Ísafold - 30.12.1916, Page 1

Ísafold - 30.12.1916, Page 1
Kemur út tvisvar l viku. Verð árg. *. kr., erlendis * - kr. e*» v vi dollar; borg- ist fyrir miðjan júli •rlendis fyrirfram. Lausasala 6 a. eint. Isafoldarprentsmiðja Ritstjúrl: Úlafur Björnsson. Talsimi nr. 455 XLIII. árg. Reykjavik, miðvikudaginn 30. des. 1916. Uppsögn (skrifl.) bundin við iraodt, er igili nema kom- in sé til útgefanda fyrir 1. oktbr. og si kaupandi vkuld- laoa við biaðið. J T 104. tölublað. Viljirðu eiga *Btl< þ& hlýddu eblistilvisan þinni, hún segir »þú skait kaupa* FORD TOURING CAR og neitaðu ekki ajáltum þér um þann hag og ánægju sem það 4getur veitt þór. Timinn er peningar, og Ford Touring Car oykur verðgildi tima og peninga. Ford bilar oru ódýrastir allra bíla, léttir að stjórna og «,uðveld*stir i viðhaldi. Ford bilar eru beztu fólks- og fiutnings- tœki sem komio haía til landsms, og fást að •ins hjá undírrituðum, sem einnig selur hin heimsfrægu DUNLOP DEK.K og SL0NGUR fýrif allar tegundir bila. P. Stefánsson, Lækjartorgi 1. ppjmoca Kiæðaverzlun H. Arsdersen & Sön. Aðalstr, 16. Stofnsett 1888. Simi 32. þar eru fötin saumnð flest þar eru fataefnin bezt t Þrir ráðherrarnir nýju. Upp úr nýárinu eignumst vér Islendingar nýja landsstjórn, svo framarlega, sem konungur felst á tillögur alþingis, og sú breyt- ing verður á henni, að í stað eins ráðherra hingað til verða þeir nú þrír, en landritarinn verður »tekinn af« um leið. Þessir atburðir eru niðurstaðan af hálfsmánaðar yfirlegu og erfiði aukaþingsins, sem kvatt var saman þ. 11. desernber. Það þurfti V2 mánaðar meðgöngu- tíma til að geta af sér þessa þriggja ráðherra stjórn. Það er skemst frá að segja, að þeir þingmanna, er næst standa ísafold í skoðunum, hafa engan þátt átt í þessari stjórnarmyndun. Af þeirra háll'u var litið svo á, að á þessum stóralvarlegu tím- um, yrði þess að gæta fyrst og fremst, að samhengi (kontinuitet) yrði milli hinnar gömlu og nýju stjórnar. Það væri rangt að skipa hina nýju stjórn eintómum nyjum mönnum. Það var ekkí haft á móti því af þeirra hálfu, að ráð- l^errum væti fjölgað, eins og ástandið er nú, með því að ófrið- arráðstafanirnar eru svo umfangs- miklar og tímafrekar, að meiii mannaráð þeirra, er ábyrgð bera, væru sjálfsögð. En þeir vildu, að einmitt sá maðurinn, sem staðið hefir í »miðju stríðinu®, þ. e. haft stjórn- arframkvæmdir lands vors, er stýra þurfti fram hjá verstu styrj- aldar-skerjunum, væri ekki látinn fara frá því starfi nú. Og vér hyggjum, að skynbærir menn um land alt líti svo á, að það hafi verið óvarlegt af þinginu að skipa málum svo í horf, að núverandi ráðherra tekur ekki lengur þátt í stjórnarstörfum landsins. Því tilfinfianlegri verður þessi skipun málanna frá þingsins hálfu, sem annar æðsti maður í stjórn lands- ins, landritarinn, verður einnig látinn víkja sæti, og sérþekking- in á stjórnarráðstöfunum þeim, sem hingað til hafa gerðar verið, þar með enn meira rýrð. Traustsleysi á núverandi ráð- herra hefir ekki ráðið hér, því sannanlegt mun vera, að minsta hosti fleiri menn en nú standa að einum hinna »tilvonandi« ráð- herra, vildu halda í núverandi ráðherra. Nei, það eru flokka- væringar á þingi, sem svo hafa æxlast, að úr varð ringulreið og stjórnarsamhengið rop’ð. Og það er sannarlega ekki gott. Um hina nýju stjórn, sem sezt á laggirnar eftir nokkura daga, skulum vér fáu spá — að svo komnu. Látum þess að eins get- ið, að lsafold mun ekki beita hana þeim brögðum, sem tíðkast hafa upp á síðkastið frá andstöðuflokki þeirrar stjórnar, sem nú er að fara frá völdum. Hún mun ekki fara í neina aðfinninga-lúsaleit gagnvart henni, og sizt af öllu láta sig hgnda að æsa almenning upp á sviði viðkvæmustu utan- ríkismála gegn stjórninni i flokks- hagsmuna skyni. En á hinn bóginn mun ísafold telja sér skylt að vera á verði gagnvart hinni nýju stjórn, rækja þá skyldu, að finna hóglega að, ef hún fer rangt i sakir, að blaðs- ins dómi. En vér finnum of mjög tilalvöru tímanna—til þess aðgera oss leik að, því að andæfa öllu sem stjórnin tekur sér fyrir hend- ur. Þau breiðu spjótin, er of mjög hafa tiðkast upp á síðkastið, viljum vér ékki nota. Um einstaka menn hinnar nýju stjórnar, sem væntanlega verður staðfest af konungi, skal þess get- ið, að yfirráðherrann nýji, hr. Jón Magnússon, kemst í þá stöðu með óskiftu fylgi Heimastjórnarmarina. Er hann gætinn maður og kunn- ugur þeim málum frá fornu fari (skrifstofustjóratið sinni), er nú munu undir hann lögð. Annar nýi ráðherrann, hr. Sig- urður Jónsson, er óskrifað blað á stjórnmála8viðinu, allroskinn mað- ur orðinn. Og eitt laufið i stjórn landsins er hann orðinn, ekki fyrir stórmikið traust, heldur frekar út úr fiokksvandræðum. Að ráðherratilnefning þriðja ráð- herrans, hr. Björns Kristjánssonar. stendur helmingurinn af þversum (5 þingmenn + B. Kr. sjálfum), en hinn helmingurinn af þvers- um (Sig. Eggerz + 5 þingmönn- um) vildu hafa Sig. Eggerz. Hvort þessi tviskifting á þversum í Banka-þversum og Eggerz- þversum helzt áfram veit maður ekki, en hvorttveggja brotið var fúst til samvinnu við Heima- stjórnarflokkinn svo sem raun ber vitni, enda þótt skamt sé á að minnast, er þessi flokksbrot töldu það dauðasök af þrímenningun- um að bjarga stjórnarskrá og fána í samvinnu við Heimastjórn- arflokkinn. Samkvæmnin er ekki altaf söm við sig. Annars munum vér geyma oss að minnast frekara á hina nýju ráðherra, unz þeir sjálfir leysa frá skjóðunni að fenginni upphefð sinni — um fyrirætlanir sínar i stjórnmálum landsins. Eimskipafélagið. A hinum stutta tíma, siðan Eim- akipafélagið bauð af nýju út hluti, vegna Goðafoss-strandsins, hafa Reyk- vikingar einir skrifað sig fyrir um 47000 kr. i nýjum hlutum. Mun þó mikið eftir enn. T. d. má fast- lega gera ráð fyrir því, að öll fisk- veiðafélög höfuðstaðarins verji nokkr- um hluta ágóða sins til hlutakaupa í Eimskipafélaginu, svo sem þegar sér vott um. Verður það vafalaust drjúgur skerfur — til þess að eign- ast nýtt skip i stað hins horfna. En vissulega ættu góðar undir- tektir höfuðstaðarbúa að verða öðr- um landsmönnum hvatning til að reynast og góðir íslendingar með því að — um leið og þeir verja fé sínu vel — styikja þjóðþrifafyrir- tæki, sem nú þarf meira en áður að halda á réttum og góðum vilja og getu hvers þess, er yetlingi mi valda í landinu. Hngsið um það, bændur og búa- lið, er þér viljið gleðja vini yðar á f gnaðardögum þeirra, hvort heldur eru afmæli, brúðkaup, silfutbrúðkaup eða aðrar minn ngaThátíðir, að hiuta- bréf í Eimskipafélaginu eru bceði kærkomnasta og staðgóð minningar- gjöf. Það sem nú þarf að safna til þess að láta Eimsk'prfélagið standa jafn- rétt eftir Goð ífoss-siysið og áður — /nerriur alls ekki þvi, sem landsmenn -erja árlega til glingursamra afmælis- gjafa ella. Að verja fé sínu vel fyrir sjálfan sig og um leið til gagns þjóðfélag- inu — hafið það fyrir augum. Lausnin er, að kaup.i hlutabréj í, Eimskipajélaqitm. Þioski þjóðar vorrar verður, hvað helzt, mældur á seinni tima vog, á þvi, hvernig hún snýst nú við á- skorun — ekki einungis stjórnar Eimskipafélagsins, heldur allraþeirra, sem kunna að meta heill landsins — þeirri áskorun: að verja Jé sínu Jyrst 0(7 jremst til að styrkja Eim- skipafélaoið með hlutakaupum. HeykjaYíknr-annálI. Áramótamessur í dómkirkjnnni: Gamiárskvöld kl. 6 síra J. Þ. Nyársdag kl. 12 Jón Helgason seth ur biskup. Kl. 5 síra J. í>. r ■ *\ V. B. K. Vandaðar vörur. Ódýrar vörur. Léreft bl. og óbl. Kjólatan. Flanel, silki, nll Tvisttan. Lakalóreft. Rekkjnvoðir. Cheviot. Alklæði. Cacliemire. og bóm. Gardinntan. Fatatan. Prjónavörur allsk. Regakápur. Gólfteppi. Pappír og Ritföng. Sólaleður og Skósmíðavörur. ^fícrzlunin éfcjorn cJhrisfjánsson. s, j 1 • Áramótamessur í þjóðkirkjunni í Hafnarfirði: Á gamlárskvöld kl. 6 í HafnrrrfirSi og kl. 9 á Bessastöðum. A nýársdag kl. 12 i Hafnarfirði. Áramótaméssnr í Fríkirkjunni: Á gamlárskvöld kl. 6 í íteykjavík, síra Ól. Ól., í Hafnarfirði kl. 9 síra Ól. Ól. Á nýársdag kl. 12 í Rvík Ól. Ól. og kl. 5 próf. Har. Níelsson, og í Hafn- arfirði kl. 6 síra Ól. Ól. Hjónaefni: Bjarni Þ. Magnússon veitingamaður og jungfrú Helga And- ersen (sál. klæðskera). Frá alþingi. Ráðherrafjölgunin. Hún hefir verið á dagskrá þings- sins síðustu daga og hraðað mjög gegnum deildirnar. Var frum- varpið borið fram í Neðrideild af þeim Matthíasi Olafssyni, Skúla S. Thoroddsen og Jóni frá Hvanná. Er frumv .rpið á þessa leið: 1. -gr. Ráðherrar skulu vera þrir Ákveður konungur starfs svið þeirra. 2. gr. Ráðherrar hafa 8000 kr. í áralaun. Auk þess skal sa, ráð- herrann, sem er forseti ráðuneyt- Í8ins, hafa leigulausan bústað og 2000 kr. í risnufé á ári. Kostnaður af embættisferðum ráðherra til Kaupmannahafnar og dvöl þeirra þar greiðist úr land- sjóði. 3. gr. Landritaraembættið legst niður. 4. gr. Lög þessi öðlast gildi þegar í stað. Ástæður fyrir frumvarpinu til- greina flritningsmenn þessar: Frá því að séretakt stjórnarráð fyrir Island var sett á stofn með konungsúrskurði 14. júlí 1874 og þar til nú, hefir að eins einn mað- ur átt að standa fyrir allri æðstu stjórn landsins. I?ótt þessi skipun kunni að hafa þótt sæmileg í öndverðu, er hún það trauðla leng- ur. Störf þau, er undir stjórnar- ráðið heyra, eru það margvísleg, að enginn einn maður er til hlítar fær um að leysa þau vel af hendi. I stjórnarráðinu sameinast allar greinar framkvæmdarvaldsins, dómsmál, kirkjumál, kenslumál, fjármálefni öll, þar á meðal hin umboðslega endurskoðun, eftirlit með öllum embættis og sýslunar- mönnum' landsins, atvinnumál, svo sem landbúnaðarmálefni, sam- göngur, simamál, póstmál, sigling- ar, verzlun, iðnaður, fiskveiðar, vegamál, sýslu- og sveitarstjórn- armál, eftirlit og umsjón fasteigna landsins o. s. frv. Einn maður getur ekki kync sér þessi mál eins og æskilegt væri. Hér við bætist það auð- vitað, að þjóð og þing ætlast til. að stjórnin eigi frumkvæði til endurbóta á löggjöf landsins milli þinga og leggi árangur þeirra starfa' undir þingið. Er slíkt eigi nema sanngjarnt og sjálfsagt, e" % stjórn landsins er svo fyrirkomið, að þess sé kostur. Að þessu hafa menn fundið til þess, að eigi væri heppilegt að hafa að eins einn ráðherra. Það sýnist einnig fullmikið að leggja alla stjórn landsins í hendur eins einasta manns, enda ábyrgðarmeira fyrir hann að stjórna landinu einn, án þess að hafa nokkurn mann með stjórn- skipulegri ábyrgð til að bera sig saman við, og miklar líkur til, að ýmislegt yrði betur ráðið, ef þrír menn með fullri ábyrgð starfa að því, heldur en ef það er falið að eins einum manni. Loks má geta þess, að stjórnin er styrkari gagnvart öðrum em- bættismönnum landsins, ef þrír menn skipa hana, heldur en ef að eins einn er ráðherra. Fyrir þingið 1915 varlagt frum- varp, er fór fram á, að ráðherrar yrði tveir. Málinu var vísað frá með rök8tuddri dagskrá, er svo hljóðar: »í því trausti, að stjórn og kjós- endur athugi nánar tilnæstaþings, hvort ekki sé rétt, að ráðherrar verði þrír, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá«. Þingið virtist fallast á, að þörf væri á fjölgun ráðherra, en félst eigi á, að tveir ráðherrar nægði til frambúðar. Málið hefir allmikið verið rætt út um land, 0g er mikil ástæða til að ætla, að þjóðin felli sig vib þessa breytingu. Að vísu mundi þetta verðanokk- ur kostnaðarauki, en þó ber þess að gæta, að með lögum nr. 3, 19. júní 1915, eru ráðherraeftirlaru niður feld, og að landritaraembætt- ið verður lagt niður, ef þessi skip- un kemst á. Útgjaldaauki mundi samt verða um 10.000 kr., en i það virðist ekki horfandi, ef veru- legar bætur fengist með því ráðn- ar á stjórnarfari landsins. En slikt þykir mega ætla. Um einstakar greinar frumvarps- ins athugast: Við 1. gr. Til þess er ætlast, að gefmv.verði út konungleg til-

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.