Ísafold - 20.09.1927, Side 4
4
I S A F 0 L D
Slysfarir uestra.
Mann tekur út af vjelbátnum i
„Eggert Ólafssyni“.
Tveir aðrir menn á bátnum
hætt komnir.
IVIaltöl
Bajersktöl
Pilsner.
Best. - Odýrast.
Ismlent.
Ókeypis
■og burðargjaldsfrítt sendum vjer
hinn hagkvæma, mvndauðga verð-
flista vorn yfir gúmmí, hreinlætis
•og gamanvörur, ásamt úrum, bók-
um og póstkortum.Samariten, Afd.
68, Köbenhavn K.
Prjónavjelar
af ýmsum stærðum
fást hjá
Magnús Benjamínsson & Co.
Veltusund 3.
Saumavjelar
stígnar og handsnúnar.
Fjölbreytt lírval.
Magnús Benjamínsson & Co.
Veltusund 3.
Alt tjónið af brunanum taldi
Holdöe mundi verða um 500 þús.
krónur.
Alt var vátrygt, hús, síldarmjö),
«í!darolía og óunna síldin í bingj-
tmum. Var verksmiðjan og önnur
hús vátrygð hjá ensku fjelagi, en
<ekki var Holdöe kunnugt um, hvar
vörubirgðir voru vátrygðar.
Ekki var slökt í brunarústun-
um fyr en seint á sunnudagsnótt-.
ina. Vakti brunalið Akureyrar-
bæjar og aðrir aðstoðarmenn á'
vettvangi fram tmdir morgun til j
þess að kæfa eldinn og vera til
taks, ef vindstaða breyttist og I
æsti eldinn á ný. En undir morg-j
uninn var bálið kæft að fullu og j
•drepið að mestu í glæðunum. En I
brunasvæðið er stórt og tók lang-
a,n tíma og mikið erfiði að ganga (
svo frá rústunum, a,ð hvergi leynd-
ást eldur.
Á föstudag kom til Hnífsdals
vjelbáturinn Eggert Olafsson, eign
Hálfdánar Hálfdánarsonar hrepp-
stjóra. Vrar báturinn á handfæra-
veiðum, en lenti í norðangarðin-
um, sem. verið hefir síðustu daga.
Fjekk hann það áfall í ferðinni,
að einn mann tók út, og náðist
hann ekki aftur.
Báturinn var norður af Kögri,
þegar hann fjekk brotsjóinn, á
heimleið og hafði sjó og vind á
eftir. Þrír menn voru uppi, skip-
stjóri, stýrimaður og Jón Jóhanns-
son, sá er út tók og druknaði. —
Voru formaður og stýrimaður í
stvrishúsinu, en Jón stóð á vjel-
arhúsinu og hjelt sjer með ann-
ari hendi í stýrishúsið en hinni í
smábát, er bjekk á „daviðum“.
Kom þá stórsjór mikill og hvolfd-
ist yfir bátinn, sleit smábátinn af
stólpunum, braut húsið af og sóp-
aði öllum mönnunum þremur út-
byrðis og kastaði'bátnum um leið
svo á hliðina, að sjór lá í segli.
Stýrimaður náði í borðstokk
bátsins, og fjekk svamlað upp í
hann aftur. Þá vildi og skipstjóra
það til lífs, að hann náði af til-
viljun í kaðal, er flaut út af bátn-
um, og gat hann handstyrkt sig
eftir honum í bátinn aftur. En
Jón heitinn var horfinn í djúpið.
Báturínn lá gersamlega á hlið-
inni, og töldu skipverjar hverja
stund sína síðustu. En þá rifnaði
seglið, og slepti sjónum og rjett-
ist þá báturinn ofurlítið. Og eftir
það fengu þeir lagfært svo fisk
í lestinni, en liann hafði kastast
allur í aðra hliðina, að þeir komu
bátnum nokkurn veginn á rjettan
kjðl.
Er svo sagt í símtali að vestan,
að mjög hafi munað litlu, að bát-
•urinn færist þama með öllum
mönnum.
Jón heitinn Jóhannsson var ung
ur maður einhleypur, ættaður úr
Hnífsdal.
Gamalt og nýtt
kallar dómsmálaráðherrann lang-
loku eina, er hann skrifar í Tím-
ann, og er mest sjálfhól sem að
vanda lætur. Hann ætlast tiJ þess
að tímamót verði talin er hann
komst til valda.
Má að ýmsu leyti til sanns vegar
færa. Það er nýtt í stjórnmálasögu
landsins að dómsmálaráðherra
1) virði gildandi lög að vettugi,
2) skrifi slefsögur í blöð,
3) þakki sjer ýms framfaramái,
sem ótal menn aðrir hafa starfað
að, og sje svo blindur í sjálfhólinu,
að hann fari með vísvitandi ósann-
indi.
Verður vikið að grein hans síðar!
Frjettir.
Tilraunir með verkfæri.
Stjórn Búnaðarfjelags ísland.s
skipaði þriggja manna nefnd í
vetur til þess að gera tilraunir
með jarðabótaverkfæri o. s. frv.
Var nefndarskipunin samkvæmt
ályktun síðasta Búnaðarþings. —
Stjórnin valdi þessa menn í nefnd-
ina: ‘Halldór Vilhjálmsson skóia-
stjóra, Hvanneyri, Árna G. Ly-
land verkfæraráðunaut og Magn-
ús bónda Þorláksson á Blikastöð-
*im og fara tilraunirnar fram á
bújörð hans. Tilraunirnar hófust
í vor og voru þá plægðar og herfað
ar nokkrar spildur, og sáð höfr-
um í sumar, en höfrum og gras-
fræi í sumar. Nú eru nefndarmenu
á Blikastöðum við framhaldstil-
raunir. Munu spildurnar hafa
verið slegnar í gær. Auk plóga
og herfa munu vera gerðar til-
raunir með notkun rakstrarvjela
og sláttuvjela. Á verkfærum þeim,
sem reynd eru, er hafður átaks-
mælir, sem sýnir hve þung verk-
færin reynast í drætti. Verkfærm
öll eru mæld og vegin og gerð ná-
kvæm lýsing af hverju einstöku,
en frá árangrinum af tilraununum
verður sagt. í skýrslu nefndarinn-
ar til Bimaðarfjelagsins, og verð-
ur hún að sjálfsögðu á sínum tíma
birt í Búnaðarrritinu, eins og
venja er um skýrslur til þess fjc-
lags. (FB.)
Búnaðarfjelag íslands
og hrútasýningar.
Búnaðarfjelag íslands tilkynnir
FB. þ. 17. sept.:
Búnaðarfjelag íslands hefir ráð-
ið Steingírm kennara Steinþórsson
á Hvanneyri til þess að vera, af
þessu hálfu, á hrútasýningum þeim
er haldnar verða í haust á Vest-
fjörðum, Dala-, Snæfellsness og
Hnappadalssýslu. Sýningarnar
byrja í Strandasýslu 26. þ. m., en
á að verða lokið 2. nóv. á Snæ-
fellsnesi sunnanverðu og eiga að
verða alls 29, ef engir skerast úr.
Fjelagið leggur til helming til
verðlaunanna móti hreppunum. í
sambandi við sýningarnar flytur
Steingrímur erindi um sauðfjár-
rækt, eftir því sem við verður
komið.
Nefndir. í milliþinganefnd í
landbúnaðarmálum hefir stjórnin
skipað Bernharð Stefánsson frá
Þverá. Aðrir nefndarmenn tfr kosn-
íir voru á þingi eru þeir Þórar-
inn á Hjaltabakka og Jörundur
Brynjólfsson.
1 útvarpsnefnd, með landssíma-
stjóra og Ludvig Guðmundssym,
hefir stjórnin skipað Pál E. Óla-
son, prófessor.
Sveinn Bjömsson sendiherra var
meðal farþega hingað á Drotning-
unni. Hann hefir altaf komið hing-
að heim einu sinni á ári, þau ár,
sem hann hefir gegnt sendiherra-
störfum. Hefir hann talið það nauð
synlegt, til þess að geta fylgst full-
komlega með ýmsum atburðum og
málum hjer heima.
Úttektamefnd Landsbankans hef
ir nú rannsakað útibúin á ísafirði,
Akureyri og Eskifirði, en Selfoss
útibúið er eftir. Til Eskifjarðar
•fóru þeir Ólafur Johnson konsúll
og Björn Árnason. — Þeir komu
liingað til bæjarins á laugardag-
inn var.
Jakob Möller bankaeftirlitsmað-
ur var meðal farþega á Drotning-
unni. Kom hann af fundi banka-
eftirlitsmanna er haldinn var 5
St okkhólmi.
Stefán Jóhann Stefánsson er
tengið hefir undir nafninu hæg-
&ra jafnaðarmaður, en er í eðli
sínu einhver mesta höfðingja-
sleikja á landi hjer, leyfir sjer í
Alþýði’oiaðinu að tála um hneyksl-
anlega afstöðu Morgunblaðsins í
Sacco-Vanzetti-málinu vegna þess,
að Morgunblaðið benti á, að hið
ameríska hneykslismál væri smá-
munir einir hjá bfbeldis- og hryðju
verkum þeim, sem framin eru í
Kússlandi, og sem blað Stefáns
mælir bót.
Fáfræði alþýðunnar talar Ólaf-
ur Friðriksson um í Alþbl. í gær,
og segir m. a., að íhaldsmenn noti
sjer hana. Ef Ólafur væri vitund-
arögn skynsamari en hann er, þá
myndi hann ehki höggva svona
nálægt sjer. — Fáfræði almenn-
ings er og hefir nú um skeið ver-
ið viðhaldsfóður Ólafs Friðriksson-
ar. Vegna fáfræði þeirrar, sem því
rniður ríkir hjer enn á sviði at-
1
Ef yður líkar ekki
viðskiftin, þar sem þið versiið nú,
þá reynið ad skifta við
V. B. K.
það hefir mðrgum manninum gefist vel,
enda hefir verslunin starfað um 40 Ar, og
hefir þvi gðmul og reynd verslunarsam-
bðnd, og jafnframt þekkingu til að velja
vandaðar vðrur fyrir hjerlent hæfi.
Verslunin hefir nú miklar birgðir af:
Vefnaðarvörum
og flestu þeim tilheyrandi.
Pappír og Ritföngum.
Leðri og Skinni
og flest tilheyrandi skó- og sððlasmiðí.
Saumavjelar
f rá DURKOPP - verksmiðjunni á Þýska-
landi sem almanna loff hafa fengið þar i
landl, sem hjer.
CONKLIN’S lindarpennar og blýantar.
VIKING blýantar.
SUNDSTRAND og FACIT reiknivjelar.
ÍSLENSK FLOGG af ýmsum stærðum.
Vðrur afgreíddar um alt land gegn póstkr.
I
I
1
i
I
Reykjavík.
Bókaverslun ísafoldar
hefir altaf fyrirliggjandi mikið úrval af: allskonar papp-
ír og umslögum, reikningsfærslubókum, nýtísku skrif-
stofuáhöldum. — Þar fást einnig íslenskar og útlendar
(danskar, nor?kar, franskar, enskar, þýskar)
BÆKUR.
Harmoniumskólar, píanóskólar, guitarskólar o. s. frv, allar
hinar nauðsynlegustu
NÓTUR
til skólanotkunar, einnig allskonar
SKÓLAÁHOLD.
Það sem ekki er fyrirliggjandi af t. d. útlendum bók-
um og tímaritum o. s. frv., verður pantað eftir beiðni, og
kemur þá að jafnaði með allra fyrstu ferð.
Bókaverslnn Isaioldar,
vinnumála hefir Ólafi og fylgi-
fisknm hans tekist að blinda fólk
meö ofstækisrugli. Hvað er það
annað en fáfræði einber, sem leið-
ir fólk til fylgis við rússneska
kommúnista, stjórnlausa angur-
gapa, sem svífast einkis í hryðju-
verkum og sigla öllum atvinnu-
fyrirtækjum í strand? — Ólafur
Friðriksson og hans nótar eiga sjer
engann verri óvin en mentun al-
þýðu.