
bónarbréf þar að lútandi til undir-
ritaðs fyrir 18. desbr. þ. á.
Styrkurinn veitist einungis félags-
mönnum Öldufélagsins, ef þeir sök-
um elli eða heilsulasleika eru hjálpar-
þurfar, sömuleiðis ekkjum félags-
manna og eftirlifandi börnum.
Reykjavik, 10. okt. 1916.
Þorst. Júl. Sveinsson.