Ísafold - 20.10.1916, Side 1

Ísafold - 20.10.1916, Side 1
KOSNINGABLABIÐ Útgefandi: Kosningaskritstofa Sjálfstæðismanna Reybjavík, föstudaginn 20. október 1916 Ávarp til kjósenda frá Magnúsi Blöndahl átti að birtast í þessu blaði, en vegna lasleika hans getur það, því miður, ekki orðið að þessu sinni, en kemur síðar. Ávarp til kjósenda frá Sveini Björnssyni. (Ræðu þessa ætlaði S. B. að flytja á þingmálafundinum, sem ekki var kaldinn vegna tregðu hinna þingmannaefnanna, nema M. Bl.). Fyrir hálfu þriðja ári stóð eg hér í fyrsta skifti sem þingmanns- efni frammi fyrir kjósendum og lýsti skoðunum minum. Mér var þá sýnt það traust, að eg hlaut flest atkvæði þeirra, er í boði voru. Eg vona, að eg hafi eigi brugðist því trausti. Þess vegna stend eg hér nú aftur eftir til- mælum margra manna hér í bæ Af hóp örfárra manna er það staðhæft, að eg hafi brugðist stefnu minni með afstöðu minni til stað- festingar stjórnarskrárinnar. Þessi ósannindi hafa verið ítrekuð svo oft, að nokkrir menn, sem ekki hafa átt kost á að íhuga málið hafa trúað því. Þegar eg bauð mig fram 1914, kvaðst eg vilja koma fram stjórn- arskránni, þó að því áskildu, að Dönum yrði engu lofað um ráð A uppburð sérmála vorra fyrir konungi. En slíkt loforð töldum vér Sjálfstæðismenn felast í aug- lýsingu þeirri til Dana um kon- ungsúrskurðinn um uppburð sér- mála vorra fyrir konungi, sem konungur hafði tjáð sig mundu hirta, í ríkisráðinu 20. okt. 1913, og Hannes Hafstein vildi ganga að. Auglýsingu þessa töldum vér fela í sér samning við Dani. Til að fyrirbyggja hann, var fyrir- varinn samþyktur á þinginu 1914. Sig. Eggerz bar málið fyrir kon- ung 30. nóv. 1914. Hann gat ekki fengið konung til að falla frá auglysingunni. Neitaði því að taka við staðfesting stjórnarskrár- innar. Þetta var rétt. í janúar 1915 lýstum við Sjáifstæðisþing- menn okkur samþykka framkomu S. E. Sú yfirlýsing var þannig: »Vér undirritaðir lýsum yfir því, að vér teljum, að framkoma ráðherra í ríkis- ráði 30. nóv. síðastliðinn hafi verið í fullu samræmi við þ'ingviljann. Sérstalclega sJcal það teicið fram, að vér álít- Um, fynrhugaða auglýsing’ ^onungs til Dana ósam- rí)inanlega fyrirvara alþingis«. Þetta sýnir, að auglýsingin var lafnan ásteitingarsteinninn. Við P etnenningarnir fengum konungs- va dið til að falla frá þessari auglýsingu. Fengum þar með fullnægt fyrirvaranum. Þá telja nokkrir menn alt i einu fyrir- varann alt annars efnis. Með þessar röngu skýringar á vörun- um brigzla þeir okkur svo um stefnubrot í þakklætisskyni fyrir að hjarga stjórnarskránni og fá lconungsvaldið til að láta undan. Við héldum stefnunni, en hinir brugðust. Okkar framkoma var nákvœmlega í samræmi við yfir- lýsta skoðun mína, er eg bauð mig fram 1914. Þetta hlýtur dóm- ur sögunnar að viðurkenna. Eg ætla eigi að fara frekar út í gamlar væringar; en fram hjá þessu atriði gat eg ekki gengið alveg. Eg vil þá líta fram á við og lýsa því i fám orðum i hvaða átt hugur minn beinist um stjórn- málaframkvæmdir á komandi ár- um. Ef allir kjósendur hefðu kynt sér nákvæmlega Alþingistíð- indin, mundi eg geta orðið mjög íáorður um það. Framkoma mín á þeim tveim þingum, sem eg hefi setið, getur sýnt mönnum stefnur mínar i flestum aðalmál- unum. En vegna þess, að Alþ.- tiðindin eru í höndum svo örfárra manna, verð eg að eyða hér um nokkrum orðum og nokkrum tíma. í skattamálum er skoðun mín þessi: Skattapólitík vor hefir verið stefnulaus og áringulreið áárunum eftir aldamótin. í niðurstöðunni hafa óbeinu skattarnir orðið ofan á, af því að einstaklingurinn verð- ur síður var við, að verið er að fara ofan í vasa hans, þegar tek- inn er óbeinn skattur, en þegar beini skatturinn er tekinn. En að jafnaði er ranglætið við óbeinu skattana því meira. Þing- ið hefir eins og fyrirorðið sig í hvert skifti, sem ákveðið hefir verið að leggja á óbeinan skatt í seinni tíð. Því í hverju þeirra laga er ákvæði um, að þau séu að eins til bráðabirgða — fyrst i tollhækkunarlögunum, sem að síðustu voru gerð að fullnaðar- lögum, og síðan í vörutollslög- unum. Eg vil að vér breytum hér um stefnur, og með tímanum hverfum að beinum sköttum. Sú breyting verður eðlilega að vera hægfara. Byrjum sem fyrst að undirbúa það; förum hægt, ákveðum til að byrja með einhvern ekki of háan verðhækkunarskatt. — Þetta er stefnubreyting, sem þó ekki er beint ætlað að auka tekjur lands- sjóðs strax. Tekjurnar vil eg auka aðallega með álögum á atvinnurekstur erlendra þjóða, svo sem hæft þyk- ir. Ber í því efni að mínu áliti að taka til meðferðar og íhugun- ar á næsta þingi tillögur Böðvars Jónssonar í »Nýjum vegum«. Mér er áhugamál, að landssjóð- ur hætti að selja þjóðjarðir og kirkjujarðir. Enda flutti eg á síðasta þingi með öðrum frum- varp í þá átt. Um bankamál vor er eg þeirrar skoðunar, að gjörbreyt- ingu þurfi á fyrirkomulagi því, sem nú er. Þjóðbanki vor á að vera ópólitísk stofnun og heppilegast væri að hann hefði seðlaútgáfu- réttinn, en allir seðlar þá vel gulltrygðir. Eg held fast við fyrri uppá- stungu mína um að fenginn sé duglegur, erlendur (t. d. brezkur eða amerískur) bankafræðingur stjórninni til ráðuneytis um banka- málin. Hann dveiji hér eitt eða tvö ár eða svo lengi, sem þurfa þykir og geri síðan tillögur um fyrirkomulag bankamála vorra. Með þessu fengist tillögur um skipulag peningamála vorra, sem frá byrjun yrði hafnar yfir inn- lendan flokkakrit; og likindi ,til að oss gegnum þenna mann gætu opnast leiðir að því lánstrausti hjá stórþjóðunum, sem oss er nauðsynlegt og hæfilegt. í samgöngarifálum vil eg að haldið sé áfram stefnu síðustu þinga, að efla Eimskipafélagið til að taka að sér strandferðir og auka flutningaflota sinn. Um járnbrautarmálið vil eg að gerð sé ítarleg rannsókn með þeim hætti, að eigi verði hægt að bregða um neina hlutdrægní, á leiðum fyrir járnbraut austur og kostnaði við lagningu brautar austur, enda greiddi eg á síðasta þingi atkvæði með fjárveitingu til slikrar rannsóknar. Að þess- ari rannsókn lokinni verður þjóð- in að ráða við sig hvort hún vill hætta á fyrírtækið eða ei. Eg álít að járnbraut eigum vér að fá, svo fljótt sem kleift þykir. Vegagerð vil eg að breytt sé frá því sem nú er. Vegirnir vandaðir betur frá byrjun, svo þeir þoli bílakstur og verði vænt- anlega mun minni viðhaldsábaggi fvrir héruð landsins en nú eru þeir. í tryg’gingarmálunum vil eg að sé haldið áfram stefnunni, að gera allar tryggingar innlend- ar. Vér höfum nú fengið innlent vátryggingarfélag á fiskiskipum og nú einnig hrunabótafélag, sem tekur til starfa á næsta nýjári; ennfremur sjómannalífsábyrgð, þótt mjög sé ófullkomin, og sjúkra- tryggingu með landssjóðsstyrk. Að mínum tillögum á síðasta þingi mun nú vera verið að undirbúa slysavátryggingu og sjóvátrygging- arfélag. Með innlendum félögum vinst það tvent: að gera má ráð fyrir sanngjarnari iðgjöldum með tímanum, bygðum á ábyggilegri reynslu án óeðlilega mikils gróða, og: að þær miklu upphæðir, sem greiddar eru í vátryggingarið- gjöld haldast í landinu og geta orðið til að lyfta undir ýmislegt, sem nú vantar slíkt fé til. Þess- ar upphæðir vaxa ár frá ári með vaxandi framförum vorum. Eg tel nauðsynlegt, að varið sé talsverðu fé úr landssjóði til að auka og hœta markað erlendis fyrir íslenzkar afurðir. Þann kostnað munum vér fá endur- goldinn fljótlega þegar tekið er tillit til þess, hve miklu nemur viðskiftavelta vor nú orðið og hve litlum hundraðshluta af árs- veltunni verðhækkun vörunnar fyrir bættan markað þarf að nema til þess að greiða kostnað við notadrjúgar tilraunir til að bæta markaðinn. Landsspítalamálið tel eg mikilsvei't menningarmál fyrir oss og mun telja mér skylt, að styðja bráðar framkvæmdir til að koma upp landsspítalanum t. d. með fjárveitingu á næsta þingi til undirbúnings málinu eins og forgöngukonur málsins hafa farið fram á. Á stuttum tima verða ekki tal- in öll áhugamálin og því síður skýrð út í æsar. Eg hefi að eins viljað minnast á nokkur þeirra til þess að merkja við í hverja átt áhugi minn beindist. Verð annars að vísa til fyrri afstöðu minnar til einstakra mála. Þótt mér sé það ljóst, að ókleift sé að koma í framkvæmd á einu, tveim eða þrem þingum öllum áhugamálunum, þá má mikið vinna i áttina. Eg hefi jafnan fylt flokk þeirra manna, sem vilja vinna að efna- legu og andlegu sjáifstœði lands- ins og þjóðarinnar. Eg er frekar bráðlátur í þeim efnum. Eg vil heldur framsókn og framkvæmd- ir, þótt einstaka misstig ættu sér stað, en dáðlausan svefn eða ófrjóva þverspyrnu við öllum framkvæmdum — hvort semslík þverspyrna stafar af vöntun á hugsjónum og hugsun eða vöntun á því, að geta tekið ábyrgð á nokkru jákvæðu spori. Ef kjósendur vilja sýna mér aftur það traust, að fela mér að fara með umboð kjördæmisins á þingi, þá mun eg leggja mitt bezta fram að bregðast eigi því trausti. Tijósið JTlagnús Blöndafyl og Svein Björnssonf Ekki til neins að kjösa M. Bl. og Sv. Bj, Það er ein kosningabrellan, sem beitt er við menn, að ekki sé til neins að kasta atkvæðum á þá Magn- ús Blöndahl og Svein Björnsson af pví utilokað se cið peir komist að. Við þessari brellu viljtim vtr alvar- le%a vara alla góða menn. Enginn hlutur er eins viss og að peir verða háðir kosnir, svo framar- lega sem stuðningsmenn þeirra láta sig ekki vanta. Saekið kjörlund allir, sem þá styðja og sigurinn er vis! Hjósið JTlagnús Blöndafjí og Svein Björnssonf Ahrif brezka samningsins. Það hefir margoft verið tekið fram í aðaldráttum, að ef ekki hefði verið samið við Breta, hefð- um vér: 1. Verið markaðslausir fyrir helztu afurBir vorar, og að annar að- alatvinnuvegur vor, sjávarút- vegurinn, hefði orðið að leggj- ast niður, og ?• Vér hefðum orðið útilokaðir að fá kol, salt og aðrar nauðsynja- vörur til framleiðsiu vorrar. En það má benda á dæmi, sem daglega koma fyrir, dæmi, sem sýna það, hversu áriðandi oss er að haida vinfengi við Bretland. Skulu hér fáein nefnd:* 1. Landsíminn þurfíi að fá vír til símagjörðar frá Khöfn. Efnið í vírnum er að 40—50 % þýzkt. En Bretar hafa ákveðið, að engin vara, sem í væri meira en 25 % af þýzku efni, mætti sleppa frá nokkru hlutlausu landi annars. En í þessu tilfelli hefir hún veitt íslenzku stjórninni sér- staka undanþágu, og þvi getum vér haldið áfram að bæta síma vora. 2. Nýlega hefir brezka stjórn- in veitt útflutningsleyfi á tœkjurn til þráðlausrar firðritunarstöðvar frá Bretlandi til Islands. Allir vita, hversu nauðsynleg íslandi hún er. En dettur nokkrum skynbær- um manni nú i hug, að slíkt leyfi hefði fengist, ef vér hefðum verið í ónáð Bretans, ef vér hefðum enga samninga gert við hann, heldur reynt — auðvitað árang- urslaust — að lauma vörum vor- um í gegnum hergarð Breta? 3. Netjagarn kom hingað ný- lega, er keypt var fyrir milligöngu firma, sem af þjóðernisástæðum — ekki af öðru, því að firmað er mjög heiðarlegt og hvergi við brot á hernaðarráðstöfum Breta brugðið — er í ónáð Breta í stríð- inu. Því vilja Bretar útiloka verzl- un við það. En fyrir sérstaka tilhliðrunarsemi og lipurð um- boðsmanns Breta hér, fékk ráð- herra þessa vöru leysta, og kaup- endurnir mega þakka það því einu, að vér erum i vinfengi við Bretaveldi. »Landið« hafði auðvitað þegar hlaupið með þau ósannindi, að garnið fengist ekki leyst, og að ráðherra gæti ekkert — og sjálf- sagt vildi ekkert — liðka það mál. En sú »Lands*-lýgi er ekk- ert verri en hinar — og það munar ekki um einn blóðmöra- kepp í sláturtíðinni. Það sér ekki högg á vatni, þótt einni lýginni sé hrundið, þvi að af svo miklo er að taka. Mörg fieiri dæmi mætti telja. En þessi nægja til að sýna, hverja þýðingu það hefir um tilveru þjóðar vorrar nú sem stendur að halda vinfengi við Bretland. Lisið KosiÍDgablalil mol athygli t

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.