Ísafold - 21.10.1916, Blaðsíða 4
4
ISAf OLD
Færeysk þilskip til sölu
Upplýsingar gefur
Kr. O. Skagfjörö.
Við þökkum innilega öllum þeim er
heiðruðu minningu bróður okkar, Páls
Asgeirssonar, við jarðarför hans, 17.
þ. m., með nærveru sinni og minn-
ingargjöfum.
Systkini hins látna.
Hvernig halda menn þá, að ís-
lendingum hefði gengið að koma af-
urðum sinum til Norðurlanda gegn
vilja Breta ?
Og hvernig halda menn, að að-
flutningum til landsins hefði verið
farið, ef vér hefðum ekki reynt að
halda vinfengi við Breta?
Loftskeytastöðin kemur.
Hingað er nýkomin fregn um, að
nú sé fengið útflutningsleyfi á loft-
skeytatækjum til Ioftskeytastöðvar
hér I Reykjavík — frá Bretlandi.
Er nú loks það merka mál að
komast í framkvænrd.
Ekki hefði þetta tekist, án brezku
samnitiQana.
Nýtt árásarefni —
Dý ósaimiudi.
í >Landinu« í morgun er, svona
á síðustu stundu, fitjað upp á nýju
árásarefni, nýjum ósannindum á Svein
Björnsson.
Er það út af tolljrumvarpinu frá
siðasta þingi.
Hann er lýstur ósannindamaður að
því, að hinir velferðarnefndatmenn-
irnir hafi verið meðflutningsmenn
frumvarpsins og reynt að sanna það
með þvi, að þeir hafi ekki verið
ýmsum atriðum frv. samþykkir.
Að »Landiðt fer hér með gífur-
legustu ósannindi er sannanlegt með
pingtíðindunum. Þeir voru allir vel-
ferðarnefndarmennirnir flutnings-
menn. En tóku það og fram allir —
líka Sv. Bj. — að ýmsum atriðum
frv. væru þeir ekki samþykkir og
væri það aðallega fram komið til að
koma milinu inn í þingið og breyt-
ingar sjálfsagðar.
Og er frv. var felt, sagði öll vel-
ferðarnefndin af sér og má á því
marka, hvort Sv. Bj. stóð einn
uppi með það.
Hversu miklu, sem >Landið* eyðir
af svertu og pappír — getur það því
eigi klínt þessum ábutði á Sv. Bj.
fremur en öðru af sama tagi —
heldur að eins reynt að seðja sína
eigin og herra sinna róglöngun í
garð þess manns, sem mun þó i
rauninni óseðjandi.
Yfirlýsing.
Að gefnu tilefni, enn á ný, lýsi
eg því hér með yfir, að það er ósatt,
að eg hafi sagt, að Landsbankinn
hafi borgað herra Matthiasi Þórðar-
syni nokkra upphæð, stærri eða
smærri, fyrir að skrifa greinina um
>enska samnirtginnc. — Og það
gildir mig einu, hve margir sögu-
berar eru fengnir fyrir því, hvort
sem þeir eru frændur M. Þ. eða
einhverjir óvaldir strákar afgötunni.
Reykjavík, 21. okt. 1916.
Jakob Möller.
Ahrif
brezka samningsins.
Það hefir margoft verið tekið
fram í aðaldráttum, að ef ekki
hefði verið samið við Breta, hefð-
um vér:
1. Veriö markaðslausir fyrir helztu
afurðir vorar, og að annar að-
alatvinnuvegur vor, sjávarút-
vegurinn, hefði orðið að leggj-
ast niðu>-, og
2. Vér hefðum orðið útilokaðir að
fá kol, sait og aðrar nauðsynja-
vörur til framleiðslu vorrar.
En það má benda á dæmi, sem
daglega koma fyrir, dæmi, sem
sýna það, hversu áriðandi oss er
að halda vinfengi við Bretland.
Skulu hér fáein nefnd:
1. Landsíminn þurfíi -að fá
vír til símagjörðar frá Khöfn.
Efnið í vírnum er að 40—-50 %
þýzkt. En Bretar hafa ákveðið,
að engin vara, sem í væri meira
en 25 % af þýzku efni, mætti
sleppa frá nokkru hlutlausu landi
annars. En í þessu tilfelli hefir
hún veitt íslenzku stjórninni sér-
staka undanþágu, og því getum
vér haldið áfram að bæta síma
vora.
2. Nýlega hefir brezka stjórn-
in veitt útflutningsleyfi á tœkjum
til þráðlausrar firðritunarstöðvar
frá Bretlandi til Islands. Allir
vita, hversu nauðsynleg íslandi hún
er. En dettur nokkrum skynbær-
um manni nú í hug, að slíkt leyfi
hefði fengist, ef vér hefðum verið
í ónáð Bretans, ef vér hefðum
enga samninga gert við hann,
heldur reynt — auðvitað árang-
urslaust — að lauma vörum vor-
um í gegnum hergarð Breta?
3. Netjagarn kom bingað ný-
lega, er keypt var fyrir milligöngu
firma, sem af þjóðernisástæðum —
ekki af öðru, því að firmað er
mjög heiðarlegt og hvergi við
brot á hernaðarráðstöfum Breta
brugðið — er í ónáð Breta í stríð-
inu. Því vilja Bretar útiloka verzl-
un við það. En fyrir sérstaka
tilhliðrunarsemi og' lipurð um-
boðsmanns Breta hér, fékk ráð-
herra þessa vöru leysta, og kaup-
endurnir mega þakka það því
einu, að vér erum í vinfengi við
Bretaveldi.
»Landið« hafði auðvitað þegar
hlaupið með þau ósannindi, að
garnið fengist ekki leyst, 0g að
ráðherra gæti ekkert — og sjálf-
sagt vildi ekkert — liðka það
mál. En sú »Lands<-lýgi er ekk-
ert verri en hinar — og það
munar ekki um einn blóðmörs-
kepp í sláturtíðinni. Það sér ekki
högg á vatni, þótt einni lýginni
sé hrundið, því að af svo miklu
er að taka.
Mörg fleiri dæmi mætti telja.
En þessi nægja til að sýna, hverja
þýðingu það hefir um tilveru þjóðar
vorrar nú sem stendur að halda
vinfengi við Bretland.
ReykjaTÍinr-annáll.
Á svarta listann kváðu Bretar
hafa sett nýlega fjögur hérlend verzl-
unarhús. Eru það A. Obenhaupt,
Schannong8
Morihment Atelier
O. Farimagsgade 42.
Köbenhavn O.
Verðskrá með myndum ókeypis
Brúkuð innlend
Frímerki
kaupir hæsta verði
Sig. Pálmason, Hvammstanga.
Líbkistur
frá einföldustu til fullkomnustu gerðar
Líkklæði, Líkvagn og alt sem að
greftrnn lýtur, fæst ávalt hjá
Eyv. ^.rnasyni
Verks.niðjan Laufásvegi 2.
Brauns-verzlanirnar, H. Th A. Thom
sen og síldarolíuverksmiðjan Ægir.
Áttræðisafmæli Magnúsar Stephen-
sen landshöfðingja var minst með veif-
um á stöug um allan bæ. Mjög margir
bæjarbúar sóttu hann og heim. Nefnd
manna hefir gengist fyrir því, að láta
búa til brjóstmynd af honum úr eiri
og er ætlast til, að hún fái samastað
í alþingishúsinu.
Guðsþjónustur á morguu í dóm
kirkjunni kl. 12 á hád. síra Jóhann
Þorkelsson (ferming), kl. 5 síra Bjarni
Jónsson. — í Fríkirkjunni í Hafnar-
firði kl. 6 síðdegis síra Olafur Ólafsson
(missiraskifti). I Fríkirkjunni f JRvík
kl. 12 sr. Ól. Ólafsson (missiraskifti)
og kl. 5 sr. Haraldur Níelsson.
Sextugsafmæli átti frú E1 í n
B r i e m Jónsson þ. 19. þessa mán.
Þau voru tvíburar, Páll amtinaður og
hún.
Frú Elín er ein af mestu merkis-
konum þessa lands; hefir starfað mikið
að aukinni mentun kvenna til munns
og handa, verið forstöðukona kvenna-
skóla um mörg ár, gefið út »Kvenna-
fræðarann« o. s. frv.
Skipstrand. Þilskipið »Resolut«,
eign Duus-verzlunar strandaði í fyrra-
dag í Grindavík, á leið til Vestmann-
eyja.
Skipverjar björguðust, en skipið
sjálft kvað mölbrotið.
ísland fór héðan áleiðis til útlanda
í gær með fjölda farþega. Meðal
þeirra voru: Guðmundur Kristjáns-
son skipstjóri og frú hans, Jón
Espholín vélamaður, Pétur Ólafsson
konsúll, Forberg landssímastjóri, Guðm.
T. Hallgrímsson læknir, Leifur Böðvars-
son verzlm., Sig. Guðmundsson, Sverre
Hansen, Sveinn Þórðarson, Arni Böðvars-
son, Ahlmann og Krebs danskir verk-
fræðingar, frú Helga Johnson, frú
Guðrún Egilson, frú Briet Bjarnhéðins-
dóttir, frú Hlíðdal, frú Anna Þorvarðar-
son, Englendingar tveir, West og In-
gram, ungfrú Áslaug Stephensen,
Friðrik Ólafsson skipstjóri, Þ. Svelns-
son bókhaldari o. fl.
Eg tmdirrifaður
tek að tnér að gera leigusammnga og sjá um smíðar og allan útbúnað á
skipum í útlöndum næsta vetur. Ennfremur kaupi og sel eg skip fyrir
þá, er þess óska, leigi skip til’ flutninga og sé um að fá öll skírteini lög-
lega samin. Öll ómakslaun verða sanngjörn, eða prósentvis eftir sam-
komulagi.
Símið eða skrifið til
Guðm. Jirisfjánssotiar, sHípsíjóra
Sankt Hansgade Í7l, Köbenhavn N.
Bolinder's mótorar.
Hversvegna er þessi mótortegnnd viðsvegar um heim þ. á. m. einnig í Ame-
ríku, álitin standa öllnm öðrnm framar?
Vegna þeas að verksmiðja sú er smiðar þessa mótora hefir 20 ára reynsln I
mótorsmiði og framleiðir einungis fyrsta flokks vélar. Hefir eingöngu þaul-
vana verkamenn. Yerksmiðjan býr til allskonar mótora fyrir báta og afl-
stöðvar og hverja aðra notkun sem er. Ennfremur hráolíumótora og flyt-
janlega mótora með 3 til 320 bestöflum.
BOLINDER’S mótorar ern ódýrasta, einfaldasta og ábyggilegasta aflsuppspretta Bem
til er. Verksmiðjan framleiðir einnig mótorspil og mótordælur.
BOLINDER’S verksmiðjurnar i Stockholm og Kalihiill, eru stærstu verksmiðjurnar
á Norðurlöndum í siuni röð. Hafa yfir 1500 starfsmenn, og er gólfflötur
þeirrar deildar, er eingöngu framleiðir bátamótora 100.000 □ fet.
Árleg framleiðsla 60.C00 hestöfl. Yfir 10.000 BOLINDER’S mótorar
með samtals 350.000 hestöflum eru nú notaðir nm allan heim, í ýmsum
löndnm, allssfaðar með góðum árangri. Yfir 3000 fiskiskip nota nú BO-
LINDER’S mótora. Stærsti skipsmótor smíðaður af BOLINDER’S verk-
smiðjunni hefir 1.500 hestöfl. 20 hestafla mótor eyðir að eins ca. 260
grömmum af hráolfu á kl.stund pr. hestafl.
Með hverjum mótor fylgir nokkuð af varahlutum, og skýringar um
uppsetningu og hirðingu.
Fengn Grand Prix I Mrien 1873 og sömu viðnrkenningu í Paris 1900.
Ennfremur hæðstu verðlaun, beiðurspening úr gulli, á Alþjóðamótorsýn-
ingnnni i Kböfn 1912. BOLINDER’S mótorar hafa alls fengið 5 Grand
Prix, 140 Heiðurspeninga og 106 Heiðursdiplómur, sem munu vera fleiri
viðurkenningar en nokkur önnur verksmiðja á Norðurlöndum i sömu grein
hefir hlotið.
Þau fagblöð sem um allan heim eru i mestn áliti mótorfræðinga meðal,
hafa öll lokið miklu lofsorði á BOLINDER’S vélar. Til sýnis hér á
staðnum eru m. a. ummæli: The Motor Boat, The Motor World, The
Shipping World, Shipping Gazette, The Yachtsman, The Engineer, The
Marine Engineer tfc Naval Architect.
Auk þess hefir m. a. Prof. Nansen, sem notað hefir BOLINDER’S
vélar i skip sln, hrósað þeim mjög.
Einn eigandi BOLINDER’S mótors skrifar verksmiðjnnni: »Eg er
harðánægður með vélina. Hefi látið hana ganga 4 þúsund milur i mis-
jöfnu veðri, án þess nokkru sinni að taka hana i sundnr eða hreinsa hanac.
Fjöldi annara meðmæla frá vel þektum útgerðarmönnum og félögum er
nota BOLINDER'S vélar, eru til sýnis.
Þeir bér á landi sem þekkja BOLINDER’S mótora eru sannfærðir um
að það sé i beztu og hentugustu mótorar sem hingað hafa flnzt. BO-
LINDER’S mótora er hægt að afgreiða með mjög stuttum fyrirvara, og
flestar tegundir alveg um hæl. Varahlutir ávalt fyrirliggjandi hér á
staðnum. Aðgengilegir borgunarskilmálar.
Allar upplýsingar viðvikjandi mótorum þessnm gefur
G. EIRÍKSS, Reykjavík.
Einkasali á íslandi fyrir
J. & C. G. Bolinder’s Mekaniska Verkstads A/B Stockholm. Útibú og skrifstofur I
New York, London, Berlin, Wien, St. Petersburg, Kristjaniu, Helsingfors,
Kaupmannahöfn etc. etc.
Reykjavfkur Apótek
mælir með sínu ágæta og alþekta
Kreólíni til fjárböðunar,
sem viðurkent er af Stjórnarráði íslands.