Ísafold - 28.09.1921, Side 4

Ísafold - 28.09.1921, Side 4
*r> ■ • ÍSAFOLD T « með innilegu þakklæti minnist eg í dag hinna hraustu félaga minna, sein aldrei urðu sigraðir á vígvellin- um. í hreinu þ^sku trúlyndi unnu þeir þau afrek gegn heilum heimi af óvinum, sem sagan ekki þekkir nein dæmi til. Hetjudáð þeirra gleymist aldrei, þeir föllnu gera þjóðinni heiður með minningu sinni, en þeir eftirlifandi verða komandi kynslóð til fyrirmyndar. Guð gefi aö ljómi hinna liðnu fremdartíma geti * orðið leiðarstjarna í nálægri framtlð, sem ennþá er dimm. Guð vaiðveiti ættjörðina*. Má af þessari orðsending marka, að þrátt fyrir alt hefirWilhelm keisari ekki breyst til muna. Fyrir tæpum mánnði var Erzber- ger diepinn. Var enginn í vafa nm, að morðið væri af stjórnmálaástæð- um og lýðveldismenn sáu þar nýtt merki um undirróðurinn gegn lýð- veldinu. Erzberger var helsti maður Miðflokksins þýska, og enginn var 1 vafa um, að mundi verða máttar- stoð lýðveldisins framvegis, eins og hann á undanförnum árum hafði framkvæmt alt það, sem erfiðast var. Morðið varð til þess, að lýðveldis- sinnar héldu á ný samkomur um alt landið, og i Berlin einni tóku 2 ^o.ooo manns þátt í samkomun- um. En sama dag hélt Ludendorfl fund með hermönnum. Þó eigi væru þar viðstaddir nema 15.000 menn, þá mega þetta samt tíðindi heita, og hefði þótt óhugsandi fyrir einu ári. A þessum fundi voru þýsku prinsarnir i fullum hermannaskrúða og gengu þeir fyrir fylkingar ásamt börnum krónprinsins og voru sýnd virðingarmerki á gamla þýska her- mannavísu. Varð þetta til þess, að sumir vildu láta visa allri ætt keis- arans úr landi, áður en hún gerði sig »seka i frekari landráðum*. Morðingjir Erzbergers hafa ekki fundist enn, og eiu talin lítil líkindi til að þeir finnist nokkuin tíma. En í leit sinni að morðingjunum hefir lögreglan komist fyrir mjög viðtækt samsæri gegn lýðveldinu, og hðfðu samsærismenn ákveðið að mvrða helstu menn í stjórninni. Scheide- mann, fyrsti kanslari lýðveldisins, fær hótunarbréf á hverjum einasta degi. I Bayern hefir afturhaldsmönnum skapast öflugast fylgi og hafa hlot- ist miklar deilur milli stjórnarinnar þar og alríkisstjórnarinnar í Berlín. öflugur flokkur manna vill láta landið segja sig algerlega úr lögum við þýska rikið, vegna þess að lýð- veldisstjórn sé ekki í samræmi við stefnu landsbúa. Stjórnin í Berlin hefir haft hin mestu óþægindi af þessari deilu, og gæti það orðið upphaf að algerðu hruni þýska rik- isins, ef einstök sambandsriki færu að segja sig úr þýska sambandinu. En Frakkar mundu taka því fegins hendi. A þeim erfiðleikatimum sem nú eru hjá þýsku þjóðinni, er ávalt hægt að vekja sundrung og hvetja til byltinga. Junkaraflokkurinn lofar þjóðinni öllu góðu, ef breytt verði um stjórnarskipun: þá muni fást endurskoðun á friðarsamningunum og skaðabótakröfunum verði létt af. En þau loforð eru gefin upp í erm- ina sina. Allir vita, að þegar banda- menn á sínum tima voru að tala um frið, áður en stríðinu lauk end- anlega, þá var það jafnan viðkvæð- ið, að aldrei skyldi saminn friður við Þýskaland, sem keisaradæmi, heldur yrði stjórnarfarið að gerbreyt- ast áður. Það nær þvi ekki nokk- urri átt, að Þjóðverjar fengju bætta kosti sina við það að breyta um stjórnarfar. Hitt er öllu líklegra, að bandamenn færu í nýtt strið, ef til þess kæmi að afturhaldsstjórn kæmi í Þýzkalandi á ný. Fjárhagur Þýskalands. Mörgum er þaö raðgáta, hvernig Þjóðverjar hugsi sér að risa undir skaðabótnnnm, sem þeir hafa geng- ist undir að greiða bandamönnum á næstu áratugum, jafnframt því að bæta alt það sem aflaga hefir farið innanlands. Framleiðslan er vitan- lega aðalatriðið ug Þjóðverjar hafa nægan markað fyrir alla sína fram- leiðslu og gnótt hráefna í landinu. En þrátt fyrir dugnað og landgæði hallast margir fjármálamenn að þeirri skoðun að rikið geti ekki staðis- álögurnar og að gjaldþrot Þýska- lands sé þegar fyrirsjáanlegt. Ráðuneyti Wirths vinnur nú ötul- lega að þvi að reyna aðkomaskipu- lagi á fjármál rikisins og gera yfirlit yfir fjárhaginn og rannsaka á hvern hátt megi vinna bug á örðugleik unum. Störf stjórnarinnar er varða eitt atríði þessa máls, sem sé það á hvern hátt rikissjóði skuli aflað tekna, hafa nú borið sýnilegan ávöxt, þar sem eru skattafrumvörpin nýju. Koma þau óþyrmilega við pyngju almennings og hafa mjög verið not- uð til andróðurs gegn stjórninni, enda er hækkun skatta og tolla ávalt vel til þess fallin. Hér skulu taldar nokkrar tillögur fjármálastjórnarinnar þýsku: 1. Sykurtollurinn skal hækkaður úr 14 upp i 100 mörk fyrir hver 100 kg. 2. Ríkiseinkasala lögleidd á brend- um drykkjum og tollurinn hækkað- ur úr 8 upp í 40 mörk pr. liter. 3. Lýsipgargjald og tóbakstollnr á að ferfaldast. 4. Drykkjarvatns-, gosdrykkja- og öltollur tvöfaldast. 5. Skattnr á banönum, döðlum, kaffi, the, kryddi, kakao og súkku- laði hækki um 8o%- 6. Kolatollur hækkar og á að nema 30% af andvirði kolanna. 7. Nýr veðreiðaskattur sé settur. 8. Skattur hækkaður á öllum bif- reiðum, þar með taldar flutninga1- bifreiðar. 9. Nýr tryggingaskattur. Af fast- eignum skal gjalda is pf. af hverj- um 1000 mörknm tryggingarupp- hæðarinnar og af lausafé 40 pf. Af líftryggingum skal goldið 4% af ið- gjaldinu. 10. Skattur af viðskiftaveltu dýr- ari gistihúsa og veitingahúsa skal tvöfaldaður. 11. Skattur á hluta-og samvinnu- félögum skal hækkaður þannig að hann fnemi alt að_30% af skatt- skyldum tekjum félaganna. 12. Nýr skattur á peningaum- setningu, íþar t’á meða ,alt að 7% skattur á hreifanlegu fé nýrra hluta- félaga. Kauphallarskatturinn sé hækk- aður að mun og einnig á að reyna að láta þennan skatt ná til gjald- eyris- »spekulationa«. 13. Nýr eignaskattur i stað »rik- isoffursins* sem nú tiðkast. 14. Eignaraukaskattur. Hann nær ekki til eigna innan við 100.000 mörk en 1% fyrir 125—200 mörk og smáhækkar siðan upp i 6%. 15. Sérstakur skattur á eignaauka, sem orðið hefir siðan i ófriðarlok. Beinu skattarnir virðast ekki vera ægilegir en óbeinu skattarnir, t. d. kolatollurinn hljóta að koma mjög tilfinnanlega niður. „IXION“ Cabin Biscuits (skipsbrauð) er búið til af mörg- um mismunandi tegundum sérstaklega hentagt fyrir íslendinga. í Englandi er „IXION“ brauð aðalfæöan um borð í fiski- skipnm. Fæst i öllum helztu verzlunum. Aðgætið að nafnið „IXION“ sé á hverri köku. Vörumerkið „IXION“ á kexi er trygging fyrir hollri og góðri fæðu. „IXION* Lunch og „IXION“ SnowHake Biscuits ósætt er óviðjafnanlegt með kaffi og te. Nýjasta konungsFÍkið. í síðasta mánuði var Emir Feycil krýndur konungur í Irak. Konungs- setrið nýja er í Bagdad. Feycil var áður kjörinn konungur Sýrlands af landslýðnum þar, en af því að hann vildi ekki viðurkenna i neinu yfir- ráð Frakka yfir landinu, hófu þeir ófrið gegn honum og var Gouraud hershöfðingi fyrir liði þeirra. Hrakti hann Feycal úr landi. Nú hefir hann tekið konungdóm í Irak, fyrir til- hjálp Eoglendinga, og er eigi fyrir það takandi, að hann nái einnig Sýrlandi undir sig síðar. Emir Feycal er með merkustu mönnum þar um slóðir, Asíubúi og Evrópumaður til samans. Hann er Arabi en hefir mentast i Evrópu, gekk á hákóla í Konstantinópel og lifði að því loknu Bedúinalifi í nokk- ur ár. Þegar hann kom til Sýrlands aftur var honum tekið með opnum örmum af þjóðinni og lét hann þá strax uppi þá fyrirætlun sína, að stofna sjálfstætt og voldugt Araba- riki i Vestur-Asiu. Var hann að leggja hyrningarsteininn að riki sinu þeg- ar Tyrkir sðgðu Bandamönnum stiíð á hendar, og hóf hann þá þegar uppreisn gegn Tyrkjum. Varð hon- um vel ágengt og kusu Sýrlending- ar hann til konungs yfir sig, bæði kristnir menn og Múhamedstrúar. Sýndi hann sig brátt afkastamikinn í friðsamlegum störfum og var si- vinnandi. í hinni stuttu stjórnartið hms voru stofnaðir 34 nýjar skólar i Iandinu. Landið var friðað og fram farir hófust. Gekk svo um sinn að Feycal tókst að halda friði við Frakka, þó nóg gæfust tilefnin til ófriðar. Loks urðu Sýrlendingar leiðir á að biða eftir viðurkenningu fullveldis sins, og gremja þeirra i garð Frakka, sem jafnan héldu til streitu umráða- rétti sinum yfir landinu, magnaðist mjög. Þá bar það við að flokkur kristinna manna, sem hafði stuðn- ing af Frökkum, réðist á Araba- höfðingjann Faur, og fór hann til Feycal og beiddist hjálpar. En áður en Feycal hafði gefið nokkuð svar sendi franpki hershöfðinginn Gou- raud Feycal úrsiitiboð, og krafðist þess, að hann léti af hendi við sig höfuðborgina Damaskus, allar járn- brautir og að frönsk mynt yrði lög- leidd í landinu. Auðvitað gat Feycil ekki oiðið við þessum kröfum og tók þá franski herinn landið, en Feycil fiýði. Eins og nærri má geta er grunt á því góða milli hans og Frakka síðan. Deila Tyrkja og Grikkja i gerð. Frá París er símað, að Konstantín Grikkja konnngur óski þess, að gerðardómur alþjóðasambandsins geri út um deilur Tyrkja og Grikkja út af löndam í Litlu-Asíu. (Grikkir hafa farið mjög halloka síðustu vikurnar i viðureign sinni við Tyrki. Hafði lukkan fylgt þeim um tíma og þeir höfðu náð Angora, höfuðborg Kemalista. En sú fram- sókn var meira aí kappi en forsjá, því brátt kom það í ljós, að þeir gátu ekki reist rönd við her Mustafa Kemals austur þar. Urðu þeir að láta undan siga, mistu Angora aftur og biðu mikið manntjón. Virðast Grikkir nú vera orðnir vonlitlir um að sigra Tyrki, fyrst Grikkjakon- ungur, sem stýrir hernum i Litlu- Asíu, vill láta alþjóðasambandið gera út um deiluna, því áður hefir ekki verið við það komandi af Grikkja hálfu. að nokkuð annað en vopnin skæru úr). Bréf frá Italiu. Eftir Siqfús Blöndal. Það er glæsileg þrenning — en þó Cavour líklega hafi verið hyggnast- ur og áhrifamestur gegn öðrum rikj- um af þessum þrem miklu mönnum, þá er enginn vafi á þvi að Garibaldi hefir verið o2 er langkærastur þjóð- inni. En hvorugur þeirra hefði þó einn fyrir sig getað áorkað miklu ef þeir hefðu ekki haft konung með sér, hreinskil.nn og djarfan föður- landsvin, sem beitti sér óspart þeg- ar þess þnrfti með. Hatm varð sam- 'einingarmerkið og það er i alla staði rétímætt að ítalir hafa nú i Rórn reist honum svo dýrðlegan minnis- varða, að líklega hefir enginn kon- ungur um víða veröld fengið slík- an. — En í hjarta hvers ítala — og eg vildi segja hvers manns sem kann að metr hreysti, föðutlandsást og ósérplægni á Garibaldi heiðnrs- sæti. Eg læt hugann reika víða og reyni að fá heildaryfirlit yfir ýmislegtsem eg hef séð og heyrt hér slðustu vikurnar. Þvi eg hef átl þvi láni að fagna a^ kynnast ýmsum mentuð- um ítölum, sumum gestum á hote',- inu, öðrum búsettum hér í bænum, og við höfum átt tal um hitt og þetta viðvíkjandi nútiðarmenningu ítala og ástandinu á vorum dögum. Þvi ber sist að neita að sumt er öðruvi'i hér en ætti að vera, og að ýms önnur lönd, og þá fyrst og fremst Norðurlönd, standa framar að sumu leyti. Þetta á einkum við á þeim sviðum sem lúta að starfsemi yfirvaldanna, landstjórn og lögreglu, póstmálum, jirnbrautum, hreinlæti og heilbrigðiseftirliti o. s. frv. — En þegar maður hugsar um, að eig- inlega eru aðeins rúm fimtiu ár sfð- an italska konungsrikið komst á stofn, verður manni heldur hitt á, að dást að því, hvað mikið hefir verið gert á svo stuttum tíma. Italir eru elsta menningarþjóð Norðurálfunnar eins og kunnugt er, þegar Grikkir eru undanskildir. Riki þeirra í fornöld, rómverska þjóðveld ið og keisaradæmið, breiddi grisku menninguna út yfir mestalla Norð- urálfuna.alla Norður-Afrikuog Fremri- Asíu, og breytti henni um leið tals- vert, rýrði hana að sömu leyti en jók hana mikið að öðru leyti. Eu er ríkið líður undir lok, fer að sumu leyti illa fyrir aðallandinu ítaliu. Ianrásir hálfmentaðra útlendra þjóða, skorturinn á daglegri miðstjórn, leið- ir til þess að hvor borg og hvert hérað verður að reyna að hjálpa sér sjálft. Miklagarðskeisarinn rómverski, sem að lögum var og taldi sig vera drottinn, gat sjaldnast gert neitt til að verja landið. Nú eru svo víða á ítaliu svo greinileg náttúrumörk milli héraða, samgöngur erfiðar og því landshlutar og ibúir þeirra afar- ólikir. Svo hefir það verið frá því landið bygðist og er svo enn. Róm- verjar gátu smámsamau komið öll- um þessum þjóðum til að leggjr niður frumtungur sínar (oskisku, etrúrisku, grisku, keltnesku og marg- ar aðrar tungur) og taka upp latín- una, sem upprunalega var aðeins mál fárra og fámennra þjóða í Mið- italiu, og þegar kristnin varð ríkis- trú Rómverja á siðari hluta ke'sira- tímabilsins varð hún líka til að bræð- þjóðina saman. Smámsaman breytt- ist svo, eins og kunugt er, latinan i ítölsku — með mörgnm máliýsk- um — og fornkristin trú í kaþólsku, og svo sigraði um 1300 flórentiska eða toskanska mállýskan, sem þeir Dante, Petrarea og Boccrccio gera að ritmáli allrar þjóðarinnar, og Rómaborg en ekki Mikligarðar verð- ur aðalhöfuðborg kristninnar í vest- urhluta álfunnar, og rómversk-ka- þólska kristnin þjóðkirkja ítala fyrst og fremst, og hún varð til að gefa ítölum alveg sérstaka stöðu gagn- vart öðram þjóðum sömu trúar á miðöldunam. Allir þurftu þangað að fara og af þeim að læra.. Því það var ekki litið af fornri menningu sem Italia geymdi, og þá fyrst og fremst kirkjan. En eins var um borg- irnar. Þó enginn keisari ríkti leng- ur i Róm, riktu þar rómversk lög og réttur, — oft breyttur og bjag- aður — en Corpus Juris Justinians keisara, hið mikla lagasafn frá lok- um fornaldarinnar, varð grundvallar- undirstaðan fyrir vísindalegri lögfræði og fyrir^löggjöf ítala áfram og allra þjóða sem af þeim lærðu.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.