Ísafold - 06.12.1916, Blaðsíða 1

Ísafold - 06.12.1916, Blaðsíða 1
v Kemur út tvisvar í viku. Verðárg. 5 kr„ íerlendis 7^/2 !kr. eða 2 dollarjborg- let fyrir miðjan júlí erlendis fyrirfram. , Lausasala 5 a. eint. ísafoldarprentsmiðja. Ritstjóri: Ólajfur Björnsson. Talsími nr. 453. Uppsögn (skrifl. bundin við áramót, er ógild nema kom- in sé tll útgefanda fyrlr 1. oktbr. og só kaupandl skuld- laus við blaðið. Reykiavík, miðvikudaginn 6. desember 1916 94. tölublað Bæjarskrá Reykjavíkur 1917. , Ný útgáfa af Bæjarskrá Reykjavíkur kemur út eftir nýárið. Hún hefir ekki komið út síðan 1913 og er því um að kenna, að fyrri útgáfur hennar hafa eigi svarað kostnaði. En með því að mér hafa borist mesti fjöldi af áskorunum um að gefa Bæjarskrána út af nýju og bæjarstjórn Rvíkur hefir sýnt skilning sinn á n.ruðsyn Bæjarskrárinnar með því að veita nokkurn styrk til út- gáfunnar, hefi eg ráðist í að gefa hana út af nýju í þeirri von, að al- menningi fari að skiljast hve ágæt og óhjákvæmileg handbók hún er og kaupsýslumenn fari að skilja, að með því að nota hana rækilega til aug- lýsinga styðja þeir ekki síður sjálfa sig en útgáfuna. Brotið á Bæjarskránni verður að þessu sinni sama og fjórði partur af Ísafoldarsíðu, þ. e. talsvert stærri en áður, og verður reynt að gera hana svo fróðlega og ítarlega, sem tök eru á. Innihald hennar verður: x. Gatnaskrá, þar sem talin eru upp öll hús borgarinnar og hverir búa i þeim. 2. Nafnaskrá, þar sem taldir verða í stafrófsröð allir Reykjavíkurbúar 18 ára eða eldri. 3. Félagaskrá og stofnana, þar sem taldar verða allar merkustu stofnanir á íslandi, opinberir sjóðir og félög í Reykjavík (sjá síðar). 4. . Atvinnuskrá, þar sem kaupmönnum og atvinnurekendum höfuðstaðar- ins gefst færi á að láta skrá sig sérstaklega — eftir flokkum. 5. Talsímaskrá Reykjavikur. 6. Ýmislegur fróðleikur um virðingarverð húsa, lengd gatna o. s. frv. 7. Auglýsingar. Ennfremur er fyrirhugað, að í Bæjarskránni birtist hagfræðisleg rit- gerð um vöxt og viðgang R?ykjavíkur. Siðar mun væntanlegum auglýsendum send pöntunar-eyðublöð fyrir auglýsingar. En að þessu sinni leyfi eg mér að beina þeim vinsamlegum tilmæl- um til stjórna allra félaga hér í bænum, að þær sendi mér fyrir 15. þessa mán. skýrslu um félögin, er feli í sér: 1. Nafn félagsins og stofndag (ef hægt er). 2. Tilgang félagsins. 3. Eignir félagsins (sjóð o. s. frv.). 4. Tölu félagsmanna. 5. Stjórn félagsins (hverir skipa hana og hvernig verkum er skift). Vænti eg þess, að félagsstjórnirnar taki vel í þessa málaleitun, þar sem mjög erfitt er ella að gera félagaskrána svo ítarlega, sem vera þyrftí. Reykjavík 4. desember 1916. Virðingarfylst. Úlafur Björnsson. Saumavélarnar ágætu og margeftirsparðu eru komnar aftur í verzlun Halldórs Sigurössonar Ingólfshvoli bæði handsnúnar og stignar, sem sauma bæði áfram og aftur á bak. XLIII. árg. Viljirðu eiga >Bil« fá hlýddu eðlistilviaan þinni, hún segir »þú skalt kaupa* FORD TOURING CAR og neitaöu ekki sjálfum þér um þann hag og ánægju sem það getur veitt þór. Tíminn er peningar, og Ford Touring Car eykur verðgildi tíma og peninga. Ford bilar oru édýrastir allra bila, léttir ah stjórna og jmðveldastir i viðhaldi. Ford bilar eru beztu fólks- og flutniugs- tæki sem komið haía til landsins, og fást að eins hjá undírritubum, sem einnig selur hin heimsfrægu DUNLOP DEKK og SL0NGUR, fyrir allar tegundir bila. P. Stefánsson, Lækjartorgi 1. .AÍþýöuféLbúkasafn Templaras. 8 kl. 7—0 Borgarstjóraskrifst. opin dagl. 10»12 og 1—8 Bœjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—12 og 1—B Bœjargjaldkerinn Laufásv. B kl. 10—12 og 1—6 íalandsbanki opinn 10—4. K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8 árd,—10 sibó. Alm. fundir fld. og sd. 81/* siðd. Landakotskirkja. Guðsþj. 9 og 8 á helgum Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn 10—8. Bankastj. 10—12. Landsbókasafn 12—B og B—8. Útlán 1—8 Landsbúnaöarfólagsskrifstofan opin frá 12—2 LandsfóhirBir 10—2 og B—6. LandsskjalasafniB hvern virkan dag kl. 12—2 Landssiminn opinn dagiangt (8—9) virka daga helga daga 10—12 og 4—7. iListasafnib opió sd., þrd. og fimtud. kl. 12—2 BTáttúrugripasafnið opib 1*/«—2J/a á sunnnd. PósthúsiB opib virka d. 9—7, sunnud. 0—1. S&mábyrgft Islands kl. 1—B. Btjórnarrábsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl. Talsimi Reykjavikur Pósth.8 opinn 8—12. Vifilstabahæliö. Heimsóknartimi 12—1 B»jóbmenjasafniB opib sd., þrd. og fid. 12—2 Goðafoss-slysið mikla Skipið gerstrandað á Straum- nesi vestra. Hið mikla slys, sem henti ann- að skip Eimskipafélags íslands, Goðafoss, þ. 30. nóv. mun nú þjóðkunnugt orðið, svo langt sem sími nær. Vér skulum samt í fám orðum rifja upp sögu þessa mikla áfalls, sem eigi verður í tölum talið tjónið af, heldur má heitaþjóðar- ólán. Goðafoss fór frá ísafirði kl. 12 um kvöldið, aðfaranótt fimtudags 30. nóv. Var þá niðdimm nótt ,og iit veður. Þrem tímum síðar strandaði hann á Straumnesi vestanverðu. Gengur Straumnes út norðanvert við Aðalvík og er þar vestasti oddi á Vestfjörðum. Hvernig þetta óvænta hörmungarslys hefir að borið er ókunnugt um enn, Sjó- menn fullyrða, að þarna sé óvenju hrein sigling og aðdjúpt, svo að ekki er nein furða, þótt mönn- um hafi komið strandfregnin harla óvænt. g|Fyrsta skeytið um slysið fékk Eimskipafélagið á laugardag, sið- degis. Var það frá skipstjóran- um, Júlíusi Júliniussyni. í skeyt- inu stendur elckert uín aðdrag- anda slyssins. En um ástand skipsins þá, að það »standi hart* — og sjór kominn í vélrúmið og framlestina. Kvikulaust sé og hjálpar er beðist þegar. Þá (á fimtudag) reyndist ókleift að koma farþegum til Aðalvíkur, en á föstudag tókst að koma þeim að Látrum í Aðalvík. Hið fyrsta, sem Eimskipafélags- stjórnin gerði, er símfregnin barst — var að tryggja sér, að björg- unarskipið Geir fœri þegar á vett- vang — og í öðru lagi að sjá fyr- ir, að farþegarnir kœmust áfram leiðar sinnar. Flóra var þá stödd á l8afirði og urðu skjótt samn- ingar um að hún tæki farþegana, er hun færi norður um á sunnu- dag. Var þar með greitt úr vand- ræðum þeirra, svo sem tök voru á. Og laugardagskvöld vatt björg- unarskipið við og hélt norður. Með því fór framkvæmdarstjóri Eimskipafélagsins Emil Níelsen. Biðu svo allir með óþreyju frek- ari frétta. Á sunnudag um miðjan dag barst fyrsta skeytið frá fram- kvæmdarstjóranum til stjórnar Eimskipafélagsins, er lyfti brún- um, þótt eigi hermdi meira en að ekki væri vonlaust um skipið. Skeyti þetta hljóðaði svo: Ef gott veður helst, er ekki von- laust um að skipinu verði bjargað. Allar lestir eru fullar af sjó og skip- ið er á mjög hættulegum stað, yzt á Straumnesi. Dælum hefir verið kom- ið um borð. Vélbátar hafa getað lagst síbyrt við skipið og hafa þeir bjarg- að mestum hluta vöruflutningsins. Eigi er enn unt að segja, hvað botn- inn í skipinu er mikið skemdur. Aðalrörið er ekki sprungið. — — Samtímis fréttist, að margir vélbátar af ísafirði væru að störf- urn við skipið til þess að bjarga úr því vörum og tækist það von- um framar. Fiskiveiðafélagið »ísland« hafði boðist til þess að senda botnvörp- unginn April til hjálpar, ef á þyrfti að halda, en að vestan símuðu þeirNíelsenfrámkvæmdar- stjóri og Ungerskov skipstjóri »Geirs«, að Apríl skyldi vera ferðbúinn mánudagskvöld kl. 11 og fara þá á stað, ef ekki kæmu boð í veginn. Trúðu menn á það af þessum skeytum, að enn mundi unt, að Geir fengi náð Goðafossi á flot með flóðinu á mánudag kl. 2-3. En allar þessar vonir urðu að engu mánudagskvöldið. Þá um kl. 9 barst formanni eimskipa- félagsins, Sveini Björnssyni svo- látandi skeyti frá Níelsen: Útlitið heiir versnað. Nær vonlaust um að skip- inu verði bjargað. Vax- andi vestansjór hér. Brim- ið heflr kastað Goðafossi nær landi. Apríl getur ekkert hjálpað. Og kl. 10 barst annað skeyti á þessa leið: Bíðum betra veðurs á strandstaðuum, til þess að bjarga sem mestu af inn- anstokksmunum úr skip- inu. Skipverjar allir hafa verið fluftir yiir • á Geir. Mestum hluta vöruflutn- ingsins hefir verið bjargað, nema steinolíu, sem var neðst í framlestinni. Hetði haldist gott veður einum degi lengur, mundi skipinu hafa verið bjargað. Brima- samt mjðg á strandstaðn- um. Ungerskov Geir-skipstjóri sendi loks forráðamönnum Apríls þetta skeyti: Farið ekki. Öll von er úti. Skipið er fult at sjó og er komið upp i fjðru. Þetta hörmulega áfall að missa svo. ágætt 8kip hér um bil nýtt, kemur eigi einungis við Eimskipa- félagið, það kemur hart niður á öllum landsmönnum beint og ó- beint og er því eigi ofmælt, að hér sé um þjóðar-ólán að tefla. En þegar slíkt ber að höndum dugir ekki að missa kjarkinn, heldur að standa sem einn maður til að bœta tjónið. Þjóðin íslenzka hefir reynst Eimskipafélaginu trygg og traust stoð það sem ai er, með óvænt miklum fjárfram- lögum og stuðningi í byrjun og sívaxandi samúð. Nú reynir samt fyrst verulega á þolrif þjóðarinn- ar, er félaginu ungu ber að höndum svo ófyrirsjáanlegt og afdrifamik- ið mótlæti — að standa nú vel og drengilega með félaginu. Ef þjóðin gerir það mun þetta stórtjón eigi saka, nema um stund. Eimskipafélagsstjórnin hefir enn eigj tekið neina ákvörðun um hvernig snúast beri við þessu áfalli, en biður framkvæmdastjór- ans, sem kemur að vestan, inn- an fárra daga. Rannsókn um hvernig slysið hefir atvikast bíður og sennilega komu skipshafnarinnar hingað. Skipið er vátrygt fyrir alls 900.000 kr., en það er ekkert verð fyrir það á þessum tímum, enda þótt hið upphaflega verð þess fyrir D/2 ári haii eigi verið, nema 540.000 kr. * Bátstapi og manntjón. í Höskuldsey á Breiðafirði vildi það hörmulega slys til á laugardag- inn var, að bátur fórst þar í lend- ingu og druknuðu 4 menn, faðir og prír synir. Hét faðirinn Bjarni Bjarnason, og var tómthúsmaðuf í Höskuldsey, en synir hans hétu Guðmundur, Bjarni og Kristján. Ekkja Bjarna, sem þarna á á bak að sjá manni og þrem sonum, heit- ir Sigríður Guðmundsdóttir. Eina dóttur á hún á lífi. Stjórnarskrá og þingskðp. Hin nýja stjórnarskrá og hin nýju þingsköp, sem vér eigum nú við að búa, hafa nýlega verið gefin út af skrifstofustjóra Alþingis hr. Einari Þorkelssyni, í mjög handhægum bæklingi. 1 Nýr landsverkfræðingur. Geir G. Zoéga cand. polyt. er skip- aður landsverkfræðingur frá r. febr. n. á. að telja.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.