Ísafold - 28.09.1921, Síða 4
*r> ■ •
ÍSAFOLD
T «
með innilegu þakklæti minnist eg í
dag hinna hraustu félaga minna,
sein aldrei urðu sigraðir á vígvellin-
um. í hreinu þ^sku trúlyndi unnu
þeir þau afrek gegn heilum heimi
af óvinum, sem sagan ekki þekkir
nein dæmi til. Hetjudáð þeirra
gleymist aldrei, þeir föllnu gera
þjóðinni heiður með minningu sinni,
en þeir eftirlifandi verða komandi
kynslóð til fyrirmyndar. Guð gefi
aö ljómi hinna liðnu fremdartíma
geti * orðið leiðarstjarna í nálægri
framtlð, sem ennþá er dimm. Guð
vaiðveiti ættjörðina*. Má af þessari
orðsending marka, að þrátt fyrir
alt hefirWilhelm keisari ekki breyst
til muna.
Fyrir tæpum mánnði var Erzber-
ger diepinn. Var enginn í vafa nm,
að morðið væri af stjórnmálaástæð-
um og lýðveldismenn sáu þar nýtt
merki um undirróðurinn gegn lýð-
veldinu. Erzberger var helsti maður
Miðflokksins þýska, og enginn var
1 vafa um, að mundi verða máttar-
stoð lýðveldisins framvegis, eins og
hann á undanförnum árum hafði
framkvæmt alt það, sem erfiðast var.
Morðið varð til þess, að lýðveldis-
sinnar héldu á ný samkomur um
alt landið, og i Berlin einni tóku
2 ^o.ooo manns þátt í samkomun-
um. En sama dag hélt Ludendorfl
fund með hermönnum. Þó eigi væru
þar viðstaddir nema 15.000 menn,
þá mega þetta samt tíðindi heita,
og hefði þótt óhugsandi fyrir einu
ári. A þessum fundi voru þýsku
prinsarnir i fullum hermannaskrúða
og gengu þeir fyrir fylkingar ásamt
börnum krónprinsins og voru sýnd
virðingarmerki á gamla þýska her-
mannavísu. Varð þetta til þess, að
sumir vildu láta visa allri ætt keis-
arans úr landi, áður en hún gerði
sig »seka i frekari landráðum*.
Morðingjir Erzbergers hafa ekki
fundist enn, og eiu talin lítil líkindi
til að þeir finnist nokkuin tíma. En
í leit sinni að morðingjunum hefir
lögreglan komist fyrir mjög viðtækt
samsæri gegn lýðveldinu, og hðfðu
samsærismenn ákveðið að mvrða
helstu menn í stjórninni. Scheide-
mann, fyrsti kanslari lýðveldisins,
fær hótunarbréf á hverjum einasta
degi.
I Bayern hefir afturhaldsmönnum
skapast öflugast fylgi og hafa hlot-
ist miklar deilur milli stjórnarinnar
þar og alríkisstjórnarinnar í Berlín.
öflugur flokkur manna vill láta
landið segja sig algerlega úr lögum
við þýska rikið, vegna þess að lýð-
veldisstjórn sé ekki í samræmi við
stefnu landsbúa. Stjórnin í Berlin
hefir haft hin mestu óþægindi af
þessari deilu, og gæti það orðið
upphaf að algerðu hruni þýska rik-
isins, ef einstök sambandsriki færu
að segja sig úr þýska sambandinu.
En Frakkar mundu taka því fegins
hendi.
A þeim erfiðleikatimum sem nú
eru hjá þýsku þjóðinni, er ávalt
hægt að vekja sundrung og hvetja
til byltinga. Junkaraflokkurinn lofar
þjóðinni öllu góðu, ef breytt verði
um stjórnarskipun: þá muni fást
endurskoðun á friðarsamningunum
og skaðabótakröfunum verði létt af.
En þau loforð eru gefin upp í erm-
ina sina. Allir vita, að þegar banda-
menn á sínum tima voru að tala
um frið, áður en stríðinu lauk end-
anlega, þá var það jafnan viðkvæð-
ið, að aldrei skyldi saminn friður
við Þýskaland, sem keisaradæmi,
heldur yrði stjórnarfarið að gerbreyt-
ast áður. Það nær þvi ekki nokk-
urri átt, að Þjóðverjar fengju bætta
kosti sina við það að breyta um
stjórnarfar. Hitt er öllu líklegra, að
bandamenn færu í nýtt strið, ef til
þess kæmi að afturhaldsstjórn kæmi
í Þýzkalandi á ný.
Fjárhagur Þýskalands.
Mörgum er þaö raðgáta, hvernig
Þjóðverjar hugsi sér að risa undir
skaðabótnnnm, sem þeir hafa geng-
ist undir að greiða bandamönnum á
næstu áratugum, jafnframt því að
bæta alt það sem aflaga hefir farið
innanlands. Framleiðslan er vitan-
lega aðalatriðið ug Þjóðverjar hafa
nægan markað fyrir alla sína fram-
leiðslu og gnótt hráefna í landinu.
En þrátt fyrir dugnað og landgæði
hallast margir fjármálamenn að þeirri
skoðun að rikið geti ekki staðis-
álögurnar og að gjaldþrot Þýska-
lands sé þegar fyrirsjáanlegt.
Ráðuneyti Wirths vinnur nú ötul-
lega að þvi að reyna aðkomaskipu-
lagi á fjármál rikisins og gera yfirlit
yfir fjárhaginn og rannsaka á hvern
hátt megi vinna bug á örðugleik
unum. Störf stjórnarinnar er varða
eitt atríði þessa máls, sem sé það
á hvern hátt rikissjóði skuli aflað
tekna, hafa nú borið sýnilegan ávöxt,
þar sem eru skattafrumvörpin nýju.
Koma þau óþyrmilega við pyngju
almennings og hafa mjög verið not-
uð til andróðurs gegn stjórninni,
enda er hækkun skatta og tolla ávalt
vel til þess fallin.
Hér skulu taldar nokkrar tillögur
fjármálastjórnarinnar þýsku:
1. Sykurtollurinn skal hækkaður
úr 14 upp i 100 mörk fyrir hver
100 kg.
2. Ríkiseinkasala lögleidd á brend-
um drykkjum og tollurinn hækkað-
ur úr 8 upp í 40 mörk pr. liter.
3. Lýsipgargjald og tóbakstollnr
á að ferfaldast.
4. Drykkjarvatns-, gosdrykkja- og
öltollur tvöfaldast.
5. Skattnr á banönum, döðlum,
kaffi, the, kryddi, kakao og súkku-
laði hækki um 8o%-
6. Kolatollur hækkar og á að
nema 30% af andvirði kolanna.
7. Nýr veðreiðaskattur sé settur.
8. Skattur hækkaður á öllum bif-
reiðum, þar með taldar flutninga1-
bifreiðar.
9. Nýr tryggingaskattur. Af fast-
eignum skal gjalda is pf. af hverj-
um 1000 mörknm tryggingarupp-
hæðarinnar og af lausafé 40 pf. Af
líftryggingum skal goldið 4% af ið-
gjaldinu.
10. Skattur af viðskiftaveltu dýr-
ari gistihúsa og veitingahúsa skal
tvöfaldaður.
11. Skattur á hluta-og samvinnu-
félögum skal hækkaður þannig að
hann fnemi alt að_30% af skatt-
skyldum tekjum félaganna.
12. Nýr skattur á peningaum-
setningu, íþar t’á meða ,alt að 7%
skattur á hreifanlegu fé nýrra hluta-
félaga. Kauphallarskatturinn sé hækk-
aður að mun og einnig á að reyna
að láta þennan skatt ná til gjald-
eyris- »spekulationa«.
13. Nýr eignaskattur i stað »rik-
isoffursins* sem nú tiðkast.
14. Eignaraukaskattur. Hann nær
ekki til eigna innan við 100.000
mörk en 1% fyrir 125—200 mörk
og smáhækkar siðan upp i 6%.
15. Sérstakur skattur á eignaauka,
sem orðið hefir siðan i ófriðarlok.
Beinu skattarnir virðast ekki vera
ægilegir en óbeinu skattarnir, t. d.
kolatollurinn hljóta að koma mjög
tilfinnanlega niður.
„IXION“ Cabin Biscuits (skipsbrauð) er búið til af mörg-
um mismunandi tegundum sérstaklega hentagt fyrir íslendinga.
í Englandi er „IXION“ brauð aðalfæöan um borð í fiski-
skipnm.
Fæst i öllum helztu verzlunum.
Aðgætið að nafnið „IXION“ sé á hverri köku.
Vörumerkið „IXION“ á kexi er trygging fyrir hollri og
góðri fæðu.
„IXION* Lunch og „IXION“ SnowHake Biscuits
ósætt er óviðjafnanlegt með kaffi og te.
Nýjasta konungsFÍkið.
í síðasta mánuði var Emir Feycil
krýndur konungur í Irak. Konungs-
setrið nýja er í Bagdad. Feycil var
áður kjörinn konungur Sýrlands af
landslýðnum þar, en af því að hann
vildi ekki viðurkenna i neinu yfir-
ráð Frakka yfir landinu, hófu þeir
ófrið gegn honum og var Gouraud
hershöfðingi fyrir liði þeirra. Hrakti
hann Feycal úr landi. Nú hefir hann
tekið konungdóm í Irak, fyrir til-
hjálp Eoglendinga, og er eigi fyrir
það takandi, að hann nái einnig
Sýrlandi undir sig síðar.
Emir Feycal er með merkustu
mönnum þar um slóðir, Asíubúi og
Evrópumaður til samans. Hann er
Arabi en hefir mentast i Evrópu,
gekk á hákóla í Konstantinópel og
lifði að því loknu Bedúinalifi í nokk-
ur ár. Þegar hann kom til Sýrlands
aftur var honum tekið með opnum
örmum af þjóðinni og lét hann þá
strax uppi þá fyrirætlun sína, að
stofna sjálfstætt og voldugt Araba-
riki i Vestur-Asiu. Var hann að leggja
hyrningarsteininn að riki sinu þeg-
ar Tyrkir sðgðu Bandamönnum stiíð
á hendar, og hóf hann þá þegar
uppreisn gegn Tyrkjum. Varð hon-
um vel ágengt og kusu Sýrlending-
ar hann til konungs yfir sig, bæði
kristnir menn og Múhamedstrúar.
Sýndi hann sig brátt afkastamikinn
í friðsamlegum störfum og var si-
vinnandi. í hinni stuttu stjórnartið
hms voru stofnaðir 34 nýjar skólar
i Iandinu. Landið var friðað og fram
farir hófust. Gekk svo um sinn að
Feycal tókst að halda friði við Frakka,
þó nóg gæfust tilefnin til ófriðar.
Loks urðu Sýrlendingar leiðir á
að biða eftir viðurkenningu fullveldis
sins, og gremja þeirra i garð Frakka,
sem jafnan héldu til streitu umráða-
rétti sinum yfir landinu, magnaðist
mjög. Þá bar það við að flokkur
kristinna manna, sem hafði stuðn-
ing af Frökkum, réðist á Araba-
höfðingjann Faur, og fór hann til
Feycal og beiddist hjálpar. En áður
en Feycal hafði gefið nokkuð svar
sendi franpki hershöfðinginn Gou-
raud Feycal úrsiitiboð, og krafðist
þess, að hann léti af hendi við sig
höfuðborgina Damaskus, allar járn-
brautir og að frönsk mynt yrði lög-
leidd í landinu. Auðvitað gat Feycil
ekki oiðið við þessum kröfum og
tók þá franski herinn landið, en
Feycil fiýði. Eins og nærri má geta
er grunt á því góða milli hans og
Frakka síðan.
Deila Tyrkja og Grikkja
i gerð.
Frá París er símað, að Konstantín
Grikkja konnngur óski þess, að
gerðardómur alþjóðasambandsins geri
út um deilur Tyrkja og Grikkja út
af löndam í Litlu-Asíu.
(Grikkir hafa farið mjög halloka
síðustu vikurnar i viðureign sinni
við Tyrki. Hafði lukkan fylgt þeim
um tíma og þeir höfðu náð Angora,
höfuðborg Kemalista. En sú fram-
sókn var meira aí kappi en forsjá,
því brátt kom það í ljós, að þeir
gátu ekki reist rönd við her Mustafa
Kemals austur þar. Urðu þeir að
láta undan siga, mistu Angora aftur
og biðu mikið manntjón. Virðast
Grikkir nú vera orðnir vonlitlir um
að sigra Tyrki, fyrst Grikkjakon-
ungur, sem stýrir hernum i Litlu-
Asíu, vill láta alþjóðasambandið gera
út um deiluna, því áður hefir ekki
verið við það komandi af Grikkja
hálfu. að nokkuð annað en vopnin
skæru úr).
Bréf frá Italiu.
Eftir Siqfús Blöndal.
Það er glæsileg þrenning — en þó
Cavour líklega hafi verið hyggnast-
ur og áhrifamestur gegn öðrum rikj-
um af þessum þrem miklu mönnum,
þá er enginn vafi á þvi að Garibaldi
hefir verið o2 er langkærastur þjóð-
inni. En hvorugur þeirra hefði þó
einn fyrir sig getað áorkað miklu
ef þeir hefðu ekki haft konung með
sér, hreinskil.nn og djarfan föður-
landsvin, sem beitti sér óspart þeg-
ar þess þnrfti með. Hatm varð sam-
'einingarmerkið og það er i alla staði
rétímætt að ítalir hafa nú i Rórn
reist honum svo dýrðlegan minnis-
varða, að líklega hefir enginn kon-
ungur um víða veröld fengið slík-
an. — En í hjarta hvers ítala — og
eg vildi segja hvers manns sem
kann að metr hreysti, föðutlandsást
og ósérplægni á Garibaldi heiðnrs-
sæti.
Eg læt hugann reika víða og reyni
að fá heildaryfirlit yfir ýmislegtsem
eg hef séð og heyrt hér slðustu
vikurnar. Þvi eg hef átl þvi láni að
fagna a^ kynnast ýmsum mentuð-
um ítölum, sumum gestum á hote',-
inu, öðrum búsettum hér í bænum,
og við höfum átt tal um hitt og
þetta viðvíkjandi nútiðarmenningu
ítala og ástandinu á vorum dögum.
Þvi ber sist að neita að sumt er
öðruvi'i hér en ætti að vera, og að
ýms önnur lönd, og þá fyrst og
fremst Norðurlönd, standa framar að
sumu leyti. Þetta á einkum við á
þeim sviðum sem lúta að starfsemi
yfirvaldanna, landstjórn og lögreglu,
póstmálum, jirnbrautum, hreinlæti
og heilbrigðiseftirliti o. s. frv. —
En þegar maður hugsar um, að eig-
inlega eru aðeins rúm fimtiu ár sfð-
an italska konungsrikið komst á
stofn, verður manni heldur hitt á,
að dást að því, hvað mikið hefir
verið gert á svo stuttum tíma.
Italir eru elsta menningarþjóð
Norðurálfunnar eins og kunnugt er,
þegar Grikkir eru undanskildir. Riki
þeirra í fornöld, rómverska þjóðveld
ið og keisaradæmið, breiddi grisku
menninguna út yfir mestalla Norð-
urálfuna.alla Norður-Afrikuog Fremri-
Asíu, og breytti henni um leið tals-
vert, rýrði hana að sömu leyti en
jók hana mikið að öðru leyti. Eu
er ríkið líður undir lok, fer að sumu
leyti illa fyrir aðallandinu ítaliu.
Ianrásir hálfmentaðra útlendra þjóða,
skorturinn á daglegri miðstjórn, leið-
ir til þess að hvor borg og hvert
hérað verður að reyna að hjálpa sér
sjálft. Miklagarðskeisarinn rómverski,
sem að lögum var og taldi sig vera
drottinn, gat sjaldnast gert neitt til
að verja landið. Nú eru svo víða
á ítaliu svo greinileg náttúrumörk
milli héraða, samgöngur erfiðar og
því landshlutar og ibúir þeirra afar-
ólikir. Svo hefir það verið frá því
landið bygðist og er svo enn. Róm-
verjar gátu smámsamau komið öll-
um þessum þjóðum til að leggjr
niður frumtungur sínar (oskisku,
etrúrisku, grisku, keltnesku og marg-
ar aðrar tungur) og taka upp latín-
una, sem upprunalega var aðeins
mál fárra og fámennra þjóða í Mið-
italiu, og þegar kristnin varð ríkis-
trú Rómverja á siðari hluta ke'sira-
tímabilsins varð hún líka til að bræð-
þjóðina saman. Smámsaman breytt-
ist svo, eins og kunugt er, latinan
i ítölsku — með mörgnm máliýsk-
um — og fornkristin trú í kaþólsku,
og svo sigraði um 1300 flórentiska
eða toskanska mállýskan, sem þeir
Dante, Petrarea og Boccrccio gera
að ritmáli allrar þjóðarinnar, og
Rómaborg en ekki Mikligarðar verð-
ur aðalhöfuðborg kristninnar í vest-
urhluta álfunnar, og rómversk-ka-
þólska kristnin þjóðkirkja ítala fyrst
og fremst, og hún varð til að gefa
ítölum alveg sérstaka stöðu gagn-
vart öðram þjóðum sömu trúar á
miðöldunam. Allir þurftu þangað að
fara og af þeim að læra.. Því það
var ekki litið af fornri menningu
sem Italia geymdi, og þá fyrst og
fremst kirkjan. En eins var um borg-
irnar. Þó enginn keisari ríkti leng-
ur i Róm, riktu þar rómversk lög
og réttur, — oft breyttur og bjag-
aður — en Corpus Juris Justinians
keisara, hið mikla lagasafn frá lok-
um fornaldarinnar, varð grundvallar-
undirstaðan fyrir vísindalegri lögfræði
og fyrir^löggjöf ítala áfram og allra
þjóða sem af þeim lærðu.