Ísafold


Ísafold - 08.09.1921, Qupperneq 1

Ísafold - 08.09.1921, Qupperneq 1
Vikublað. Verð: 5 kr. árg. — G-jalddagi 1. júlí. Símar 499 og 500. Afgreiðsla og inn- iheixnta í Lækjargötu 2. — Talsími 500. ísafoldarprentsmiðja h.f. XLVIII. árg. Reykjavík, Firatudaginn 8 september 1921. 36 tölublað. Auglýsingar þær, sem sendar eru Logréttu eða íjafold, birtast í báðum blöðunum og ná þannig mestu útbreiðslu um landið, sem fáanleg er — Verðið þó hið sama og áður var i öðru blaðinu. Bækup- Timarit. Prófessor Halldór Hermannssou hefir skrifað i Island:ct yfirlit um sögu íslenskra blaða og tímarita. Það nær þó ekki til siðustu áranna. Þetta er líka merkilegur þáttur í þróunarsögu þessa tímabils. Þessir siðustu timar hafa að ýmsu leyti verið öld blaðanna og tímaritanna um allan heim. Þess vegna hefir einhver kallað blöðin sjöunda stór- veldið. Ahrif þeirra hérlendis ætti að mega marka nokkuð af vexti þeirra og viðgangi síðustu árin. Um það mætti annars gera ýmsar skrítnar athuganir. Því nú getur varla farið svo einn i hóp eða tveir i lest, að þeir þurfi ekki að »eiga sér mál- gagn«. Hjálpræðisherinn og guð- spekingar, símamenn og frimerkja- safnarar, ungmennafélög og innri- missión — alt þarf »málgagn«. En látum það nú vera. Það er vist ekki nema mannlegt, að vilja miðla öðr- um af sætleik sinnar eigin sannfær- ingar. En hitt er heldur ekki einskis- vert, hvernig það er gert, þótt ekki verði sú saga rakin hér, þar sem einkum er um timaritin að tala. Þau eru nokkur nýkomin Andvari (Páll E. Ólason), Og Skirnir, fyrsta heftið undir ritstjórn Arna Pllsson- ar, og Prestafélagsritið (Sig. P. Sivertsen). Auk þessara svo áður komin Iðunn (Á. H. B.), Eimreiðin (M. Jónsson), Óðinn (Þ. G.) o. fl og hefir ýmsra þeirra verið getið stuttlega. Auðvitað eru engin tök á því að rekja efni þessara hefta, enda litill hagur i þvi, þar sem ekki eru tök á þvi, að rökræða það alt að neinu gagni. En nokkrar almennar athugasemdir, sem sprottið hafa eða eflst við lestur þeirra, verða að nægja. A eitt timaritið er þó rétt að minna sérstaklega, af þvi að það er óverðskuldað minst þekt hér og lesið. En það er timarit þjóðræknis- félags Vestur-íslendinga. Og það er þá einkum hreyfingin sem á bak við það stendur, sem er þess verð, að henni sé meiri gaumur gefinn hér heima, en gert er. Eg hef áðnr vikið að því efni i Lögrj., þegar fyrsta heftið kom út i fyrra, og hirði ekki að endurtaka það. En undarlegt má það heita, ef íslend- inga heima iðrar þess ekki einhvern- tíma, ef þeir skjóta nú skolleyrun- um við þeim samvinnuröddum, sem berast frá Vestur-íslendingum með þessu timariti og þeim vilja, sem það lýsir á þvi, að halda við is- lenskri tungu og menningu vestra. Því hvaða skoðanir sem menn kunna að hafa á möguleikum þess við- halds i ftatatíðinni, er það víst að í náinni framtíð er engin þörf á þvi að Vestur-íslendingar klofni út úr islensku þjóðerni, eða verði vilja- laust bræddir i deiglu erlendra þjóð- brota. Hinsvegar er engin ástæða til þess að ala á neinum islensknm þjóðrembingi i þessu sambandi, eða ætla að menn geti ekki verið eins góðir borgarar vestur þar, þó þeir haldi lifandi menningarsambandi við forna átthaga. Og þetta er ekkert hégómamál. Það er islenskt menn- ingarmál. Hér er um að ræða fram- tið þriðjungs allra íslendinga, — um það að ræða, hvort undan islenskri menningu á að ganga þriðjangur þess sáðlands, sem hún hefir gróið í undanfarið, um það að ræða, hvort undan íslenskri tnngu eigi að svifta þriðjungi þeirra stoða, sem hún styðst við nú, um það að ræða, hvort ræna eigi íslenskar bókmentir þriðjungi þeirrar útbreiðslu, sem þær hafa nú. Það má sjilfsagt dæma misjafn- lega um það, sem Vestur-Islendingar hafa af mörkum lagt til islenskrar menningar. Það er áreiðanlega ekki alt saman fyrsta flokks varningur. En vörugæðin í »móðurlandinu« geta nú lika brugðist til beggja vona. En hvað sem um það er, þl er það víst, að samvinna Austur- og Vestur- íslendinga á sviði andlegra og verk- legra mála getur þegar rétt er áhaldið verið frjósamt og þrótt- mikið menningarmeðal báðum þjóð- brotunum. Og þar að auki ættu Vestur-íslendingar að vera tilvalinn menningarmiðill milli íslendinga og hins enskumælandi heims. Mér hefir flogið eitt í hug þegar eg hef velt þessu fyrir mér. Hér er ekki nóg að tala, hér þarf að starfa. Hér þarf með þrótti og þori að koma fótum undir lifandi og starfandi menningarsamband Aust- ur- og Vestu íslendinga, sambandi, sem haft gæti bætandi áhrif á margt það, sem nú fer öfugt og aflaga. Það þarf að hrista »heiðraðan al- menning* þangað tíl hann skilur hvað i húfi er. — í vestanblöðun- um hefir verið rætt um það undan- farið, að menn vildu þar sýna ein- hvern sóma minningu þeirra, sem i stríðinu féllu »fyrir landið og kóng- inn sinn«. Um þetta má auðvitað deila og hefir verið gert vestra, svo ákaft, að framkvæmdirnar virðast engar ætla að verða. En er það nokkur frágangssök, að þessi minn- ingarstarfsemi taki höndum saman við hina ttarfsemina, sem nú virð- ist vera einna efst á baugi vestur þar — þjóðræknisstarfsemina. Féð, sem áætlað var, t. d. til minnis- merkisins yfir fallna hermenn, var stórfé á Islenska visu. En samvinnu- starfsemin milli Austur- Og Vestur- íslendinga á við örðugan fjárhag að húa. Danir og íslendingar hafa i sinni samvinnu komið sér niður á skipulag, sem hér gæti orðið til fyrirmyndar, þar sem er stofnun sátt- málasjóðsins. Það gæti verið til fyrir- myndar i því að Islendingar austan- hafs og vestan stofnuðu með sér samskonar sjóð til að styrkja sina samvinnu. Ef honum væri stjórnað af skynsamlegu viti og vel væri til til hans stofnað, gæti hann orðið sá grundvöllur, sem framtiðin gæti reist á þá brúarsporða, sem borið gætu tengslin milli íslenskrar menningar beggia megin hafsins. Og hann gæti jafnframí orðið glæsilegasta minnis- merki islensks framtaks og íslenskra framtííarvona — gætí orðið Islend- ingum meiri vegsauki og meira menningarmerki en nokkur steini studdur varði. Þegar litið er yfir íslensku tíma- ritio, verða heildaráhrifin af þeim þau, að þau eru að meira eða minna leyti bókmentalegs efnis, þó þeim sé annars ætlað að vera almenns efnis. Þó er ekkert þeirra einskorðað á þvl sviði. Þetta, hvað bókmentaefnin eru oftast yfirgnæfandi, er f sjálfu sér ekki nema eðlileg afleiðing þess, hvert áhugi og hæfileikar þjóðarinn- ar yfirleitt beinast. Sagnfræði og skáldskapur hafa til rkams tíma ver- ið þau sviðin, sem íslendingar hafa skapað mest verðmæti á. Tlmaritin birta líka oft sögulegar greinar — síðasta Eimr. t. d. grein um Gvcnd góða eftir M. f. o? er hann þar að sumu leyti skoðaður i öðru ljósi, en nú er annars algengast meðal »lærðra« manna, því þeir skipa G. einna helst i flokk meðal flakkara og landshornalýðs. önnur ritgerð er I Skírni eftir Matthias Þórðarson þjóðmenjtvörð um nýjustu rannsókn- ir viðvikjandi Ynglingasögu Snorra og Ynglingatali Þjóðólfs úr Hvini. Munu þetta upprunalega vera fyrir- lestrar og er gott að fá þá nú á prenti, þvi svo fór að minsta kosti mér þegar þeir voru fluttir, að eg heyrði ekki helming þeirra fyrir svefnhrotunum i sessunautum min- nm. En rannsóknirnar eru mjög meikilegar fyrir sannfræði konnnga- sagnanna og virðast að ýmsu leyti, ásamt öðru góðu, ætla að verða ti þess, að lækka nokkuð öldur þeirr- ar stefnu, sem úr fornsögunum hefir viljað gera nokknrskonar •históriska rómana*. Mætti annars gera meira að þvi en gert er, að færa saman i smáritgerðir yfirlit um rannsóknir og niðurstöður fræði- manna á þessum sviðum. Fjöldi manna hérlendis hefir gaman að þessum efnum, en hinsvegar ekki tök á þvi, að fylgast með i erlend- um sérfræðiritum. Að sumu leyti er reynt að bæta úr þessu með ritdómum. En það er hvorutveggja, að þeim er ekki ætl- aður viður bás, enda oft ekki feitan gölt að flá, þar sem þeir eru. Skirn- is-ritdómar eru nú t. d. með mesta og besta móti, en þó aðeins 14 sið- ur af rúml. 200. Meira rúm var ekki fyrir þá. Hins vegar var nóg rúm fyrir félagatal á 40 síðum. Svona er þetta 1 öllum timaritunum. Afleið- ing þessa, að ýmsu leyti, er sú, að þrátt fyrir alla bókmentahneigðina og dýrkunina er i rauninni ekki til hér annað það meginafl, sem mótar hverjar bókmentir — en það er ritskýringin. Hún hefir ekki get- að orðið neinn lifandi máttur i þró- un bókmentanca, hún hefir ekki getað skapað þar neitt verðmæti, íún hefar ekki getað bent á nýjar leiðir og ekki getað lokað gömlum afvegaleiðum. Hún hefir ekki getað brotið bókmentunum braut inn i sálarlif lesendanna — ekki plægt jarðveginn fyrir auknum skilningi og bættum smekk. Hún hefir ekki verið viðurkend, sem sjálfstæð grein isl. bókmenta, sem ætti þar verk að vinna i samræmi við aðrar greinar. Með þessu er ekki átt við neitt smámunalegt »visinda*-pex, heldur blátt áfram og heilbrigða bókmenta- fræði, sem er svo óhið öðrum grein- um bókmentanna, að hún geti kveð- ið upp óvilhalla dóma, sem bæði höfundum og lesendum væri einhver gróði. Með þessu þarf hún þó ekki að vera að neinum »kanti« við þær greinar. Þær hljóta altaf að taka áhtifum hver af annari. Skorturinn, sem er á þessu svæði, er bersýnilegur. Bókmentaskoðanir manna og listasmekkur er á ringul- reið og ruglingi. En alt og allir vaða npp í einhverskonar »fagurfræði«. Og þar kemur til greina eitt merki- legt ísl. einkenni. Nú er sögð öld sétfræðinganna og »Iærdómsins«. Nú þurfa allir, konur og karlar, iðnaðar- menn og iþróttamenn, sjómenn og bændur, lærðir og leikir, að fá ein- hverja sétfræðilega mentun. Enginn er til nokkurs fær, nema hann hafi gengið i viðkomandi »sérskóla« og lokið »þar tilheyrandi prófum«. Þetta getur nú verið gott fyrir sinn hatt. En þrátt fyrir þetta eru til tvö svið, þar sem enginn heimtar »sérþekk- ingu«, þar sem allir tala með og allir hafa vit á öllu og allir betra vit en »allir aðrir*. Þetta er póli- tik og bókmentir. Að vissu leyti er þetta reyndar ekki lastandi, það lýs- ir áhuga og sýnir að til er jarðveg- ur, sem ætti að mega rækta. Ög það ætti einmitt ritskýringin að geta allra best. Þvi hitt dylst vist ekki neinum kunnugum, að þessa muni þörf. En nndir það mætti renna mörgum rökum og tína til þess mýmörg dæmi úr ísl. ritdómum siðustu ára. Hér má aðeins benda : eina nýjustu greinina — Nýjar stefnur, eftir Jón Björnsson, í Tima- riti Þjóðræknisfél., enda segja útg. sjálfir um margt i henni, að það séu »sannnefndir sleggjudómar* þó hún sé lipurt skrifuð — og hefir margt lýgilegra staðið i vestanblöðunum. Ein tillaga hefir komið fram, sem bætt hefir getað úr i þessu efni á sínu sviði. Það var till. um bók- mentafræðina, sem námsgrein i Mentaskólanum. En meirihl. menta- málanefndar þóknaðist ekki sú ný- breytni. Hún sagði að það væri a þvi að nem. hefðu svo Htið vit ii bókmentum. Og þess vegna mátti ekki reyna að kenna þeim að hafa betur vit á þeim. Og þessi »logik« er eftir mentamálanefnd, sem hefir lært að hugsa eftir gömlu reglu- gerðinni. C -1' 'J. Gaml a og nýja reglugerðin, eða skólamálin, eru annars, eins og von er, ennþá talsvert rædd. Þau eru ka sjálfsagt eitt af stórmálum þeim, sem nú bíða úrlausnar. Pill Sveins- son skrifar um þau i Skírni og eru >ar margar athngasemdir rétti- ega gerðar. Þó er einkennilegt að sjá þar, hvað skoðanir eru marg- dofnar í þessu máli. »Gömlu« menn- irnir héldu flestir fram bæði stærð- iræði og latinu sem því »eina sálu- íjálplega*. En P. Sv. vill nú bæði atínu og grisku, en fer hæðilegum orðum um alt stærðfræðisdaður. Annars ber nokkuð á þvi í þessari grein og þó meira í nýkominni skólaskýrslu Arna Þorvaldssonar, að mótspyrnan sem gamla skipulagifS tefir mætt, stafi af einhverri til- meigingu tii þess, að koma »lýð- iáskólablæ« eða »praktiskum« kram- arasvip á »æðri« skólana til að gera iá auðsóttari skussum og ónytjung- um. Og það er talað um baráttuna milli »humanismans« og »utiliarism- ans«. Af þvi að sá, sem þetta skrif- ar, átti nokkurn þátt i þeim and- róðri sem varð móti áliti menta- málaráðunautanna á stúdentafundun- um í vetur, vill hann fyrir sitt leyti eiðrétta þetta. Á þvi er enginn efi, að bóta er þörf á skólamálunum, og jafnvist er það, að þær bætur : ást ekki með einstrengingslegri aukningu latneskrar málfræði út af fvrir sig, enda er hún i sjálfu sér ekkert »vörumerki« hins »sanna humanisma* að efninu til — held- ur hefir hún verið það form, sem hann hefir birtst i. Menn geta þvi verið hvetrar skoðunar sem er um um »humanismann«, þó þeir vilji endurskoðun skólaskipulagsins i sam- ræmi við almenna stefnu menning- arinnar og persónulega þroskaþrá einstaklingsins. Og ef þessir menn hefðu fyrir því að lita í kringum sig, t. d. til Englands og Þýzka- lands, mundu þeir sjá að allsstaðar eru vakandi kröfur um endurskoð- un gamla skipulagsins, lika frá þeim sem annars fylgja »klassisku« stefn- unni og ekki er »brugdidum« utilia- risma. Annars er það einkennilegt um mentamálaumræðurnar, að þar hefir einn skóli aldrei komið til greina, og það er sjálfur háskólinn. Það er þó mála sannast, að hann hefði að ýmsu leyti gott af þvi, að hverfa ekki alveg i eftirtektarleysi og þögn. Arni Pálsson hefir líka gert hann og ýmislegt sem hann snerti að nokkru umtalsefni i seinasta Skirni. Talar hann þar um islenska menn- ing og útlenda, og vill sýna það, að vöxtur og viðhald isl. menning- ar hafi frá öndverðu bygst á þvi, að runnið hafi saman straumar inn- lendrar og erlendrar menningar, einkum fyrir áhrif utanfara isl. náms- manna — en nú sé að taka fyrir þær ferðir vegna óheppilegra ráð- stafana, einkum háskólans hér. í sambandi við þetta eru svo gerðar ýmsar sögulegar athuganir, sumar vlst nýjar, þó ekki verði þær rök- ræddar meðan þær eru ekki fyllra framsettar en þarna. Má t. d. benda

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.